Tíminn - 17.05.1978, Blaðsíða 8
8
Miðvikudagur 17. mai 1978
-BORGARMÁL __________________
Eiríkur Tómasson:
Efla ber starfsemi hinna
frjálsu félagasamtaka
— en draga i staðinn úr launuðu starfi á vegum æskulýðsráðs
Aætlað er að heildarútgjöld
borgarsjóðs nemi tæpum 15
milljörðum króna á yfirstand-
andiári. Af þessari háu upphæð
renna á að gizka 100 milljónir
króna til allra þeirra fjölmörgu
áhugafélaga sem starfa hér i
Reykjavik — þó að undanskild-
um iþróttafélögunum, sem fá i
sinn hlut 82,4 milljónir króna, en
sú fjárhæð nægir þó hvergi
nærri til að standa undir rekstri
félaganna. A sama tima er 104,4
milljónum króna varið til starf-
semi æskulýðsráðs, en stærstur
hluti þeirra útgjalda er laun
fastráðinna og lausráðinna
starfsmanna.
Hið opinbera
á að styðja —
en ekki stjórna
Framsóknarflokkurinn hefur
félagshyggju að leiðarljósi.
Flokkurinn vill styðja og
styrkja félagasamtök áhuga-
fóUcs og telur bæöi fé og fyrir-
höfn vel variði þágu slikra sam-
taka. Starfsemi hinna frjálsu
félagasamtaka á ekki að lúta
stjórn hins opinbera, heldur
eiga sveitarfélög — og reyndar
rikið einnig — að láta samtök-
unum i té alla þá aðstoð sem
hægt er að veita, hvort sem hún
kemur fram i formi beinna f jár-
styrkja eða með öðrum hætti.
Við þekkjum öll dæmi þess að
félagsstarf liður fyrir eilifan
fjárskort. Verkefni forystu-
manna sem á fyrst og fremst að
vera félagsleg forysta verður
oft og tiðumlitið annað en eilift
strit við fjáröflun. Ekkihefégá
móti þvi að menn leggi eitthvað
á sig tU að afla fjár til
heilbrigðrar félagsstarfsemi.
En þaðmáekki gera þeim sem i
félögunum starfa svo erfitt fyrir
að fátt annað komist að en
sifeUd leit að nýjum fjáröflun-
arleiðum.
Stjórn á öllu
tómstundastarfi
verði samræmd
í samræmi við það sem ég hef
nú sagt er að minum dómi tima-
bært að gera allverulegar
breytingar á skipulagi æsku-
lýðs-og tómstundastarfs á veg-
um Reykjavikurborgar:
Ég tel æskilegt, að stjórn á
öUu tómstundastarfi i borginni,
jafnt fyrir unga sem aldna,
verði framvegis i höndum eins
aðila, t ó m s t u nd a r á ð s .
Æskulýðsráð verði lagt niður,
en svonefnt tómstundaráð, skip-
að fulltrúum.borgarstjórnar og
hinna frjálsu félagasamtaka i
borginni, leysi það af hólmi. Hið
ný ja tómstundaráð ætti að minu
áliti ekki að vera fjölmennt —
hæfilegur fjöldi ráðsliða væri
11-13, þar af 5 kjörnir af borgar-
stjórn. Hinir 6-8 yrðu sem fyrr
segir fuUtrúar hinna frjálsu
félagasamtaka þannig að hver
hópurfélaga, t.d. iþróttafélögin,
ættu jafnan sinn málsvara i ráð-
inu.
Félagsmálastofnun Reykja-
vikurborgar á að minni hyggju
að sjá um allt tómstundastarf á
vegum borgarinnar. Slikt er
einfaldast i sniðum, enda hefur
stofnunin i dag umsjón með
félagsstarfi fyrir aldraða og
svonefnd útideild unglinga
starfar að hluta á hennar veg-
um.
Veita þarf
meira fé til
áhugafélaga
Veigamesta nýjungin sem
taka á upperþótvimælalaust sú
að hinum frjálsu félagasamtök-
um — iþróttafélögum, skóla-
félögum eða skátafélögum, svo
að örfá dæmi se'u nefnd,verði
falið að halda uppi opnu
tómstundastarfi i öllum borgar-
hverfum undir umsjá
tómstundaráðs. Jafnframt
þyrfti ráðið að stuðla að þvi, t.d.
með aðstöðu og fjárveitingum,
að þeir sem einhverra hluta
vegna kjósa að standa utan við
núverandi félög geti myndað
með sér ný félög eða klúbba til
að vinna að áhugamálum sin-
um eða veita sér annars konar
dægrastyttingu.
Þessi breyting hefði það i för
með sér að hægt væri að fækka
til muna launuðum starísmönn-
um æskulýðsráðs. Þeim tugum
milljóna króna sem þannig
spöruðust mætti úthluta til
hinna frjálsu félagasamtaka. Sú
fjárveiting veit ég að yrði mörg-
um kærkomin þótt hún næmi
ekki nema nokkur hundruðum
þúsunda króna á hvert meðal-
stórt félag og útheimti að auki
að félagsmenn legðu á sig
nokkra sjálfboðavinnu. Ég er
sannfærður um að breyting af
þessu tagi yrði æskulýðs- og
tómstundastarfihér i Reykjavik
til framdráttar, öllum til góðs.
