Fréttablaðið - 17.08.2006, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 17.08.2006, Blaðsíða 8
8 17. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR SRÍ LANKA Jon Hanssen-Bauer, erindreki Norðmanna á Srí Lanka, segir í viðtali við AP að hætta sé á borgarastyrjöld í landinu, eftir að öllum skólum í höfuðborginni var lokað vegna ótta við hefndarað- gerðir Tamíltígra í kjölfar þess að stjórnarherinn varð 61 skólastúlku að bana á svæði tamíla fyrr í vik- unni. Talsmaður stjórnarhersins, Athula Jayawardana, neitar ásök- unum um að loftárásin hafi verið gerð á stúlkurnar vitandi vits, en sagði jafnframt að hann hefði sannanir fyrir því að húsið hefði verið þjálfunarbúðir hryðjuverka- manna. „Ef hryðjuverkamennirn- ir eru börn, hvað eigum við þá að gera?“ spurði hann blaðamenn. Jon Hanssen-Bauer harmaði að börn tækju þátt í átökunum og hvatti Tamíltígrana til að skrá ekki fólk undir átján ára aldri í skæru- liðahóp sinn. Víða ríkir útgöngubann á átaka- svæðinu á norðausturhluta eyrík- isins. Sums staðar er fólk innikró- að vegna bardaganna. Sendiboðar Sameinuðu þjóðanna reyndu að miðla málum í grennd við borgina Jaffna á þriðjudag til að frelsa um eitt hundrað skólabörn sem dvelja í heimavistarskóla, en þau komast hvorki lönd né strönd þar sem þau eru föst milli stríðandi fylkinga. Þorfinnur Ómarson, talsmaður norræna vopnahléseftirlitsins, segir um 100.000 manns hafa flúið eða misst heimili sín og í raun sé stríðsástand í Jaffna. Á svæðinu sé mikil togstreita því íbúarnir eru tamílar, en stjórnarherinn fer með völd. Erfitt sé þó að geta sér til um hver sé tilgangur núverandi átaka því næstum óhugsandi sé að önnur fylkingin fari með afger- andi sigur af hólmi. Stríðið yrði langt og blóðugt. „Jafnvel þótt Tígrarnir næðu Jaffna myndi stjórnarherinn aldrei láta það við- gangast, hann myndi bara ráðast á þá annars staðar frá,“ segir Þorf- innur. Jon Hanssen-Bauer telur að á slíkum ólgutímum sé „óhemju- mikil þörf“ fyrir starfsemi SLMM, norrænu eftirlitssveitarinnar, í landinu og sagði hann að engin ríki utan Evrópusambandsins hefðu enn boðið fram aðstoð sína. Utanríkisráðuneyti Íslands hefur ekki svarað beiðni Norðmanna um áframhaldandi samstarf, en búist er við að það verði afgreitt á allra næstu dögum. klemens@frettabladid.is Borgarastríð yfirvofandi Útgöngubann ríkir í Jaffna-borg á Sri Lanka. Skólum víðsvegar um landið hefur verið lokað. „Óhemjumikil þörf“ er fyrir norrænu eftirlitssveitina. Enn hafa engin ríki utan Evrópusambandsins boðið fram aðstoð sína. KRIKKETLEIKARA GÆTT Eftir að sprengjur sprungu í höfuðborginni hefur öryggisgæsla verið aukin mikið á fjölþjóðlegum krikketleikum sem standa yfir á Srí Lanka. Landslið Suður- Afríku ákvað í gær að draga sig úr keppninni af öryggisástæðum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SJÁVARÚTVEGUR Tap af rekstri Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði nam tæpum sjötíu milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Rekur Loðnuvinnslan þetta tap til gengisbreytingar íslensku krónunnar, en fjármagnsliðir fyr- irtækisins eru nú 383 milljónum króna hærri en á sama tíma í fyrra. Rekstrartekjur félagsins að frádregnum eigin afla námu 1.653 milljónum króna og hækkuðu um 17 prósent miðað við sama tímabil í fyrra. Í tilkynningu segir að afkoma félagsins á síðari hluta ársins ráðist einkum af síldarver- tíðinni í haust og þróun á gengi íslensku krónunnar. - öhö Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði: Rekja tapið til gengisbreytinga FLUGMÁLASTJÓRN Alþjóðasamtök flugumferðarstjóra hafa áhyggjur af breytingum Flugmálastjórnar á vaktkerfum flugumferðarstjóra. Samtökin vara sérstaklega við slæmum afleiðingum sem óreglu- legt vaktkerfi getur haft á heilsu og félagslíf starfsmanna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Félagi íslenskra flugumferðar- stjóra. Samtökin, ásamt Alþjóðaflutn- ingaverkamannasambandinu, sendu Þorgeiri Pálssyni flugmála- stjóra bréf í fyrradag þar sem áhyggjum þeirra er lýst vegna einhliða breytinga Flugmála- stjórnar á vaktkerfum flugum- ferðarstjóra í flugstjórnarmið- stöðinni í Reykjavík. Breytingarnar hafa meðal ann- ars í för með sér að þrjátíu dagar á ári, sem áður voru frídagar flug- umferðarstjóra, eru nú vinnudag- ar. Einnig lýsa samtökin miklum áhyggjum vegna þess óyndisúr- ræðis Flugmálastjórnar að neyða veikan flugumferðarstjóra til starfa. Slík vinnubrögð séu órétt- lætanleg. Lýst er yfir stuðningi við tilraunir Félags íslenskra flug- umferðarstjóra til að hamla gegn þeim aðgerðum Flugmálastjórnar sem hugsanlega gætu dregið úr öryggi og hagkvæmni flugum- ferðarstjórnar á Íslandi. - sþs Alþjóðasamtök flugumferðarstjóra senda flugmálastjóra Íslands bréf: Hafa áhyggjur af vaktkerfinu REYKJAVÍKURFLUGVÖLLUR Alþjóðasamtök flugumferðarstjóra lýsa yfir stuðningi við tilraunir flugumferðarstjóra til að hamla gegn aðgerðum Flugmálastjórnar. PRAG, AP Tékkneska bráðabirgða- ríkisstjórnin, sem hefur setið að völdum frá því að þingkosningar fóru fram í landinu fyrir tveimur mánuðum, fór frá í gær. Vaclav Klaus forseti fól Mirek Topolanek, leiðtoga íhaldsmanna sem flest atkvæði hlutu í kosningunum, for- sætisráðherraembættið. Topolanek hefur nú 30 daga til að fá nýja ríkisstjórn staðfesta af meirihluta þingheims. Það er þó þrautin þyngri þar sem hann er klofinn í tvær hnífjafnar fylking- ar, með 100 þingmenn í hvorri. Það tókst loks á mánudag að kjósa þingforseta, í sjöundu atlögu, og þar með voru uppfyllt skilyrði stjórnarskrár fyrir afsögn bráðabirgðastjórnarinnar. - aa Stjórnarmyndun í Tékklandi: Bráðabirgða- stjórn farin frá TOPOLANEK OG KLAUS Nýskipaði forsætis- ráðherrann og forseti Tékklands skála fyrir áfanganum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VEISTU SVARIÐ? 1Hver hefur boðið ráðherrum Íslands í tveggja daga ferð um Kárahnjúka- svæðið? 2Hvaða nýbúi í íslenskum ám er orðinn mjög algengur? 3Hver stendur fyrir komu tíu manna tökuliðs frá Los Angeles til Íslands? SVÖRIN ERU Á BLS. 58
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.