Tíminn - 17.05.1978, Blaðsíða 9

Tíminn - 17.05.1978, Blaðsíða 9
á víðavangi Hver lýgur hvern inn í hvað? Nú er aðalmaður „rann- sóknablaðamennskunnar” — sem Magnús Torfi Ólafsson hefur skirt heitinu ofsókna- blaðamennska — farinn að draga i land, útskýra, rifja upp, endurtaka, segja „alla” söguna upp á nýtt og reyna að renna „stoðum” undir eitt og annað af þvi sem fullyrt var og hefur verið hrakið, sem dylgj- að var um og afsannað hefur verið með öllu. Þetta er i stuttu máli megin- inntak þeirrar ritgjörðar sem Vilmundur Gylfason birti sl. föstudag i málgagni sinu. Þessi grein er merkilegt hugarfóstur fyrir margra hluta sakir. Einn er titill henn- ar: „Ekki eitt mál — heldur mörg mál”, og er orð að sönnu. Munurinner bara Sá að sjálfur rannsóknapostulinn heldur enn áfram að rugla saman málum. Annar er sá að höfundi tekst ekki fremur en jafnan að hafa hóf á sér. Merkileg er t.d. eft- irfarandi málsgrein: „Hér er vert að staldra við. Eitt augnablik getum við sett okkur i spor þeirra ógæfusömu ungmenna, sem unnu það óhæfuverk að ljúga saklausa menn inn i afbrotamál af verstu tegund. Þau gátu vitað, eins og aðrir læsir borgarar þessa lands, að aðstandendur Klúbbsins höfðu notið spilltrar greiðasemi dómsmálaráðu- neytisins. Það sem þegar hafði verið rætt og ritað um meint afbrot Klúbbsins og af- skipti ráðuneytis var nógu svart. Vera má —og er raunar alls ekki óliklegt — að einmitt það hafi ráðið þvi að þessir til- teknu menn voru saklausir lognir inn i þetta óhugnanlega mál. Þetta var afleiðing spilltrar dómsmálastjórnar. Þetta kann að hafa verið pris- iim sem við greiddum fyrir undangengna spillingu”. Fyrir neðan allar hellur Hvað er biessaður maður- inn, svo vel ættaður sem um hefur verið fjallað i blöðum, að segja í þessum orðum sin- um? Gerirhann sér það sjálf- ur ljóst hvert þær ógöngur, sem hann hefur komið sér i, eru að leiða hann sjálfan? Það er rétt að það sem hafði verið „rættog ritað” um þessi mál „var nógu svart”. En hverjir áttu þar hlut að máli? Getur Vilmundur Gylfason hreint og beint leyft sér að álykta þannig af sinum eigin blaðaskrifum? Er þetta hægt? Svo virðist greinilega vera, en þá er það lika fyrir neðan allar hellur. Skyldi það vera — sem „er raunar alls ekki óliklegt” —að þetta hafi verið „prisinn sem við greiddum fyrir undan- gengna spillingu” i blaða- skrifum? Tilkynning frá samtökum grásleppuhrogna- framleiðenda Samtök grásleppuhrognaframleiðenda hafa opnað skrifstofu að Siðumúla 37, Reykjavik. Siminn er 8-66-86. Fyrirlestur um fræðslu fullorðinna Á vegum Félagsvisindadeildar Háskóla íslands og MFA mun Inge Johansson for- maður fræðslusamtaka sænsku verka- lýðshreyfingarinnar (Arbetarnas bildn- ingsforbund) flytja fyrirlestur um hlut- verk og þýðingu frjálsra fullorðins- fræðslusamtaka og stofnana i samfélagi nútímans. Fyrirlesturinn verður fluttur miðvikudag- inn 17. mai kl. 20.30 i stofu 101 i Lögbergi, húsi lagadeildar Háskólans og túlkaður á islensku. öllum er heimill aðgangur meðan hús- rúm leyfir. Félagsvisindadeild Háskóla íslands, Menningar- og fræðslusamband alþýðu. Og hverja er Vilmundur að Ijúga saklausa inn i þessi mál með þessum orðum sinum, enn á þessu vori 1978? Hverja er hann enn einu sinni af blindri þrákelkni að reyna að draga inn i þessi mál, nú þeg- ar hann sér að uppvist er orðið fyrir öllum mönnum um þau hræðilegu mistök sem honum sjálfum hafa orðið á i þessum efnuin? Mig tekur sárt að lesa þetta enn einu sinni og sjá það enn einu sinni að Vilmund brestur kjark til að játa það sem orðið er. Hann er mörg- um góðum kostum gæddur, og vonandi fer hann að sjá að sér. Þeir gengu of langt Það er, þegar öllu er á botn- inn hyolft, ekki einkennilegt að jafnvel formaður Alþýðu- flokksins er orðinn hræddur við hugsanlegar afleiðingar hinna órökstuddu blaðaskrifa. Benedikt Gröndal segir i við- tali við Visi sl. föstudag i til- efni blaðaskrifa og ummæla Vilmundar Gylfasonar og Sig- hvats Björgvinssonar: „Það má segja um blaða- menn og þá sem vinna út frá blöðum að þeir vekja athygli á málum. Þeir dæma ekki, ef þeir gera þaö, má segja að þeir gangi of langt”. Þessiorð Benedikts Gröndal eru það vægasta sem sagt verður um þessi mál. En þau lýsa þeim ótta sem af gildum ástæðum er tekinn að gagn- taka forystumenn Alþýðu- flokksins um aö þessi mikla bomba muni að lyktum springa á þeim sjálfum. JS Tilboð óskast í smíði á 101 stk. flutningsgámum fyrir Skipaútgerð ríkisins Gámunum skal skila fullbúnum við skips- hlið á einhverri islenskri höfn þar sem skip Skipaútgerðarinnar geta lagst að bryggju. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykjavik. Tilboð verða opnuð á sama stað fimmtu- daginn 15. júni kl. 11.00 f.h. i viðurvist við- staddra bjóðenda. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 Góð fjárjörð Óska eftir að kaupa stóra bújörð, hentuga til fjárbúskapar. Skipti á fasteignum i Reykjavik koma til greina. — Mikil útborgun. Upplýsingar sendist blaðinu fyrir 15. júni merkt: 1288. \br í Reykjavík Við bjóðum landsmenn velkomna til Reykjavíkur. Vekjum athygli á þeim sérstöku vorkjörum, sem við bjóðum nú á gistingu. Leitið upplýsinga, - hafið samband við okkur, eða umboðsskrifstofur Flugleiða um land allt. «HOTEL# Suöurlandsbraut 2. Sími 82200 HOTEL LOFTLEIÐIR Reykjavíkurflugvelli. Simi 22322

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.