Fréttablaðið - 21.09.2006, Side 79
21. september 2006 FIMMTUDAGUR43
Breski harðjaxlinn Jason Statham
leikur leigumorðingjann Chev í
spennumyndinni Crank. Hann á
fremur slæman dag þar sem hann
kemst að því fljótlega eftir að hann
fer á fætur að búið sé að eitra fyrir
honum en þannig refsar vinnuveit-
andi hans honum fyrir að klúðra
verkefni daginn áður.
Kínverska eitrið sem rennur
um æðar Chevs er þeirri ónátturu
gætt að það stöðvar allt adrenalín-
flæði um líkama hans og eina von
hans um að halda lífi þangað til
hann kemst yfir móteitur er að
djöflast eins og óður maður til þess
að keyra upp adrenalínið. Hann
notar lyf, orkudrykki og öll tiltæk
ráð til þessa auk þess sem hann
hefur ekkert ráðrúm til að slaka á
þar sem illmennin sem byrluðu
honum eitrinu halda unnustu hans í
gíslingu.
Statham vakti fyrst athygli í
bresku eðalkrimmunum Lock,
Stock and Two Smoking Barrels og
Snatch eftir Guy Ritchie en hefur
undanfarin ár verið að festa sig í
sessi í hasarmyndum með ágætis
frammistöðu í Transporter, Trans-
porter 2 og Cellular. Hann er því á
kunnugum slóðum í Crank, sem er
hlaðin spennu og gefur Transporter-
myndunum ekkert eftir hvað hama-
gang og hraða keyrslu snertir.
Feigur morðingi í jötunmóð
JASON STATHAM Er harður í horn að
taka sem fyrr og berst nú fyrir lífi sínu
og kærustu sinnar í hlutverki leigumorð-
ingjans Chev sem lendir upp á kant við
vinnuveitendur sína.
Þrjár aðalgellurnar í þremur skól-
um sem eru allir í samkeppni
vakna upp við vondan draum
þegar þær hittast og komast að
því að þær hafa allar verið á föstu
með sama gaurnum, íþróttahetj-
unni John Tucker, á sama tíma.
Stúlkurnar eru engin lömb að
leika sér við og taka höndum
saman um grimmilegar hefndar-
aðgerðir og ætla sér heldur betur
að gjalda Tucker rauðan belg fyrir
gráan.
Hugmyndin er að búa þannig
um hnútana að hinn eftirsótti
Tucker muni standa uppi stelpu-
laus og eiga ekki séns í nokkra
dömu.
Fyrstu tilraunir þeirra renna út
í sandinn og þær gríða þá til þess
örþrifaráðs að finna lítt áberandi
stelpu og dubba hana upp sam-
kvæmt draumum Tuckers. Hún á
svo að heilla Tucker, sem hún fer
vitaskuld létt með, og segja honum
svo upp á sem mest niðurlægjandi
hátt. Það kemur þó alvarlegt babb
í bátinn þegar nýja stúlkan kolfell-
ur fyrir Tucker og lendir milli
steins og sleggju.
Þrír kvendjöflar í ham
SOPHIA BUSH Leikkonan unga úr sjónvarpsþáttunum One Tree Hill leikur eina stúlk-
una í bandalaginu um að knésetja kvennaljómann John Tucker sem Jesse Metcalfe
leikur.
Stutt- og heimildarmyndahátíðin
Nordisk Panorama verður að
þessu sinni haldin í Árósum í Dan-
mörku dagana 22.-27. september
en á hátíðinni koma saman kvik-
myndagerðarmenn frá Norður-
löndunum og sýna þar það nýjasta
í stutt- og heimildarmyndagerð.
Þrjár íslenskar myndir hafa
verið valdar til keppni í þetta
sinn; heimildarmyndin Act Norm-
al í leikstjórn Ólafs Jóhannesson-
ar, stuttmyndin Stuttmynd án tit-
ils í leikstjórn Lars Emils
Árnasonar og tónlistarmynd-
bandið Whatever með hljómsveit-
inni Leaves í leikstjórn Gísla
Darra Halldórssonar. Þá verður
tónlistarmyndbandið My Home
Isn´t Me í leikstjórn Elvars Gunn-
arssonar með Þóri sýnt á auka-
dagskrá hátíðarinnar.
Íslenskir kvikmyndagerðar-
menn munu einnig kynna verk sín
á fjármögnunarmessu sem verð-
ur haldin í tengslum við hátíðina
en þar munu meðal annars Ólafur
Jóhannesson og Ragnar Santos
kynna myndina Queen Raquela og
Friðrik Guðmundsson, Steinþór
Birgisson og Þorfinnur Guðnason
kynna verkefnið My Friend Bobby
sem fjallar um Sæmund Pálsson,
einn helsta vin skáksnillingsins
Bobby Fischer.
Íslendingar á Nordisk Panorama
ÓLAFUR JÓHANNESSON OG RAGNAR SANTOS Keppa til verðlauna á Nordisk Pano-
rama með heimildarmyndinni Act Normal og kynna einnig mynd sína Queen Raqu-
ela á fjáröflunarmessu sem haldin verður í tengslum við hátíðina.