Fréttablaðið - 17.08.2006, Side 31

Fréttablaðið - 17.08.2006, Side 31
 Heimild: Almanak Háskólans Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL. World Class hefur ásamt fjár- festum keypt keðju heilsurækt- arstöðva í Danmörku sem heita Equinox, en stöðvarnar eru 13 talsins og flestar á Jótlandi. Frá og með 1. september geta World Class korthafar æft í Equinox-stöðvum í allt að hálfan mánuð í senn. Helgarsprengja stendur nú yfir í Húsasmiðjunni og fram á mánudag. Á heimasíðu Húsasmiðj- unnar segir að þar megi finna vörur með allt að 60 prósenta afslætti og því ætti að vera hægt að gera fín kaup enda besti tíminn til þess að kaupa sumarvörur akkúrat núna. Ein af sjö flottustu tískuvöru- verslunum heims er staðsett í miðbæ Reykjavíkur samkvæmt tískutímaritinu Eurowoman. Verslunin heitir Kronkron og er skemmtileg og flott auk þess sem starfsmenn hennar eru fagmenn fram í fingurgóma. ALLT HITT [ HEILSA, TÍSKA OG HEIMILI ] Elísabet og hin doppótta og sæta regnkápa sem var keypt í leikfanga- og barnafataversluninni Einu sinni var. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR „Ég fékk kápuna í dóta- og barnafataversluninni Einu sinni var í Fákafeni, við hliðina á ísbúðinni. Ég var leiðinni að fá mér ís en sá kápuna í glugganum og ákvað að kaupa hana,“ útskýrir Elísabet brosandi. Síðan Elísabet keypti kápuna hefur hún verið mikið notuð enda hefur sumarið ekki beint verið upp á sitt besta í ár. Elísabet segist hafa fengið tölu- verð viðbrögð frá fólki út af kápunni og að fólk horfi oft undrandi á allar litríku doppurnar. Elísabet segir hins vegar að þessi kaup séu ekkert eins- dæmi, hún hafi áður keypt föt í barnafataverslunum. „Þetta er heldur ekkert svo dýrt. Kápan er líka mjög flott enda hönnuð af Madonnu og heitir eftir barnabók sem hún gerði, The English Roses.“ Almennt segist Elísabet vera mikið fyrir liti og því falli regnkápan vel að hennar fatasmekk. „Það er búið að vera mjög mikið af litum í sumar og svo finnst mér líka gaman hvað er að koma mikið af fötum frá áttunda áratugnum,“ segir Elísbet en hún vonast eftir að litirnir verði eins áber- andi í vetur. Elísabet er starfsmaður í tískuvöruverslunni Rokk og rósir á Laugaveginum og því þarf ekki annað en leggja saman tvo og tvo til þess að átta sig á því að hún hafi mikinn áhuga á tísku. Hún viðurkennir líka fúslega að hún eyði of miklum peningum í föt í hverjum mánuði, að minnsta kosti aðeins of miklu. „Mamma kvartar stundum yfir þessu enda flæðir gjörsamlega út úr fataskápnum. Ég dreg samt ekk- ert úr fatakaupnunum, ég stækka bara frekar fataskápinn,“ segir Elísabet að lokum og hlær. steinthor@frettabladid.is Fann kápu í leikfangabúð Elísabet Alma Svendsen datt í lukkupottinn fyrir nokkrum mánuðum þegar hún fann flotta regnkápu á stað sem fáar stúlkur á hennar aldri kíkja inn í. YFIRHAFNIR FYRIR HAUSTIÐ Búðirnar fyllast af fallegum jökkum, kápum og frökkum. TÍSKA 4 HLAUPIÐ MEÐ ÍÞRÓTTAÁLFINUM Krakkamaraþon Glitnis fer fram sam- hliða Reykjavíkurmaraþoni. Þar verður íþróttaálfurinn í broddi fylkingar. HEILSA 10 GÓÐAN DAG! Í dag er fimmtudagurinn 17. ágúst, 229. dagur ársins 2006. Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 5.24 13.32 21.37 Akureyri 4.58 13.16 21.32

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.