Tíminn - 17.05.1978, Blaðsíða 20
20
Miðvikudagur 17. mai 1978
„Allir vilja
leggja okkur að
velli”..
— segir Berti Vogts,
fyrirliði V-t>jóðverja,
sem þurfa að verja HM-
titilinn í Argentínu
— Ég tel að viö eigum góða mögu-
leika á að komast i 8-liða úrslitin i
HM-keppninni, og eftir það hefst
baráttan fyrir alvöru — annars
veröur hver leikur I HM-keppn-
inni úrslitaleikur fyrir okkur, þvi
aö að sjálfsögðu vilja allir leggja
heimsmeistarana að velli, sagöi
Berti Vogts, hinn snjalli bakvörö-
ur og fyrirliði v-þýzka landsliðs-
ins I knattspyrnu, sem er byrjað
að undirbúa sig af fullum krafti
fyrir HM-keppnina, en V-Þjóð-
verjar leika með Póllandi, Mexi-
kó og Túnis í riöli.
Vogts segir að andinn hjá v-
þýzka liðinu sé stórkostlegur — og
gera allir strákarnir sér fyllilega
grein fyrir, til hvers þeir eru að
fara til Argentinu. — „Til að
verja heimsmeistaratitilinn”,
sagði Vogts.
Helmut Schön, einvaldur v-
þýzka liðsins, sagði að margir
góðir leikmenn hefðu ekki gefið
kost á sér i landsliðið — leikmenn
sem léku stór hlutverk i HM-
keppninni i V-Þýzkalandi. —
,,Þrátt fyrir það er ég sæmilega
bjartsýnn fyrir HM-keppnina, þvi
að við höfum nóg af sterkum leik-
mönnum, sem koma til með að
fylla sköröin”, sagði Schön.
Þeir 22 leikmenn sem fara til
Argentinu eru þessir:
Markverðir:
Sepp Maier, Bayern Munchen
Bernd Franke, Braunschweig
Rudi Kragus, Hamburger SV
Varnarmenn:
Berti Vogts, „Gladbach”
Rolf Russmann, Schalke 04
Manfred Kaltz, Hamburger SV
Bernhard Dietz, Duisburg
Herbert Zimmermann, 1. FC
Köln
Harald Konopka, 1. FC Köln
Hans-Georg Schwarzenbeck,
Bayern Munchen
Karl-Heinz Förster, Stuttgart
Bernd Cullmann, 1. FC Köln
Miðvallarspilarar:
Rainer Bonhof, „Gladbach”
Heinz Flohe, 1. FC Köln
Hans Muller, Stuttgart
Erich Beer, Hertha Berlin
Bernd Hölzenbein, Frankfurt
Sóknarmenn:
Rudiger Abramczik, Schalke 04
Klaus Fischer, Schalke 04
Karl-Heinz Rummenigge, Bayern
Munchen
Ronald Worm, Duisburg
Dieter Muller 1. FC Köln.
— sagði Diðrik Olafsson, sem átti
mjög góðan leik í marki Víkinga,
en þeir hafa ekki tapað leik
í Eyjum síðan 1974
BERTI VOGTS...sést hér á æfingu ásamt Helmut Schön.
tefli. — Við erum mjög ánægðir
og við megum vera það, þvi að
undanfarin ár hefur okkur gengið
betur i Eyjum, heldur en nokkru
öðru liði, sagði Diðrik.
Diðrik sagði að leikur Vikings-
liðsins hefði verið skásti leikur
Vikings á keppnistimabilinu. —
Baráttugleðin var mikil hjá
strákunum, og þá vár vörnin
miklu traustari núna heldur en
hún hefur verið að undanförnu,
sagði Diðrik.
Diörik átti stórgóðan leik i Vik-
ingsmarkinu og stöðvuðust flest-
ar sóknarlotur Eyjamanna, sem
sóttu mun meira i leiknum, á hon-
um. Þá voru þeir Róbert Agnars-
son og 17 ára nýliði i vörninni,
Heimir Karlsson — bróðir Jóns H.
