Fréttablaðið - 21.09.2006, Síða 25

Fréttablaðið - 21.09.2006, Síða 25
FIMMTUDAGUR 21. september 2006 25 Enn ber mikið í milli Bandaríkj- anna og Evrópu í tilraunum til að koma aftur af stað viðræðum um landbúnaðarafurðir á vettvangi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, WTO. Lagðar voru fram nýjar til- lögur á fundi svokallaðs Cairns- hóps í Ástralíu, en í honum eru fulltrúar átján landa sem flytja út landbúnaðarvörur. Mark Veile, viðskiptaráðherra Ástralíu, kynn- ir tillögurnar á fundinum sem hófst í Cairns í Ástralíu í gær og lýkur á morgun. Susan Schwab, sem fer fyrir sendinefnd Bandaríkjanna, segir tillögurnar fela í sér ákveðna möguleika, en Carlo Trojan, yfir- samningamaður Evrópusam- bandsins innan WTO, hafnaði til- lögunum alfarið, með þeim orðum að Bandaríkjamenn legðu of lítið á sig. Áströlsku tillögurnar fela í sér að Evrópusambandið auki tilboð sitt um niðurskurð tolla á landbúnaðarafurðum um fimm prósent um leið og Bandaríkin dragi úr stuðningi við landbúnað hjá sér um fimm milljarða Banda- ríkjadala, eða sem nemur ríflega 350 milljörðum íslenskra króna. Í dag er ráðgert að Carlo Trojan og Susan Schwab hittist á sérstök- um fundi utan almennra funda- halda í Cairns og ræði málin. Ekki eru þó miklar væntingar um stór- tíðindi af þeim fundi. Fari svo að svokallaðar Doha- viðræður WTO sigli alveg í strand er gert ráð fyrir að ríki taki í auknum mæli upp tvíhliða samninga um tollamál sín á milli. - óká Mikið ber í milli Evrópu og Ameríku FUNDAÐ Í ÁSTRALÍU Susan Schwab, sem er fulltrúi bandarísku viðskiptanefndarinnar í Cairns í Ástralíu, heilsar við komuna þangað í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Hluthafafundur Mosaic Fashions hf. verður haldinn á Nordica hótelinu, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, fimmtudaginn 28. september 2006 kl. 17.00. Á fundinum verða einnig kynntar afkomutölur vegna fyrri helmings reikningsársins 2006. Fundurinn er öllum opinn. Atkvæðisrétt hafa einungis hluthafar. Að fundi loknum verður boðið upp á léttar veitingar og helstu stjórnendur félagsins verða á staðnum til viðræðna við fundarmenn. Frekari upplýsingar veitir Jessica Wilks, forstöðumaður fjárfestatengsla í síma (+44) 207 452 1122. Upplýsingar um Mosaic Fashions hf.: www.mosaic-fashions.is eða www.mosaic-fashions.co.uk Dagskrá fundarins verður sem hér segir: 1. Kynning á kaupum á Rubicon Retail Ltd. 2. Afkoma fyrri helmings reikningsársins 2006. 3. Samþykki hluthafa við kaupum á Rubicon Retail Ltd. Stjórn félagsins leggur svofellda tillögu fyrir hluthafa: a. Að hluthafar samþykki kaup dótturfélagsins Mosaic Fashions Ltd. á öllu hlutafé Rubicon Retail Ltd. b. Að hluthafar staðfesti heimild félagsins til þess að gera samninga og gangast undir skuldbindingar í tengslum við fjármögnun kaupanna á Rubicon Retail Ltd., þ.m.t. ábyrgðir þeirra vegna, m.a. með því að veita veð í öllum hlutum sínum í Mosaic Fashions Ltd. 4. Tillaga til breytinga á samþykktum félagsins, þess efnis að stjórn félagsins verði heimiluð útgáfa áskriftarréttinda til þess að fjármagna kaup á Rubicon Retail Ltd. að hluta. Stjórn félagsins leggur svofellda tillögu fyrir hluthafa: Við samþykktir félagsins bætist ný málsgrein, sem verði 5. mgr. 4. gr. og hljóði svo: Stjórn félagsins skal heimilt að veita áskriftarréttindi að hlutum í félaginu fyrir allt að kr. 347.758.887 að nafnverði. Áskriftarréttindin verða veitt í sterlingspundum og getur nafnverð þeirra verið allt að 45.000.000 sterlingspund eða 0.1294 sterlingspund á hverja 1 krónu að nafnverði hlutafjár. Stjórninni skal heimilt að auka hlutaféð um fjárhæð sem svarar til áskriftarréttindanna, eða um allt að kr. 347.758.8887 að nafnvirði, í því skyni að bregðast við nýtingu áskriftarréttindanna. Áskriftarréttindin má veita í því skyni að tryggja fjármögnun á kaupum félagsins eða dótturfélaga þess á öðrum félögum. Hluti sem gefnir verða út á grundvelli áskriftarréttindanna má greiða með því að framselja til félagsins kröfu skv. skuldaviðurkenningum sem Mosaic Fashions Ltd. hefur gefið út til handhafa áskriftarréttindanna. Greiðsla með framseldum skuldaviðurkenningum skal að lágmarki svara til 0.1294 sterlingspunds á hverja krónu nafnverðs sem gefin er út á grundvelli áskriftarréttindanna. Réttur stjórnar eftir þessari grein skal gilda til 28. september 2011. Forgangsréttur hluthafa til áskriftar eftir 34. gr. l. 2/1995 um hlutafélög, skal ekki eiga við um hlutafjárhækkun sem verður á grundvelli áskriftarréttindanna. 5. Önnur mál.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.