Tíminn - 17.05.1978, Page 12

Tíminn - 17.05.1978, Page 12
12 Miðvikudagur 17. mal 1978 Þvl verður eigi neitað að kvenfrelsisbarátta er viötækust allra róttækra hreyfinga i hin- um vestræna heimi og skapar það stöðu þessarar hreyfingar, hve hún er frábrugöin öörum. Skoöanir á þvi hvernig stefna skuli aö jafnrétti eru eins ólikar og þær eru margar, og margir eru þeir sem efast um aö jafn- rétti sé mögulegt eða ef þaö er mögulegt hvort afíeiöingarnar sem þaö heföi i för meö sér væru slikar að verr væri af staö fariö en heima setið. En hvaö um það, þetta er barátta sem hófst reyndar fyrir um tvö hundruð árum og ekki verður svo glatt aftur snuið. Nú sfðast minntust islenzkar konur baráttunnar á fjölmennum fundi i Félags- stofnun stúdenta i Reykjavik þann 8. marz, en það er alþjóö- legur baráttudagur kvenna. Verkalýösmálahópur Rauð- sokkahreyfingarinnar sá um undirbúning fundarins og fjall- aöi um kvenfrelsisbaráttuna fyrr og nú i fjölbreyttri efnis- skrá. Dagný Kristjánsdóttir og Ingibjörg Rán Guömundsdóttir starfa með verkalýösmálahóp Rauðsokkahreyfingarinnar og blaöamaöur snéri sér til þeirra á dögunum til að ræða um stööu kvenf relsisbaráttunnar. um starfsemi Rauðsokkahreyf- ingarinnar o.m.fl. GV: Hvenær barst Rauð- sokkahreyfinginhingað til lands og hver eru helztu stefnumál hreyfingarinnar? langtimamarkmiöi hreyfingar- innar, en i stefnugrundvelli hennar segir m.a.: Jafnréttis- baráttan er óaðskiljanlegur þáttur stéttabaráttunnar fyrir nýju samfélagi þar sem arðrán oghvers konar kúgun verður af- numin og jöfnuður rikir. Full- komnu jafnrétti verður ekki komið iþessu samfélagi. Kúgun kvenna er efnahagslegs og kyn- ferðislegs eðlis. Hún er liður I þvi misrétti sem þjóöfélags- skipan okkar byggistá. Dagný: Langtimamarkmið okkar er stéttlaust þjóðfélag og við trúum ekki að hægt sé að ná jafnrétti i framkvæmd innan þessa þjóðfélags. Þjóðfélagið allt byggist á kúgun. Þetta eru ekki slagorð, heldur niðurstaða okkar starfs. Þeir sem eru á lægsta þrepi þjóðfélagsins eru konur og þjóöfélagið vinnur gegn breytingu á þessari lag- skiptingu. 011 þjóöfélög leitast viðað vernda sigog þ.a.l. veröa konur ekki frjálsar innan þessa þjóöfélags. Byrjaði sem óánægju- hreyfing GV: Grundvöllur Rauðsokka- hreyfingarinnar, sem þið vitn- uðuð i', kemur til sögunnar nokkru eftir að Rauðsokka- hreyfingin er stofnuð? Dagný: Já, þessi grundvöllur, sem vitnað var i, var settur fram a' öðru þingi rauðsokka 1976. Hann byggir aftur á þvi Það var fyrir átta árum. Það vakti mikla athygli er rauðsokkar gengu með þetta Hkneski niður Laugaveginn i kröfugöngu 1. mai 1970. Rætt við tvo félaga í Rauðsokkahreyfingunni: „En karlmaður sem skúrar heima hjá sér hefur ekki leyst vandamál j af nréttisbaráttunnar ’ ’ Ingibjörg: Rauðsokkahreyf- ingin á Islandi var stofnuð árið 1970. Þetta voru 20 manneskjur sem byrjuðu og það voru fáir sem samsinntu þeim þá. Þær komu fram á sjónarsviðið með nýjar hugmyndir og nýjar bar- áttuleiðir. Þær hugmyndir sem fyrstu rauðsokkarnir komu meö fengu ekki ýkja sterkan hljóm- grunn þá, en i dag er obbinn af þeim viðurkenndur af almenn- ingi. GV: Hverjar voru þessar hug- myndir? Manneskja ekki markaðsvara Dagný: Þessar hugmyndir birtast i slagorðum eins og t.d. manneskja ekki markaðsvara, konan.er maöur. Þá komurauð- sokkar fram með kröfur um mannréttindi og vildu fá viður- kenningu á þvi að konan fari út á vinnumarkaðinn, en það þótti ekki sjálfsagt þá. Ingibjörg: Það hefur ekki orð- iö nein grundvallarbreyting á stöðu konunnar, en það hefur orðið viðhorfsbreyting á þessum stutta tima. Það hefur sýnt sig aö timinn vinnur meö okkur. Nú erbúiðaðfæra það góð rök fyrir jafnrétti, að það er ekki hægt að verja annað lengur. — Samt vill ennþá brenna við að ómálefna- legasé tekið á spurningunni um jafnrétti, þegar hana ber á góma. Sérstaklega er þessi veikleiki áberandi hjá karl- mönnum,þó þaðséekki