Karlssonar, fyrirliða landsliðsins
i handknattleik úr Val, mjög
traustir sem miðverðir —- þeir,
ásamt Diðriki, voru vel á verði og
héldu Eyjamönnum i skefjum.
— Ég bjóst við framlinumönn-
um Eyjaskeggja beittari — mér
fannst þeir ekki vinna nógu vel
saman, sagði Diðrik.
Leikurinn i Eyjum bauð ekki
upp á góða knattspyrnu — mikið
var um langspyrnur og „kýling-
ar”. Eyjamenn voru ekki á skot-
skónum, en aftur á móti fundu
Vikingar tvisvar sinnum leiðina
fram hjá Arsæli Sveinssyni,
markverði Eyjamanna.
1:0.... Jóhann Torfason skoraði
fyrra mark Vikinga úr þvögu á 59.
minútu — honum tókst að spyrna
knettinum inn fyrir marklfnu
Eyjamanna, þar sem Arsæll
Sveinsson, markvörður, gerði
árangurslausa tilraun til að
bjarga á siðustu stundu — með
þvi að slá til knattarins.
2:0....Arnór Guðjohnsen fékk
laglega stungusendingu (74.
min.) frá Viðari Eliassyni — um
leið og hann stakk sér inn fyrir
vörn Eyjamanna, sem léku rang-
stöðuleikaðferð. Arnór brunaði
með knöttinn að marki og skoraði
örugglega — hans fyrsta 1.
deildarmark.
Eyjamenn töldu að Arnór hafi
verið rangstæður er hann fékk
inga og stuttu siðar fékk hann
annað gullið tækifæri, en skot
hans hafnaði þá i stöng.
Orn Óskarsson, sem lék stöðu
bakvarðar — fyrir ólaf Sigur-
vinsson, sem er á Spáni, átti mjög
góöan leik með Eyjaliðinu og skil-
aði hlutverki sinu mjög vel. Þá
var Tómas Pálsson hreyfanlegur,
en aðrir léku langt undir getu —
það vantaði alla baráttu iEyjalið-
ið.
Það vakti athygli að Jón Her-
mannsson, hinn sterki varnar-
maður, sem lék áður með Ar-
manni, og Snorri Rútsson skyldu
ekki leika með Eyjaliðinu — þeir
eiga tvimælalaust heima i þvi.
Diðrik Ólafsson, markvörður
Vikings, átti mjög góðan leik i
markinu og er furðulegt að hann
skuli ekki vera i landsliðshópn-
um. Þá voru þeir Róbert Agnars-
son og Heimir Karlsson traustir i
vörn Vikinga — sýndu mjög góð-
an leik.
Maður leiksins: Róbert
Agnarsson. —BR/-SOS
Skrílslæti í Eyjum...:
Ráðizt á línuvörð...
— sem lenti í handalögmálum við drukkna
áhorfendur. Lögreglan þurfti að skerast í leikinn
Annar linuvörðurinn — Eiður
Guðjohnsen, i leik Vestmannaey-
inga og Vikinga, stóð I ströngu i
Eyjum. Eyjamenn — sumir undir
áhrifum áfengis, gerðu tvisvar
sinum aðför að honum og varð
Eiður þá fyrir miklu aðkasti.
Ahorfendur höguðu sér eins og
dónar við Eið — voru með skrils-
læti, og þurfti þvi að stöðva leik-
inn tvis var.og undir lokin varð að
kalla á lögreglulið, undir stjórn
Óskars Sigurpáls sonar, hins
kunna lyftingakappa, til að halda
áhorfendum i skefjum.
Þessi framkoma áhorfenda i
Eyjum setur óneitanlega leiðin-
legan blett á knattspyrnuáhuga-
menn staðarins — þvi að aga-
nefnd K.S.l. er komin i málið, og
má búast við að hún geri eitthvað
róttækt i málunum. Má jafnvel
búast við að Eyjamenn fái heima-
leikjabann.
