Fréttablaðið - 21.09.2006, Qupperneq 78
21. september 2006 FIMMTUDAGUR42
GOTT GLÁP
Inside Man: Hörkufín spennumynd frá Spike Lee sem er
nýdottin inn á myndbandaleigur.
United 93: Átakanleg mynd um skelfinguna meðal farþega
fjórðu flugvélarinnar sem rænt var 11. september 2001.
Volver: Pedro Almodovar er í góðu formi í sinni nýjustu mynd
sem skartar Penélope Cruz í bitastæðu hlutverki.
Börn: Íslensk gæðamynd sem er vel þess virði að kíkja á.
Eftirlætiskvikmynd:
Gaukshreiðrið með Jack Nicholson, hann er minn
aðalmaður.
Eftirlætisatriði:
Atriðin inni á deildinni í Gaukshreiðrinu eru mér
mjög eftirminnileg. Hef reyndar bara séð hana
tvisvar sinnum en hún situr fast í hugskots-
sjónum.
Uppáhaldsleikstjóri:
Klassískur í því vali, Steven Spielberg og
Milos Forman.
Mesta hetja hvíta tjaldsins:
Jack Nicholson og Clint Eastwood hljóta
að vera mestu hetjur hvíta tjaldsins.
Versti skúrkurinn:
Mannætan Hannibal Lecter, mikið illmenni þar á ferð og það getur
ekki staðið meiri skelfing af nokkrum manni en honum.
Hvaða persóna fer mest í taugarnar á þér?
Sem ungum manni fannst mér J.R og Dallas alveg hrikalega leiðinlegt
og viðurkenni það ekki fyrr en nú.
Ef þú fengir að velja þér
mynd, leikstjóra og mótleik-
ara, um hvað yrði hún og
hverjir væru hinir heppnu?
Myndin myndi heita „Er
knattspyrnan erótískt“. Bjarni
Haukur Þórsson yrði leikstjóri
og Angelina Jolie og Meryl
Streep myndu leika tvær
konur sem ákveðu að láta
slag standa og reyna fyrir sér
í knattspyrnu.
KVIKMYNDANJÖRÐURINN: LOGI ÓLAFSSON, ÞJÁLFARI KF NÖRD
Einlægur aðdáandi Gaukshreiðursins
Alþjóðleg kvikmyndahátíð
í Reykjavík hefst í næstu
viku en nærri áttatíu mynd-
ir verða sýndar þá ellefu
daga sem hátíðin stendur.
Fjöldi erlendra gesta er
væntanlegur á hátíðina sem
hefur vakið athygli utan
landsteinanna.
„Sérstaða hátíðarinnar er fólgin í
breiddinni en við leggjum okkur
fram um að sýna myndir úr ólík-
um áttum þannig að flestir ættu að
finna eitthvað við sitt hæfi í dag-
skránni,“ segir Hrönn Marinós-
dóttir, framkvæmdastjóri hátíðar-
innar. „Myndirnar koma frá hinum
ýmsu löndum og við sýnum gaman-
myndir, spennumyndir, hrylling,
barnamyndir og stutt- og heimildar-
myndir.“
Vitranir ungs fólks
Dagskrá hátíðarinnar er skipt upp
í nokkra flokka og þar ber einna
hæst keppnisflokkinn Vitranir en
þar eru einungis sýndar myndir
eftir unga og upprennandi leik-
stjóra sem eru að gera sína fyrstu
eða aðra mynd í fullri lengd.
Dimitri Eipides, dagskrárstjóri
hátíðarinnar, hafði veg og vanda
af vali mynda í flokkinn þar sem
fjórtán myndir keppa um titilinn
„uppgötvun ársins“. Myndin Fjór-
ar mínútur, eftir Chris Kraus, er
ein þessara mynda en hún verður
Evrópufrumsýnd á hátíðinni.
Hátíðarmyndirnar verða sýndar
í Háskólabíói, Iðnó og Tjarnarbíói,
sem verður framvegis varnarþing
hátíðarinnar. „Andrúmsloftið í
Tjarnarbíói er hlýlegra en maður á
að venjast í öðrum bíósölum lands-
ins og það stendur til að taka húsið
í gegn í samvinnu við sjálfstæðu
leikhúsin á næsta ári og við erum
því að fá sjálfstætt bíóhús í mið-
borginni sem gerir okkur kleift að
standa fyrir smærri viðburðum á
öðrum árstímum,“ segir Hrönn og
segir sýningar í Tjarnarbíói á hátíð-
inni hafa vakið mikla lukku.
