Tíminn - 13.07.1978, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 13. júlí 1978 —
148. tölublað — 62. árgangur
„Osk Alþýðuflokksins
óraunhæf” sjá bls. 3
Slðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavík • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og óskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392
Krafla:
Goslíkur aukast
við hver umbrot
Kás — „óróleikinn fer frekar
minnkandi, en enn er talsverð
skjálftavirkni, þótt hún hafi
minnkaö miðað við þaö sem mest
varð i þessari hrinu”, sagöi Páll
Einarsson, jarðfræðingur á
skjálftavaktinni i Mývatnssveit.
Sagði Páll, að sig á Kröflusvæð-
inu héldi áfram, en það færi eftir
heildarsiginu, hve langt yrði i
næstu umbrot á svæöinu. Sér virt-
ist sem ekkert lát yrði á sigi og
risi á víxl, eins og þróunin heföi
verið undanfariö, en goslikur ykj-
ust jafnt og þétt við hver umbrot
þegar kvikan streymdi til hliðar
neðanjarðar. Sagði Páll, að
visindamenn væru sammála um
að goslikurnar ykjust, en ekki
væri hægt að segja hve mikið.
Skjálftavaktinni hefur verið
hætt i bili, en jarðvisindamenn
munu fylgjast gaumgæfilega með
þróuninni, eins og hingað til.
Sjávarútvegsráöuneytiö fyrirskipar:
30 daga þorskveiði-
bann skuttogara
GEK— Sjávarútvegsráðuneytið
gaf i gær út reglugerð, sem felur
i sér 30 daga þorskveiðibann,
skuttogara sem eru með aflvél
900 bremsuhestöfl eða stærri, á
timabilinu frá 12. júli til 15.
nóvember næstkomandi. Þá fel-
ur reglugerðin einnig i sér, að á
timabilinu frá 1. ágúst til 7.
ágúst eru allar þorskveiðar i is-
lenzkri Iandhelgi bannaðar og
kemur það tímabil til frádráttar
hjá skuttogurunum.
I greinargerðinni, er út-
geröaraðilum skuttogaranna þó
heimilt að veíja um hvort þeir
kjósa að stöðva veiðar skipa
sinna á timabilinu frá 1.-7. ágúst
(að báðum dögum meðtöldum),
eða 8.-14. ágúst (að báðum dög-
um meðtöldum).
Greinargerð sjávarútvegs-
ráðuneytisins er birt I heild, á
blaðsiðu 5 i blaöinu i dag.
Alþýðubandalagið
er andvígt
nýsköpunarstjóm
— það vtll annað stjómarform sagði Lúðvík Jósepsson
H EI — // Um þetta nýja viðhorf hef ég ekkert að segja/
það lítur álika út fyrir mér eins og þér, því ég veit ekk-
ert annaðen það sem ég hef heyrt í útvarpinu um, að
búið sé að gefa ákveðnum manni umboð til að mynda
stjórn. Það hefur ekki verið rætt við mig, og ég veit
ekkert hvort leitað verður til okkar um neitt," sagði
Lúðvík Jósepsson, formaður Alþýðubandalagsins er
blaðið bar undir hann hvort ekki hefðu skapazt ný við-
horf, með því að forseti islands hefði falið Benedikt
Gröndal myndun meirihlutastjórnar.
Lúðvik var þá spurður um
hvað hann vildi segja um þau
ummæli Benedikts, að hann ætl-
aöi að kanna myndun ný-
sköpunarstjórnar. Lúðvik sagði,
að það hefði varla farið fram
hjá neinum, að Alþýðubanda-
lagið væri andvigt nýsköpunar-
stjórn. Það vildi annað stjórnar-
form. En hann sagðist að ööru
leyti hvorki svara einu né neinu
blaði um þetta, meðan ekki
hefði verið leitað til sln. Bene-
dikt yrði fyrst að óska eftir við-
ræðum og færi svo, væri hann
tilbúinn til að tala við blöðin.