Eiður varð fyrst fyrir aðkasti
áhorfenda, eftir að Vikingar
höfðu skorað fyllilega löglegt
mark, sem áhorfendur voru þó
ekki sáttir við. Þá réðist ölvaður
maður að linuverðinum. Siðan
varð Eiður aftur fyrir aðkasti,
þegar Vikingar — Arnór Guð-
johnsen, sonur Eiðs var þar að
verki —skoruðu sitt annað mark.
Réðust menn þá að Eiði, sem
varði sig með þvi að taka duglega
á móti — við ryskingarnar missti
Eiður annan skóinn. Ctlitið varð
þá það slæmt, að það þurfti að
kalla lögreglulið á staðinn til að
halda áhorfendum i skefjum.
Framkoma áhorfendanna i
Eyjum er óafsakanleg. Þá er það
einnig óafsakanlegt af þeim
mönnum, sem raða dómurum
niður á leiki, að láta dómara, sem
er faðir leikmanns i liði, sem er
að leika, vera á linunni. Eiður
dæmir fyrir Armann. Fyrir leik-
inn flaug sú saga út — að Eiður
væri faðir Arnórs og beindu
áhorfendur þvi strax stpjótunum
að Eiði — eins og skiljanlegt er i
hita leiksins.
Það er ekki hægt annað en að
lita á framkomu áhorfenda i Eyj-
um alvarlegum augum, og má þvi
búast við að Aganefnd K.S.l. geri
eitthvað i þessu máli. Þetta er
ekki i fyrsta skipti sem dómarar,
linuverðir og aðkomulið verða
fyrir aðkasti áhorfenda i Eyjum,
sem eru þá undir áhrifum
áfengis. Það þarf greinilega að
herða alla gæzlu i Eyjum þegar
knattspyrnuleikir fara þar fram,
en hingað til hefur engin gæzla
verið við knattspyrnuvöliinn þar.
Þá má geta þess, að dómarar og
linuverðir þurfa að ganga 200-300
m spotta að búningsklefum og á
þessari stuttu leið hefur oft verið
kastað ýmsu drasli að dómurum
og aðkomuliði.
-BR/-SOS
ARNÓR
GUÐJOHNSEN....opnaöi marka-
reikning sinn f Eyjum.
DIDRIK ÓLAFSSON...átti góftan
leik I marki Vlkings.
knöttinn, en Sævar Sigurðsson,
dómari var þeim ekki sammála
— hann sagði að Arnór hefði ekki
verið kominn inn fyrir varnar-
vegg Eyjamanna, er Viðar
spyrnti knettinum fram völlinn.
Sigurlás Þorleifsson fékk gullið
tækifæri til að minnka muninn
fyrir Eyjamenn á 91. min., þegar
vitaspyrna — vafasöm, var dæmd
á Vikinga. Sigurlási brást boga-
listin — skaut framhjá marki Vik-
— Okkur tókst það, sem vift áttum
ekki von á — aö leggja Vest-
mannaeyinga að velli I Eyjum.
Þessi óvænti og sæti sigur á eftir
aft binda okkur saman i þeirri
erfiftu baráttu, sem framundan
er, sagði Diðrik ólafsson, hinn
snjalli markvörftur Vikinga, sem
lögöu Vestmannaeyinga aft velli
— 2:0, i Eyjum. Vfkingar komu,
sáu og sigruftu f Eyjum — og þeir
héldu ánægöir heim til Reykja-
vfkur meft tvö dýrmæt stig i poka-
horninu.
Vikingar, sem hafa ekki tapað
leik gegn Vestmannaeyingum
siðan 1974, höföu óneitanlega *
nokkra heppni með sér, þvi að
sanngjörn úrslit hefðu veriö jafn-
„Sigurinn í Eyjum
bindur okkur saman”