Tíminn - 17.05.1978, Page 15
Mi&vikudagur 17. mai 1978
15
ína í borgarmálum
2. HLUTI
Öskjuhlíðin
Framsóknrflokkurinn áréttar enn fyrri tillögur sinar
um aö komiö veröi upp útivistarsvæöi i sunnanveröri
öskjuhliö, þar sem áhersla veröi lögö á aö nýta þá mögu-
leika, sem heita vatnið og nærvera hitaveitutankanna
bjóöa upp á. Viö skipulagningu svæðisins veröi m.a. lögð
áherzla á eftirfarandi:
1. Gerðar veröi laugar i hliðinni og komiö fyrir heitum
kerjum, aöstöðu til sólbaöa, búnings- og hreinlætisað-
stöðu. Þessi mannvirki veröi felld inn i hliöina þannig,
að umhverfið veröi áfram sem upprunalegast.
2. Komiö verði upp veitingaaöstööu á svæöinu og sú hug-
mynd endurvakin hvort ekki megi reisa veitingahús
uppi á hitaveitutönkunum meö útsýni yfir borgina.
3. Frárennsli hitaveitutankanna veröi notað til upphitun-
ar Nauthólsvikur og sjóbaðstaðurinn afmarkaöur með
flótgirðingu. '
4. Viðræöur verði hafnar viö Kópavogskaupstaö um fram-
tiðarnýtingu Fossvogsins, þar sem miöað veröi viö, aö
þar veröi fyrst og fremst sjóbaöstaöur meö aöstööu fyr-
ir skemmtibáta, sjóskiöi og annað þess háttar.
Elliðaárdalurinn
Elliðaárnar og umhverfi þeirra er meðal þess fegursta,
sem völ er á f nágrenninu auk þess að vera merkilegt frá
jarðfræðilegu sjónarmiöi. Þannig er gróöurríki hvergi
fjölbreytilegra i nágrenni borgarinnar en einmitt meö-
fram Elliðaánum. Þessa svæðis þarf þvl aö gæta vel og
vanda til framtiðarskipulags þess.
An þess að fella dóm um þaö skipulag, sem fyrir liggur
af Elliðaársvæðinu, telur Framsóknarflokkurinn svo
mikilvægt aö vel takist til um alla skipulagningu svæöisins
aöréttsé aöleita hugmynda sem flestra aöila.
Þvi er lagt til, aö efnt veröi til hugmyndasamkeppni um
framtiðarskipulag Elliðaársvæöisins ásamt umhverfi
Elliöavatns. Skal samkeppnin miöast viö aö fá fram sem
flestar hugmyndir til mótunar heildarmyndar af þessu
svæði.
Nesjave/lir
Hitaveita Reykjavik á jörðina Nesjavelli i Grafningi.
Var hún á sinum tima keypt vegna þess jarðhita sem þar
er.
Mikil gróðureybing hefur á undanförnum árum átt sér
stað i landi Nesjavalla og er skjótra aögeröa þörf, ef
bjarga á þeim gróðri, sem enn er eftir.
Framsóknarflokkurinn leggur til eftirfarandi:
1. Land Nesjavalla verði girt fjárheldri girðingu. Veröi
leitað samstarfs viö eigendur nágrannajaröa um þá
framkvæmd.
2. Sauðfé á jöröinni verði fækkaðað miklum mun.
3. Uppblástur verði stöðvaöur og hafin uppgræðsla þess
lands, sem þegar er orðið örfoka.
Upplönd borgarinnar
Framsóknarflokkurinn telur, að á næstu árum beri aö
gera verulegt átak til gróðuraukningar i landi borgarinn-
ar ofan núverandi byggöar i framhaldi af þvi, sem gert
hefur verið á Hólmsheiðinni siðustu sumur. Fengnir veröi
sérfræðingar til að gera áætlun um framkvæmd verksins
og leitað samstarfs við þau sveitarfélög sem lönd eiga aö
afrétti Reykvikinga.
Fyrsti liður þessarar framkvæmdar veröi aö láta á
sumri komanda rannsaka gróbur á svæöinu og gera gróð-
urfarslýsingu og siðan nýtt gróðurkort. 1 framhaldi af þvi
verði siðan gerð áætlun um stöövun gróðureyðingar og
uppgræöslu landsins á næstu árum.
Veiði- og fiskirækt
Skipulag og nýting vatnasvæöis Reykjavikurborgar
verður ekki aöskilin frá stefnunni I umhverfismálum og
náttúruvernd. Þetta verkefni þarf að taka föstum tökum
með varanlega varðveislu og nýtingu i huga. Vatnasvæöið
tekur yfir stórt landsvæöi, þar sem viöa er mikil náttúru-
fegurð, jafnvel I örskotslengd frá Ibúðarhverfum borgar-
innar. i þessu eru fólgin ómæld hlunnindi og verömæti fyr-
ir borgarbúa.
Framsóknarflokkurinn leggur áherslu á eftirfarandi.
1. Komið verði á beinni tengingu úr Elliöaám um Bugöu og
upp i Hólmsá.
