Fréttablaðið - 21.09.2006, Qupperneq 31
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Heiða Sigurðardóttir starfar hjá lögfræðisviði Lands-
bankans. Hún er líka lunkin með saumavélina og
þakkar það móður sinni, sem byrjaði snemma að
leyfa henni að spreyta sig við að sauma föt á Barbí-
dúkkurnar.
Í dag kýs Heiða fremur að sauma sér föt en bíða eftir því að
þau komi í búðir.
„Ég er þannig gerð að ef ég gríp eitthvað í mig þá vil ég
fá það strax, Þessi bolur var bara svona hugdetta sem ég
gat ekki beðið eftir að kæmi í búðirnar. Ég hafði séð stelpu
í sjónvarpinu í bol með þessu ákveðna sniði og vissi að mig
langaði í sams konar flík, bara með hlébarðamynstri. Við
tók heilmikil leit að þessu efni sem bolurinn er gerður úr, en
það var uppselt nánast alls staðar,“ segir Heiða og upplýsir
blaðamann um að fatahönnuðir hafi forgang hjá heildsölum
við að kaupa efni og að stundum kaupi þeir upp heilu lager-
ana með þeim afleiðingum að efnin komist aldrei í almenn-
ar efnabúðir.
„Þetta fæst til dæmis ekki í Virku og fleiri búðum í
Reykjavík. Ég þurfti að fara til Hafnarfjarðar að kaupa
efnið í búð sem heitir Gallerí Sara.“
Heiða segist vita til þess að dýraskinnsmynstur sé mikið
í tísku þessa dagana. „Ég virðist samt hafa dottið inn á þetta
rétt áður en það var farið að fjalla svona mikið um það í
blöðum og tímaritum. Þetta er fyrsta flíkin sem ég eignast
með svona mynstri enda er þetta frekar villt. Mér hefur
reyndar alltaf þótt þetta flott á öðrum, en svo ákvað ég bara
að mig langaði að ganga í svona topp og tók mig því bara til
og saumaði hann,“ segir þessi ákveðna saumakona.
mhg@frettabladid.is
Saumaði
sætan topp
Heiða Sigurðardóttir segist ekki geta beðið lengi eftir því sem hana langar að fá. Þess vegna saumar hún
sér frekar fötin en að bíða þess að þau birtist í hillum búðanna.
VIRÐULEGIR PRÓFASTAR
Fatahengi eru til í mörgum
útfærslum.
HEIMILI 10
GÓÐAN DAG!
Í dag er fimmtudagurinn
21. september, 264. dagur
ársins 2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 7.07 13.21 19.33
Akureyri 6.51 13.05 19.18
TUTTUGASTI OKTÓBER ER ALÞJÓÐLEGUR BEINVERNDARDAGUR.
Alþjóðlegu beinverndarsamtökin halda 20. október í heiðri sem
alþjóðlegan beinverndardag ár hvert. Tilbangurinn er að vekja
athygli á þeim alvarlega og
einkennalausa sjúkdómi sem
beinþynnig er og veldur miklum
fjölda sjúkrahússinnlagna og
dauðsfalla. Á hverju ári hefur
dagurinn ákveðið þema og
í ár er það næring og bein.
Beinvernd, sem er íslensk
landssamtök áhugafólks um
beinþynningu, hefur af því tilefni
verið í samstarfi við matreiðslu-
meistara.
Eitt af vopnunum í baráttunni
við beinþynningu er einfaldari
lyfjagjöf en áður hefur þekkst.
Það er svonefnd Bonviva-tafla
sem tekin er aðeins einu sinni í
mánuði og svo nýjasta lyfið sem
kemur á markað eftir tvær vikur
og er gefið í sprautu á þriggja
mánaða fresti.
Næring og bein
Raddir sem heyrast úr eigin
höfði eru víst ekki óeðlilegar,
þvert á það sem talið hefur
verið. Talið er að einn af hverjum
25 heyri raddir í höfði sínu án
þess það trufli daglegt líf. Raddir
í höfðinu þurfa því ekki að tengj-
ast geðsjúkdómi.
Tískuvikur standa nú yfir víða
um heim. Fylgjast má með
tískuvikunum meðal annars á
síðum eins og www.style.com
og www.vogue.uk.co. Um að
gera að fylgjast vel með og vera
klár á því sem koma skal í tísku-
straumunum næstu misseri.
Myrkrið færist nú yfir með lækk-
andi sól og því ekki úr vegi að
huga að útilýsingu
við heimilið. Víða
fást fallegar lugtir
eða ljós sem
geta lýst upp
tilveruna og
gangveginn
svo enginn
fari sér nú
að voða í
myrkrinu.
ALLT HITT
[TÍSKA HEIMILI HEILSA]
ALLT SEM ER GULT GULT
Haustlitir eru í tísku.
TÍSKA 2