Tíminn - 11.06.1978, Síða 2
2
Sunnudagur 11. júni 1978
Dugfús:
Ef tir kosningar í Reykj avík
Borgarstjórnarmeirihluti Sjálfstæöisflokksins i
Reykjavik er fallinn. Oft hafa veriö mikil átök i
borgarstjórnarkosningum og þess hefur veriö vænzt aö
nú félli meirihluti Sjálfstæöisflokksins en svo hefur
ekki oröið. En svo gerist þaö allt i einu nú aö hann fell-
ur án allra átaka. Hann fékk hægt andlát. Ég hygg aö
fáir hafi ætlaö aö hann félli nú, enda barátta andstöðu-
flokka hans i lágmarki, ágreiningur i borgarstjórn
nánast enginn.
Þeir flokkar sem áður voru i minnihluta hafa nú tek-
iö höndum saman um stjórn borgarinnar næstu fjögur
árin. Það veltur á þvi hvernig þeim tekst til hvort
Sjálfstæöisflokkurinn nær meirihluta aftur að fjórum
árum liönum. Hvort þeim tekst aö gera stjórnkerfi
borgarinnar ódýrara og auka þannig framkvæmdir án
þess aö hækka skatta eöa hvort stjórnkerfið veröur
dýrara og framkvæmdir minnka eöa skattar hækka.
Þaö má segja aö eina gagnrýni minnihlutaflokkanna
i kosningabaráttunni hafi verið aö borgarstjórnar-
meirihluti Sjálfstæðisflokksins heföi veriö of lengi við
völd og aö þaö hafi valdið ýmsum slappieika i stjórn
borgarinnar. Nefnt var sem dæmi vinnuafköst hjá
Hitaveitu Reykjavikur. En nú er spurningin: Tekur
hinn nýi meirihluti á málunum af festu og gerir endur-
bætur.Ég leyfi mér að halda þvi fram aö viöa þurfi aö
gera nokkurt átak til bættrar stjórnar og nefni sem
dæmi Hitaveitu Reykjavlkur, Rafmagnsveitu Reykja-
vikur og Bæjarútgerð Reykjavlkur.
Blikur á lofti
En þó að aöeins séu liðnir nokkrir dagar slöan hinn
nýi meirihluti tók viö stjórnartaumunum eru ýmsar
blikur á lofti. Fyrsti fulltrúi Alþýöuflokksins hefur lýst
þvi yfir aö hann telji æskilegt aö skipa nýja nefnd yfir
borgarverkfræðingsembættið. Sllk nefnd yröi varla til
annars en_ aö gera borgarverkfræðingsembættiö
þyngra I vöfum og dýrara eöa meö öörum orðum,
stjórnkerfi bbrgarinnar yrði dýrara. En þetta er aöeins
angi af þeirri stööugu áráttu sósialiskra flokka aö
keyra allt i kút með nefndum og ráöum,færa ábyrgöina
frá einstaklingnum til nefnda sem i eöli sinu geta ekki
tekið viö neinni ábyrgö. Þessi fyrstu viðbrögö Alþýðu-
flokksins benda i átt til dýrara stjórnkerfis og þó aö
þetta eina dæmi vegi ekki þungt á vafalaust fleira eftir
aö koma, ef ekki veröur tekiö i taumana strax. Ekki
hafa viöbrögö Alþýöubandalagsins veriö gæfulegri.
Forseti borgarstjórnar hefur boöaö þaö á fundi I Al-
þýöubandalaginu að borgin muni greiöa laun frá 1. júni
samkvæmt þeim kjarasamningum sem nú hafa veriö
ógiltir meö lögum. Þetta þýðir aö hann hefur hugsað
sér að auka rekstrarkostnaö borgarinnar um meira en
fimmtán hundruö milljónir á ári.
A það var bent I kosningabaráttunni að vegna slapp-
leika fyrrverandi borgarstjórnarmeirihluta væri nú
svo komið, aö af fimmtán milljaröa króna tekjum
borgarinnar færu þrettán milljarðar i rekstrarkostnaö
aöeins tveir milljaröar væru eftir til framkvæmda.
Forseti borgarstjórnar hefur sem sagt lýst þvi yfir aö
af þessum tveim milljöröum sem eftir eru til fram-
kvæmda skuli þrir f jóröungar teknir til þess aö greiöa
aukinn rekstrarkostnaö. Eða meö öörum oröum annaö
hvort leggjast framkvæmdir á vegum borgarinnar aö
mestu niöur eöa þyngja veröur skattheimtuna. Hvor
leiðin sem farin veröur færir Sjálfstæöisflokknum
meirihlutann aö nýju eftir fjögur ár.
