Tíminn - 13.07.1978, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 13. júll 1978
3
Ólafsfjörður:
Míklar framkvæmd-
Kás — „Grettir byrjaði hér á mánudaginn við dýpkun í höfninni, en hér
er ráðgert að reka niður 70 metra nýtt stálþil i sumar”, sagði Armann
Þórðarson fréttaritari Timans á Ólafsfirði i gsr.
„Að auki eigum við von á anddæiuskipinu Háki siðar i mánuðinum,
til að hreinsa dálitið fyrir okkur á hafnarmynninu, en það viil setjast til
og grynnast þar, þannig að það er tæpiega nógu djiipt fyrir stór skip.
ir við höfnina
Þessar hafnarframkvæmdir
munu kosta að þvi er ráðgert er,
nálægt 70-80 milljónum króna en
eitthvað mun vera óklárt hvort
kostnaður við Hák er þar
reiknaður meö eöa ekki.”
Sagði Armann að þessar fram-
kvæmdir við höfnina væru gerðar
vegna þess að upphaflegt skipu-
lag hennar geröi ekki ráð fyrir
svo stórum skipum eins og Ólafs-
firðingar ættu nú, þ.e. tvo skut-
togara en sá þriðji væri á leiðinni.
„Atvinnuástand hefur veriö
gott hjá okkur og fyrstu mánuði
ársins allt fram I april var afli
mjög góöur þótt hann hafi tregazt
nokkuð siðan. T.d. kom annar
skuttogarinn Sólberg, aö landi
nýlega meö 130 tonn sem veröur
að kalla nokkuð þokkalegt.”
Þá sagði Armann að almennar
byggingarframkvæmdir væru
hafnar, og væri m.a. verið að
reisa heilsugæzlustöð og dvalar-
heimili fyrir aldraða en einnig
væri bæjarfélagið að reisa litið
fjölbýlishús með sjö leiguibúöum.
Að auki stæði til að leggja nýja
aðveitu fyrir kalda vatnið og
stefnt væri aö þvi að tengja hana i
haust.
Aö endingu sagði Armann að
vegagerðin væri að byggja nýjan
veg á svokölluðum Ólafsfjarðar-
vegi eystri sem ætti að liggja
meöfram vatninu aö austan-
verðu. Ætti hann i framtiðinni að
verða aðalvegurinn um Lágheiði
til Siglufjarðar og Skagafjarðar.
Nýtt verð
á kolmunna
og spærlingi
A fundi yfirnefndar Verölags-
ráðs sjávarútvegsins i gær, var
ákveðið eftirfarandi lágmarks-
verö á kolmunna og spærlingi til
bræðsiu frá og með 16. júli til 31.
desember 1978. Kolmunni, hvert
kg. kr. 13.70 og Spærlingur, 13.20
kr. hvert. kg.
Veröið er miðab viö 7% fituinni-
hald og 19% fitufritt þurrefni.
Verðiö breytist um 93 aura til
hækkunar eða lækkunar fyrir
hvert 1%, sem fituinnihald breyt-
ist frá viðmiðun og hlutfallslega
fyrir hvert 0.1%. Verðið breytist
um 91 aura tii hækkunar eða
lækkunar fyrir hvert 1%, sem
þurrefnismagn breytist frá við-
miðunog hlutfallsiega fyrirhvert
0.1%. Verðið er uppsegjanlegt frá
og með 1. september og siðar með
viku fyrirvara.
Verðið er ákveðib af oddamanni
og fulltrúum seljenda. FuUtrúar
kaupenda tóku ekki þátt i at-
kvæðagreiðslu. t yfirnefndinni
áttu sæti: ólafur Daviðsson, sem
var oddamaður nefndarinnar,
Kristján Ragnarsson og Ingólfur
Ingólfsson af hálfu seljenda og
Guðmundur Kr. Jónsson og Jdn
Reynir Magnússon af hálfu kaup-
enda.
Straumsvik niöur i blaðinu I gær
en hún átti að fylgja Hrafni á
miðvikudegi. Eru lesendur
Vegna mistaka féll þessi blaösins beðnir velviröingar á
mynd af Alverksmiðjunni i þessu.
Steingrlmur Hennannsson:
Ósk Alþýðuflokksins
óraunhæf
— svo hann hefur
aöeins um tvo
kosti að velja
HEI — „Þaö er augljóst, aö nú
stendur Aiþýðuflokkurinn
frammi fyrir þvi ab velja, annað
hvort að mynda stjórn með
Sjálfstæðisfiokknum, eða þá að
Ieita tii okkar Framsóknar-
manna, um samstarf, i vinstri
stjórn ef hann á að mynda
meirihlutastjórn”, sagði Stein-
grimur Hermannsson, er blaðið
bar undir hann þá stöðu, sem nú
er upp komin varðandi stjórnar-
myndun.
Miðað við þær yfirlýsingar,
sem liggja fyrir frá Alþýöu-
bandalaginu, má ljóst vera að
ósk Alþýðuflokksins um svo-
nefnda nýsköpunarstjórn er
ekki raunhæf”, sagði Stein-
grimur. Það er þvi aöeins um
tvo áöurnefnda möguleika að
velja, til myndunar meirihluta-
stjórnar.”
Þá var Steingrimur spurður
um álit hans á myndun vinstri
stjórnar. Hann sagöi aö það
hefði komið fram, aö Fram-
sóknarflokkurinn væri reiðubú-
inn til viðræðna um slika
stjórnarmyndun ef þess væri
óskað, en flokkurinn reyndi á
engan máta að hafa frumkvæði
um gang mála. Framsóknar-
flokkurinn sæktist ekki eftir
þátttöku i rikisstjórn. Yrði ósk-
að eftir þátttöku hans, myndi
Framsóknarflokkurinn láta
þann málefnasamning, sem
kynni að nást algerlega ráða af-
stöðunni um tilraunir til
stjórnarsamstarfs.
„Ef viö teldum þann málefna-
samning góðan, sérstaklega á
sviði efnahagsmála, sem auð-
vitað er aðalmálið, þá kæmi
Steingrimur Hermannsson —
það er langt frá að við séum
hlaupnir i neina fýlu.
samstarf af okkar hálfu
vissulega til greina.
Það er langt frá aö við séum
hlaupnir i neina pólitlska fýlu,
eða hættir afskiptum af pólitlk
eins og sumir vilja halda
fram,” sagði Steingrimur aö
lokum.
FRIÐLYST SVÆÐI
■ Þjóðgarðar
&D Mývatn 09 Laxá L j Fólkvangar
■ Friðlönd E3 Náttúruvætti
NATTURUVERNDARRAÐ
„Púsluspil” Náttúruverndarráðs um
friðlýsta staði komið út
FI — Þetta skemmtilega kort er
nú komið dt á vegum Náttúru-
verndarráðs, og þar sézt eins og i
púsluspiii, hvaða staðir hafa nú
þegar verið friðlýstir á tslandi.
Arni Reynisson, framkvæmda-
stjóri Náttúruverndarráðs sagði i
samtali við Timann, að næstu
æskileg verndarsvæði væru friö-
land að Fjallabaki og Þórsmörk
og umhverfi. Einnig væri friðlýs-
ing I undirbúningi varðandi vot-
lendi i Hjaltastaðaþinghá og i
Olfusforum, þar sem er mjög
blautt og lifrikislegt. A náttúru-
verndarþingi nú siðast kom upp
nýtt mál varðandi verndun
Breiðafjarðar þ.e. friðun f jarðar-
ins i heild eöa einhvers konar
verndun umfram þaö, sem nú
þegar er.
A náttúruminjaskrá Náttúru-
verndarráðs eru nú 150 nöfn yfir
þá staði, sem ráölegt er talið að
fribiýsa siðar meö einhverjum
hætti. Púsluspiliðá langt i land og
bim. gat þess við Arna, að það
yrði nú ljóta ástandið, þegar búið
yrði að friðlýsa alit tsland. Arni
hló við og sagði það þvert á mdti
frábært. Friðun kæmi aðeins frá
hinu góða.
Bogaskemmur
20x11 = 220 ferm. Hæð 5,5 m. Viöbótarlengdir 2,5x11 = 27,5 ferm. Einnig
fritt standandi bilskúrar 6,51x2,85= 18,55 ferm. Hæð 2,41. Viðbótar-
lengdir 2,17x2,85 m = 6,18 ferm. Útvegum þessar byggingar frá Hol-
iandi með stuttum fyrirvara.
Byggingar sem reisa á fyrir haustið þarf ab panta sem fyrst. Nánari
upplýsingar hjá
Bogaskemma í byggingu.
Fjalari H.F.
Ægisgötu 7
Símar:
1-79-75/76
Reykjavík
Fullbyggö bogaskemma.
—