Fréttablaðið - 21.09.2006, Qupperneq 77
FIMMTUDAGUR 21. september 2006 41
Bók félagsráðgjafans
Melody Beattie, Aldrei
aftur meðvirkni, hefur
nú verið endurútgefin
hér á landi. Bókin, sem
ber undirtitilinn „að
hætta að stjórna öðrum
og bera umhyggju fyrir
sjálfum sér“, kom út
árið 1993 í þýðingu
Helgu Ágústsdóttir en
hefur verið illfáanleg
um nokkurt skeið.
Í bók sinni fjallar
Beattie um tilfinn-
ingasambönd fólks og
hvernig aðstandendur
verða meðvirkir með fjölskyldu-
meðlimum eða vinum sem eiga t.d.
við áfengis- eða vímuefnavanda að
etja. Beattie fjallar
enn fremur um ein-
kenni meðvirkni á
borð við afneitnun,
vanmetakennd,
magnleysi og kvíða
sem geta birst á
margvíslegan hátt en
hún bendir jafnframt
á lausnir og leiðir til
þess að rjúfa vítahring
meðvirkni og koma á
einlægari og heiðar-
legri samskiptum milli
fólks.
Útgefandi er Sala og
dreifing. - khh
Meðvirknilærdómur
BRUGÐIST VIÐ MEÐVIRKNI Metsölubók
Melody Beattie er aftur fáanleg.
Markmið fyrstu tónlistarhátíðar
Gagnaugans er að bjóða upp á
háklassa tónlist með íslenskum og
erlendum flytjendum en unnend-
ur harðkjarnamúsíkur ættu að
finna eitthvað við sitt hæfi í Helli
Tónlistarþróunarmiðstöðvarinnar
úti á Hólmaslóð í kvöld.
Réttnefnd yfirskrift hátíðar-
innar er „Sumarið er búið“ og
stefna forsvarsmennirnir að því
að gera þetta að árlegum viðburði.
Þess er getið í fréttatilkynningu
frá aðstandendum „hauskúpu-
hátíðarinnnar“ að engir aukvisar
verði á sviðinu í kvöld og fjöl-
breytileikinn í fyrirrúmi. Frum-
kvöðlarnir í hljómsveitinni Shai
Hulud munu spila í annað sinn
fyrir íslenska hlustendur en auk
þeirra koma fram hljómsveitirnar
Changer, Morðingjarnir, Celest-
ine, Benny Crespo‘s Gang, Severed
Crotch og I Adapt.
Ekkert aldurstakmark er á
hátíðina enda kjörin skemmtun
fyrir alla fjölskylduna, miðaverði
er stillt í hóf - svo og tónleikatím-
anum, sem miðast að því að allir
geti tekið strætó heim af Hólma-
slóðinni. Öll neysla á áfengi eða
öðrum vímuefnum er stranglega
bönnuð og ógildir tónleikamiðann.
- khh
Sumarið er búið
En bætist í hóp þeirra gesta sem
heiðra munu Alþjóðlega kvik-
myndahátíð í Reykjavík en lista-
konan og ekkja Bítilsins John
Lennon mætir á hátíðina hinn 8.
október og kynnir myndina Banda-
ríkin gegn John Lennon. Þá mun
Ono einnig kynna stuttmyndina
Onochord sem verður sýnd á
undan Bandaríkjunum gegn John
Lennon sama dag.
Bandaríkin gegn John Lennon
segir sanna sögu þess hvernig
ríkisstjórn Bandaríkjanna reyndi
hvað hún gat til þess að þagga
niður í John Lennon, sem var ekki
einungis ástsæll tónlistarmaður
heldur einnig táknrænn boðberi
friðar. Myndin inniheldur ítarleg
viðtöl við þá sem þekktu hann best
og sýnir líf og samtíma Lennons,
hugmyndirnar sem hann barðist
fyrir og gjaldið sem hann þurfti að
greiða að lokum.
Enn fremur sýnir myndin fram
á að dæmi Lennons er síður en svo
einangrað í bandarískri sögu.
Myndin er gerð með fullum stuðn-
ingi Yoko Ono.
Onochord er heimildarmynd
um gagnvirkt listaverk Yoko Ono
sem hún ræðir stuttlega áður en
hún kynnir Bandaríkin gegn John
Lennon fyrir bíógestum. ■
Yoko Ono kynnir
mynd um Lennon
JOHN OG YOKO Hjónaband þeirra fékk
skjótan endi þegar Lennon féll fyrir
hendi morðingja.
HLJÓMSVEITIN MORÐINGJARNIR Það eru engir aukvisar sem leika á fyrsta „sköllfesti“
Gagnaugans.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
SEPTEMBER
18 19 20 21 22 23 24
Fimmtudagur
■ ■ SKEMMTANIR
21.30 Dj Lucky spilar soul, funk og
reggae músík á Café Paris.
■ ■ SÝNINGAR
09.00 Listvinafélag Hallgríms-
kirkju stendur að sýningu á verkum
Hafliða Hallgrímssonar. Tólf mynd-
verk hans eru nú til sýnis í fordyri
kirkjunnar, sýningin stendur til 23.
október.
13.00 Myndlistamaðurinn Iain
Sharpe sýnir í galleríi Animu við
Ingólfsstræti. Sýningin er opin frá
13-17 og stendur til 7. október.
■ ■ SÍÐUSTU FORVÖÐ
12.00 Yfirlitssýningu á ljósmynd-
um Andrésar Kolbeinssonar í
Ljósmyndasafni Reykjavíkur í
Grófarhúsi lýkur um næstu helgi.
Myndir Andrésar frá árunum 1952-
65 birta nýja sýn á ört vaxandi borg.
Sýningin er opin milli 12-19 virka
daga en 13-17 um helgar
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
������������������ �������
�� ������������������������������������������������
�����������������
������� ���������������
��������������������������
�����������������������
��������
�
�
�
���
��
��
��
���
��
��
��
��
���
����
������
����� ���������������������� �������������
� ��������������� ����� �� ��������
LEIKHÚSTILBOÐ: Tvíréttaður
kvöldverður og leikhúsmiði
frá kr. 4300 - 4800
TEKIÐ Á MÓTI PÖNTUNUM
frá kl. 10 til 16 mánudaga
- fimmtudaga í síma 437 1600
Staðfesta þarf miða með greiðslu
viku fyrir sýningardag
Sýningar í Landnámssetri
í september og október
Laugardagur 23. september kl. 20 Uppselt
Sunnudagur 24. september kl. 16 Uppselt
Miðvikudagur 27. september kl. 20 Laus sæti
Fimmtudagur 28. september kl.20 Laus sæti
Fimmtudagur 5. október kl. 20 Laus sæti
Föstudagur 6. október kl. 20 Laus sæti
Laugardagur 7. október kl. 20 Uppselt
Sunnudagur 8. október kl. 20 Örfá sæti laus
Fimmtudagur 12. október kl. 20 Laus sæti
Föstudagur 13. október kl. 20 Laus sæti
Laugardagur 14. október kl. 20 Örfá sæti laus
Sunnudagur 15. október kl. 20 Laus sæti
Fimmtudagur 19. október kl. 20 Laus sæti
vaxtaauki!
10%
Ath. takmarkaður sýningafjöldi!!!
3. sýning föstudaginn 22. sept.
4. sýning laugardaginn 23. sept.
5. sýning laugardaginn 30. sept.
6. sýning sunnudaginn 1. okt.
7. sýning föstudaginn 6. okt.
Sýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu.
Sýning hefst kl: 20:00.
Miðasala í síma 555-2222
www.hhh.is | www.midi.is