Tíminn - 09.08.1978, Side 6
6
Wmmrnm
(Jtgefandi Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurösson. Auglýsinga-
stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur,
framkvæmdastjórn og' auglýsingar Siöumúla 15. Simi
86300.
Kvöidsiinar blaOamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00:
86387. Verö i lausasölu kr. 100.00. Askriftargjald kr. 2.000 á
mánuöi.
Blaöaprent h.f.
Margt til álita
y*
Nokkru fyrir siðustu Alþingiskosningar var
ákveðið að ný stjórnarskrárnefnd skyldi skipuð og
skyldi hún ljúka störfum eftir tvö ár.
Það er þvi ljóst að timabært er að almennar um-
ræður hefjist um stjórnarskrármálið, umræður sem
geti orðið nefndarmönnum leiðbeinandi af hálfu al-
mennings þegar hin nýja stjórnarskrárnefnd tekur
til starfa.
Margvisleg atriði hljóta að koma til álita og
ákvörðunar þegar stjórnarskráin verður loks tekin
til heildarendurskoðunar. Sum þessara atriða munu
tæplega vekja deilur að neinu marki, en önnur eru
vænleg til að geta bæði valdið fjörugum umræðum
og jafnvel talsverðum deilum.
Meðal þeirra atriða sem ætla má að almenn sam-
staða verði um má nefna rækilegri og skýrari
ákvæði um mannréttindi en nú eru i hinni gömlu
stjórnarskrá Kristjáns konungs niunda, en hún er
sem kunnugt er enn i gildi hér á landi i meginatrið-
um.
Enn fremur er sennilegt að samstaða verði um
það að Alþingi sitji i einni málstofu, en ekki tveimur
deildum eins og verið hefur.
Ef marka má yfirlýsingar stjómmálamanna á
að verða auðvelt að ná samstöðu um persónubundið
kjör þingmanna, enda þótt menn geti greint á um
það með hverjum hætti framkvæmdin skuli vera i
einstökum atriðum. Fæstir munu tilbúnir að falla
frá hlutfallskosningum, en á hinn bóginn eru dæmi
um margvislegar aðferðir til að tryggja persónu-
bundið kjör innan ramma hlutfallskosninga.
Á sama hátt hafa forystumenn allra flokka lýst
yfir þvi að þeir vilji vinna að þvi að jafna kosninga-
rétt þegnanna frá þvi ójafnvægi sem orðið er á gildi
atkvæðis i einstökum kjördæmum. Reyndar hefur
það komið fram á opinberum vettvangi að allir
flokkar landsins eru klofnir i afstöðunni til þessa
máls, og má vænta þess að umræðurnar muni snú-
ast að miklu leyti um það.
Nýlega vakti einn af þingmönnum Alþýðuflokks-
ins máls á gamalli hugmynd um aðskilnað fram-
kvæmdavaldsins og löggjafarvaldsins i þvi skyni að
auka skilvirkni og valddreifingu, en gera Alþingi
betur fært um að veita aðhald og eftirlit með stjórn-
völdum fyrir hönd almennings. Aðskilnaður lög-
gjafarvalds og framkvæmdavalds er róttæk breyt-
ingarhugmynd á stjórnarháttum lýðveldisins og
vafalaust vænleg til að vekja áhuga og umræður
manna á meðal. .
Mörg fleiri atriði mætti nefna, þótt ekki gefist
rúm til að sinni. Málefni sveitarfélganna og verk-
svið þeirra hlýtur t.d. að koma til álita.
Eitt er það málefni sem ekki má með öllu liggja
hjá garði i umræðunum um stjórnarskrármálið. Er
þar um að ræða aukinn rétt fólksins i landinu til að
hafa bein áhrif á stjórn landsins með þjóðarat-
kvæðagreiðslu. Vafalaust á ævinlega að vera skylt
að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu sérstaklega um
allar stjórnarskrárbreytingar. Það er einnig alls
ekki fráleit hugmynd að kjósandi geti hafnað lög-
gjöf með þjóðaratkvæðagreiðslu, ef rikisvaldið
gengur fram af þjóðinni i athöfnum sinum. Fleiri
atvik þjóðaratkvæðagreiðslu koma og til greina, og
i sveitarfélögum hlýtur það að verða álitamál hvort
ekki er unnt að auka þar beint lýðræði fólksins að
miklum mun frá þvi sem verið hefur.