2. Endanlega verði gengið frá skipulagi árhólmanna i Ell-
iöavogi.
3. Aflað verði meira vatns fyrir klakstöðina við Elliðaárn-
ar og starfsemi hennar efld.
4. Aukin verði vantsmiðlun á vatnasvæði Elliðaánna til
að draga úr flóðum i ánum.
5. Silungsrækt i Elliðavatni verði aukin.
6. Þess verði vandlega gætt, að mengun Elliðaánna komist
ekki á það stig að lifriki þeirra verði hætta búin.
7. Allt vatnasvæði borgarinnar verði kortlagt og gerð á þvi
lýsing á grundvelli visind.alegrar þekkingar og reynslu,
sem íengizt hefur.
8. Elliðaánna verði gælt og látið sitja i fyrirrúmi að
vernda þær gegn mengun og tryggja laxgengd i svipuö-
um mæli og að undanförnu.
Vamir gegn mengun
Framsóknarflokkurinn telur, að vel þurfi að fylgjast
með mengun bæði i lofti, grunnvatni á vatnsverndarsvæði
borgarinnar og sjónum meðfram ströndinni og gera tafar-
lausar ráðstafanir til úrbóta, fari mengun það vaxandi að
hættulegt geti talist.
Hér er um mál að ræða sem varðar alla Ibúa á höfuð-
borgarsvæðinu. Þvi er nauðsynlegt að öll sveitarfélög á
þessu svæöi vinni saman að eftirliti og úrbótum.
Sérstaklega telur flokkurinn nauðsynlegt að gæta vatns-
bólanna vel og hraða þeim framkvæmdum, sem nú standa
yfir til að hægt sé að loka þeim.
Þá ber að vernda Elliðaárnar gegn frekari mengun og
koma rotþróm og frá-rennsli i betra horf og fylgjast með
þvi, að tryggilega sé gengið frá oliugeymum i borginni og
nágrenni hennar.
Einnig þarf I samvinnu við Kópavogskaupstað að gera
Framsóknarflokkurinn telur að halda beri áfram á
þeirri braut að koma upp heilsugæzlustöðvum fyrir hin
ýmsu hverfi i borginni, þar sem læknar geti starfað saman
ásamt aðstoðarfólki að heilsugæzlu.
Þá telur flokkurinn að nýta eigi húsnæði i Heilsu-
verndarstöðinni við Barónsstig fyrir almenna heilsugæzlu
og að skrifstofum borgarlæknis og heilbrigöiseftirlits
megi koma fyrir i venjulegu skrifstofuhúsnæöi annars
staðar.
Málefni a/draðra
Framsóknarflokkurinn telur, að mikið verkefni sé
framundan hjá Reykjavikurborg i málefnum og vistunar-
málum þeirra sem ekki geta búið I heimahúsum. Flokkur-
inn telur, að markmiö starfsemi i þágu aldraðra eigi að
vera að gera þeim kleift að stunda vinnu við sitt hæfi sem
lengst og dvelja á eigin heimilum eins lengi og viðunandi
er.
Brýnustu úrbætur i málefnum aldraðra telur flokkurinn
vera þessar:
1. Komið verði á þeirri skipan á vinnumarkaðinum að
eldra fólk eigi þess kost að minnka við sig vinnu smátt
og smátt en þurfi ekki að hætta snögglega með öllu i
fullu starfi.
2. Ráðningastofa Reykjavikurborgar taki upp skipulega
starfsemi að þvi er varðar atvinnumál aldraðs fólks og
verði leiðandi afl til úrbóta I atvinnumálum þessa fólks
ekki siður en annarra aldurshópa.
3. Byggja þarf sérhannaðar söluibúöir með nauðsynlegri
þjónustuaðstöðu. Þessar ibúðir verði seldar öldruðu
fólki á kostnaðarverði og með forkaupsréttarákvæði.
4. Koma þarf upp dagvistarheimilum fyrir aldrað fólk,
sem dvelur i heimahúsum. Slik dagvistaraðstaða myndi
létta á mörgum heimilum og veita öldruðum tækifæri til
félagsskapar og samvista.
5. Stórauka verður langlegurými, sem ætlað er öldruðu
fólki, svo að það þurfi ekki að liggja við misgóðar að-
stæður i heimahúsum. Raunhæfasta leiðin til úrbóta I
þessum efnum er að hraða byggingu B-álmu Borgar-
spitalans og taka meginhluta þeirra 210 rúma, sem þar
verða, fyrir aldrað fólk.
6. Skipuleggja þarf betur en nú er gert vistunar- og
hjúkrunarmál aldraðs fólks og gera könnun á þvi, hve
margt af þvi þyrfti aö komast á hjúkrunarheimili eða
sjúkrastofnun.
áætlun um hreinsun Fossvogsins og frárennsli liggi ekki út
I hann.
Ho/ræsamál
Gera þarf timasetta áætlun um að koma frárennsli i
borginni i viðunandi horf á næstu 4—6 árum meö þvi að
sameina útrásir og koma skolpinu lengra frá ströndinni,
þangað sem straumur og vatnsendurnýjun er nægilega
mikil, jafnframt þvi sem meta þarf möguleika til hreins-
unar skolpsins.
