Fréttablaðið - 28.08.2006, Side 72
32 28. ágúst 2006 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
Sumarið hefur verið mjög furðulegt hjá
1. deildarliði Leiknis. Liðið hóf leiktíðina
mjög vel og gott gengi liðsins kom
mörgum skemmtilega á óvart. Það
var ekki bara að liðið væri að hala inn
stig heldur skoraði það fjölda marka
og flest mörk allra liða í fyrri hluta 1.
deildarinnar. Það eru ólíkir tímar núna
því sóknarmenn liðsins virðast hafa týnt
markaskónum. Liðinu hefur ekki tekist
að skora í síðustu fimm leikjum sínum
og það eru 526 mínútur síðan Einar Örn
Einarsson skoraði síðast fyrir liðið en
það var í 2-3 tapleik gegn Fram þann 21.
júlí síðastliðinn.
„Þetta er ekki skemmtilegt ástand,“
sagði Garðar Gunnar Ásgeirsson, þjálfari
Leiknis. „Það vantar ekki að menn
skori á æfingum og fái færi í leikjum.
Það virðist bara ekki vera hægt
að koma blöðrunni yfir blessaða
línuna. Það má samt ekki gleyma
að við höfum haldið markinu
hreinu í fjórum af þessum
fimm leikjum og það er
mjög jákvætt.“
Leiknir er í sjöunda sæti 1.
deildarinnar eftir sextán
leiki og svo gott sem
búið að bjarga sér frá falli
en aðeins eitt lið fellur
úr deildinni í sumar. Það
sem vekur einnig athygli
við markaþurrðina er sú
staðreynd að félagið hefir
endurheimt markaskorarann
Jakob Spangsberg á þessu tíma-
bili en hann kom aftur frá Val og
bjuggust margir við því að þá myndi
mörkunum byrja að rigna en það er
ekki og Jakob á enn eftir að skora
fyrir liðið í sumar.
„Þetta er örugglega ekkert
auðvelt fyrir framherjana
en ég óttast ekkert á
meðan við höldum
áfram að skapa
okkur færi,“
sagði
Garðar en
hann seg-
ist ekki hafa íhugað að beita
einhverjum óhefðbundnum
aðferðum til að leysa marka-
vandræðin.
1. DEILDARLIÐ LEIKNIS ÚR BREIÐHOLTI: SÓKNARMENNIRNIR HAFA TÝNT MARKASKÓNUM
Leiknir hefur ekki skorað í 526 mínútur
FH bikarmeistari
FH varð um helgina bikarmeistari í
frjálsum íþróttum en þetta var í þrett-
ánda sinn í röð sem Hafnfirðingar fagna
sigri á mótinu. Breiðablik varð í öðru
sæti.
FÓTBOLTI Í kvöld mætast Víkingur
og Keflavík í undanúrslitum VISA
bikarkeppni karla í knattspyrnu.
Leikurinn byrjar kl. 20.00 og er á
Laugardalsvellinum.
Víkingar hafa farið þrengslin á
leið sinni í undanúrslitin. Í 16 liða
úrslitum mættu þeir Íslandsmeist-
urum FH í Kaplakrika og unnu
þann leik 2-1 þar sem Höskuldur
Eiríksson, fyrirliði Víkings, skor-
aði bæði mörk liðsins.
Í 8 liða úrslitum mættu Vík-
ingar Valsmönnum þar sem loka-
tölur urðu þær sömu og gegn FH,
2-1. Aftur var það Höskuldur
Eiríksson sem kom liði sínu áfram,
skoraði sigurmarkið eftir að Daní-
el Hjaltason hafði jafnað leikinn
fyrir Víkinga. Höskuldur er því
ekki kallaður annað en „Bikar-
Höski“ þessa dagana og verður
spennandi að fylgjast með honum
í kvöld.
Ekki verður síður spennandi að
fylgjast með rimmu Daníels
Hjaltasonar, framherja Víkings,
og Guðmundar Mete, varnar-
manns Keflavíkur, en Daníel fór
ófögrum orðum um Guðmund á
heimasíðu sinni á dögunum og
ásakaði hann um alls kyns fauta-
skap á vellinum sem og að hafa
hótað sér lífláti.
