Fréttablaðið - 21.09.2006, Síða 80
maturogvin@frettabladid.is
ÞRÚGUR GLEÐINNAR
Einar Logi Vignisson
21. september 2006 FIMMTUDAGUR44
Hvaða matar gætirðu síst verið án?
Jólamatarins, uppáhaldsmaturinn minn er hamborgar-
hryggur.
Besta máltíð sem þú hefur fengið?
Kalkúnninn sem mamma gerir á gamlárskvöld.
Er einhver matur sem þér finnst vondur?
Það er eitt og annað sem bragðlaukarnir mínir eru ekki
alveg nógu þroskaðir í. Ansjósur, til dæmis. Ég fór heldur
ekki að borða venjulegan brauðost fyrr en átján ára gamall.
Leyndarmál úr eldhússkápnum:
Þau eru nú ekki mörg, þetta er nokkuð opin bók hjá mér.
Pestó er opinbert leyndarmál þessa dagana. Það er lang-
best þegar maður býr það til sjálfur, ég ætla að fara að læra
það.
Hvað borðar þú til að láta þér líða betur?
Ég hef reynt að forðast að tengja saman geð og mat þar
sem það getur oft endað illa hjá fólki. Helst kex, ég er dálítill
kexkall.
Hvað áttu alltaf til í ísskápnum?
Það sem ég á alltaf til er það sem ég kaupi í of miklu
magni og nota svo ekki! Núna er það jalapeños.
Ef þú yrðir fastur á eyðieyju, hvað tækirðu með þér?
Það væri rækjusalat.
Hvað er það skrítnasta sem þú hefur borðað?
Krókódíll og kengúra á áströlskum veitingastað. Við
pöntuðum hann og kengúruna sem smakk og borð-
uðum annað í aðalrétt, þannig að ég borðaði krókódíl,
kengúru og nautakjöt í einni máltíð.
MATGÆÐINGURINN ELÍS PÉTURSSON BASSALEIKARI OG VERSLUNARMAÐUR
Gæti ekki verið án jólamatarins
> Fáðu þér...
...blandara. Sniðugt tæki til að
búa til hollmeti á borð við góm-
sæta skyrdrykki með ferskum
ávöxtum, ferska djúsdrykki eða
grænmetisbuff. Tekur lítið pláss
og býður upp á marga möguleika
við matargerðina.
Ásamt Pilsen er Ceské Budejovice önnur af háborgum bruggunar í
Tékklandi. Frægasti mjöður borgarinnar er kenndur við hana, einfald-
lega kallaður Budvar í Tékklandi en verið fluttur út undir nafninu Bud-
weiser Budvar í vel á aðra öld. Budweiser-nafnið er dregið af þýska
heiti borgarinnar, Budweis. Bjór frá Budweis hefur notið frægðar sem
„Budweiser-bjór“ allt frá því á 15. öld enda var hefð að kenna bjórinn
við borgirnar fremur en brugghúsin. Þannig var Michelob frá Mechol-
upy og Liebotschaner frá Libocany. Undir þessum heitum voru bjór-
arnir þekktir og fluttir út til Bandaríkjanna upp úr miðri 19. öld. Þýsk-
ir innflytjendur voru frumherjar í bruggun bjórs í Bandaríkjunum og
þeir tóku upp nöfn af kunnum evrópskum bjórum til að auka virðu-
leika framleiðslu sinnar.
Árið 1876 settu sápuframleiðandinn Eberhard Anheuser og tengda-
sonur hans Adolf Busch á markaðinn bjórinn Budweiser sem var fram-
leiddur úr tékkneskum humlum. Síðar hófu þeir einnig að framleiða
bjóra undir heitunum Michelob og Liebotschaner. Fleiri amerísk fyrir-
tæki framleiddu bjór undir heitinu Budweiser en upp úr aldamótunum
1900 náði Anhauser-Busch einkarétti á nafninu.