Úrbætur á þessu sviði eru mjög brýnar. Skolpið hefur
vfðast verið leitt stystu leið til sjávar og eru þvi útrásir
býsna margar meðfram ströndinni. Jafnframt þvi, sem
það er kappsmál allra Reykvikinga að halda sjónum sem
hreinustum kringum borgina, er þess að gæta að samfara
þessari mengun er nokkur hætta, þar sem meðfram
ströndinni er viða matvælavinnsla.
Framsóknarflokkurinn telur, aö þeir sem heilbrigðir
eru, eigi að leggja meira af mörkum til að bæta aðstöðu
þeirra, sem blindir eru og fatlaðir. 1 þvi sambandi má
nefna:
1. tJtivistarsvæði borgarinnar verði gerð sem aðgengi-
legust fyrir þá sem blindir eru og fatlaðir, þannig að
þessir borgarar geti notið þeirra.
2. Merkja þarf gangstiga og setja upp vegvisa, sem sér-
staklega komi að notum fyrir blinda og sjóndapra.
Einnig þarf að koma fyrir merkjaútbúnaði i götuvitum
til að auðvelda sjóndörpu fólki að átta sig á umferðinni.
3. Fólki i hjólastólum verði auðveldað að komast um borg-
ina, m.a. með þvi að tekinn verði flái i gangstéttar-
kanta.
4. Við hönnun mannvirkja á vegum borgarinnar verði
þess jafnan gætt, að aðkoma að byggingum sé auöveld
fötluðu fólki og I hjólastólum, svo og aö þaö eigi auðvelt
með, án aðstoðar að komast um innan dyra.
Aðstoð við
áfengissjúk/inga
Framsóknarflokkurinn telur, að samræma þurfi betur
en nú er gert opinbera aðstoð við drykkjusjúklinga og
styðja þær aðgerðir, sem ýmsir áhugamenn og áhuga-
mannafélög hafa beitt sér fyrir að undanförnu i málefnum
drykkjusjúkra.
Meðal þeirra aðgerða, sem vinna þarf áð, eru:
1. Bæta þarf skilyrði til að veita áfengissjúklingum
skammtima sjúkrameðferð
2. Koma þarf upp fleiri vistheimilum fyrir áfengissjúkl-
inga i endurhæfingu.
3. Stórauka þarf fræðslu i skólum og fjölmiðlum, um þær
hættur, sem áfengisneysla hefur i för meö sér.
4. Auka þarf félagslega aðstoð við áfengissjúklinga, þar
sem fyrirgreiðsla verði veitt i sambandi við útvegun
húsnæðis, atvinnu og vistanir á sjúkrahús, hæli og aðrar
slikar stofnanir, sem sinna áfengissjúklingum.
5. Nauðsynlegt er, að Gæsluvistarsjóður fái meira fjár-
magn frá A.T.V.R., svo að hann geti sinnt þeim verk-
efnum sem honum eru ætluð i lögum.
Uppeldisskilyrði barna hafa versnað mjög vegna breyt-
inga á atvinnu- og lifnaðarháttum fólks. Borgarfjölskyld-
an er ekki einfær um aö annast uppeldi og félagsmótun
barna. Dagvistarheimili eru þvi nauðsynleg i nútimasam-
félagi.
Markmið dagvistarheimila er tviþætt: 1 fyrsta lagi að
mæta þörfum barna og skapa þeim þroskandi umhverfi og
viðfangsefni. 1 öðru lagi að koma til móts við breytta lifn-
aðarhætti þar sem báðir foreldrar vinna utan heimilis.
Sú staðreynd blasir við i dagvistarmálum að mikill
hörgull er á þessum heimilum og biðtimi langur. Dag-
heimili eru eingöngu opin svokölluðum forgangshópum en
leikskólar öllum börnum.
Framsóknarflokkurinn leggur áherzlu á eftirgreinda
þætti:
1. Hraðað verði uppbyggingu dagvistarstofnana.
2. Dagheimili verði opnuö i áföngum öllum börnum.
3. Opnunartími leikskóla verði sveigjanlegri en nú er.
4. Dagvistarheimili verði aðallega byggð i Ibúöarhverfum
fremur en við vinnustaði.
5. Fjölfötluö börn verði meöal heilbrigðra barna á dag-
vistarheimilum, en ekki á sérstofnunum.
6. Fleira sérmenntað fólk verði fengið til starfa viö dag-
vistarheimili.
7. Starfsfólk dagvistarheimila hafi aðgang að sálfræði-
þjónustu.
8. Komið veröi á fót skóladagheimilum i öllum hverfum
borgarinnar.
9. Fóstur á einkaheimilum verði skipulagt á þann hátt að
samvinna verði milli þeirra sem gæta barna i sama
hverfi. Til að fá fullt leyfi borgaryfirvalda verði skylt
að sækja námskeið i umönnun barna.
lO.Stuðlað verði að þvi að fá fleiri karlmenn til starfa á
dagvistarheimilum.
FELAGSMAL
Heilsugæzla
Málefni fatlaðra
Dagvistamál