Keflvíkingar mættu Leikni
Reykjavík á útivelli í 16 liða úrslit-
um og sigruðu örugglega 3-0. Stef-
án Örn Arnarson skoraði tvö mörk
í leiknum og Guðmundur Steinars-
son eitt.
Keflvíkingar fóru svo upp á
Skaga í 8 liða úrslitum og mættu
ÍA í hörkuleik. Guðmundur Stein-
arsson skoraði tvö mörk og þeir
Þórarinn B. Kristjánsson og Símun
E. Samuelsen sitt markið hvor í 4-
3 sigri Keflvíkinga.
„Ég held að þetta verði þræl-
skemmtilegur leikur og ég hlakka
til að takast á við þetta verkefni,“
sagði Höskuldur Eiríksson, fyrir-
liði Víkings.
Höskuldur sagðist hálfpartinn
vorkenna Keflvíkingunum því
Víkingar ætli sér að mæta mjög
grimmir í þennan leik eftir að hafa
fengið á sig mark á síðustu sek-
úndunum í leik liðsins gegn
Grindavík í síðustu viku.
„Þetta leggst bara vel í mig og
ég á von á mjög skemmtilegum
leik. Þetta eru búnir að vera mjög
spennandi leikir á milli liðanna í
deildinni í sumar,“ sagði Guð-
mundur Steinarsson, fyrirliði
Keflvíkinga.
Keflvíkingar léku illa í síðasta
leik gegn ÍA í deildinni en Guð-
mundur sagði að Keflvíkingar
væru staðráðnir í að taka sig
saman í andlitinu. „Allir leikmenn
okkar átta sig alveg á því hvað fór
úrskeiðis gegn ÍA og það er mjög
einfalt að laga það. Við mætum
endurnærðir og hungraðir í þenn-
an leik,“ sagði Guðmundur að
lokum. dagur@frettabladid.is
Hvað gerir „Bikar-Höski”
gegn Keflavík í kvöld?
Höskuldur Eiríksson, fyrirliði Víkings, verður undir smásjánni í leik Víkings
við Keflavík í kvöld en hann hefur skorað grimmt í bikarnum. Einnig verður
áhugavert að fylgjast með rimmu Daníels Hjaltasonar og Guðmundar Mete.
FYRIRLIÐARNIR Guðmundur Steinarsson, fyrirliði Keflavíkur, til vinstri, og Höskuldur Eiríks-
son, fyrirliði Víkings, verða í lykilhlutverkum í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
KÖRFUBOLTI Íslenska landsliðið
hefur undanfarna daga tekið þátt
í æfingamóti í Hollandi en því
lauk um helgina. Lokaleikur liðs-
ins var viðureign við frændur
vora Svía og höfðu Svíarnir betur,
63-75. Ísland varð þar með í
þriðja sæti á mótinu en liðið lagði
Belgíu en tapaði fyrir Hollandi
og Svíþjóð.
Leikurinn gegn Svíum tapað-
ist í öðrum leikhluta en þá voru
okkar menn úti að aka og töpuðu
leikhlutanum stórt, 9-23, en
Ísland var yfir eftir fyrsta leik-
hluta, 19-14. Sigurður Ingimund-
arson landsliðsþjálfari var dug-
legur að dreifa álaginu í leiknum
en enginn leikmaður spilaði
meira en 21 mínútu að því er
fram kemur á heimasíðu Körfu-
knattleikssambandsins. Jón
Arnór Stefánsson var stigahæst-
ur í íslenska liðinu með 12 stig og
Fannar Ólafsson kom næstur
með 10 stig. Logi Gunnarsson
skoraði 9 og Jakob Sigurðarson
8.
Það er skammt stórra högga á
milli hjá landsliðinu því það hélt
rakleitt til Dublin á Írlandi eftir
mótið en það spilaði við Norð-
menn í gær og leikur síðan við
Íra í dag.
Leikurinn við Íra er síðasti
leikurinn í undirbúningi liðsins
fyrir Evrópukeppnina.
- hbg
Íslenska landsliðið í körfubolta varð í þriðja sæti á æfingamóti í Hollandi:
Tap fyrir Svíum í lokaleiknum í Hollandi
JÓN ARNÓR STEFÁNSSON
Var stigahæstur gegn Svíum en
Ísland hafnaði í þriðja sæti á æfinga-
móti í Hollandi.
