Tíminn - 11.06.1978, Blaðsíða 17
Sunnudagur 11. júnl 1978
17
{{i *tHMi
Unga fólkið
í gamla
bænum
Hallgrímur Th. Björnsson.
Nít eins og alltaf, þegar kosn-
ingar nálgast, tekur aö lifna yfir
umræöum um góð og nýtileg mál-
efni, a.m.k. i bili, enda vilja þá
frambjóöendurnir allt fyrir alla
gera, i von um góðan meðbyr.
Rætt er um hvers konar framfar-
ir af smitandi innlifun. Stórauka
þarf ibúöabyggingar á grunni fé-
lagsmála- og samfélagshyggju,
og er þá m.a. átt við fjárframlög
til verkamannabústaða. Bygging
ibúðahúsnæðis fyrir öryrkja og
aldraða á vegum borgarinnar
skal aukið til stórra muna, þar
sem til staðar sé heilsugæzla og
læknisþjónusta, ásamt ýmis-
konar félagslegri fyrirgreiðslu.
Annars hefir þessi þarfa og
gagnlega uppbygging aukizt með
árum, einkumhéri Reykjavik, en
einnig vitt og breitt um landið,
og það jafnvel án tilkomu kosn-
inga. Mun hin þróttmikla starf-
semi Dvalarheimilis aldraðra
sjómanna og Gisla á Grund, vera
þar leiðandi afl. 011 er nú starf
semi myndarlegt og þakkarvert
framtakog þeim til sóma, sem að
hafa unnið.
Og nú á kosningavori á sem sé
að bæta um betur á þessu sviði,
sem á svo fjölmörgum öðrum. En
iöllum rassaköstunum, þegar allt
á að gera og hlustað er eftir svo
að segja-hverju músartisti, virð-
ist samt ein lágvær rödd ekki ná
eyrum hinna stimamjúku fram-
bjóðenda. Það er rödd Samtaka
aldraðra. Þó sú, rödd sé hvorki
hávær né umslattasöm i öllum
skarkalanum, kemur hún samt
frá brjóstum allfjölmennrar fylk-
ingar, sem telur hátt á áttahundr-
uð manns og berst fyrir réttlæti.
Það hefir n.l. gleymzt að huga að
þörfum þeirra aldurhnignu
manna og kvenna, sem bjargazt
hafa á eigin rammleik , eins og
það er orðað — eiga i einhverri
mynd þak yfir höfuðið. Sem starf-
andi menn og skattgreiðendur.
var þetta fólk þó fyrir skemmstu
burðarás hinna stórstigu fram-
fara i landinu sem hið isl. velferð-
arþjóðfélag dagsins i dag á til-
veru sina að þakka.
Innan raða þessa fólks voru
Saintök aldraðra stofnuð fyrir
röskum 5 árum, og þá fyrst og
fremst i þeim tilgangi að vinna að
byggingarmálum aldraðra með
ráðum og dáð og vekja þjóðina af
löngum Þyrnirósarsvefni varð-
andi skyld ur hennar við sina öldr-
uðu þegna.
Núer það allsekki svo, að sam-
tök aldraðra hafi uppi neina
kröfugerð á hendur samfélaginu,
né hyggist betla út fé til sinna
þarfa, heldur vilja þau með tilvist
sinni og fundarhöldum beina at-
hygli alþjóðar, forustumanna
Reykjavikur og annarra þéttbýl-
isstaða að mikilvægum þjóð-
málaþætti, ervarðarlif og afkomu
fólks á þessum stöðum. En þar
stefnir nú öll viðkoma og myndun
nýrra heim.ila til hreinnar út-
þenslu I viðkomandi borgar- og
bæjalöndum, og þá að sjálfsögðu
með ærnum og fjölþættum til-
kostnaði-þess opinbera. 011 þessi
mál þarf að gaumgæfa mjög
vandlega með þjóðarhag fyrir
augum. Að minni hyggju þarf við
þá athugun fyrst að hefja tvennt
tii vegs, varðandi húsnæðismálin.
Koma þarf upp hentugum bygg-
ingum fyrir aldraða, • þar sem
læknisþjónusta og önnur nauð-
synleg aðhlynning sé til staðar.
