Tíminn - 17.05.1978, Blaðsíða 23

Tíminn - 17.05.1978, Blaðsíða 23
Miðvikudagur 17. mai 1978 23 fyrirsögnunum og liðveizlu viö hvitflibbamennina. Er mér þar Þjóðviljinn minnisstæðastur. Kom það mjög á óvart, þar sem þingmenn Alþýðubandalagsins hafa öðrum þingmönnum fremur lagt okkur liðsyrði i þessu máli. En blaðamenn Þjóðviljans töldu i samræmi viö sina stefnu að styðja af hörku kaupkröfur þeirra, sem sólbrenna árlega i fjörum Spánar — en anda köldu á þá sem veörastaf sól og vindum við lang- lægst launuðu störfin á Islandi 365 daga á hverju ári, langan vinnu- dag — ekki bara nokkra tima á dag. nokkra daga vikunnar, nokkra mánuði ársins. Viðbrögð fleiri manna voru at- hyglisverð. T.d. finnst mér að sveitaþingmenn stæði nær að berjastfyrir afnámi söluskatts en afnámi prestkosninga. Þess skal þó getið sem gert er. þegar þing- menn eiga i hlut. Fyrir löngu siðan samþykkti búnaöarþing ályktun um nauðsyn stofnunar til að bæta úr kvenmannsleysi nokkurra sveitamanna sem þing- inu fannst eitt af stærri vanda- málum. Ekkert var svo gert i málinu þar til nú fyrir jólin. Þá kom það loks fyrir alþingi. Þar var lagt til að stofnaður yrði reið- skóli sem allra fyrst. Þar með hefur einu af áhugamálum búnaðarþings til eflingar sveit- anna verið ýtt rösklega af stað og byrjað á undirstöðuatriðum — en oft vilja þau gleymast og bygging byrjuð án hornsteinalagningar. Þó ekki verði þar allt vakurt sjá- um við i anda sveitina fyllast. Hvort akrar hylja móa og brauð veita sonum móðurmoldin frjóa — er allt óljósara. Vandi okkar sem af ýmsum ástæðum munum ekki njóta kennslu þessa ágæta verknáms,- skóla er enn óleystur. Mjög stór hluti af kostnaði við vélar og rekstur þeirra er skattur til rikis- sjóðs. Þannig er kynt undir verð- bólgu með þessari kostnaðar- aukastefnu sem rikið stendur að i sambandi við landbúnað. Þann hluta launanna sem við fáum — fáum við ekki fyrr en verðbólgu- eldurinn hefur skert hann stór- lega. Landbúnaðarráðherra sagði á Stéttarsambandsfundi 29. ágúst 1977 að afurðalánin nægðu til að borga okkur út 90% af áætluöu verði sláturfjárafuröa við mót- töku. En bændur fá ekki þessi 90% i sinar hendur. Þessi 90% hljóta að vera greidd inn i reikning verzlunar. Þar brennur þetta hratt og örugglega. Vafalaust gæti Framleiðsluráö,ef vilji væri fyrir hendi athugað hvar það er sem bændur fá ekki þessi 90% til fullra umráða á réttum tima. En það er með þessi rekstrar- og afurðalán eins og fleiri, þau eiga lögum samkvæmt að fara i gegn- um kerfið. Það kerfi hagnast á að tefja för þeirra. Verðbólgan er nefnilega fyrst og fremst eignatil- færsla i þjóðfélaginu. Sá sem ræður yfir ódýru fjármagni græðir á verðbólgu— og hann græðir ekki nema aðrir tapi. Sá sem heíur okkar sjóð i vörzlu sinni,græðir á þvi að hann brenni sem mest. Verðbólgueldurinn er ekkert annaö en grima þeirra aðila,sem mestum eignum hafa rakað saman á liðnum árum. Auðvitað verður að greiða þessi rekstrar- og afurðalán beint til bænda — ef þeir eiga að fá þau. Það er búið að tiðkast of lengi að bændur verði að fara bónarveg til þess að fá út þá peninga sem verzlunin geymir fyrir þá i reikningi. Það er komið mál til að þar mætist jafningjar. Þvi miður eru margir bændur orðnir þess* svo vanir, að þeir gera sér ekki ljóst að þeir eru i fjármálafjötr- um eíns og ástandið er i dag. Jafnvel hafa þeir komizt svo langt niður að koma saman á fund til að biðja sameiginlega.” Eigi leið þú oss i freistni heldur frelsa oss frá þvi að fá i hendur þá f jár- munLsem kallaðir eru rekstrar- og afurðalán bænda.” Lengra verður vist ekki komizt. Þar breytir engu þó stjórnarmaður Stéttarsambands bænda segist ekki hitta bónda sem vilji fá þessi lán i sinar hendur. Það er með þetta eins og annað,þeir geta talað svona sem hafa tekjur sinar riflegar af öðru en landbúnaði. Ég hef i þessum samtiningi haldið mig við málefni