Launastefna Alþýðubandalagsins
Alþýöubandalagiö á ekki hægt um vik aö snúa frá þvi
að greiöa fullar verðlagsbætur á laun. Sigur þess I
bæjarstjórnarkosningunum byggðist a.m.k. aö veru-
legu leyti á andstööunni viö efnahagsráöstafanir rikis-
stjórnarinnar en efnahagsráöstafanir rikisstjórnar-
innar miðuðust viö þrennt. 1 fyrsta lagi aö draga nokk-
uð úr verðbólgu, i öðru lagi aö hagur hinna lægstlaun-
uðu skertist ekki og i þriöja lagi aö tryggja tvinnu-
öryggi. Þetta eru þau meginmarkmið sem Alþýöu-
bandalagiö hefur verið aö reyna aö brjóta á bak aftur
og þeir vinna kosningar á þvi. Framsóknarmenn mega
ekki láta það hafa áhrif á sig, þeir verða aö halda
áfram að freista þess aö þessi jnarkmiö nái fram aö
ganga. Það er réttlætismál og skiptir þá engu um
stundargengi i kosningum.
En hvaö er þaö sem forseti borgarstjórnar Reykja-
vikur hefur boöaö I launamálum? Það er i stuttu máli:
Samningana I gildi. Hvaö þýöir þaö fyrir starfsmenn
Reykjavikurborgar? Þaö þýöir þaö aö laun þeirra sem
lægst hafa launin hækka ekki neitt en laun þeirra sem
hæst laun hafa hækka um allt aö 70 þúsund krónur á
mánuöi. Og það þýöir meira. Viö hækkun hærri laun-
anna hækkar ýmiss kostnaður en þaö veldur þvi aö
kaupmáttur launa þeirra sem lægst launin hafa
minnkar. Þetta er þaö sem boöaö er og viö þessu á al-
menningur aö gleypa.
Þó aö Alþýöubandalagiö hafi láglaunastefnu á vör-
unum er það fals eitt og hræsni. Launastefna þeirra I
borgarstjórn sannar þaö. Allar geröir þeirra sanna
þaö. Heilbrigöismálaráöherra Alþýöubandalagsins I
siöustu rikisstjórn gekkst fyrir þvi aö þeir hæst laun-
uöu innan heilbrigöisstéttanna fengju launahækkanir
langt umfram alla aöra. Svipaöri þróun stefndi hann
að sem iönaðarráöherra. Undir verndarvæng og meö
fullu samþykki viðskiptaráöherra Alþýöubandalagsins
I þeirri sömu rikisstjórn voru hæstu laun félaga innan
ASI hækkuö 10% meira en lægstu launin viö samning-
ana 1974.
Núverandi rikisstjórn hefur þrisvar sinnum staöiö
fyrir þvi aö jafna laun. Þaö hefur alltaf veriö gert I
andstööu viö Alþýðubandalagiö. Núverandi rikisstjórn
hefur barizt fyrir jöfnuði. Alþýöubandalagiö hefur
verið i andstööu viö þá stefnu, þaö hefur barizt fyrir
ójöfnuöi.
Hlutverk Framsóknarflokksins i
borgarstjórn
Framsóknarflokkurinn varö fyrir miklu áfalli i
borgarstjórnarkosningunum og verður þvi áhrifaL
minni en skyldi innan hins nýja meirihluta. Engu að
siður verður hann með öllum ráöum aö koma i veg
fyrir að viss grundvallarsjónarmiö Framsóknar-
flokksins veröi ekki brotin. I fyrsta lagi veröur hann aö
beita sér af alefni fyrir þvi að rekstur borgarinnar
batni, rekstrarkostnaður lækki. I ööru lagi verður hann
að beita sér af fullum þunga gegn þvi að fjármála-
stjórn borgarinnar fari úr skorðum. Og i þriöja lagi
verður hann aö beita sér fyrir eölilegu launajafnvægi
og jafnrétti á öllum sviöum. Þar veröur róöurinn
þyngstur i samstarfi viö Aiþýöubandalagiö.
Skrifstofufólk óskast
Óskum að ráða á næstunni eftirtalið
starfsfólk.Laun eru samkvæmt launakerfi
rikisstarfsmanna:
1. Skrifstofumann. Laun samkv. launafl.
B-9
2. Simavörð. Laun samkv. launafl. B-7.
Umsóknir á þar til gerðum eyðublöðum,
sem fást hjá undirrituðum, þurfa að ber-
ast fyrir 5. júli n.k.
