Tíminn - 17.05.1978, Blaðsíða 14

Tíminn - 17.05.1978, Blaðsíða 14
14 Mibvikudagur 17. mai 1978 Stefnuskrá Framsóknarmar UMFERÐIN OG GATNAKERFIÐ Framsóknarflokkurinn bendir á erfibleika umferöar- innar hér i borginni þar sem flutningar fara um tiltölulega þröng svæði til miðborgarinnar. Flokkurinn telur tvö atriöi öðrum fremur geta komið til lausnar þessu vandamáli. I fyrsta lagi, að með reglu- bundnum ákvörðunum verði hámarksumferðartiminn lengdur og stefnt að sveigjanlegum vinnutima fólks. t öðru lagi verði ný svæði þannig skipulögö að þau reynist sjálfum sér nóg með atvinnu og þjónustu að þvi leyti sem við verður komið. Flokkurinn telur að gatnaframkvæmdir eigi að miðast að jöfnu við notkun almenningsvagna og einkabila, en tel- ur þó aö ekki fáist góð lausn á umhverfismálum eldri hverfanna, nema meö þvi að takmarka umferð þar, enda gerir hiö endurskoöaða aðalskipulag ráð fyrir miklu minni kröfum um bifreiðastæði. Þess vegna telur flokkurinn mikilvægt að almenningsvagnakerfið geti leyst einkabil- inn að verulegu leyti af hólmi i gamla bænum, þannig að tiðar ferðir fari um hann frá bifreiðastæðum i jöðrum hans. Framsóknarflokkurinn telur að komast eigi hjá svo sem unnt er fyrirferðamiklum akbrautum i þéttbýli borg- arinnar og telur áformaðar gatnaframkvæmdir i Foss- vogsdal og um öskjuhlið vafasamar, enda eru þar ákjós- anlegustu útivistarsvæði borgarinnar á sjó og landi. Stefna ber að þvi að leita leiða sem hindra þessi áform. Framsóknarflokkurinn telur, að stðrt átak þurfi að gera til að greiða fyrir umferö um borgina, einkum i gamla bænum og á aðalumferðarleiðum milli borgarhverfa. Gera þarf áætlunsem miðar að þvi að sttfrbæta þjónustu strætisvagna Reykjavikur frá þvi sem nú er, m.a. með eftirfarandi: 1. Teknar verði upp hraðferðir milli einstakra borgar- hverfa svo sem áður tiðkaðist. 2. Borgarbúum verði gefinn kostur á að kaupa svonefnd mánaðarkort sem framvisað sé i hvert skipti i stað sér staks endurgjalds, miða eða peninga. Slik breyting ætti að greiða fyrir ferðum strætisvagnanna frá þvi sem nú er. 3. Tekin verði upp samvinna við nágrannasveitarfélögin um það að samræma strætisvagnakerfi alls höfuðborg- arsvæðisins. 4. Kanna ber hvort hagkvæmt geti orðið að taka i notkun farartæki til almenningsnota sem ganga fyrir innlendri orku t.d. rafknúna vagna eða svonefnda „einteinunga”. Gera þarf áætlun til langs tima sem miðar að þvi að auka umferðaröryggið i borginni með þvi að létta á um- ferðarþunganum og gera umferðina reglulegri en nú er. Aætlun þessi miði m.a. að eftirfarandi atriöum: 1. Uppbyggingu nýrra borgarhverfa og enduruppbygg- ingu eldri hverfa verði hagað þannig að ibúarnir eigi þess jafnan kost að sækja bæði atvinnu og þjónustu inn- an sins hverfis i stað þess að þurfa að leita út fyrir það. 2. Leitað verði leiða til að draga úr umferðarþunga á ákveðnum tima dags t.d. með þvi að gera vinnutima og opnunartima verslana sveigjanlegri en nú tiðkast. 3. Umferðaröryggi jafnt akandi sem gangandi vegfarenda verði stóraukið á aðalumferðarleiðum borgarinnar. 4. Lagðir verði sérstakir gangstigar og hjólreiðabrautir um borgina er tengi hin ýmsu borgarhverfi og geri borgarbúum kleift að ferðast um fótgangandi og á hjóli. HUS- NÆÐIS- MÁL Framsóknarflokkurinn telur það eitt brýnasta verkefni borgaryfirvalda á næsta kjörtimabili aö bæta úr þeim skorti á leiguhúsnæöi sem nú er til staðar i borginni. Þá þarf að nýta betur það húsnæði sem fyrir hendi er i eldri borgarhverfum og hraða uppbyggingu nýrra hverfa. Flokkurinn leggur þvi áherzlu á eftirfarandi: 1. Borgaryfirvöld stuðli aö þvi aö byggðar verði 1 auknum mælifbúðirá félagslegum grundvelli, t.d. af byggingar- samvinnufélögum. Slikt fyrirkomulag gerir ungu fólki og efnalitlu kleift að eignast eigið húsnæði með þvi aö greiða byggingarkostnað á löngum tima. 2. Byggðar verði leiguibúðir af hóflegri stærð, ætlaöar ungu fólki, sem er að stofna heimili. Leigugreiðslum verði stillt í hóf og leigutimi takmarkaður viö fá ár. Ennfremur verði byggðar leiguibúöir, ætlaöar fólki sem er í húsnæðisvandræðum. 3. Byggðar verði ibúðir af hóflegri stærö, sérstaklga ætl- aðar eldra fólki. tbúðir þessar verði sniðnar við þarfir þess fólks sem nú býr i eigin ibúðum, en vill gjarnan flytja i minna og hentugra húsnæöi. tbúðirnar verði byggðar viös vegar um borgina, þ.á.m. i eldri borgar- hverfum. 4. Gerð veröi áætlun til fjögurra ára um byggingu Ibúða skv. 2. og 3. töluliö er miöist við að byggðar verði árlega a.m.k. 100-150 Ibúðir á vegum borgarinnar. 5. Ungu fólki verði gert kleift að festa kaup á Ibúðum i eldri borgarhverfum meö þvi að veita riflega lán úr byggingasjóði borgarinnar vegna kaupa og/eöa endur- bóta á gömlu húsnæöi. Lán þessi taki m.a. miö af aldri umsækjenda og fjölskyidustærð. Jafnframt sjái borg- aryfirvöld til þess að lán Húsnæðismálastofnunar rikis- ins til kaupa á gömlu húsnæði veröi stór- hækkuö. 6. Borgryíirvöld beiti sér fyrir þvi aö réttarstaða leigjenda veröi stórbætt. UMHVERFISMÁL Framsóknarflokkurinn leggur áherzlu á nauðsyn þess að tengsl fólks við náttúru landsins geti aukist og borgar- búar eigi greiðan aögang aö útivistarsvæðum bæði innan borgarmarkanna og utan,þar sem jöfnum höndum er um að ræða skipulagt land og litt snortið upprunalegt um- hverfi. t sambandi við náttúru- og umhverfisvernd vill flokkur- inn sérstaklega nefna eftirfarandi: 1. Kostað verði kapps um aö gera útivistarsvæði og önnur opin svæði I borginni eins aðlaðandi og kostur er og halda þeim jafnan hreinum og snyrtilegum. Fjaran meðfram borgarlandinu sé hreinsuö reglulega og þess gætt af fremsta megni aö halda henni ómengaöri. 2. Grafarvogurinn fái að halda sér i núverandi mynd, enda er hann mikilsvert fæðúöflunarsvæði ýmissa fuglateg- unda, sem annars hyrfu úr nágrenni borgarinnar. 3. Efsti hluti Laugarássins veröi varðveittur — eins og hann er, m'.a. vegna þeirra jökulrispuöu klappa sem þar eru. 4. Ströndin frá Geldinganesi að Korpuósi fái að haldast I núverandi mynd enda tæpast annað óspillt náttúrulegt strandsvæði með fjöru eftir f borgarlandinu. 5. Stefnt verði að friðun Viðeyjar en vegna legu hennar og sögu hlýtur Reykjavikurborg að láta sig varða framtið hennar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.