sauðfjár- eigenda. Þau mál þekki ég af eig- in raun — enda vegamál hér þannig,aö mjólkurframleiðsla verður yfirleitt ekki stunduö hér án þess að mjólka i flórinn öðru hverju. Ég vil þó aðeins minnast þess að á liðnu hausti voru hryðjuverkamenn og bændur eiginlega lagðir að jöfnu i fjöl- miðlum á tslandi. Aðrir skáru menn á háls en hinir hvöttu til ný- mjólkurdrykkju — sem að dómi visindamanna er um málið fjalla, kemur i einn stað niður. Orsök alls þessa uppistands var að bændur nenntu ekki að gefa undanrennu hér eftir sem hingað til. Nú er það svo að við þessir fullorðnu mjólkurdrykkjumenn, drekkum mjólk einfaldlega vegna þess aö okkur finnst nýmjólk góð. Þess vegna munum við seint fara að þamba undanrennu ,,3 glös af undanrennu i stað eins af mjólk”, sagði einn visindamannanna. Verst er að fólktekurþetta svo al- varlega að það drepur sig úr hor og bætiefnaskorti af ótta við að drepast einhvern timann á annan hátt. Svo veröur hægt að neyöa einhver börn til að drekka undan- rennu i stað mjólkur. Það er allt hægt að bjóða varnarlausum börnum. Hvort undanrenna er þeim eins vænleg til þroska og nýmjólkin er svo annað mál — kannski mál lækn- anna sem um málið hafa fjallaö. Sjálfsagt tekst þeim að breyta einhverju af nýmjólkurneyzlu barna yfir i kókdrykkju^ en um þann vökva hafa þeir hinir sömu verið hljóðir, þó þeir geti ekki haldið sér þurrum af skelfingu yfir nýmjólkurdrykkju og dilka- kjötsátL Halldór Þórðarson, á Laugalandi. Þrír aflahæstu 0 meðaltal 8,959 kg. 1 fyrra var bolfiskur alls 13,699 tonn, 1844 róðrar, meðaltal 6,996 kg. Eins og fyrr sagði var Höfrungur III aflahæstur með 1033 tonn.Skipstjórier Þorleifur Þorleifeson. Eig. Glettingur h.f. Annar var Jón á Hofi með 964 tonn, skipstjóri Jón Björgvins- son. Eig. Glettingur hf. Þriðji Friðrik Sigurösson með 944 tonn, skipstjóri Sigurður Bjarnason. Eig. Hafnarnes hf. Fjórði Klængur með 633 tonn, skipstjóri Kristján óskarsson. Eig. Meitillinn hf. Fimmti Arn- ar með 620 tonn, skipstjóri Ein- ar Sigurðsson. Eig. Auðbjörg hf. Sjötti var Gizzur með 613 tonn, skipstjóri Guðmundur Baldurs- son. Eig. Ljósavik sf. Þess má geta i lokinaö þrir efstu bátarn- ir eru aflahæstu bátarnir yfir landið og framsýni þeirra manna var mikil, er reistu Þor- lákshöfn að nýju. Flugmenn © afstöðu sinni i þessu máli og leggjast eindregið gegn þessari sameiningu, en flugmenn hjá Flugfélaginu eru henni aftur á móti hlynntir. örn O. Johnson forstjóri hjá Flugleiðum sagði i samtali við blaðið i gær, að samningamálin væru óráðin eins og er, og vildi ekki tjá sig frekar um þau. Hvort verkfallsheimild F.L. yrði til að ýta á gang viðræðna sagði örn ekki geta sagt enn, en eitt væri að afla sér heimildar og annað að boða verkfall. Hins vegar sagði hann þá langþreytta á verkföllum sem og aðra hérá landi. Þá sagði hann að formaður samninga- nefndar þeirra væri erlendis, en hann gengi út frá þvi að næsti fundur með samninganefndum flugmanna og Flugleiöa yrði eigi siðar en i næstu viku. Þórsmörk © vél frá Vestmannaeyjum til þess að flytja ökumann bifreiðarinnar og stúlkurnar tvær til Eyja, en ökumaðurinn hafði slasazt nokk- uð áfæti ogstúlkurnar voruorðn- ar allþrekaðar eftir volkið. Annars var það álit lögreglunn- ar á Hvolsvelli að umgengni manna um Þórsmörk um helgina hafi veriðfyrir neðan allarhellur, og þó nokkur náttúruspjöll voru unnin, bæði meö óþrifnaði og illri umgengni svo og bilaumferð um Mörkina. Þá töldu lögreglumenn þaö furðulega ráðstöfun að leyfa tjaldstæöi i Þórsmörk á þessum tima árs, þvi aö frost er hvergi nærri farið úr jörðu. Bændur Sumarstarf óskast í sveit fyrir 11 ára dreng. Upplýsingar í síma 73546. 12 ára telpa óskar ef tir að komast í sveit. — Upplýsingar í sima (91) 5-19-39. Bændur Þrettán ára drengur óskar eftir að komast i sveit í sumar. Uppl. i sima 38543 eftir kl. 6 á kvöldin. + Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug viö andlát og jarö- arför móður okkar, tengdamóður og ömmu Jóhönnu Halldórsdóttur frá Húsey Hólmfriður Sigfinnsdóttir, Halldóra Sigfinnsdóttir, Fanney Sigfinnsdóttir, Jónbjörg Sigfinnsdóttir, Unnur Sigfinnsdóttir, Snorri Sigfinnsson, tengdabörn og barnabörn. Sendum þakkir öllum fjær og nær, sem auðsýndu vináttu og heiðruðu minningu Estrid Falberg Brekkan Sérstakar þakkir eru sendar hjúkrunarliði Grensásdeild- ar Borgarspitalans. Asmundur Brekkan, ólöf Helga S. Brekkan, Eggert Brekkan, Björk E. Brekkan, barnabörn og barnabarnabörn. Kosningastarfió i Ruykjavík H>. kjórhverfi — Árbæjarskéli Almennur fundur fyrir ibúa Arbæjarhverfis um borgarmálefni verður haldinn að Hraunbæ 102 b, þriöjudaginn 16. mai kl. 20.30.fs Framsögumaöur er Eirikur Tómasson, lögfræðingur sem skipar 3. sæti á lista Framsóknarflokksins við borgarstjórnarkosning- ' arnar. rd Fundarstjori: Jónas Jónsson, skrifstofumaöur. 1. kjörhverfi — Melaskóli Almennur fundur ibúa Nes- og Melahverfis um borgarmálefni verður haldinn að Hallveigarstöðum við Túngötu þriðjudaginn 16. mai kl. 20.30 Framsögumenn eru Kristján Benediktsson borgarfulltrúi og Gerður Steinþórsdóttir, kennari, sem skipa 1. og 2. sætiö á fram- boöslista Framsóknarflokksins við borgarstjórnarkosningarnar. ar. Fundarstjóri: Jóhann Þórir Jónsson. Kosninganefndin i Reykjavik Kosningaskrifstofa Framsóknarmanna fyrir kjörhverfi Álftamýrarskóla Kosningaskrifstofan er að Rauðarárstig 18. Skrifstofan er opin frá 10—12, 14—18 og 20—22 alla daga vikunnar nema laugardaga og sunnudaga, en þá er hún opin frá kl. 13—19. Simar á skrifstofunni eru 27366 og 24480. Stuðningsmenn, hafiö samband við skrifstofuna sem allra fyrst. Kosninganefndin i Reykjavik Kosningaskrifstofa Framsóknarmanna fyrir kjörhverfi Breiðgerðisskóla Kosningaskrifstofan er að Rauðarárstig 18. Skrifstofan er opin 13.00—21.30alla daga nema laugardaga og sunnudaga, þá er hún opin 13.00—18.00. Simar á skrifstofunni eru 27357 og 24480. Stuðningsmenn, hafiö samband viö skrifstofuna sem allra fyrst. Kosninganefndin i Reykjavik. Kosningaskrifstofa Framsóknarflokksins fyrir kjörhverfi ölduselsskóla Kosningaskrifstofan er að Stuölaseli 15. Skrifstofan er opin frá kl. 17.00-21.30 alla daga vikunnar nema laugardaga og sunnu- daga, þá er hún opin frá kl. 13.00-18.00. Siminn á skrifstofunni er 73699. Stuðningsmenn hafið samband sem allra fyrst. Kosninganefndin i Reykjavik. Kosningaskrifstofa Framsóknarflokksins fyrir kjörhverfi Breiðholts- eg FeUaskóla: Kosningaskrifstofan er aö Drafnarfelli 10 (verzlunarmiöstöðin viö Völvufell). Skrifstofan er opin frá kl. 16.00-21.30 alla daga vikunnar nema laugardaga og sunnudaga, þá er hún opin frá kl. 13.00-19.00. Simar á skrifstofunni eru 71596 og 71599. Stuðnings- menn hafið samband sem allra fyrst. Kosninganefndin i Reykjavfk. Kosningaskrifstola Framsóknarflokksins fyrir kjörhverfi Laugarnesskóla Kosningaskrifstofan er að Rauöarárstig 18. Skrifstofan verður opin frá kl. 13.00-18.00 i dag, en næstu daga milli 17.00-20.00. Sím- ar á skrifstofunni eru 27192 og 27052. Stuöningsmenn hafið sam- band sem allra fyrst. Kosninganefndin i Keykjavik. Kosningaskrifstofa Framsóknarflokksins fyrir kjörhverfi Langheltsskóla Kosningaskrifstofan er að Kleppsveg 150 (verzlunarmiðstöðin norðvesturendi). Skrifstofan er opin frá kl. 17.00-21.30 alla daga vikunnar nema laugardaga og sunnudaga þá er hún opin frá kl. 13.00-18.00 Simar á skrifstofunni eru 85416 og 85525. Stuðnings- menn hafið samband viö skrifstofuna sem allra fyrst. Kosninganefndin i Reykjavik. Siglufjarðarkaupstaður: Siglufjarðarkirkja Auglýst er laust starf kirkjuorganista og tónlistarkennara við tónlist° rskóla Siglu- fjarðar Upplýsingar gefa Elias Þorvaldsson i sima 7-13-19 og Vigfús Þór Árnason i sima 7-12-63.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.