Lúðvfk Jósepsson — ég veit ekki.
hvort leitað verður til okkar um
neitt samstarf.
Benedikt reynir nýsköpun
— eftir að hafa fengið umboð forseta tíl stjómarmyndunartilrauna
GEK — Forseti islands fói i gær
Benedikt Gröndal formanni Al-
þýðuflokksins að reyna myndun
meirihlutastjórnar. i samræmi
viðumboð flokksstjórnar Alþýðu-
flokksins tók Benedikt þetta verk-
efni að sér og mun nú reyna á það
næstu daga eða vikur hvort hon-
um tekst að mynda starfhæfa
rlkisstjórn. A þingflokksfundi Al-
þýðuflokksins sem haldinn var
siðdegis I gær var ákveðið að rita
formönnum Sjálfstæðisflokks og
Alþýðubandalags formleg bréf og
óska eftir viðræöum viðþessa tvo
flokka um stjórnarmyndun. Að
sögn Benedikts Gröndal voru
þessi bréf send Igærkvöldienfyrr
um daginn hafði hann átt munn-
leg samtöl við formenn beggja
flokkanna.
I samtali við fréttamann út-
varpsins I gær, lýsti Benedikt þvi
yfir að viðreisnarstjórn Sjálf-
stæðisflokks og Alþýðuflokks væri
að slnu mati ekki raunhæfur
möguleiki. Taldi hann aö I sllkri
stjórn tækist Alþýðuflokknum
eWii að koma fram þvl megin-
markmiði I efnahagsmálum sem
flokkurinn setti á oddinn I
kosningabaráttu sinni en það er
að koma á kjarasáttmála rikis-
valds og aðilja vinnumarkaðarins
og tryggja þannig vinnufriö I
landinu.
1 sama viðtali var hann einnig
inntur eftir viðhorfi Alþýðu-
flokksins til myndunar vinstri
stjómar Alþýöuflokks Alþýðu-
bandalags og Framsóknarflokks
og svaraði hann þvl til að þeir úti-
lokuðu engan möguleika.
Blaöið gerði Itrekaðar tilraunir
til að ná I forystumenn allra
stjórnmálaflokkanna til aö spyrja
þá álits á núverandi stöðu varö-
andi stjórnarmyndun.
Þessar tilraunir báru tak-
markaðan árangur. ólafur
Jóhannesson var farinn úr bæn-
um .1 fri og Geir Hallgrimsson
Landsmót hestamanna ! Skógarhólum f Þingvallasveit veröur sett á morgun kl. 13.30.
BlaðamaðUr Tirnans mun flytja lesendum blaðsins fréttir af-mótinu, en hestamenn eru
þegar farnir að flykkjast á mótsstað. Sjá bis. 8.
reyndist ógerningur aö fá sam-
band við vegna anna þrátt fyrir
að hann væri á skrifstofu sinni
allan eftirmiödaginn að sögn
starfsmanna stjórnarráðsins.
Verðlagsstjóri:
„Margar
beiðnir
um verð-
hækkanir”
HR — „Það hafa margir sent
inn beiðnir um verðhækkanir
upp á siðkastið og i morgun
var fundur I verölagsnefnd,
þar sem nokkrar þeirra voru
afgreiddar” sagði Georg
Óiafsson, verölagsstjóri, þeg-
ar Timinn hafði samband við
hann i gærdag.
Verðlagsstjóri vildi hins-
vegar ekkert segja hvaöa
hækkanir væri þar um að
ræöa, fyrr en þær hefðu hlotið
staðfestingu rlkisstjórnarinn-
ar.
„Flugstöðin dæmi-
gerð mistök”. Eriend
ráðgjafarþjónusta á
Islandi frásjónarhóli
Steingríms
Hermannssonar,
framkvæmdastjóra.
Sjá viðtal bls. 6