FÓTBOLTI Ef eitthvað er að marka
spænska landsliðsmanninn Jose
Antonio Reyes þá hefur hann leik-
ið sinn síðasta leik í búningi Ars-
enal. Hann hefur margoft lýst yfir
áhuga sínum á því að fara aftur
heim til Spánar og bæði Real og
Atletico Madrid hafa gert tilboð í
hann en án árangurs.
Á meðan ekki berst nógu gott
tilboð í hann verður hann áfram í
herbúðum félagsins. Hann hefur
samt ekkert leikið með liðinu á
leiktíðinni og það mun ekki breyt-
ast eftir því sem hann segir.
„Það sem ég vil er að komast til
Spánar. Ég mun ekki spila aftur á
Englandi. Ég vil komast heim og
er í raun sama hvort ég spila með
Real Madrid, Atletico Madrid eða
Sevilla. Ég vil bara komast heim,“
sagði Reyes sem virðist vera orð-
inn þunglyndur yfir ástandinu.
Sevilla er hans gamla félag en það
hefur ekki enn sent inn tilboð í
kappann en hann virðist vera til-
búinn að leika hvar sem er svo
framarlega sem það sé á Spáni en
ekki á Englandi.
Hann gæti samt verið að lenda
í vondum málum því leikmanna-
markaðurinn lokar um mánaða-
mótin og eftir því sem Arsenal-
menn segja hafa tilboðin sem
þegar hafa komið verið nokkuð
frá því sem þeir séu að hugsa um.
- hbg
Jose Antonio Reyes:
Arsenal-ferlin-
um er lokið
JOSE ANTONIO REYES Er með heimþrá.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Brunaútsölunni hjá
Juventus er hugsanlega ekki lokið
þrátt fyrir fögur loforð um annað
því franski landsliðsframherjinn
David Trezeguet var orðaður við
Manchester United í ítölsku blöð-
unum um helgina. Ítalskir fjöl-
miðlar halda því fram að þegar sé
byrjað að funda um kaupin á fram-
herjanum.
United er enn á höttunum eftir
framherja þar sem skarð Ruuds
Van Nistelrooy, sem fór til Real
Madrid, hefur ekki enn verið fyllt.
United er ekki eina liðið sem hefur
áhuga á Trezeguet því frönsku
meistararnir í Lyon eru einnig
taldir vera að undirbúa tilboð í
Frakkann. - hbg
David Trezeguet:
Orðaður við
Man. Utd
DAVID TREZEGUET Gæti verið á förum frá
Juventus. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Danski landsliðsmaður-
inn Thomas Gravesen óttast mjög
að hann verði læstur inni hjá Real
Madrid þar sem ekki er enn búið
að ganga frá sölu eða láni á honum
til annars félags en hann á enga
framtíð hjá Madrídar-liðinu eftir
að Fabio Capello tók við liðinu.
Gravesen hefur staðfest að
Celtic, Newcastle, Bolton, Midd-
lesbrough og hans gamla félag,
Everton, hafi öll áhuga á sér en
það hefur ekki skilað neinu hingað
til.
„Ég óttast að vera fastur hér án
þess að spila og ekki gera það sem
ég elska mest. Vonandi fara hlut-
irnir að smella. Það eru viðræður í
gangi og ég verð að vona það
besta,“ sagði Gravesen. - hbg
Thomas Gravesen:
Óttast um
framtíðina
THOMAS GRAVESEN Fær ekki að spila með
Real Madrid. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
> Birgir í fimmta sæti
Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson
stóð sig mjög vel á Ecco-mótinu í
Danmörku um helgina en mótið er liður
í áskorendamótaröðinni. Birgir Leifur
hafnaði í fimmta sæti mótsins ásamt
Englendingnum Sam Walker en báðir
léku þeir hringina fjóra á 14 höggum
undir pari. Sigurveg-
arinn, James Heath
frá Englandi, lék á
19 höggum
undir pari.
Hann lék jafnt
golf alla dagana
en fyrstu tvo
dagana kom
hann í hús á
66 höggum en
síðari dagana
kom hann í hús
á 67 höggum.