einhlitt. Þaö er t.d. ekki óalgengt að heyra viðkvæðiö: ,,Æ, hættið nú þessu endemis þrasi um jafn- réttismál, maður er oröinn hundleiður á þessu rausi.” Eða þá aö talið fer út i „flipp” svo sem eins og þaö sé aðalatriðið — málið útrætt. Jöfn verkaskipt- ing á heimili er auövitað sjálf- sögð, en karlmaður sem skúrar heima hjá sér hefur ekki leyst vandamál jafnréttisbaráttunn- ar. Langtimamarkmið hreyfingarinnar GV: Hvaö er þá aðalatriðið? Ingibjörg: Aöalatriöið felst I fræga þingi sem haldið var á Skógum 1974. Þá varð i raun og veruklofning innan Rauðsokka- hreyfingarinnar. Upphaflega var þetta hrevfing sem byrjaöi sem óánægjuhreyf ing. 1 hreyfinguna þy rptust konur úr öllum stéttum, og eftir þvi sem meira var unnið aö ýmsum mál- efnum ráku konurnar sig á aö kerfið vill ekki kvenfrelsi. A ráöstefnunni á Skógum var sú reynsla, sem þá hafði fengizt, rædd og mönnum kom ekki saman um hvernig bæri að túlka hana. Borgaralegu konurnar eða þær ihaldssamari gengu út úr hreyfingunni. Siöan hefur hreyfingin starfað samkvæmt þeirri stefnu sem þá varö ofan á. Gömul saga og ný Dagný: Það er gömul og ný saga innan kvennahreyfingar- innar að borgaralegar konur og verkalýðssinna hefur greint á um leiðir. Þegar yfirstéttarkon- urnar, sem beittu sér fyrir kosningarétti á sinum tima, höfðu fengiö sinu fram iýrir hluta kvenna, þá hættu þær. Verkakonurnar máttu sitja eftir i súpunni. T.d. sagði Christabel Pankhurst, aö ef konur, sem væru rauðhæröar, 160 cm á hæð og með fæðingarblett á vinstri kinn, fengju kosningarétt þá væri sigur unninn. — Konur af borgarastétt og verkakonur eiga enga samleið, hagsmunir þeirra eru andstæðir. Samstarf við verka- konur GV: Hvernig er samstarfi ykkar við verkakonur háttað? Ingibjörg: Við höfum skipu- lagt þrjár láglaunaráðstefnur og þátttakendur i þeim hafa verið verkakonur aö miklum meirihluta. Verkalýðs- málahópur Rauðsokka skipu- lagði fund i samráði við verka- konur 1. mai 1977 og viö byrjuðum á að halda opið hús með verkafólki i verkföllum sama ár. Drygstur hluti starfs okkar hefur fariö i vinnu að málefnum verkalýðs, þó að meira hafi boriö á öðru sem við höfum látáð til okkár taka. Það má rekja þaö til rauösokka að krafa um dagvistunarheimili var sett inn I kjarasamningana 1976. Hópstarfsemi GV: Hvernig er rauðsokka- hreyfingin skipulögð? Ingibjörg: Uppbygging hreyfingarinnar er svolitið óvenjuleg. Hér er ekki um að ræða þetta venjulega félags- form þar sem almennir félagar eru háðir vilja og krafti alls konar formanna og stjórna. Viö störfum i hópum að ýmsum verkefnum, s.s. i dagvistunar- hóp, verkalýðsmálahóp, blaða- hóp, en átta manna miöstöð sér um hagnýt verkefni og aö halda uppi tengslum milli hópanna. Margir vilja halda þvi fram að innan hreyfingarinnar r'iki algjört stjórnleysi, —þaðer tóm þvæla, skipulagið erspor i átt til virkara lýðræðis en almennt tiökast i kringum okkur og það er i sjálfu sér ekkert undarlegt þótt sumir eigi i talsverðum vanda við aö átta sig á þvi. Félagatalan er breytileg allt eftir þvi hvaða málefni eru á dagsláá og ræðst af þvi hverjir eru virkir á hverjum tima. Sum baráttumál eru fallin til fjölda- baráttu, s.s. þegar fóstur- eyðingarfrumvarpið var á döfinni, — önnur eru ekki eins kræf á mannafla. Eigi að siður er mikilvægt að fá fleiri til markvissra starfa þvi það breytir engu að karpa úti i hornum sýknt og heilagt. Bara menntakonur? GV. Hreyfingin hefur verið mikiö gagnrýnd fyrir að innan hennar starfi aðeins mennta- konur. Ingibjörg: Jú, hreyfingunni hefur verið sagt það til lasts að innan hennar starfi aðeins menntakonur. Við tökum þá gagnrýni ekki mjög alvarlega. I fyrsta lagi er þetta ekkiréttog i öðru lagi lítum við ekki á menntun sem neitt til að skammast sin fyrir, — eitt af aðalbaráttumálum okkar er t.d. jafnrétti til náms. En ef menntun skilar sér á þann hátt

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.