Fréttablaðið - 21.09.2006, Síða 48

Fréttablaðið - 21.09.2006, Síða 48
■■■■ { miðborgin } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■6 Í Pikknikk hefur verið boðið upp á ýmiss konar nýstárlegar uppákom- ur í sumar auk þess sem þar eru seldar íslenskar hönnunarvör- ur. Haldin var sýning á stígvélum sem íslenskir hönnuðir sáu um að skreyta, Sigríður Klingenberg stóð fyrir spákonukvöldum auk þess sem haldnir voru mannfagnaðir af ýmsu tagi. ,,Það er erfitt að lýsa þessu með orðum. Þetta er bara svona stemning, ekkert fínt eða glæsilegt heldur bara gleði. Svo finnst fólki gaman að versla og gerir það mjög gjarnan þegar það er búið að borða. Þetta er nýtt í Reykjavík,“ segir Áslaug Snorradóttir ljósmyndari sem rekur verslunina með Önnu Elínborgu Gunnarsdóttur og Hlín Helgu Guðlaugsdóttur, og bætir við að gaman sé að færa list, menningu og hönnun í annað umhverfi en sýningarsali. Pikknikk var opnuð um miðjan júní á þessu ári og hefur verslunin verið opin á virkum dögum í sumar. Það kemur þó til með að breytast í vetur en þá verður lögð meiri áhersla á veislu- og fundaþjónustu fyrir hópa. ,,Þetta verður svona snarl í kringum hönnun,“ segir Áslaug sem notar húsnæði verslun- arinnar einnig sem vinnustofu. ,,Nú er að koma út Pikknikkbók sem er pínu skrítið í september, en þetta er bara uppskera eftir sumarið með sólarmyndum og gleði,“ segir hún og bætir við að tilvalið sé að lýsa þannig upp skammdegið. Áslaug er ákaflega ánægð með staðsetningu Pikknikks og telur að í miðbænum sé að finna meiri sjarma og ástríðu, fleiri spennandi búðir, skemmtilegri og óhefðbundnari en í verslunarmiðstöðvunum. Vin- kona hennar bauð henni að leigja húsnæðið í tvo mánuði sem hún þáði þar sem henni fannst hverfið spennandi og nálægðin við höfn- ina og sjóinn heillaði hana. ,,Ég vona að hér verði meira mannlíf og betri aðstaða svo fólk í Reykjavík geti verið nálægt sjónum. Þetta er svo fallegt svæði en sjórinn hefur aldrei þótt neitt merkilegur. Við höfum alltaf hafnað því að þetta gæti orðið menningarsvæði því við erum alin upp við fisk og sjó og það hefur ekki þótt heillandi. Það er leiðinlegt þegar siglt er inn í höfn- ina að sjá bara einhverja olíutanka eða gáma. Við manneskjurnar erum númer eitt og við eigum að njóta þess,“ segir hún ákveðin. Áslaug telur að miðbærinn sé að færa sig lengra vestur í bæ og bend- ir á að verslunarstarfsemi hafi auk- ist mikið í kringum hafnarsvæðið. Þar má finna Hamborgarabúlluna og Sægreifann auk þess sem Jón Sæmundur er að opna nýja versl- un á svæðinu með erlendar og inn- lendar merkjavörur. ,,Mér finnst svo skemmtilegt að það eru alls konar karakterar hérna. Þetta er bara aðalhverfið,“ segir hún og hlær. Þegar Áslaug hittir útlendinga bendir hún þeim ekki aðeins á Bláa lónið heldur hvetur þá einnig til að kíkja á Kaffivagninn úti á Granda sem að hennar sögn er besti veit- ingastaður sem völ er á. ,,Það að horfa á trillurnar, sjá sjómennina og alla sem vinna í kring fá sér að borða er svo mikill léttir fyrir fólk sem býr í Reykjavík. Það hafa svo oft verið opnaðir veitingastaðir sem eiga að vera svo flottir og smart en lifa svo í korter. Kaffivagninn hefur alltaf verið til staðar og það er svo notalegt þegar eitthvað fær að lifa, hefur þróast og hefur karakter. Mér finnst svo frábært að vera í Reykja- vík og hafa aðgang að svona stað með sögu og karakter,“ segir Áslaug ákveðin að lokum. -shs Við erum númer eitt og við eigum að njóta þess Spákonukvöld með Sigríði Klingenberg, kokteilboð og troðfull búð af íslenskri hönnun er meðal þess sem verslunin og samkundustaðurinn Pikknikk við Seljaveg býður upp á. Áslaug Snorradóttir telur að í miðbænum sé að finna mikinn sjarma og ástríðu. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR Í miðbæ Reykjavíkur kennir ýmissa grasa í tísku eins og öðru. Hvergi er hægt að finna jafn fjölbreytt og gott úrval af klæðnaði og þar leynast einnig óuppgötvuðu demantarnir. Best er að gefa sér góðan tíma, skoða margar verslanir og grúska sem mest. Á endanum á það eftir skila sér margfalt. PEYSA - MARIMEKKO Þó að það sé kominn vetur er algjör óþarfi að sleppa öllum litum. Ermar í síðari kantinum geta þó hlýjað manni og slaufur eru sætar og flottar í vetur. HANDTASKA - TRIBAL Handtaska eru jafn mikilvæg fyrir konur og hver annar klæðnaður. Hauskúpur hafa verið vinsælar í alls kyns klæðnaði og aukahlutum að undanförnu og halda því áfram. KJÓLL - ROKK & RÓSIR Svartur kjóll er alltaf klassískur enda leita tískustraumar nútímans sífellt til fortíðar. Rauði liturinn gerir kjólinn enn meira ögr- andi. BUXUR - TRÍLÓGÍA Niðurþröngur buxur halda áfram að vera langmest áberandi í buxnatískunni og ýmsir skrautlegir litir koma sterkir inn. JAKKI - JOSS Ekta klassískur jakki fyrir veturinn. Tvíhnepptir jakkar eru ennþá mjög vinsælir og beltið færir okkur kven- legar línur. Kvenlegt og formfagurt ������������������������������������� ��������������������������������������� ������������������ ����������������
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.