Hins vegar á að veita ungu fólki
há og aðgengileg lán til ibúða-
kaupa i' gömlu húsnæði, — ekki
lægri lán en þau sem nú eru veitt
til kaupa á nýju. Með þessum að-
gerðum áynnist tvennt, gamla
fólkiðfengi húsnæði við sitt hæfi,
þar sem vel og maklega væri að
þvi búið — og með hóflegri sölu á
húseign sinni til yngri aðila, gæti
það siðan greitt sitt nýja húsnæði,
eins og lög og reglur mæltu fyrir
um. Þannig vil ég að þetta gangi
fyrir sig. Ungt og starfandi fólk
fyllti á ný gamla bæjarhlutann,
mannvirki og skólar nýttust,
héldu áfram að blómstra og svara
kalli timans og heilbrigt ólgandi
mannlif félli þará ný um götur og
torg. Þetta væri að mi'nu mati
einföld lausn á miklu vandamáli,
sem landlitil bæjarfélög eiga nú
við að striða — nokkurs konar
byggðastefna innan marka borg-
ar og bæja, og þar með væri hin
háskalega útþensla úr sögunni.
Má næsta furðulegt heita, að slík-
um málaflokki séenginn gaumur
gefinn.
Fyrir nokkru skrifaði ég grein-
arkorn um þetta efni — það var
rétt fyrir sveitastjórnarkosning-
arnar, sællar minningar. Málefn-
ið virtist falla i góðan jarðveg, ef
marka má margar og hvetjandi
upphringingar, frá ungum og
gömlum, sem ég fékk eftir að
greinin birtist baAi frá félögum
minum i Samtökum aldraðra og
öðrum, er sýndu málinu áhuga.
Nokkrir hafa einnig stungið niður
penna málínu til stuðnings og
áréttingar.
En betur má ef duga skal. Hér
þurfa fleiriað taka til máls. Hinn
fjölmenni hópur ungra og gam-
alla, sem á hlut að þessu máli,
þarf nú að brýna raustina og fá af
staðumræðuum þetta framfara-
mál, svo að frambjóðendur okkar
hvar I flokki sem þeir nú standa,
fái áhuga a.m.k. til jafns við þann
áhuga, sem þeirvirðast hafa fyrir
atkvæðum kjósendanna. Væri þvi
einkar Ijúfl að heyra hvað þeir
hafa hér til mála að leggja. Það
gæti orðiðbýsna lærdcímsrikt fyr-
ir þá kjósendur, sem látasig heill
þessa máls miklu varða. Rjúfið
nú þagnarmúrinn, góðir fram-
bjóðendur, og látið okkur kjós-
endurna heyra, hvernig þið álitið
heppilegast að takast á við þetta
áhugaverða mál.
Hallgrimur Th. Rjörnssor
Þökkum samúð og hlýhug við andlát og útför
Páls Þóroddssonar
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar E6, Borg-
arspltalanum fyrir góöa umönnun I veikindum hans.
Einnig þökkum við stjórn Verkamannafélagsins Dags-
brúnar fyrir virðingu honum sýnda.
Elln Björnsdóttir,
Hallgerður Pálsdóttir, Halldór B. Stefánsson,
Páll Halldórsson, Sólveig Ásgrimsdóttir,
Ásta Halldórsdóttir, Einar Erlendsson,
Elin Ýrr Halldórsdóttir, ólöf Eir Haildórsdóttir,
og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð, vinarhug og virðingu
vegna andláts og jarðarfarar móöur okkar, tengdamóöur
og ömmu
Marie Brynjólfsson.
Magnús M. Brynjólfsson, Elsa Magnúsdóttir,
Sigrún Guðmundsdóttir, Skafti Benediktsson,
Magnús Magnússon,
Matthildur, Maria og Sigrún Skaftadætur.
LÍV
Afsláttur af
sumarferðum
Stjórnir Verzlunarmannafélags Reykja-
vikur og Landssambands islenzkra verzl-
unarmanna, hafa samið við ferðaskrif-
stofurnar Samvinnuferðir og Landsýn um
10.000 kr. afslátt fyrir félagsmenn og fjöl-
skyldur þeirra i sumarleyfisferðir. 5.000
kr. afsláttur er veittur fyrir börn 2-15 ára.
Farið vérður til:
Costa Del Sol 22/6, 7/7, 3/8, 8/9,
Júgóslavia 27/6 12/9 20/9
írland 17/8 7/9
Allar nánari upplýsingar veita ferðaskrif-
stofurnar Samvinnuferðir i sima 27077,
Landsýn i sima 28899.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur,
Landssamband islenzkra verzlunar-
manna.
Clarks
Hanskaskinnsskórnir
eru
/
komnir
Litir: Hvítt, drapp, rautt.
Verð frá kr. 7.220.-
Póstsendum
Skósef
Laugavegi 60 —
sími 21270
Útboð
Hitaveita Suðurnesja óskar eftir tilboðum
i lagninu hitaveitu i Njarðvik 3. áfanga.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
Hitaveitu Suðurnesja, Vesturbraut lOa
Keflavik og á verkfræðistofunni Fjarhitun
h.f., Álftamýri 9, Reykjavik, gegn 20 þús.
kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Hita-
veitu Suðurnesja, fimmtudaginn 22. júni
kl. 14.