Fréttablaðið - 21.09.2006, Side 44
■■■■ { miðborgin } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■2
Um miðjan desember mun rekstur
söluturnsins hætta. Margrét segir
sjálf að margir hafi komið að máli
við sig upp á síðkastið og spurt
hvað þeir eigi að gera nú þegar
sjoppan hættir. „Þetta eru aðal-
lega MR-ingar og þeir hafa í gegn-
um árin verið mitt lifibrauð og ég
sömuleiðis þeirra,“ segir hún. „Það
stóð til að selja reksturinn en síðan
var leigusamningnum sagt upp og
því var ekkert annað að gera en að
loka Hallanum.“
Aðspurð um hvernig stemning-
unni í Hallanum mætti best lýsa
svarar hún: „Hér hefur ekki þróast
eins sterk pylsu og kók menning
líkt og í öðrum sjoppum, hérna er
það peppó og kók, sumir panta eina
peppó og bauk, en það er á svo-
kölluðu Hallamáli, það er tungu-
mál sem skilst bara hér. Peppó er
eins konar þjóðarréttur MR-inga,“
segir hún hreykin. En peppó er við-
urnefni fyrir heita langloku með
pepperóníi.
Margrét viðurkennir fúslega að
hún sé fyrir löngu orðin goðsögn
í þessum bransa á Íslandi. Nú er
hins vegar komið að leiðarlokum
og Margrét stefnir á eftirlaun. „Ég
hef alltaf átt gott samband við MR-
ingana enda eru þeir svo prúðir og
yndislegir. Þegar maðurinn minn dó
þá sýndu þeir mér mikinn samhug
og skólakórinn söng í jarðarförinni,
það var alveg ótrúlegt. Þegar þeir
svo fréttu að sjoppan væri að loka
þá gaf skólafélag MR mér utan-
landsferð til Kanarí um jólin; þessir
krakkar eru í einu orði sagt frábær-
ir. Ég veit að ég á eftir að gráta oft
af söknuði þegar Hallanum verður
lokað.“ -vör
Líður að lokun
Söluturninn Hallinn hefur staðið á Laufásveginum í rúmlega 60 ár. Margrét Magn-
úsdóttir eða Magga peppó eins og hún er kölluð er mörgum kynslóðum MR-inga að
góðu kunn.
Ein af síðustu Peppólokunum afgreidd í Hallanum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Um miðjan desember mun Hallinn loka.
Herratískan í miðborginni og annars staðar er fjölbreytt eins og vera
ber. Nokkuð áberandi er að verslunum fyrir herra hefur fjölgað víðast
hvar auk þess sem margar verslanir hafa bætt við sig herradeildum.
Slíkt er í takt við tímann þar sem karlmenn á öllum aldri virðast gefa
tískunni meiri gaum en áður. Karlmenn þurfa samt sem áður að þora
að taka áhættu og prófa sig áfram enda er leiðinlegt að hjakka ætíð í
sama farinu.
BUXUR - KRONKRON
Niðurþröngar buxur eru ekki eingöngu fyrir stelpur
heldur þvert á móti. Passa verður samt upp á að velja
rétt snið og svo er gaman að velja óhefðbundna liti.
HNEPPT PEYSA - G-STAR
RAW
Hnepptar afapeysur eru
gríðarlega áberandi um
þessar mundir enda fjöl-
breyttar og skemmti-
legar. Vítt hálsmál
gefur einnig mikla mögu- leika því hægt
er að vera í bol, skyrtu og í raun hverju
sem er undir peysunni. Passa þarf samt
upp á samsetninguna en best er að prófa
sig áfram og vera uppátækjasamur.
SOKKAR - ELVIS
Allir eru eða ættu að vera orðnir leiðir á hinum týpísku
svörtu og hvítu sokkum. Af hverju ekki að glæða þenn-
an neðsta hluta líkamans aðeins og fá í staðinn smá
athygli frá öðrum? Það þarf ekki að fara út í öfgar en
smá munstur og nokkrir litir hafa aldrei
drepið nokkurn mann.
PÓLÓ-BOLUR - IÐUNN-
RALPH LAUREN
Þó að pólóbolir hafi verið á örlitlu undanhaldi
að undanförnu halda þeir þó áfram vinsældum
sínum. Í staðinn fyrir þverröndótta má samt til
dæmis prófa boli með skólabúningssniði, einlita
og með flottu skjaldarmerki.
FRAKKI - GK
Frakk- ar í styttri kantinum eru ætíð
glæsilegir og gefa manni tignarlegt útlit. Hið her-
mannlega útlit frakkanna skemmir heldur ekki
fyrir og gefur góða skvettu af karlhormónum.
Sniðið skiptir þó alltaf miklu máli og ekki fal-
legt ef það er pokalegt.
PEYSA - GYLLTI KÖTTUR-
INN
V-hálsmál er
afgerandi á
flest öllum
peysum frá öllum
f ramle iðendum.
Litir lífga upp á flíkina
og falleg skyrta innan undir getur líka gert
gæfumuninn. Tíglamunstur eru að verða
vinsæl og verða áberandi í vetur.
-sha
Klassísk en djörf
herratíska
Flestir vita það,að
ekki er hægt að stóla
á þurrviðri í henni
blessaðri Reykjavík. Eng-
inn ætti þó að láta það stoppa
sig í því að rölta um miðborgina,
því enginn er verri þó
hann vökni. Mörg-
um er þó illa við
að vökna en þá er
þjóðráð að hafa regn-
hlíf við höndina, þegar
skýfallið skellur á. Þó
Reykjavík sé stórborg í hjarta
sér skortir hana óðu götusalana
sem spretta upp um leið og fyrsti
dropinn fellur, tilbúnir að selja manni
regnhlíf. Nóg er þó af verslunum í
miðbænum þar sem hægt er að
kaupa regnhlíf, meðal annars í
Marimekko á Laugaveginum.
Syngjandi í rigningunni.