Fréttablaðið - 21.09.2006, Qupperneq 36
[ ]Ekki gleyma að slaka á. Góð heilsa kemur einna helst með stresslausum líkama. Takið stund hvern dag til að anda og slaka á.
Heilbrigð sál
BORGHILDUR SVERRISDÓTTIR
EINKAÞJÁLFARI OG B.A. Í SÁLFRÆÐI
Guðmundur Ragnar Guð-
mundsson tölvukennari
kveðst vera léttari, hressari
og úthaldsbetri eftir að hann
komst á lifandi fæði og ætlar
að kenna grunnatriði þess lífs-
stíls á síðdegisnámskeiði hjá
Manni lifandi í dag, 21. sept-
ember.
„Ég lít svo á að margir kvillar
orsakist af matarvenjum sem má
þannig líkja við fen. Það er samt
aldrei of seint að snúa við og þó
við læknum okkur kannski ekki
til fulls með því að borða réttan
mat þá er hollt fæði tvímælalaust
fyrirbyggjandi,“ segir Guðmund-
ur.
Sjálfur hefur hann snúið sér að
því sem kallað er lifandi fæði, en
það felst í því að hann hvorki
steikir né sýður það sem hann
setur ofan í sig. Hann segir þó að
slíkar breytingar á lífsvenjum
ekki eigi að gera á einni nóttu
heldur smátt og smátt. Þá leggist
ró yfir meltinguna, fólk finni
fyrir léttleika bæði á sál og lík-
ama, það fari að borða minna því
líkaminn nýti allt betur og mat-
arfíkn hjaðni. Hann sér fyrir sér
heilsueflingu í framtíðinni sem
leiði til betra og lengra lífs með
litlum tilkostnaði.
Þetta mun hann fræða fólk um
á námskeiði hjá Manni lifandi nú
í dag, fimmtudaginn 21. septemb-
er milli klukkan 17.30 og 20.
gun@frettabladid.is
Borðar hvorki soðna né
steikta matvöru
Guðmundur Ragnar segir fólk losna við margs konar vanlíðan með því að borða
lifandi fæði. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Það var sorglegt að skoða Hag-
kaupsbækling síðustu viku og
sjá hvað fyrirtækið flytur inn
fyrir okkur Íslendinga.
Á forsíðunni var mynd af lít-
illi stelpu sem hélt á sykurhúð-
uðu cheeriosi með bros á vör.
Þarna voru líka ofursaltaðar
hnetur, Ben & Jerry ís sem er
einn fituríkasti ís á markaðnum
og poppkorn með extra smjör-
innihaldi. En orðið „organic“ á
kassanum gerir popp í smjörlegi
ekkert hollara. Á næstu síðum
var svo fátt annað en pitsur,
unnar kjötvörur, snickers-
smyrja á brauð, ritzkex með
sykruðu hnetusmjöri á milli (eins
og ritzkex sé ekki nógu óhollt
eitt og sér), aukaefnastráð köku-
mix og kleinuhringir. Ef þetta er
Ameríka í hnotskurn finnst mér
ekki skrítið að Ameríkanar séu
feitasta og jafnvel vannærðasta
þjóð í heimi.
Það versta frá Ameríku
Ég sá þó eitt sem gæti nært lík-
ama minn og það var lífrænt
ræktaða grænmetið frá
Earthbound Farm. Nokkrum
dögum síðar sá ég svo í einu dag-
blaðana að spínatið frá þeim
hefði verið innkallað. Þar fór
það!
Ég bjó í Ameríku um tíma og
veit því af eigin raun að það er
ekki auðveldasti hlutur í heimi
að finna næringarríkan mat í
stórmörkuðum þar í landi. En
Ameríka er ekki bara snickers
og Peter Pan hnetusmjör. Svo
dæmi sé tekið eru kraftmiklar
súpur og pottréttir sterk hefð í
suðurhluta bandaríkjanna, svo
ég tali nú ekki um snilldar mat-
argerð Suður-Ameríku. Ef um
landkynningu er að ræða eru
amerískir dagar Hagkaups kynn-
ing á „instant“ Ameríku, sem er
tilbúin í pakka. Það er því frekar
sorglegt að sjá stórmarkað hér á
landi fyllast af broti af því versta
frá Ameríku (eða Bandaríkjun-
um öllu heldur).
Við vinnum ekki saman
Á sama tíma og amerískir dagar
standa yfir eru áhyggjufullir
einstaklingar (og ekki að ástæðu-
lausu) að reyna að vinna forvarn-
arstarf gegn offitu, vannæringu
og hreyfingarleysi íslensku þjóð-
arinnar og ekki síst ungmenna,
sem jafnvel eru enn ginkeyptari
fyrir slíkum gylliboðum en þeir
sem eldri eru. Eftir að hafa borð-
að matinn sem Hagkaup vildi
leggja áherslu á þessa helgina,
erum við síður líkleg til að hreyfa
okkur og líklegri til að fitna þar
sem hann inniheldur sprengju af
hitaeiningum en litla sem enga
næringu. Þetta er að minnsta
kosti ekki leiðin til að lyfta því
grettistaki í lýðheilsumálum sem
við þurfum að gera.
Hagkaup er í „business“
Hagkaup hefur gert marga góða
hluti í heilsumálum og markaðs-
hlutdeild verslunarinnar er það
sterk að ekki á að þurfa að leggj-
ast svona lágt í vöruúrvalinu.
Ég geri mér fulla grein fyrir
því að fyrirtæki eins og Hagkaup
eru í „business“, en góður „bus-
iness“ liggur í svo mörgu öðru en
innflutningi á smjörsprautuðum
kalkúnabringum eða einhverju
sem heitir „shake´n pour“. Það
eitt og sér getur ekki komið vel
út, hvernig sem á það er litið.
Valið er okkar!
Þeir sem reka fyrirtæki gera
auðvitað bara það sem þeir telja
sig þurfa að gera til að koma vör-
unni á framfæri. Þeir fara líka
eins langt og siðferði þeirra og
fyrirtækjabragur nær. Að því
sögðu langar mig bara að minna
á ábyrgð okkar sjálfra á eigin
heilsu og vellíðan.
Lifið heil! Borghildur
Smjörpopp og snickers-smyrja
Kanadísk rannsókn bendir
til þess að tónlistarnám bæti
minni og námsárangur hjá ung-
um börnum.
Þetta kemur fram á vef BBC.
Börnin sem voru borin saman
voru á aldrinum fjögurra til sex
ára. Í ljós kom að þau sem stund-
uðu tónlistarnám stóðu sig betur
í prófum sem mæla eiga náms-
getu, stærðfræðigetu, minni og
læsi. Tónlistarnemendur sýndu
auknar framfarir strax eftir
fjóra mánuði en börnunum var
fylgt eftir í eitt ár.
Áður höfðu sömu rannsakend-
ur athugað áhrif tónlistarnáms á
eldri börn og komist að sömu nið-
urstöðum. Næsta skref mun vera
að athuga áhrif tónlistar á full-
orðið fólk og hlakka rannsakend-
ur til að fá niðurstöður úr þeim
prófum.
- tg
Tónlist þrosk-
ar heilann
Tónlistarnám virðist hafa góð áhrif á
greindarþroska. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
í vetur
*Tilboðsverð 2006
S
e
p
t.
2
0
0
6
Nicorette Fruitmint
Nicorette nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuð þegar reykingum er hætt eða þegar dregið er úr
reykingum. Til að ná sem bestum árangri skal ávallt fylgja leiðbeiningum í fylgiseðli. Skammtar eru
einstaklingsbundnir eftir því hve mikið er reykt, hvort hætta á reykingum eða draga úr þeim. Því ber að
kynna sér upplýsingar um notkun í fylgiseðli. Í fylgiseðlinum eru upplýsingar um: verkun og notkun,
varúðarreglur, mikilvægar upplýsingar sem nauðsynlegt er að lesa áður en lyfin eru notuð, hugsanlegar
aukaverkanir og aðrar upplýsingar. Leitið til læknis eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum um
lyfin. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, nýlegt hjartaáfall,
óstöðuga versnandi hjartaöng, alvarleg hjartsláttarglöp eða nýlegt heilablóðfall eiga ekki að nota Nicorette
nikótínlyf. Börn yngri en 15 ára, þungaðar konur og konur með barn á brjósti eiga ekki að nota Nicorette
nikótínlyf nema að ráði læknis.
Handhafimarkaðsleyfis: Pfizer ApS. Umboð á Íslandi: Vistor hf., Hörgatúni 2, Garðabæ.
Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið.
Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann síðar.
www.nicorette.is
Nýttbragð
semkemurá óvart
25%
afsláttur
*