Fréttablaðið - 21.09.2006, Page 10
10 21. september 2006 FIMMTUDAGUR
KJARAMÁL Sjúkraliðar á LSH
krefjast stofnanasamninga
þegar í stað. Þetta kom fram á
fjölmennum fundi sjúkraliða
sem var haldinn þar fyrr í vik-
unni.
Í kjarasamningum sem ríkið
hefur gert við önnur stéttar-
félög hafa þeir lægstlaunuðustu
fengið töluvert meiri hækkun
en sjúkraliðar, að sögn Kristín-
ar Á. Guðmundsdóttur, For-
manns sjúkraliðafélags Íslands.
„Sjúkraliðar hafa dregist aftur úr öðrum starfstétt-
um varðandi laun en nýútskrifaður 22 ára sjúkraliði á
LSH fær 146 þúsund krónur í mánaðarlaun. Við 35 ára
aldur eru launin 152.733 krónur.“ Miðað er við laun 1.
maí 2007.
Kristín segir að margir nýútskrifaðir sjúkraliðar
hafi gerst félagsliðar til að fá hærri laun, en félagsliðar
fá 182.537 krónur á mánuði miðað við 35 ára lífaldur.
Kristín segir nokkuð
um að sjúkraliðar sem
gerist félagsliðar starfi
á elliheimilium eða á
vegum félagsþjónust-
unnar.
„Búið er að gera
stofnanasaminga við
sjúkraliða á sjálfseignar-
stofnunum en þar eru
launin um 160 þúsund
krónur á mánuði óháð
lífaldri.
Flest sjúkrahús í landinu eiga eftir að gera stofnana-
samninga við sjúkraliða ásamt LSH en þeir samningar
sem gerðir hafa verið eru í samræmi við stofnanasamn-
inga sem gerðir hafa verið við sjálfseignastofnanir.“
Kristín segir sjúkraliða á LSH hafa búið við vaxandi
álag vegna manneklu ásamt ofbeldi sem átt hafi sér stað
á sumum deildum spítalans. „Ofbeldið hefur verið bund-
ið við bráðamóttöku og geðdeildir og árásarmenn gjarn-
an verið vopnaðir hnífum. Allt þetta eykur álag á sjúkra-
liða, sem margir gefast upp og hætta. Sem dæmi um
manneklu veit ég dæmi þess að á deild þar sem gert er
ráð fyrir ellefu stöðugildum sjúkraliða eru aðeins fjórar
mannaðar.“
Kristín segir álagið á öðrum stöðum síst minna en á
LSH og nefnir heimahjúkrun í Reykjavík. „Þar eru
sjúkraliðar jafnvel að hætta eftir nokkra daga vegna
álags sem stafar af fjölda vitjana.
Það veldur áhyggjum að sjúkraliðastéttin er að eld-
ast og nú er svo komið að fleiri hætta sökum aldurs en
þeir sem útskrifast. Gripið hefur verið til þess ráðs að
meta ófaglært fólk inn í sjúkraliðanám til að tryggja
nýliðun í stéttinni.“ hugrun@frettabladid.is
SAMFÉLAGSMÁL Leikskólabörn leikskólans Sjá-
lands í Garðabæ eru talin í hættu vegna þess að
framkvæmdir við aðgengi leikskólans hafa
dregist úr hömlu. Að mati stjórnenda skólans
átti verktakinn Björgun Bygg sf. að skila viðun-
andi aðgengi fyrir mörgum mánuðum. Aðstand-
endur skólans hafa skrifað verktakanum ítrek-
að til að reka á eftir því að verkið verði klárað
en án árangurs.
Ída Jensdóttir, leikskólastjóri Sjálands,
metur stöðuna svo að leikskólabörnum stafi
hætta af illa frágengnum leiðum að skólanum.
„Á þriðjudag hugðist Björgun Bygg hefja mal-
bikunarframkvæmdir og lokaði öllum leiðum.
Enginn komst leiðar sinnar og slökkvilið og
sjúkrabílar hefðu ekki getað athafnað sig.“
Stefán Þórarinsson, stjórnarformaður Nýsis
sem er eigandi skólans, segir að verktakarnir
hafi ekki staðið við gefin loforð. „Við erum búin
að bíða í marga mánuði eftir að Björgun Bygg
geri hreint fyrir sínum dyrum. Það er með ólík-
indum hvernig þessu hefur undið fram.“
Sigurður R. Helgason, framkvæmdastjóri
Björgunar Bygg sf., segist skilja að aðstand-
endur skólans séu orðnir langeygir eftir því að
framkvæmdum ljúki. Hann segir tafirnar vera
vegna vatnslagnar sem ekki var búið að ákveða
hvar ætti að liggja. „Ég skil að fólkið sé leitt en
mér er sagt að gengið verði frá þessu í þessari
viku.“ Sigurður segir að sér hafi aðeins borist
bréf frá bæjaryfirvöldum, sem hvatt hafi til
þess að verkið yrði klárað. - shá
Óviðunandi ástand við leikskólann Sjáland í Garðabæ:
Umhverfi skólans hættulegt börnum
LEIKSKÓLINN SJÁLAND Aðgengið er mjög slæmt og
eiga börn, foreldrar og kennarar í mestu erfiðleikum
með að komast að skólanum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
PANDABJÖRN BITINN Gu Gu, sex
ára gamall pandabjörn í dýragarði í
Peking, maular bambusgreinar í búri
sínu í gær, eftir að drukkinn maður
óð inn til hans og reyndi að faðma
hann. Bitu þeir því næst hvorn annan
áður en dýragarðsverðir handsömuðu
manninn. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
35 %
Afsláttur
Ræstivagn Elite 100
Suðurlandsbraut 26
108 Reykjavík
Sími: 510 0000
Fax: 510 0001
besta@besta.is
Brekkustíg 39
260 Njarðvík
Sími: 420 0000
Fax: 420 0001
njardvik@besta.is
Miðás 7
700 Egilsstöðum
Sími: 470 0000
Fax: 470 0001
egilsstaðir@besta.is
Grundargötu 61
350 Grundarfirði
Sími: 430 0000
Fax: 430 0001
grund@besta.is
Hentugur vagn fyrir lítil
og meðalstór fyrirtæki
Verð á vagni, moppu og skafti
Nú: 33.904.-
Áður: 52.159.-
*meðan birgðir endast
SJÚKRALIÐANÁM Í FB Sjúkraliðar hafa dregist aftur úr öðrum
starfstéttum varðandi laun. Laun nýútskrifaðra sjúkraliða við
LSH eru 146 þúsund krónur á mánuði.
Sjúkraliðar flýja lág
laun, álag og ofbeldi
Sjúkraliðar á LSH bíða nú eftir gerð nýs stofnanasamnings. Fjöldi sjúkraliða
hefur flúið spítalann vegna mikils álags og ofbeldis. Margir þeirra hafa gerst
félagsliðar og hækka þannig laun sín. Byrjunarlaun sjúkraliða eru 146 þúsund.
Ofbeldið hefur verið
bundið við bráðamót-
töku og geðdeildir og árásarmenn
gjarnan vopnaðir hnífum. Allt
þetta eykur álag á sjúkraliða, sem
margir gefast upp og hætta.
KRISTÍN Á. GUÐMUNDSDÓTTIR
FORMAÐUR SJÚKRALIÐAFÉLAGS ÍSLANDS
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI