Tíminn - 17.05.1978, Blaðsíða 10

Tíminn - 17.05.1978, Blaðsíða 10
10 Miðvikudagur 17. mai 1978 Félagsstarf ddábom fX mJ f Sumardvöl Eins og undanfarin sumurefnir Félags- málastofnun Reykjavikurborgar, i sam- vinnu við þjóðkirkjuna, til sumardvalar að Löngumýri i Skagafirði fyrir eldri Reykvikinga. Farnar verða nú sex ferðir þ.e.: Fyrsta f erð: 12. júni—23. júni önnur ferð: 26. júni—7. júli Þriðja ferð: 10. júli—21. júli Fjórða ferð: 24. júli—4. ágúst Fimmta ferð: 21. ág. — 1. sept. Sjöttaferð: 4. sept. —15. sept. Þátttökugjald er kr. 27.000.- Innifalið i verði er: ferðir báðar leiðir, dvöl, fullt fæði og skoðunarferð um Skaga- fjörð. Allar nánari upplýsingar gefnar að Norðurbrún 1, simi 86960 frá kl. 9.00 — 12.00 alla virka daga — næstu þrjár vikur. Félagsmálastofnun Reykjavikurborgar. Frá Verzlunarskóla íslands Umsóknir um skólavist Umsóknir um skólavist þurfa að berast sem fyrst og i siðasta lagi fyrir 8. júni. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu skólans. Það skal tekið fram, að Verzlunarskóli íslands tekur við nemendum af öllu land- inu. Utanbæjarnemendum sem þess æskja, verða send umsóknareyðublöð. Skólanefnd Verzlunarskóla íslands. ILG-WESPER HITA- blásarar fyrirliggjandi i eftirtöldum stærðum: 2.500 k.cal. 12.800 k.cal. 17.600 k.cal. 19.800 k.cal. Sérbyggðir fyrir hitaveitu og þeir hijóðlát- ustu á markaðinum. Vegna óreglulegs viðtalstima, þá vinsam- legast hringið i næstu viku á milli kl. 12-13. HELGI THORVALDSSON Háagerði 29 — Simi 34932 Reykjavik SA Bújörð óskast Óskum eftir að kaupa góða jörð til ábúðar, sem fyrst. Helst á suður- eða vesturlandi Tilboö sendist til blaösins fyrir 25. þ.m. merkt, Borgar- fjaröarsýsla. V-Skaf tfellingar vara við útbreiðslu smit- sjúkdóma á Suðurlandi Búnaðarfélög í öllum sveitum Vestur-Skaf tafellssýslu hafa haldið almenna bændafundi um smitsjúkdóma i búfé'. og varnir gegn þeim. A öllum fundunum hafa verið samþykktar ályktanir, það sem lýst er yfir áhyggjum vegna vaxandi úthreiðslu smit- sjúkdóma austur um Suðurland, lögð áherzla á að varnir á Suður- landi verði efldar, og á það bent að Vestur-Skaftafellssýsla er eina sýsla landsins, sem laus er við alla illviga smitsjúkdóma i búfé. Var mál þetta meðal annars rætt á fundi búnaðarfélaganna i Alfta- veriog Skaftártungum, sem hald- inn var i Hrifunesi 16. apíil sl. Auk þessa sem að framan greinir var á það lögð áherzla að reynt yrði með öllum tiltækum ráðum að verja þetta svæði, og bent á nauðsyn þess að allar varnarlinur i kringum það verði styrktar sem bezt. Treystir fund- urinn á skilning, samstarf og velvilja þeirra aðila i Rangár- vallasýslu, sem afréttarlönd eiga að V-Skaftavellssýslu. Þá gerir fundurinn kröfu til þingmanna kjördæmisins að þeir útvegi fjármagn til nauðsynlegra framkvæmda i þessu sambandi og hvetur siðan alla Skaftfellinga til órofa samstöðu um varnir svæðisins. A fostudag lauk tveggja daga ráöstefnu á vegum forstjóra, starfsmanna og stjórnarmanna lffeyrissjóö- anna innan SAL, sambands almennra lifeyrissjóöa. Er þetta iannaö sinn sem ráöstefna þessara aöila er haldin, en hún var fyrst haldin fyrir tveim árum. Aösögn Eövarös Sigurössonar, formanns Dagsbrúnar, er hún einkum til þess ætluö aö aöilar geti boriö saman bækur sinar um ýmis vandamál sjóöanna. Sagöi Eövarö ráöstefnuna hafa veriö vel undirbúna. Fyrri dag hennar var m.a. fjallaö um samskipti sjóöanna og slöan ýmislegt er snertir tölvuvinnslu og samræmingu. Þá voru i gær rædd innheimtumál og sitthvaö þar aö lútandi. Voru flutt fjögur tii fimm inngangserindi og siöan störfuöu nefndir og þá uröu almennar umræöur. Eövarð sagði, aö þar til stjórn- arfundur veröur haldinn i SAL, veröi unnið úr þeim niöurstöðum, sem urðu af fundinum og þær lagöar fyrir þar. Meöfylgjandi mynd tók G.E. af fundinum. Húsnæðismálastofnun ríkisins: 5.977,8 millj. kr. veitt til húsnæðismála A árinu 1977 námu lánveitingar Húsnæðismálastofnunar rikisins samtals 5.977,8 milljónum króna, til byggingar og/eða kaupa á 3879 ibúðum. Var hér um að ræða lán- veitingar úr Byggingarsjóði rikisins og Byggingasjóði verka- manna sem og af hinu sérstaka framlagi rikissjóðs til nýbygging- ar ibúða i stað heisluspillandi húsnæðis. Lánveitingar úr Byggingar- sjóði rikisins til framangreindra þarfa námu samtals 5.545,6 millj- onum kr. á árinu. Var mestu veitt i F-lán (frumlán og viöbótarlán) eða 3.880,2 milljónum, sem fóru i 1823 ibúðir. Þá i G-lán, 573.5 milljónum, og C-lán til útrýming- ar heilsuspillandi húsnæðis 56.9 milljónum i 29 ibúðir. Úr Byggingarsjóði verka- manna námu lánveitingar 432.2 milljónum króna og þau lán veitt, ásamt lánum úr Byggingarsjóði rikisins tU smiða 409 ibúða i verkaannabústöðum i 11 byggð- arlögum i' landinu. Frá þvi að lög- in um Byggingarsjóð verka- manna og verkamannabústaði tóku gildi vorið 1970, hefur verið hafin bygging á samtals 807 ibúð- um i verkamannabústöðum i 25 byggðarlögum i landinu. Er meirihluti þessara ibúða nú i notkunogvoru um sl. áramót 362 ibúðir i byggingu i yerkamanna- bústöðum i landinu. A árinu 1977 komu til útborgun- ar lánveitingar úr Byggingarsjóði rikisins samtals að fjárhæð 6.141.0 milljónir króna. Til sam- anburðar má geta þess, að á ár- inu 1976 komu til útborgunar 4.284,7 milljónir króna. Finnskir listamenn sýna í Eden A föstudaginn 12. mai opna þrir finnskir listamenn málverkasýn- ingu i Eden i Hveragerði. List- málararnir eru Elina O. Sand- ström JuhaniTaivaljarvi og Liisa Urholin-Taivaljarvi. Sýna þeir um 90 oliumálverk, landslags og blómamyndir. Frú Sandström hefur haldið fjölmargar sýningar hér á landi og er þetta i fjórða skiptið sem hún sýnir i Eden. Juhani Taivaljarvi er Islend- ingum einnig að góðu kunnur, en hann sýndi meðal annars hér i Norræna húsinu árið 1971. Kona Juhani, Liisa, sýnir hér i annað sinn en hún á um 20 blóma- myndir á sýningunni að þessu sinni. Málverkasýningin verður sem hefst föstudagskvöld kl. 20 og fyrr segir i Eden i Hveragerði og stendur yfir til 21. mai.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.