Fréttablaðið - 21.09.2006, Side 8
8 21. september 2006 FIMMTUDAGUR
1. Hvað heitir fyrrverandi forsetis-
ráðherra Taílands sem hrakinn
var frá völdum í fyrradag?
2. Hvaða fyrirtæki hefur keypt
alla miða á eina af væntalegum
tónleikum Björgvins Halldórs-
sonar?
3. Hvaða útvarpsmann taldi
vopnaður maður, sem réðst inn í
hljóðver útvarpsstöðvarinnar X-ins
um helgina, sig eiga sökótt við?
TÓKÝÓ, AP Flokksmenn vinsælasta
stjórnmálaflokks í Japan, Frjáls-
lynda lýðræðisflokksins, kusu
hinn hægrisinnaða Shinzo Abe til
leiðtoga í gær. Hann er því næsta
öruggur um að verða forsætisráð-
herra landsins þegar núverandi
forsætisráðherra, Junichiro Koiz-
umi, segir af sér í komandi viku.
Abe verður þar með fyrsti forsætis-
ráðherra Japans sem fæddur er
eftir lok seinni heimstyrjaldarinn-
ar, en hann er 51 árs gamall, sem
þykir lágur aldur fyrir forsætis-
ráðherra í Japan. Hann er með
þrettán ára þingsetu að baki en er
tiltölulega reynslulítill og tók ekki
við ráðherradómi fyrr en í fyrra.
Abe vann öruggan sigur í próf-
kjörinu, fékk 464 atkvæði af 703.
Vinsældir hans ná út fyrir raðir
lýðræðisflokksins, því þegar hann
barðist fyrir lausn japanskra gísla
frá Norður-Kóreu vakti hann
mikla athygli og aðdáun almenn-
ings.
Það er einmitt utanríkisstefnan
sem Abe er þekktastur fyrir. Hann
hefur heitið því að gera Japan að
landi sem allur heimurinn „treystir
og elskar“. Japan á að sýna
„ákveðni“ út á við og eitt fyrsta
verk hans eftir að hann var kjör-
inn í gær var að þrýsta á um fund
með kínverskum og suður-kóresk-
um stjórnvöldum. Tengsl ráða-
manna þessara ríkja við núver-
andi forsætisráðherra Japans hafa
ekki verið sem best, en Koizumi
var ófeiminn við að rifja upp hern-
aðarsögu Japana og mæltist ekki
vel fyrir í ríkjunum, sem urðu
fyrr á tímum að þola grimmdar-
verk af hálfu japanska hersins.
Leiðtogaskipti kunna að liðka
fyrir í samskiptum ríkjanna en
Abe er þó talinn mikill þjóðernis-
sinni, sem sé engu líklegri til að
gera lítið úr hernaðarsögu Japana
en forveri hans í starfi. Að auki
mun Shinzo Abe hafa í hyggju að
gera breytingar á stjórnarskránni
þess efnis að utanríkisstefna jap-
önsku þjóðarinnar verði endur-
skilgreind og horfið frá hreinni
friðarstefnu, hornsteini japanskr-
ar utanríkisstefnu allt frá endur-
reisn landsins eftir seinni heims-
styrjöldina.
klemens@frettabladid.is
Burt með sektarkenndina
Shinzo Abe hefur tekið við völdum í flokki þeim sem hefur stýrt Japan að mestu síðan 1955. Hann hefur
lagt áherslu á utanríkismál og kjósendur telja hann munu rífa landið upp úr sektarkennd eftirstríðsáranna.
SHINZO ABE PRÓFAR VALDASTÓLINN Hér sést Abe koma sér fyrir á skrifstofu Frjáls-
lynda lýðræðisflokksins í Tókýó. Abe var kosinn forseti flokksins með 464 atkvæðum
af 703. Sökum yfirburðastöðu flokksins er hann líklegastur manna til að taka við
völdum af núverandi forsætisráðherra. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
LAUNAMÁL Laun félagsmanna VR
hækkuðu um átta prósent milli
áranna 2005 og 2006, samkvæmt
niðurstöðum árlegrar launakönn-
unar VR sem kynntar voru í gær.
