Fréttablaðið - 21.09.2006, Síða 22
21. september 2006 FIMMTUDAGUR22
Tvíburakort er ný þjónusta Símans sem gerir viðskiptavinum fyrirtækisins kleift
að vera með tvö mismunandi símtæki með sama símanúm-
eri. Þessi áskriftaleið er sérhönnuð fyrir þá símnotendur sem
þurfa að nota tvö símtæki, til dæmis Blackberry síma og far-
síma. Ef aðalsíminn er ekki í notkun flyst hringingin yfir í hinn
símann og báðir símarnir hafa sama talhólf.
Þótt um tvö símkort sé að ræða vinna kortin saman þannig
að notandinn og þeir sem hringja í símana nota einungis eitt
númer.
Læsingar og aðrar sérþjónustur speglast af aðalsímanum yfir á
aukasímann og notkun símanna gjaldfærist á bæði númer símanna
þannig að notandinn getur fylgst með kostnaði hvors símtækis fyrir sig.
■ Ný þjónusta símans
Tvö símtæki með sama númer
Útgjöldin
> Eggjaneysla á Íslandi á hvern íbúa
Ódýrasta kaffi landsins er frá Euroshopper og fæst í Bónus.
Fimmhundruð gramma poki er á 159 kr., eða 318 kr. kílóið.
Dýrasta kaffi landsins er hins vegar Jamaica Blue Mountain
sem Te & kaffi hefur selt. Það er selt í 125 gramma pokum á
1.995 krónur stykkið, eða 15.960 kr kílóið. Það má því fá 50
kíló af Euroshopper-kaffi fyrir eitt kíló af því jamaíska. Það er
ræktað hátt í fjallshlíðum Jamaíka á fáeinum hríslum. Örfáir
sekkir fara í sölu árlega og Te & kaffi vonast til að fá smáræði
til sölu í vetur. Þetta kaffi er að sögn gríðarlega gott, enda selst það hratt upp í
hvert skipti sem það er boðið til sölu hérlendis.
■ DÝRAST/ÓDÝRAST
Kaffi
hagur heimilanna
Svokölluð Visa Lán standa viðskiptavinum Icelandair nú til boða og segir á vefsíðu
fyrirtækisins að það sé í boði í fyrsta sinn í ferðaþjónustu á Íslandi. Með þessu
láni sé hægt að dreifa greiðslum á pakkaferðum á vefnum, fá staðgreiðsluverð
þó greitt sé með korti, greiða lægri vexti af láninu en ella auk þess sem vildar-
punktar fáist frá Visa auk þeirra sem fást við kaupin á pakkanum.
NEYTENDUR Bannað er að fljúga
með vökva í handfarangri beint til
annarra landa frá Bandaríkjun-
um, jafnvel þó að vökvinn hafi
verið innsiglaður í Fríhöfninni á
Keflavíkurflugvelli, nema hann
sé settur í ferðatöskuna áður en
flugi er haldið áfram. Það er hins
vegar leyfilegt að kaupa vökva í
Fríhöfninni og flytja inn til Banda-
ríkjanna ef vökvinn hefur verið
innsiglaður.
Misbrestur virðist á því að
upplýsingastreymi sé nógu gott
hvað þetta varðar. Fríður Helga-
dóttir, starfsmaður Skjalasafns
Kanada, flaug frá Íslandi til Kan-
ada í gegnum Boston fyrir fjórum
vikum og fékk þær upplýsingar
að það væri í lagi að flytja vökva
áfram til Kanada. Það reyndist
rangt og var vökvinn, sem hún
hafði keypt, gerður upptækur í
Boston.
„Þegar ég kom inn í flugstöð- ina hér heima var mér réttur miði
til allra farþega. Á honum kom
fram að það væri bannað að flytja
vökva til Bandaríkjanna en tekið
fram að farþegar gætu keypt
vökva í Fríhöfninni þegar þeir
væru búnir að fara í gegnum
öryggiseftirlitið. Vörurnar yrðu
þá settar í poka og pokinn innsigl-
aður,“ segir hún.
„Ég spurði stúlku sem sat við
kassann í Fríhöfninni hvort þetta
bann gilti fyrir mig líka eða hvort
ég gæti flutt vökvann áfram í
handfarangri þar sem ég væri að
skipta um vél í Boston. Hún sagði
að það væri allt í lagi og var alveg
viss um að ég myndi ekki lenda í
neinum vandræðum svo lengi sem
innsiglið væri
órofið. Ég
keypti því eina litla flösku sem
síðan var tekin af mér og gerð
upptæk í Boston.“
Fríður þekkir dæmi um annan
Íslending á leiðinni til Kanada
sem hafi keypt rakspíra sem síðan
hafi verið gerður upptækur. Hún
kveðst hafa sent Jóni Helgasyni
verslunarstjóra tölvupóst og beðið
hann um að láta starfsfólkið vita
en ekki fengið neitt svar. Hún
bendir Fríhöfninni á að vara far-
þega betur við þessu.
