Fréttablaðið - 17.08.2006, Qupperneq 36
[ ]Litaðar ljósaperur búa til rómantíska og fallega birtu á heimilinu. Einnig gera þær svefnherbergið aðeins hlýlegra og huggulegra.
Mín liljan fríð!
Í GARÐINUM HEIMA
HAFSTEINN HAFLIÐASON SKRIFAR UM
ALLAN GRÓÐUR HEIMILANNA
Nú haustar að og blómsturprakt
hásumarsins er aðeins farin að fölna.
En í einstaka görðum eru framandi
fegurðardísir frá fjarlægum löndum nú
upp á sitt besta. Þar á ég við liljurnar af
ýmsu tagi og tegundum. Og tegunda-
fæðinni eða fjölbreytileikaskortinum er
ekki fyrir að fara í þeirri ættkvísl sem
grasafræðingar kalla Lilium en við, sem
tölum venjulegra mál, köllum bara lilj-
ur. Til liljuættkvíslarinnar teljast ríflega
hundrað tegundir sem útbreiddar eru
um allt norðurhvel sunnan freðmýr-
anna. Og liljurnar eru af samnefndri
ætt, Liljuættinni (Liliaceae) sem svo
aftur greinist upp í hátt í tvö hundruð
ættkvíslir, meðal annars túlipana og
hýasintur og ýmsar aðrar laukjurtir
sem við setjum niður í garðana okkar
á haustin.
Liljur í garðinum
Ef við viljum rækta liljur í garðinum,
þurfum við að velja afar skjólgóðan
og sólríkan stað með mjög sendinni
og vel framræstri garðmold. Lauk-
arnir fást í garðamiðstöðvum haust
og vor, en ég mæli eindregið með
haustgróðursetningu. Nauðsynlegt
er að gróðursetja laukana um 15-20
cm djúpt og hafa um 15-20 cm bil
á milli þeirra. Það er best að gera
eins fljótt og þeir koma á markaðinn.
Liljulaukar hafa enga varnarkápu utan
um sig, eins og túlipanar hafa, og þess
vegna hættir þeim til að skorpna og
missa kraft séu þeir geymdir óvarðir
við stofuhita í einhverja daga. Sé ekki
hægt að setja þá niður strax má samt
taka þá úr plastumbúðunum og vefja
þeim inn í þvalt dagblað – og setja
síðan í stærri plastpoka – og geyma
þá í grænmetisskúffunni í ísskápnum.
Það má samt ekki vera lengi. Liljur
eru líka ákjósanlegar plöntur í stór
gróðurskálabeð – en þeim er ekkert
vel við háan hita, svo þar er best að
hafa þær þar sem vel loftar um og
skugga ber á mestan part dags. Í
görðum þarf að skýla vel yfir liljubeð,
a.m.k. fyrsta veturinn, með þykku lagi
af laufi, viðarkurli eða jafnvel steinull-
armottu sem svipt er burt að vorinu.
Laukarnir eru svo sem ekkert sérlega
viðkvæmir fyrir frosti út af fyrir sig, en
skýlingin ver þá gegn veðrabrigðum
og vætu vetrarins. En liljur geta verið
svolítið dyntóttar hér í görðum. En líki
þeim atlætið koma þær upp ár eftir ár,
magnast og margfaldast með árunum.
Á markaðinum eru margar tegundir,
flokkar og tilbrigði með fjöldamörgum
blómlitum í ljósum, gulum, rauðum og
bleikum litum.
Liljur í vasa
En liljur eru ekki síður vinsælar
sem afskorin blóm í blómvendi og
skreytingar við öll tækifæri. Sannarlega
standa þær þar fyrir sínu og geta, með
góðri umhirðu, lifað hálfan mánuð
í vasa. Hvert blóm stendur í fjóra til
fimm daga, en nokkur blóm opnast
hvert eftir annað á hverjum stilk. Blóm-
in eru stór og opin, í mildum hvítum,
gulum eða bleikum litum. Af þeim
leggur höfgan ilm. Stundum óþægilega
sterkan og til ama fyrir þá sem eru
ofnæmisgjarnir. Ráð gegn því er að
hafa liljurnar þar sem vel loftar um og
gjarna á svölum stað, einkum á næt-
urnar. Þegar liljurnar eru settar í vasa
skiptir máli að engin blöð lendi niðri
í vatninu og best er að skáskera með
beittum hníf 1-2 cm neðan af hverjum
stilk um leið og blómin eru sett í vas-
ann. Látið ekki sól skína á blómin og
hafið blómanæringu í vatninu og fyllið
á með blómanæringarvatni daglega.
En það er líka hægt að nota afskornar
liljur sem skreytingu utandyra, það er
að segja þar sem „straumar og votir
vindar“ ná ekki svo glatt til þeirra.
Liljuvöndur á skjólgóðri verönd ellegar
í skuggaskoti við kjallaratröppurnar
lífgar svo sannarlega upp á hversdags-
grámann og gerir umhverfið dálítið
öðruvísi og „erlendis“!
��
���
��
�
��
��
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI