Fréttablaðið - 21.09.2006, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 21.09.2006, Blaðsíða 39
FIMMTUDAGUR 21. september 2006 9 Haustið er tími uppskerunnar. Þá er viðeigandi að prýða híbýlin með gróskulegum aldinplöntum sem sýna að þrátt fyrir allt kom hér sumar, þótt stundum hafi okkur nú þótt fremur lágskýjað, rakt og hryssingslegt, svo ekki sé nú fastar að orði kveðið um þetta sumar sem senn er á enda. Plöntur af kartöflu- ættinni þroska myndarleg ber sem oftar en ekki eru litsterk og gleðja augað. Af þessari ætt eru nokkrar pottaplöntur sem einmitt passa svo vel inn í stemninguna og standa langt fram eftir hausti. Kóralber, Solanum capsicastrum, er smávaxinn runni frá Suður-Ameríku. Vaxtarlagið er marggreinótt út til hliðanna, en fremur flatt að ofan. Blöðin eru fagurgræn, óreglulega lensulaga og blómin eru hvítar stjörnur (kartöflublóm!) sem þarf að frjóvga svo aldin myndist. Það er hægt að gera með því að strjúka eyrnapinna yfir blómin af og til meðan á blómgun stendur. Eftir frjóvgunina myndast allstór, hnöttótt ber. Í fyrstu eru þau græn en skipta svo litum yfir í gula og eirrauða skalann og verða að lokum kóralrauð. Plantan, einkum berin, er ögn eitruð, en samt ekki hættuleg. Berin eru bragðvond, svo að óvitar skyrpa þeim strax út úr sér ef þeir stinga þeim í munninn. En samt er best að hafa plöntuna þar sem börn ná ekki til hennar. Kóralberið þarf drjúga vökvun og ögn af áburði á vaxtartímanum og vill helst standa á björtum stað þar sem sólar nýtur nokkra tíma á dag. Venjulega er plantan ræktuð sem einær og fleygt þegar skrautgildi hennar dvínar. En það er líka hægt að geyma plöntuna yfir veturinn á björtum, fremur svölum stað og halda þá vökvun í lágmarki. Það er nóg að moldin sé aðeins rök á veturna. Seinnipart vetrar má svo klippa greinar og umpotta í stærri pott. Salsapipar eða salsapaprika, Capsic- um annuum ‚Salsa‘, er eiginlega sama tegundin og sú sem gefur okkur papriku og chilipipar. Paprik- an er upprunnin í Mið-Ameríku og hafði verið í ræktun þar í nokkur þúsund ár áður en Evrópumenn gerðu vart við sig. Af henni eru til mörg hundruð sérnefnd afbrigði og stofnar, sem hver hefur sína eigin- leika, bæði hvað varðar vaxtarlag og aldinstærð en ekki síst bragð- styrkinn. Venjuleg paprika er sæt og mild á bragðið, eins og við vitum, en salsapiparinn er mun skarpari í góminn. Hann gefur hið dæmigerða bragð í salsamatseldina ásamt fleiri paprikugerðum. Það er auðvelt að rækta hann í björtum glugga og þarfirnar eru í stórum dráttum þær sömu og hjá kóralberinu, nema það að plönturnar eru einærar og lifa ekki af veturinn. Hins vegar geta þær prýtt eldhúsgluggann meðan eitthvað er aftir af aldinum á þeim. Salsapaprikurnar eru fyrst grænleitar en skipta svo yfir í gult, appelsínugult eða hárautt, allt eftir afbrigðum. Það er óhætt að nota þær í matseld, en fara þarf varlega og smakka sig áleiðis ef ekki á allt að loga. Salsapaprikur innihalda töluvert af undraefninu kapsaisíni, sem sagt er að hafi mjög heillavænleg áhrif á blóðrásina og sérstaklega hefur athygli beinst að kapsaisíninu undanfarin ár vegna þess að sumir vísindamenn telja að regluleg neysla á því dragi úr tíðni blöðruhálskrabbameina. Mest er af kapsaisíni í rauðu aldinunum. Skínandi haustber til gagns og gleði Í GARÐINUM HEIMA HAFSTEINN HAFLIÐASON SKRIFAR UM ALLAN GRÓÐUR HEIMILANNA Smávægileg mistök urðu við gerð greinar um útiljós og lugtir í Allt blaði Fréttablaðsins síðastliðinn mánudag. Þá rugluðust tveir myndatextar og því birtum við hér myndirnar á ný, með réttum texta. leiðrétting } Nýjasta lugtin hjá Ljósunum í Bænum er þessi fallega borðlugt. Sandblásið gler umlykur kveikinn og gefur þannig milda birtu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Þessi fallegi kyndill fæst í Lene Bjerre. Honum er einfaldlega stungið í jörð og olíu hellt ofan í opið. Kyndillinn er einnig auðveldur í þrifum og fæst í tveimur stærðum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM upplifðu haustið í litum Komið og skoðið æðislega haustliti í Habitat. Nú er málið að skella sér út í rómantíkina og krydda allt þetta svarthvíta þema sem hefur verið svo áberandi með flottu haustlitunum. Tími til að fara í kósí stemminguna með lækkandi sól. Mikið úrval af ótrúlega góðum og flottum kertum, mottum og teppum. Úrvalið af nýjum vörum í öllum flottu haustlitunum er í Habitat. Ýmislegt fleira en gott sjónvap er nauðsynlegt til að gera stund- ina við skjáinn ánægjulega. Íslendingar eyða stórum hluta frítíma síns fyrir framan sjónvarpið enda getur verið gott að kasta sér upp í sófa eftir erfiðan vinnudag. Til að gera stundina ánægjulega er gott að hafa við hendina nokkra hluti sem auka þægindin til muna og auka á slökun. Rólegt kvöld við sjónvarpið Gott myndefni skiptir höfuðmáli. Gott er að hvíla þreyttan koll á kodda. Fjarstýring, svo ekki þurfi að standa upp að óþörfu. Værðarvoð er yndisleg á köld- um kvöldum og ekki er verra ef tveir geta deilt einu teppi. Þægilegur sófi skiptir öllu máli. Alltaf er gott að hafa eitthvað að maula.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.