Vegagerð rikisins,
Borgartúni 7,
Reykjavik.
Almannavarnir
ríkisins
vantar ritara frá 1. júli n.k. Þarf að byrja
þjálfun 23; júni.
Almannavarnir rikisins.
r ~ : _ : “TA
Ritstjórn, skrifstofa og afgreiðsla
V__________________;____________________________J
Mjólkurbú Flóamanna og Mjólkursamsalan:
Setja á markað
nýjan
ávaxtadrykk
GEK—Um miðja næstu viku er
von á nýjum islenzkum ávaxta-
drykk á markaö hérlendis. Að
þessari framleiðslu standa
Mjólkurbú Flóamanna og
Mjólkursamsalan i Reykjavik i
sameiningu. Hér verður um
tvenns konar framleiðslu að
ræða, annars vegar tilbúinn
appelsinusafa og hins vegar
þykkni til safagerðar.
Báðar framleiðsluvörurnar
verðaseldar i 250 gr. umbúðum,
en það eru samskonar umbúðir
og kakómjólkin og rjóminn sem
fyrir eru á markaðinum, eru i.
Umbúðirnar eru prentaðar i
Sviþjóð og kom fyrsta sendingin
til landsins i gær og veröur
unnið að áfyllingu um helgina.
Að sögn Guðlaugs Björvins-
sonar framkvæmdastjóra
Mjólkursamsölunnar I Reykja-
vik veröa unbúðirnar i fjórum
litum: rauöum, bláum, svörtum
og hvitum. Grunnlitur þykknis-
umbúðanna verður blár, en
hvitur á safaumbúðunum.
Ekki hefur verið tekin
ákvörðun um verðlagninguá
þessum nýju framleiðsluvörum,
en i samtali við Timann sagöist
Guðlaugur vonast til aö verðiö
yrði samkeppnisfært við leyfi-
legt hámarksverð sem sett hef-
ur verið.
Aðsögn Guðlaugs hefur kaup-
mönnum i Reykjavik verið
kynnt hin nýja vara og sagði
hann að meðal þeirra hefði ver-
ið almennur áhugi á aö taka
drykkina til sölu.
Það var upphaflega stjórn
Mjólkurbús Flóamanna sem tók
ákvörðun um að hefja
framleiðslu á fyrrgreindum
drykkjum og leituðu þeir eftir
samstarfi viö . Mjólkursamsöl-
una i Reykjavik um dreifingu.
Mjólkurbú Flóamanna hefur
nú yfir að ráða afkastamiklum
vélum til framleiðslu á geymslu
þolnum vörum, og er þetta ein
leið til að auka nýtingu á þeim.
Þess má geta hér, að Mjólkur-
bú Flóamanna hefur nýverið
sett á markað nýja tegund af
jógúrt, kaffijógurt og i samtali
við forstjóra mjólkurbúsins,
Grétar Simonarson, kom fram
að enn stendur til að auka
fjölbreytnina, þvi nú er i undir-
búningi framleiðsla á jógúrt
með sveskjubragði.
Stór skóglendi í hættu á Suðurlandi
Sunnudaginn 11. júni halda
Náttúruvcrndarsamtök Suöur-
lands aöalfund sinn i félags-
heimilinu Hvoli og hefst hann kl.
3.
Auk aöalfundarstarfa veröur á
fundinum könnuö staöa náttúru-
verndarmála á Suöurlandi,
næstu verkefni samtakanna
I valin og lögö fram ýtarleg skrá
yfir náttúruminjar I V-
Skaftafellssýsiu I Arnes- og
Rangárvallasýslum.
Eitt helsta verkefni fundarins er
að f jalla um skógvernd á Suður-
landi, en allmörg skóg- ->g
kjarrlendi þar eru á undanhaldi
og önnur að mestu eydd eftir of-
notkun liöinna ára. Samtökin
vilja rækilega úttekt á þessum
málum og aögeröir er komi I
veg fyrir að skógar og kjarr-
lendi glatist vegna mannvirkja-
geröar og þarfa landbúnaðar-
ins, og benda á aö þessu mark-
miöi megi ná meö auknum
skipulagsaðgeröum og ráögjöf.
Til fundarins koma Snorri
Sigurðsson frá Skógrækt rikis-
ins og fulltrúar skógræktarinn-
ar á Suöurlandi og taka þátt i
umræðum.
Samtökin leggja jafnframt
áherslu á aö samstarf skóg-
ræktar og náttúruverndarfélaga
eflist, og það geti leitt til auk-
innar kynningar og aögeröa I
þágu skógverndar.