JS.
Miövikudagur 9. ágúst 1978
ERLENT YFIRLIT
Ákæran gegn Thorpe
styrkir Thatcher
Sennilega hefur hún áhrif á kosningarnar
FYRIR f jórum árum var Jer-
emy Thorpe vinsælasti stjórn-
málamaöur Bretlands. Hann
var þá leiötogi Frjálslynda
flokksins, en Edward Heath
leiötogi thaldsflokksins og
Harold Wilson leiötogi Verka-
mannaflokksins. Skoöana-
kannanir sýndu ótvirætt, aö
Thorpe var langsamlega vin-
sælastur þeirra þremenn-
inganna.Þetta kom lika glöggt
i ljós f þingkosningunum, sem
fóru fram 1974, en þá var tvi-
vegis kosiö til þings i Bret-
landi, i febrúar og i október. 1
febrúarkosningunum næstum
þrefaldaöi Frjálslyndi flokk-
urinn fylgi sitt. Hann fékk þá
19.3% greiddra atkvæöa, en
haföi aöeins fengiö 7%
greiddra atkvæöa i þingkosn-
ingunum 1970. Alls greiddu
rúmlega 6 milljónir kjósenda
honum atkvæöi i kosningunum
i febrúar. Vegna kjördæma-
fyrirkomulagsins jók flokkur-,
inn ekki þingfylgi sitt aö
sama skapi, þvi aö hann bætti
aöeins við sig þremur þing-
sætum, fékk 14 menn kjörna,
en haföi ellefu fyrir kosning-
arnar. Þrátt fyrir þetta hélt
flokkurinn nokkurn veginn
fylgi sinu i októberkosningun-
um, en hann fékk þá 18,5%
greiddra atkvæða. Fyrst og
fremst voru þessi hagstæöu
úrslit þökkuö vinsældum
Thorpes, og svo óánægju meö
stóru flokkana.
En eftir þetta fór fljótlega
aö halla undan fæti hjá
Thorpe. Sú saga komst á
kreik, aö hann heföi átti kyn-
mök viö leikara og fyrirsætu,
Norman Scott að nafni, um
eöa eftir 1960. Thorpe hefur
alltaf neitaö þvi aö hafa átt
kynmök viö Scott, hins vegar
viöurkendi hann að á timabili
hafi kunningsskapur hans og
Scotts verið mjög náinn. Þrátt
fyrir þessi mótmæli, treystist
Thorpe ekki til annars en aö
segja af sér formennsku
Frjálslynda flokksins voriö
1976, svo aö flokkurinn tapaöi
siöur vegna þessa oröróms.
Thorpe og flokksbræöur hans
væntu, aö þar meö væri þessu
máli lokiö.
EN ÞETTA fór á annan veg.
Æsifréttablööin héldu málinu
stööugt vakandi og komu meö
nýjar og nýjar upplýsingar
um samband þeirra Scotts og
Thorpes. Sumar reyndust al-
veg rangar, en fótur fyrir öör-
um. Fyrst fékk þessi oröróm-
ur þó vængi á siöastl. ári, þeg-
ar blöðin birtu viötöl viö Gino
Newton fyrrv. flugmann, en
samkvæmt frásögn hans haföi
hann fengiö greidd 10 þús.
sterlingspund fyrir aö myröa
Scott. Háttsettur maöur i
Frjálslynda flokknum og ná-
inn vinur Thorpes átti aö hafa
greitt honum fjárhæðina.
Samkvæmt frásögn Newtons
haföi hann þó ekki kjark til aö
ráöa Scott af dögum, þegar til
kom, heldur lét sér nægja aö
skjóta hundhans. Þessi blaöa-
viötöl Newtons uröu til þess,
aö lögregluyfirvöldin fóru aö
rannsaka máliö nánara i kyrr-
þey, og blööin héldu áfram aö
fjalla um þaö, einkum þó
timaritiö Private Eye, sem
helgar sig aöallega þvi verk-
efni aö grafa upp ýmsar
hneykslissögur. Fyrir nokkru
skýröi Private Eye frá þvi, aö
Peter Bessell, fyrrverandi
þingmaður Frjálslynda
flokksins' og náinn vinur
Thorpes, hefði látiö lögregl-
unni i té mikilsveröar upplýs-
ingar, en Bessell býr nú I Kali-
forniu. Þrátt fyrir þessi blaöa-
skrif, kom það þó flestum á
óvart, þegar Thorpe var
kvaddur fyrir rétt siöastl.