Sú hefur a.m.k. orðið raunin i
þeim sveitarfélögum þar sem
hliðstætt fyrirkomulag á skipu-
lagi tómstundastarfs hefur
verið tekið upp.
Það hefur stundum heyrzt aö
Reykjavik væri dauf og leiðin-
leg borg. Ég tel að gera megi
borgina okkar liflegriog um leið
skemmtilegri með þvi að fjölga
tækifærum okkar til að njóta
tómstundanna á hollan og heil-
brigðan hátt. Bezta leiðin til
þess er að efla hið frjálsa
félagastarf i stað þess að drepa
það i dróma eins og borgar-
stjórnarmeirihlutinn hefur
óneitanlega reynt með fjársvelti
og ofstjórn.
Útboð
Framkvæmdanefnd leiguibúða á
Hvammstanga óskar hér með eftir tilboð-
um i byggingu 5 ibúða raðhúss á
Hvammstanga.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Hvammstanga-
hrepps og hjá Staðalhúsum s.f. Suðurlandsbraut 20,
Reykjavik gegn 20 þúsund kr. skilatryggingu.
Tilboö verða opnuð á skrifstofu Hvammstangahrepps kl.
11 f.h. föstudaginn 9. júni 1978.
Borgarnes - Girðing
Tilboö óskast i að reisa sauðfjárgirðingu
ofan byggðar i Borgarnesi.
Vegalengd um 5,5 km.
Upplýsingar gefur hreppstæknifræðingur
á skrifstofu Borgarneshrepps.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Borgar-
neshrepps kl. 14 þriðjudaginn 23. mai.
Hreppstæknifræðingur.
Vesturlandskjördæmi
Aðsetur yfirkjörstjórnarVesturlandskjör-
dæmis, vegna alþingiskosninganna 25.
júni 1978, verður i hótelinu i Borgarnesi.
Framboðum veröur veitt móttaka á aösetri kjörstjórnar-
innar miðvikudaginn 24. mai 1978 frá klukkan 14.00.
Framboðslistar veröa teknir til úrskuröar á fundi yfir-
kjörstjornar sem hefst á ofangreindum stað fimmtudag-
inn 25. mai 1978 kl. 14.00.
Yfirkjörstjórn Vesturlandskjördæmis.
Þangskurðarmenn keppast
við þegar veður er gott
— en hvila sig og búast undir átökin á ný þegar
veður eru verri
Það er ljóst að Austur-Barða-
strandasýsla stendur og fellur
með Þörungaverksmiðjunni, og
þvi þarf að leggja alla áherzlu á
að hún geti starfað áfram, sagði
Jón Arni Sigurðsson á Skerð-
ingsstöðum i samtali við Tim-
ann.
Jón Arni kvað þangöflunina
veraorðna örugga eftir að farið
var að handskera þangið jafn-
framt þvi, sem prammarnir eru
notaðir við skurðinn. Og daginn
sem rætt var við Jón Arna voru
menn frá Orkustofnun að vinna
að borunum eftir heitu vatni
fyrir verksmiðjuna og ef nægj-
anlegt heitt vatn finnst ættí aö
verða rnun bjartara yfir starf-
semi verksmiðjunnar i framtið-
inni.
— Það þurfa helzt að vera
fjórir menn f hverju gengi, þ.e.
á hverjum pramma, sagöi Jón
Arni. Við skerum eins mikið
með prammanum og hægt er og
er alltaf einn maður um borð i
honum og stjórnar pramm-
anum. Hinir fara upp á skerin i
Jón Arni Sigurðsson.
útfallinu og leggja þar til þess
gerða nót. Síðan slá þeir meö
orfi og ljá allt þar til nær alveg
er fallið að á ný. Þá er netið
dregið saman utan um þangið
og síðan er komið með pramm-
ann og tekur hann þá þangið
upp.
Hver maður slær þetta þrjár til
sex lestir af þangi á út- og að-
fallinu og höfum við af þessu
mjög þokkalegar tekjur. Við
vinnum jafnan mikið þegar gott
er veður, en okkur finnst borga
sig að láta allan skurð eiga sig
þegar verra veður er einn og
einn dag. Þetta er það erfið
vinna að okkur veitir ekkert af
hvildöðru hvoru.Afköstin verða
líka meiriþá daga, sem unnið er
ef við tökum okkur fri öðru
hvoru.
1 fyrra voru fjögur gengi sem
unnu að þangöfluninni. Alls eru
til 10 prammar þannig að auð-
velt er að afla mun meira
þangs, en gert var i fyrra. Von
manna er þvi að nægjanlegt
heitt vatn finnist, þvi þá telja
menn framtið verksmiðjunnar
tryggða.
MÓ.
Barnagæzla
Stúlka á 13. ári/ vön
barnagæzlu.óskar eftir
starfi úti á landi.
Er vön aö vera í sveit.
Upplýsingar í síma
(91) 1-53-86.
Útboð
Tilboö óskast I dælur og dælubúnað fyrir dælustöðvarnar.
V-5. V-l. Viö Jaöar fyrir vatnsveitu Reykjavikurborgar
Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavik. Tilboðin veröa opnuð á sama staö þriöjudag-
inn 27. júni 1978 kl. 11 f.h.
INNKAUPASTOFNUÍ4. REYKJAVÍKURBORGAR
Frfkirlcjuvegi 3 — Sími 25800