Er þetta tveimur prósentum minni
hækkun en kom fram í launakönn-
un VR í fyrra og örlítið minni en
hækkun launavísitölunnar á tíma-
bilinu, að sögn Gunnars Páls Páls-
sonar, formanns VR. „Við höfum
yfirleitt legið hærra en launavísi-
talan og hugsanleg skýring á því að
laun hækka ekki meir núna gæti
verið aðstreymi erlends vinnu-
afls.“
Gunnar segir fátt koma á óvart í
könnuninni en helstu vonbrigðin
séu að ekki hafi dregið úr launa-
mun kynjanna í ljósi þess að VR
fór í mikla herferð gegn honum í
fyrra. Kynbundinn launamunur er
fimmtán prósent og hefur nánast
staðið í fjögur ár.
Bilið á milli launahæstu og
launalægstu félagsmanna hefur
aukist á síðustu árum. Meðalheildar-
laun fólks í hópi fimm prósent
launahæstu eru að jafnaði 411 pró-
sentum hærri en þeirra sem eru í
hópi fimm prósent launalægstu.
Gunnar segir vaxandi tekjumun
áhyggjuefni og kallar eftir skil-
greiningu á ofurlaunum. Í grein
sinni í VR blaðinu nefnir hann þá
tillögu að laun forstjóra verði ekki
meiri en tíföld meðallaun í viðkom-
andi fyrirtæki og sama eigi við um
bónusa, sé arðsemi fyrirtækis
veruleg. „Ég er með þessu að kalla
eftir viðbrögðum frá samfélaginu.
Það virðist vera árlegt upphlaup í
þessum málum sem fjarar síðan
alltaf út.“ - sdg
GUNNAR PÁLL
PÁLSSON, FOR-
MAÐUR VR Vill
að launþegaarm-
urinn í lífeyris-
sjóðunum beiti
sér gegn vaxandi
tekjumun.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Launakönnun VR sýnir átta prósenta hækkun launa félagsmanna milli ára:
Vill láta skilgreina ofurlaun
STJÓRNMÁL Önundur Björnsson,
prestur á Breiðabólstað í Fljótshlíð,
sækist eftir 2.-3. sæti í prófkjöri
Samfylkingarinnar í Suðurkjör-
dæmi.
Önundur skipaði
sjötta sæti á lista
flokksins í kjör-
dæminu í síðustu
kosningum og hefur
verið varaþingmað-
ur hans á kjörtíma-
bilinu.
Önundur hefur
unnið sem prestur,
blaðamaður,
kennari og sjómaður um ævina.
Hann hefur þjónað á þremur
stöðum á Suðurlandi; á Breiðaból-
stað, í Höfn í Hornafirði og Garði á
Suðurnesjum. - bþs
Önundur Björnsson:
Gefur kost á sér
í 2.-3. sæti
ÖNUNDUR
BJÖRNSSON
STJÓRNMÁL Magnús Norðdahl lög-
maður sækist eftir 2.-3. sætinu í
prófkjöri Samfylkingarinnar í Suð-
vesturkjördæmi.
Magnús vann að
stofnun Samfylk-
ingarinnar og hefur
gegnt trúnaðar-
störfum fyrir
flokkinn.
Hann hefur
verið lögfræðingur
Alþýðusambands
Íslands undanfarin
tíu ár. Frá hausti 2004 til vors 2005
sinnti Magnús vopnahléseftirliti á
vegum utanríkisráðuneytisins á
Srí Lanka. - bþs
Magnús Norðdahl lögmaður:
Í prófkjör hjá
Samfylkingunni
MAGNÚS
NORÐDAHL
Sagði Bush vera djöfulinn
Hugo Chávez, forseti Venesúela,
líkti George W. Bush við djöfulinn
sjálfan í gær á allsherjarþinginu í
New York. „Djöfullinn var hér í
gær,“ sagði Chávez og signdi sig.
Forsetinn kvartaði síðan undan
brennisteinsfnyk í lofti.
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR