Tíminn - 17.05.1978, Side 11
Miövikudagur 17. mai 1978
11
y>Valmúinn springur út á nóttunni”
„Fyrst og fremst einlægt verk”
— segir höfundurinn, Jónas Árnason
FI — Nú þegar Skjaldhömrum
Júnasar Arnasonar sleppir hjá
Leikfélagi Reykjavikur, en þaö
verk hefur verið sýnt við metað-
sókn i þrjú ár I Iðnó, frumsýnir
L.R. nýtt leikrit eftir sama höf-
und, sem heitir þvi ljóðræna nafni
„Valmúinn springur út á nótt-
unni”. Þorsteinn Gunnarsson leik-
stýrir, en Jón Sigurbjörnsson fer
með eitt aðalhlutverkiö og hafa
þessir tveir því vixlað hlutv^rk-
um sinum frá þvi i Skjaldhömr-
um, en þar var Þorsteinn í aðal-
hlutverki og Jón leikstýrði. Leik-
myndin er eftir Steinþór Sigurðs-
son. Steinþór hefur teiknað allar
leikinyndir við fyrri verk Jónasar
Árnasonar, sem sýnd hafa verið
hjá Leikfélagi Reykjavíkur, en
þau eru nú orðin fjögur og hálft
talsins, — „Delerium Búbónis”,
skrifuðu þeir Jón Múli og Jónas
saman.
„Valmúinn springur út á nótt-
unni” er fyrst og fremst einlægt
leikrit,” sagði Jónas Arnason á
blaðamannafundi, „leikrit, sem
hafnar ýmiss konar tilgerð i þjóð-
lifi okkar. Aðalpersónurnar eru
fólk af minni kynslóð, geðfelldar
manneskjur, ærlegar. Mér hefur
sýnzt, að i bókmenntum nýrrar
kynslóðar gæti tilhneigingar til
þessað stimpla mina kynslóð sem
eitthvað ógeðfellt fyrirbæri. Ég
hafði fengið mig fullsaddan af
slilcum fullyrðingum og má lita á
leikrit mitt sem eins konar
varnarræðu.”
Jónas kvað alveg ómögulegt aö
segja til um á hve löngum tima
verkið er skrifað. „Hugmyndir
fæðast á hinum óliklegustu stund-
um. Ég tók törn við þetta verk i
fyrrasumar og svo aftur i vetur.
Fékk mig lausan frá þingstörfum
og skrifaði viðstöðulaust yfir jól-
in, alla helgidagana frá þvf
snemma á morgnana og fram á
kvöld. Ég má vist til að taka
fram, að þingfararkaupinu
sleppti ég á meðan.”
Þann 15. marz hófust svo æf-
ingar á leikritinu, en áður höfðu
leikstjóri, aðalleikarinn, Jón
Sigurbjörnsson, og höfundur lesið
leikritið yfir og borið saman
bækur sinar. „Þetta leikrit gerist
i allliflegum kirkjugarði á eyði-
staðnum Þvernesi”, sagði Jónas,
”og reynir verkið griðarlega á
sviðsmanninn og leikstjórann,
atriðaskipti eru tið og sviðið si-
breytilegt. Þarna skiptastá sjón-
varpsatriði og sviðsatriði, sem
tengjast á vissan máta, án þess
að nokkur vituð tengsl séu milli
þeirra, sem koma fram i' sjón-
varpinu og hinna á sviðinu.”
Af tónlist i leikritinu má nefna
lagið „Þórður sjóari” eftir
Svavar Benediktsson við texta
KriStjáns frá Djúpalæk, og bylt-
ingarsönginn Avanti populi, sem
sunginn er á itölsku. Heiti leik-
ritsins er að sögn höfundar fengið
úr kinversku kvæöi efdr Ting
Tsjú Ló...
Hlutverk eru ellefu og taka
sumir leikaranna á sig fleiri en
eitt hlutverk: Fréttamaður er
Harald G. Haraldsson. Keops:
Jón Sigurbjörnsson. Högni
Hrólfsson, Forseti ESSUBB og
Ráðherrann :Sigurður Karlsson,
Doktorinn: Margrét Olafsdóttir.
Efemia Betúelsen: Margrét
Helga Jóhannsdóttir. Fidela og
Anna: Lilja Guðrún Þorvalds-
dóttir, Freudistinn og Gassi:
Hjalti Rögnvaldsson. Daniel
Williamsson sá um lýsingu og
Þorlákur Karlsson um leikmuni.
Þess má geta, að „Delerium
Búbónis” eftir Jón Múla og Jónas
Arnason var sýnt hjá L.R. 1959
Siðan koma leikrit Jónasar hvert
af öðru: Koppalogn 1967 / 1968 og
1969. „Þið munið hann Jörund”
1969. Sýnt i tvö ár. „Skjald-
hamrar” 1975 — 1978. Sló innan-
hússmet i Iðnó. Var sýnt 187
sinnum fyrir utan leikför til
Færeyja. Fyrra innanhússmetið
átti Kristnihald undir Jökli” eftir
Halldór Laxness. Það varsýnt 177
sinnum.