Fjöldi erlendra gesta
„Alþjóðleg kvikmyndahátíð í
Reykjavík ætlar sér að breyta við-
miðum um kvikmyndahátíðir á
Íslandi og við höfum sett okkur
það markmið að gera hana að
menningarviðburði sem eftir
verður tekið hér á landi sem
erlendis,“ segir Hrönn, sem á von
á rúmlega hundrað boðsgestum að
utan. Þar af er rúmlega helming-
urinn fagfólk í kvikmyndabrans-
anum því skipulagðir eru sérstak-
ir viðburðir fyrir það. „Erlendir
fjölmiðlar, blaðamenn og sjón-
varpsfólk sem hingað koma nálg-
ast nú þriðja tuginn. Þar fyrir utan
er gert ráð fyrir að nokkrir tugir
manna til viðbótar sæki hátíðina á
eigin vegum en Icelandair býður
sérstakar tilboðsferðir til landsins
í tilefni hátíðarinnar. Ég veit til
dæmis um stóran bandarískan
kvikmyndaklúbb sem ætlar að
mæta, þannig að stemningin í
kringum hátíðina er góð.“
Hátíðin var kynnt fyrir heims-
pressunni á kvikmyndahátíðinni í
Cannes í vor og Hrönn segir ljóst
að sú kynning hafi skilað góðum
árangri.
„Dagskráin er það sérstök að
hún sker sig úr á heimsvísu þannig
að fólk sér fulla ástæðu til að gera
sér ferð til landsins.“ Um 13.000
manns komu í bíó þá ellefu daga
sem hátíðin stóð yfir í fyrra, sem
gerir hana að best sóttu hátíð á
Íslandi sé miðað við dagafjölda og
Hrönn á von á því að fjöldinn verði
enn meiri í ár. „Við vildum auka
umfangið aðeins og hátíðin hefur
því aldrei verið stærri. Úrvalið er
mikið og við sýnum hverja mynd
tvisvar til þrisvar sinnum þannig
að það er um að gera að kynna sér
dagskrána vel og skipuleggja sig
svo fólk missi ekki af neinu. Öll
miðasala verður á filmfest.is og
midi.is.“
Málþing og ráðstefnur
Auk kvikmyndasýninganna verð-
ur á hátíðinni efnt til málþinga,
ráðstefna og námskeiða um hina
ýmsu anga kvikmyndanna. Þar ber
einna hæst málþing með þremur
fyrrverandi föngum í hinum
alræmdu Guantanamo-fangabúð-
um á Kúbu en málþingið er haldið
í samstarfi við Amnesty Inter-
national á Íslandi í tengslum við
sýningu heimildarmyndarinnar
The Road to Guantanamo. Þá
verða möguleikar Reykjavíkur til
að verða kvikmyndaiðnaðarborg
norðursins ræddir á sérstöku mál-
þingi á vegum Reykjavikurborg-
ar.
Af þeim námskeiðum sem
boðið verður upp á má nefna nám-
skeið um kvikmyndahátíðir við
Háskóla Íslands sem felur í sér
nokkurs konar starfsþjálfun í
kvikmyndahátíðahaldi og nám-
skeið í kvikmyndalestri fyrir
almenning. Það verður því í nógu
að snúast hjá kvikmyndaáhuga-
fólki á næstunni.
„Þetta verður mikið fjör, gleði
og gaman,“ segir Hrönn, sem er
enn að hnýta lokahnútana á dag-
skrá hátíðarinnar sem byrjar eftir
viku. thorarinn@frettabladid.is
Alþjóðleg hátíð í örum vexti
HRÖNN MARÍNÓSDÓTTIR Er ásamt sínu fólki með allar klær úti þegar kemur að því að
finna myndir á hátíðina. Þau hafa sótt aðrar hátíðir, til dæmis í Cannes, og kynningarstarf-
ið hefur skilað því að fólk sækist í auknum mæli eftir því að koma myndum sínum að í
dagskránni.
DIMITRI EIPIDES
Sá um valið á myndunum-
sem keppa til verðlauna í
flokknum Vitranir.
Quentin Tarantino heldur því fram að kvikmyndatökuvélin hafi verið
fundin upp fyrir ofbeldi. Kannski full glannaleg yfirlýsing en það
breytir því þó ekki að ofbeldi nýtur sín vel á hvíta tjaldinu og þau eru
ansi mörg ofbeldisatriðin sem eru greypt í minninguna, þökk sé ýmist
slagkraftinum eða mögnuðum útfærslum.
Bíóofbeldið er samt háð þeim undarlegu lögmálum að oftast ristir
það dýpst þegar minna er sýnt en meira þannig að þeir kvikmynda-
gerðarmenn sem ganga hvað lengst í limlestingum og viðbjóði skjóta
oft yfir markið og „horrorporn“ bylgjan sem virðist vera í uppsigl-
ingu á því líklega eftir að fjara fljótt út.
