Fréttablaðið - 21.09.2006, Síða 50
■■■■ { miðborgin } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■8
Þótt margur landinn hafi gætt sér
á veitingum í garði Hressingar-
skálans á fögrum sumardegi vita
ekki allir að garðurinn skipar stórt
hlutverk í sögu Reykjavíkur og má
rekja frægð hans aftur til daga Jör-
undar hundadagakonungs sem er
talinn hafa nýtt garðinn til kart-
öfluræktar árið 1809. Hressingar-
skálagarðurinn gengur einnig undir
nafninu Landfógetagarðurinn og
er elsti skrúðgarður Reykjavíkur
sem enn er í rækt. Nafn garðsins
vísar í Árna Thorsteinsson land- og
bæjarfógeta sem keypti húsið við
Austurstræti 20 árið 1861 og vann
ötullega við að rækta upp fagran
skrúðgarð í bakgarðinum. Árni var
mikill áhugamaður um garðrækt
og var einn af stofnendum Hins
íslenska garðyrkjufélags. Í garðin-
um gróðursetti hann ýmsar sjald-
gæfar plöntur sem sumar hverjar
höfðu aldrei áður verið ræktaðar á
Íslandi. Skrúðgarðurinn var í eigu
fjölskyldu Árna til ársins 1931 en
þá keypti KFUM húsið og lóðina.
Árið 1932 leigði Björn Björnsson
bakari húsið og bakgarðinn og opn-
aði kaffihús. Hefur húsið að mestu
verið nýtt í slíkan rekstur síðan.
Hressingarskálagarðurinn hefur
breyst mikið frá því Árni land-
fógeti hlúði með alúð að plöntun-
um sínum. Líklega á Hannes Thor-
steinsson, bankastjóri og sonur
Árna, heiðurinn af þeim gróðri sem
finna má í garðinum í dag, en hann
var eins og faðir hans mikill áhuga-
maður um garðrækt.
Valdimar H. Hilmarsson sem rekur
Hressingarskálann ásamt Einari
Sturlu Monicher segir að vel sé
hugsað um garðinn þótt hæpið sé
að kalla hann skrúðgarð lengur.
Hann segir bakgarðinn þjóna sínum
tilgangi vel á sumrin og að vinsælt
sé meðal viðskiptavina að tylla sér
niður í góðu veðri en auk þess hefur
garðurinn verið nýttur til tónlist-
arviðburða. ,,Stundum höfum við
verið með lifandi tónlist á kvöldin
sem hefur verið mjög skemmtilegt.
Ef rignir er hægt að sitja undir garð-
skýlinu og þegar veður leyfir situr
fólk úti í garðinum,“ segir Valdimar
og bætir við að talsvert sé um að
hópar komi við til að fá að skoða
garðinn þar sem merkilegt þyki að
slíkan fjársjóð sé að finna í felum á
milli húsa í miðborginni.
Bakgarður Hressingarskálans var
á árum áður vinsæll fundarstaður
skálda og annarra merkra manna
í íslenskri sögu og var skrúðgarð-
urinn oft á tíðum uppspretta skáld-
skapar. Skáldin áttu einnig sinn
viðverustað inni á kaffihúsinu að
sögn Valdimars. ,,Það er frægt horn
inni í Hressingarskálanum þar sem
frægir rithöfundar sátu yfir kaffi og
ræddu pólitík og heimsmál,“ segir
Valdimar. Listinn yfir skáld, lista-
menn og aðra þekkta Íslendinga
sem vöndu komur sínar í Hress-
ingarskálann er langur, en meðal
annars má nefna skáldin Tómas
Guðmundsson og Stein Steinarr og
rithöfundana Þórberg Þórðarson og
Gunnar Dal. Listmálararnir Jóhann-
es S. Kjarval, Nína Tryggvadóttir og
Lovísa Matthíasdóttir sátu gjarnan
í Hressingarskálanum og svo mætti
lengi telja.
Valdimar segir að enn
þann dag í dag venji athafnamenn
á sviði bókmennta, leiklistar og
kvikmynda komur sínar í Hress-
ingarskálann og má því álykta að
töfrar sköpunargáfunnar svífi enn
yfir þessum sögufræga stað. -shs
Skrúðgarður skáldanna
Hressingarskálagarðurinn á sinn stað í minningum margra borgarbúa en færri vita
þó að garðurinn á sér langa og merkilega sögu sem rekja má aftur til daga Jörundar
hundadagakonungs.
Valdimar H. Hilmarsson segir garðinn á Hressó vel nýttan á sumrin. Þar séu gjarnan tónleikar sem falli vel í kramið hjá gestum staðarins.
Bakgarður Hressingarskálans er einn elsti skrúðgarður Reykjavíkur. Var hann kallaður Land-
fótgetagarðurinnu, en Árni Thorsteinsson, land- og bæjarfótgeti, ræktaði hann upp.
Margir eiga minningar um skemmtun og góðar stundir í vinahópi á þessum sögufræga
stað í Reykjavík.
Í skáldahorni staðarins sitja gjarnan rithöfundar, kvikmyndagerðarmenn og aðrir listamenn.
Lífrænasta kaffihús landsins og
þar ríkir skemmtilegur hippa-
fílingur. Þar er ekkert alkóhól á
boðstólum og þar má heldur ekki
reykja sem er kostur í augum fjöl-
margra. Þetta er því kjörinn stað-
ur fyrir fólk með börn og alla þá
sem láta sér annt um heilsuna.
Kaffi Hljómalind Laugavegi 21
Kaffihúsin í bænum
Staður fyrir alla, konur og karla.
Fínn matseðill og kaffið sæmi-
legt. Ýmsar uppákomur eru líka
í gangi á virkum dögum fyrir þá
sem vilja brjóta upp hefðbundna
skóla- eða vinnuviku.
Café Kulture Hverfisgötu
Býður upp á eina klassískustu
súpu landsins sem er borin fram
í bragðgóðu brauði. Hálfrökkrið
þar inni er afar heillandi og þar
er þægilegt að sitja, súpa á heitu
kaffi eða sötra á köldum bjór.
Svarta kaffið Laugavegi 54
Í miðborginni er fjöldinn allur af spennandi og
góðum kaffihúsum, þar sem gott er að setjast niður,
spjalla, hitta vini og drekka gott kaffi, eða ylja sér við
heitt kakó.
Þægilega afslappandi og ekki
einungis fyrir bókaorma. Hægt að
lesa og skoða allt milli himins og
jarðar og fínar kökur eru í boði.
Áður en farið er inn á kaffihsú-
ið er hægt að koma við á neðri
hæðinni og grípa með sér nokkur
tímarit.
Súfistinn Mál og menningu
Besta kaffi bæjarins en þangað er
best að fara eldsnemma á morgn-
ana, fá sér kaffi og gróft ristað
brauð. Best er að forðast háanna-
tíma. Leyniráð er að kíkja á Lista-
safn Íslands þar sem Kaffitár er
einnig með aðstöðu.
Kaffitár Bankastræti
Ekkert blað?
550 5600
Fyrst þú ert að lesa þetta þá hefurðu
fengið Fréttablaðið. En til vonar
og vara skaltu klippa þetta símanúmer
út og hringja ef blaðið berst ekki.
- mest lesið