Harald G. Haraldsson sem sjónvarpsmaður og Jón Sigurbjörnsson
sem Keops athuga uppgrafna lærleggi ikirkjugarðinum iÞvernesii
„Vaimúinn springur út á nóttunni” eftir Jónas Arnason. Frumsýning
veröur föstudaginn 19. mai.
Sex islenzkir piltar i alþjóðlega vélhjóla-
og hjólreiðakeppni i Lissabon
Dagana 17.-19. mai n.k. taka sex
piltar þátt i hinni árlegu alþjóð-
legu vélhjóla- og hjólreiðakeppni,
sem að þessu sinni er haldin I
Lissabon i Portúgal. Keppnin er
að venju þriþætt. Fyrst fer fram
spurningakeppni um umferðar-
reglur, siðan keppni i góöakstri
’og loks keppni i hjólaþrautum.
Keppendur frá 20 þjóðum verða
meðal þátttakenda.
íslenzku piltarnir hafa verið i
þjálfun undanfarið, undir stjórn
Guðmundar Þorsteinssonar,
námsstjo'ra I umferðarfræðslu og
Baldvins Ottóssonar lögreglu-
varðstjóra, en þeir munu stjórna
drengjunum i keppninni i Lissa-
bon. Ennfremur hefur Björn
Mikaelson, lögregluþjónn á Akur-
eyri, annast þjálfun Akureyrings-
ins Gústafs Jóhannssonar.
^ull
ouin
Þjónusta
fyrir landsbyggðina
Sendiö okkur (í ábyrgð) þá skartgripi sem þér
þurfiö aö láta gera viö, ásamt smálýsingu á
því sem gera þarf, heimilisfangi og síma-
númeri. Að af lokinni viðgerð, sem verður inn-
an 5 daga frá sendingu, sendum við ykkur við-
gerðina í póstkröfu. Allar viðgerðir eru verð-
lagðar eftir viðgerðaskrá Félags ísl. gull-
smiða.
Stækkum og minnkum hringi (sendum mál-
spjöld), gerum við armbönd, nælur, hálsmen,
þræðum perlufestar.
Gyllum. Hreinsum.
Sendum einnig í póstkröfu allar gerðir skart-
gripa.
Fljót, góð og örugg þjónusta. Hringið og leitið
upplýsinga.
GULL HÖLLIN
Verzlunarhöllin — Laugaveg 26
101 Reykjavík
Símar (91) 1-50-07 & 1-77-42
Húseigendur
og forráða-
menn
húseigna
í Hveragerði — á Selfossi — i Þorlákshöfn — á
Stokkseyri — á Eyrarbakka og nágrenni.
Þéttum sprungur i steyptum veggjum og þök-
um með Þan-þéttiefni, áralöng reynsla i með-
ferð og þéttingum með Þan-þéttiefni. Látið
þétta húseign yðar áður en þér málið og verjið
hana fyrir frekari skemmdum.
Leitið upplýsinga i sima 3863 Þorlákshöfn.
Baldvin Ottósson, Þór Eiriksson úr Viöistaðaskóla Hafnarfirði, Þórar
inn S. Halldórsson Fossvogsskóla Reykjavik, Þorkell Sigtryggsson úr
Kársnesskóla Kópavogi, Gústaf Jóhannsson úr Barnaskóla Akur-
eyrar, Kristján Helgason Gagnfræðaskóla Akraness og Arni
Guðmundsson úr Hólabrekkuskóla Reykjavik. Lengst til hægri er
Guömundur Þorsteinsson.
ÍSLAND cep?pa 80
EíJ tii; ííii titi u:x r.it fc« iltí :::i síir si
: m '88-8S m n m un n« si
Ný
frímerki
með
íslenzkum
merkisbyggingum
Komin eru út tvö ný islenzk fri-
merki að verðgildi 80 krónur og
120 krónur. Citgáfudagur merkj-
anna var 2. mai sl. og eru 50 fri-
merki i örk. Merkin eru prentuö i
Sviss hjá Courvoisier S.A. La-
Chaux-de-Fonds. Þau tilheyra
frimerkjaflokknúm merkisbygg-
ingar, og sýna 80 króna frimerkin
Viöeyjarstofu, en 120 króna fri-
merkið Húsavikurkirkju. Teikn-
ari merkjanna er Þröstur
Magnússon.
»...og oaf þeim upp
málið á okkur báðum
»Þeir skera svampinn alveg eins og
maður vill og sauma utan um hann líka, ef
maður bara vill.«^^
»Já, Lystadún svampdýnur...«
»Hættu nú að tala, elskan mín«
efni til að spá í
LYSTADÚNVERKSMI-ÐJAN DUGGUVOGI 8 SlMI 846 55