Nú er samt fátt jafn hressandi og góður „splatter“ þannig að þessar
svokölluðu hryllingsklámmyndir, Hostel og The Hills Have Eyes, sem
draga ekkert undan í myndrænu ofbeldinu, eru alltaf ágætar fyrir
sinn hatt en því verður ekki neitað að áhrifamáttur mynda á borð við
Seven og Angel Heart er miklu meiri. Þar eru ofbeldismorðin ekki
sýnd, afleiðingum ofbeldisins bregður fyrir í augnablik og persónurn-
ar ræða viðbjóðinn sín á milli. Manni er hlíft við sjokkinu sem fylgir
splatternum en ímyndunaraflið fer af stað og lúmskur viðbjóðurinn
hreiðrar um sig í kollinum, fylgir manni heim og inn í svefninn.
The Proposition, sem gerð er eftir handriti Nicks Cave, og var
frumsýnd á Iceland Film Festival í síðustu viku er ágætt dæmi um
þetta. Þar eru viðbjóðsleg ofbeldisverk framin og töluvert var um að
frumsýningargestir kveinkuðu sér undan hryllingnum. Samt var
merkilega lítið sýnt. Það ofbeldi sem fyrir augu bar og afleiðingar
þess sem nutu sín betur en verknaðurinn sjálfur nægði engu að síður
til að einhverjum varð óglatt. Sem dæmi má nefna að maður er hýdd-
ur til ólífis með svipu en áhorfendum var samt hlíft við því að horfa
upp á sömu ósköp og Mel Gibson bar á borð í The Passion þar sem
frelsarinn endaði eins og undin og blóðsósa gólftuska fyrir augum
bíógesta. Þjáningin í þessu atriði The Proposition er þó engu síður
áþreifanleg og ónotaleg. The Proposition er dæmi um smekklega
útfært ofbeldi og þó langt sé gengið þá er jafnvægis gætt og viðbjóður-
inn verður sterkari fyrir vikið.
Yfirgangur er nefnilega ekki málið í matreiðslu á ofbeldi og nær-
tækasta dæmið um það er hið margrómaða sturtuatriði í Psycho eftir
Alfred Hitchcock. Þessi stutta sena þar sem Anthony Perkins í draggi
slátrar Janet Leigh er öllum ógleymanlegt sem hafa séð það. Samt
snertir búrhnífur morðingjans aldrei leikkonuna en það er nokkuð
sem maður áttar sig varla á fyrr en í þriðja eða fjórða áhorfi. En
maður læsir samt alltaf að sér þegar maður fer í sturtu.
Gerviblóð og búrhnífar
AF HVÍTA TJALDINU
Þórarinn Þórarinsson
ÚR VERINU
Eli Roth í Grind House
Quentin Tarantino hefur feng-
ið leikstjórann Eli Roth til þess
að leika í Death Proof, sínum
hluta Grind House verkefnis-
ins sem hann er að vinna með
Robert Rodriguez.
Tarantino og
Roth eru eins og
flestir vita ágætis
kunningjar og hafa
til dæmis skemmt
sér saman á Íslandi
í tvígang en Tarantino
var einn framleiðenda
Hostel, eftir Roth, sem var heims-
frumsýnd í Reykjavík í fyrra. Kurt
Russell, Zoe Bell og Rosario Dawson
fara með aðalhlutverkin í mynd Tar-
antinos en auk Eli hefur Tarantino
einnig bætt Michael Bacall, sem
lék í tvöföldum CSI þætti sem
Tarantino leikstýrði, og nýlið-
anum Omar Doom í hópinn.
Tvær hryllingsmyndir í fullri
lengd, Death Proof, og Pla-
net Terror, eftir Rodrigu-
ez, mynda saman Grind
House en myndirnar
verða frumsýndar í apríl á
næsta ári.
Jackson vill ódýran
hrylling
Leikstjórinn Peter Jackson er
byrjaður að undirbúa sína
næstu mynd The Lovely
Bones sem hann ætlar að gera eftir
samnefndri skáldsögu Alice Sebold
um unga stúlku sem er nauðgað
og myrt og fylgist með afdrifum
ættingja sinna og morðingjans úr
sínu einkahimnaríki. Annars er
það helst að frétta af Jackson
að hann hefur hug á að
hverfa aftur til upprunans
og gera hræódýra hryll-
ingsmynd í anda Bad
Taste og Braindead sem
vöktu athygli á honum
á sínum tíma.
Howard spáir í Nixon
Ron Howard er sjálfsagt búinn að
telja peningana sem
The Da Vinci Code
færði honum í aðra
hönd og er því far-
inn að svipast um
eftir nýjum verk-
efnum. Meðal þess
sem hann er sagð-
ur geta
hugsað
sér að
k v i k -
mynda næst er leikritið
Frost/Nixon sem er að
gera stormandi lukku á
West End. Leikritið fjallar
um sjónvarpsviðtöl sem
bretinn David Frost tók
við Richard Nixon, forseta
Bandaríkjanna, árið 1977.
bio@frettabladid.is