Hlynur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Fríhafnarinnar,
segir að Fríhöfnin viti af þessu og
hafi brýnt þetta fyrir viðskipta-
vinum en í rauninni ættu ferða-
skrifstofurnar að veita þessar
upplýsingar. Öryggisstigið í
Bandaríkjaflugi breytist nánast
daglega og reglurnar séu misjafn-
ar eftir flugvöllum.
ghs@frettabladid.is
„Í starfi mínu sem fasteignasali skoða
ég mikið af húsnæði og tek þá stund-
um eftir því að sverta er byrjuð að
myndast í gluggakistum. Þessi sverta
er byrjun á fúamyndun. Ég verð sér-
staklega var við þetta í herbergjum
þar sem gluggar eru sjaldan opnaðir.“
Magnús segir það fara
betur með húsnæðið að
hafa glugga opna.
„Við lagfæringar
mæli ég með því að fá
iðnaðarmenn í verkin
nema fólk sé þess
fullvisst að það
geti gert hlutina
þokkalega vel.“
GÓÐ HÚSRÁÐ
HAFIÐ GLUGGANA OPNA
■ Magnús Leopoldsson fasteignasali
segir mikilvægt að lofta út reglulega til
að fyrirbyggja fúa í gluggakistum.
Fríhöfnin þyrfti að
efla upplýsingagjöf
Bannað er að fljúga með vökva í handfarangri beint til annarra landa frá
Bandaríkjunum, jafnvel þó að vökvinn hafi verið innsiglaður í Fríhöfninni.
Fríður Helgadóttir skorar á Fríhöfnina að upplýsa fólk betur um þetta.
VÖKVI GERÐUR
UPPTÆKUR Dæmi
eru þess að vökvi úr
Fríhöfninni, til dæmis
ilmvötn og rakspírar, hafi verið gerður
upptækur í Boston hjá farþegum sem
skiptu þar um vélar og héldu áfram til
Kanada. Fríður Helgadóttir lenti í þessu
og bendir Fríhafnarstarfsmönnum á að
vara farþega við þessu.
„Ég held að ég hafi gert bestu kaup mín í gær.
Ég var nefnilega að kaupa mér hjól. Kostaði ekki
nema 3.000 kall,“ segir Steinunn Jakobsdóttir,
blaðamaður á Reykjavík Grapevine og fyrrver-
andi ritstjóri Orðlauss. Hún segir að hjólið eigi
eftir að koma að góðum notum því hún á ekki
bíl. Núna geti hún notað hjólið til að komast
í og úr vinnu. „Þetta er svona fínt fjallahjól
með körfu og öllu. Ég get geymt allt draslið
mitt í körfunni.“ Steinunn segist bara vera
að bíða eftir því að fá lyklana að hjól-
inu afhenta en hún er að kaupa það
af starfsstúlku á Kaffibarnum sem er að
flytja til útlanda.
„Þetta er eins spennandi og að fá
lyklana að bíl. Hjólið er eldgamalt en
stórglæsilegt. Seljandinn segir mér að
það dugi upp og niður Hverfisgötuna
en það á eftir að koma í ljós. Ég reiði það
kannski bara upp götuna. Veit ekki hvort þolið
hjá mér þoli þá leið.“
Steinunn vonast til að hennar bestu kaup
eigi eftir að hjálpa til við að koma samviskubit-
inu vegna þeirra verstu í burtu. „Það versta
sem ég hef nokkurn tímann keypt mér
er árskort í líkamsrækt sem ég keypti
fyrir tveimur árum, en hef aldrei
notað.“ Hún man ekki alveg hvað
það kostaði en veit þó að það var
ágætis upphæð. „Ég ætlaði að
fara að taka mig þvílíkt á, en
bara fór aldrei. Ég gerði nú
ekkert annað í staðinn en nú
var ég að kaupa mér hjól
þannig að bestu kaupin
gætu hjálpað til við að lina
samviskubitið. Þetta helst
allt í hendur.“
STEINUNN JAKOBSDÓTTIR, BLAÐAMAÐUR Á REYKJAVÍK GRAPEVINE:
Eldgamalt en stórglæsilegt hjól
■ Verslun og þjónusta
Fleiri vildarpunktar
Neytendasamtökin telja að þekkingu skorti meðal neytenda á
mismunandi gæðum landbúnaðarvara svo sem vistvænni
framleiðslu og lífrænni. Í stuttu máli felst munurinn á gæðun-
um í því að lífræn ræktun byggir á alþjóðlegum stöðlum þar
sem sáðvara, áburður og varnarefni eru af náttúrulegum upp-
runa, það er að segja lífrænn úrangur er nýttur sem áburður,
ræktarland er hvílt til að auka frjósemi jarðvegs, búfé er fóðr-
að með lífrænu fóðri og strangar kröfur eru gerðar um aðbúnað
þess. Notkun á skordýraeitri, tilbúnum áburði, fyrirbyggjandi lyfjum og
erfðabreyttum efnum er með öllu bönnuð. Í vistvænni ræktun má nota tilbúinn
áburð, fyrirbyggjandi lyf og varnarefni innan ákveðinna marka.
■ Verslun og þjónusta
Lífrænt og vistvænt
8,
6
KÍ
LÓ
9,
1
KÍ
LÓ
10
,4
K
ÍL
Ó
1984
20041994
Heimild: Hagstofa Íslands
FRÍÐUR HELGADÓTTIR Fríður Helga-
dóttir fékk þær upplýsingar í Fríhöfn-
inni að það væri í lagi að flytja vökva
í handfarangri til Kanada ef innsiglið
á Fríhafnarpokanum væri órofið. Það
reyndist rangt.