föstudag, ásamt þremur
mönnum öörum.og birtákæra
á hendur þeim fyrir tilraunir
til aö ráöa Scott af dögum og
heföi þetta gerzt á árunum
1968-1977. Akæru þessa by ggöu
lögregluyfirvöldin á rannsókn,
sem þau hófu fyrir 10 mánuö-
um eöa nokkru eftir, aö blööin
birtu áöurnefnd viötöl viö Gino
Newton. Leitaö haföi veriö
upplýsinga hjá hundruðum
manna i fleiri löndum. M.a.
taldi lögregian sig hafa undir
höndum hljóöritanir af sam-
tölum samsærismanna, þegar
þeir voru að brugga ráö sín.
Meðal hinna ákærðu er David
Holmes, sem var um skeið
gjaldkeri hjá Frjálslynda
flokknum, en hann hefur opin-
berlega viöurkennt aö hafa
greitt Scott 4.500 sterlings-
pund fyrir bréf, sem Thorpe
hafði skrifaö honum.
AÐ VONUM hefur mál þetta
vakiö mikla athygli, en hinir
ákæröu eiga aftur aö mæta
fyrir rétti 12. september.
Einkum ræða menn um þau
pólitisku áhrif, sem morð-
ákæran gegn Thorpe muni
hafa. Samkvæmt skoöana-
könnunum stendur Frjáls-
lyndi flokkurinn nú ilia sökum
stuðnings síns á þingi viö
rikisstjórn Verkamanna-
flokksins. Ýmsir fréttaskýr-
endur telja, aö ákæran gegn
Thorpe geti orðiö flokknum
nýtt áfall og muni Ihaldsflokk-
urinn helzt græöa á þvi. Ý msir
leiötogar Verkamannaflokks-
ins hafa áöur tekiö máli hans
og taliö Scottmáliö pólitiska
árás á hann. Meðal þeirra er
Wilson, sem um skeiö kenndi
Suöur-Afrikumönnum um, en
féll þó siðar frá þvi. Callaghan
hefureinnig veriö Thorpehliö-
hollur.
Jeremy Thorpe er 49 ára
gamall. Hann.var fyrst kosinn
á þing 1959 og hefur átt þar
sæti siöan fyrir sama kjör-
dæmi. Kjósendur hans
hafa lýst yfir þvi,að þeir séu
reiðubúnir til að styöja hann
áfram og' hann hefur lýst yfir
þvi, aö hann muni bjóöa sig
fram aftur. Thorpeer kominn
af þekktri ætt og áttu bæði afi
hans og faöir sæti á þingi.
Hann er snjall ræöumaöur I
brezkum stil og þykir koma
vel fyrir i sjónvarpi. Fyrri
kona hans fórst i bilslysi, en
siðari kona hans, Marian var
áöur gift jarlinum af Hare-
wood náfrænda Elisabetar
drottningar. Thorpe hlaut
menntun sina i Eton og
Oxford og þykir bera þess
merki i klæöaburöi og fram-
göngu, aö hann muni liðna
frægöartima. Stundum hefur
hann veriö nefndur „siöasti
Játvarðurinn”, en timabiliö
frá aldamótum til siöari
heimsstyrjaldarinnar er oft i
Bretlandi kennt viö Játvaröa
þá, sem þá fóru meö konung-
dóm í Bretlandi.
Ef kosningar veröa i októ-
ber, eins og nú þykirliklegast,
mun þetta mál vafalítið veröa
enn meira á dagskrá en ella.
Eins og áður er getiö.erhætta
á, aö það geti veikt bæöi
Frjálslynda flokkinn og
Verkamannaflokkinn, en oröiö
vatn á myllu Ihaldsflokksins
og Margaret Thatcher.
Þ.Þ.
Mynd þessi var tekin af Thorpe, þegar hann heimsótti kjördæmi sitt daginn eftir aö
hann var ákæröur.