Nafngiftin olli nokkrum ruglingi og árið 1911 náði ameríski fram-
leiðandinn samkomulagi við tékknesku brugghúsin um að Anheuser-
Busch væri heimilt að nota hið skráða vörumerki þeirra Budweiser
alls staðar utan Evrópu. Jafnframt var brugghúsunum í Budejovice
heimilt að taka fram á flöskunum að um væri að ræða Budweiser-bjór
frá borginni Budweis. Þetta samkomulag hélt fram að seinni heims-
styrjöldinni en þá notfærðu Ameríkanarnir sér þrönga stöðu hins her-
setna Tékklands og þvinguðu Tékkana til að samþykkja að nota ekki
heitið í Norður-Ameríku. Friður ríkti allt fram til 1978 er Ameríkan-
arnir gerðu Tékkunum hátt peningatilboð í nafnið sem kommúnista-
stjórnin hafnaði. Eftir flauelsbyltinguna 1990 gerði Anheuser-Busch
tilboð í reksturinn og var það til skoðunar í nokkur ár en var loks hafn-
að 1996. Síðan þá má segja að blóðugt lögfræðistríð hafi geisað um
allan heim þar sem ameríska fyrirtækið hefur lögsótt það
tékkneska í tugum landa. Í langflestum tilfellum hafa Tékk-
arnir boðið sigur úr býtum en málaferlin eru fyrirtækinu
kostnaðarsöm. Tékkarnir eiga jafnframt erfitt með að selja
sinn bjór í Bandaríkjunum, þar er hann seldur undir heit-
inu Czechvar. Ameríska fyrirtækið hefur ekki gefið upp
von um að yfirtaka Budweiser Budvar. Það hefur þrýst
mjög á tékknesk stjórnvöld og reynt að hafa áhrif á
almenningsálitið með því að gefa Prag-háskóla stórgjaf-
ir og með ýmsum öðrum hætti reynt að fullvissa Tékka
um góðan hug sinn. En allt kemur fyrir ekki, Tékkarnir
líta á Budweiser Budvar sem eitt helsta stolt landsins og
þora ekki að einkavæða fyrirtækið af ótta við að Amer-
íkanarnir leggi það niður eða breyti framleiðsluaðferð-
inni, sem er mjög kostnaðarsöm en tryggir gæði.
Budweiser Budvar er látinn lagerast í þrjá mánuði áður en hann er
settur á flöskur og er það einn lengsti geymslutími sem þekkist í bjór-
framleiðslu.
Stríðið um Budweiser-nafnið
Kolbrún Ólafsdóttir,
aðstoðarmaður Sivjar
Friðleifsdóttur heilbrigð-
isráðherra, er mikill mat-
gæðingur og skemmtir sér
vel í eldhúsinu. Hún ætlar
að deila með lesendum
uppskrift að kjúklingasalati
sem hún fær aldrei leið á.
„Ég hef mjög gaman af því að elda
og dúlla mér í eldhúsinu,“ segir
Kolbrún en áhugi hennar á elda-
mennsku byrjaði strax á unglings-
aldri þar sem hún gaf móður sinni
stundum frí í eldhúsinu til að geta
prufað sig áfram. „Ég var mikið
fyrir að gera tilraunir með mat og
var því ekkert í að elda venjuleg-
an heimilismat. Fyrir foreldrum
mínum voru þetta mjög framandi
réttir sem ég töfraði fram ung að
aldri.“
Kolbrún býr ein og segist því
ekki vera mikið í að elda fyrir
sjálfa sig á kvöldin „ Það getur
verið mjög erfitt að elda fyrir bara
einn en kjúklingasalatið og salöt
yfirleitt henta mjög vel þar sem
hægt er að geyma afgangana og
borða þá daginn eftir, sparsamt og
gott,“ segir Kolbrún en að eigin
sögn er hún meira fyrir að bjóða
fólki í mat þegar hún vill láta
reyna á hæfileikana í eldhúsinu.
„Mér finnst voða gaman að
gera sushi þessa dagana,“ segir
Kolbrún en hún fullyrðir að sushi-
gerð sé alls ekki flókin og óyfir-
stíganleg fyrir áhugamenn um
eldamennsku. Túnfiskur, lax,
rækjur og krabbi eru í uppáhaldi,
annað kaupir hún í Nings-búðinni
á Suðurlandsbraut.
„Eldamennskan er það
skemmtilegasta sem hægt er að
gera í eldhúsinu og uppvaskið er
leiðinlegast,“ segir áhugakokkur-
inn Kolbrún að lokum.
alfrun@frettabladid.is
Salöt í uppáhaldi
KOLBRÚN ÓLAFSDÓTTIR Ásamt því að vera aðstoðarmaður ráðherra er hún mikill
listakokkur og hefur gríðarlega mikinn áhuga á eldamennsku. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hvað er betra en að gæða sér á
heitri og góðri súpu á köldum vetr-
ardögum? Mörgum finnst súpur
vera óspennandi og ekki endilega
matur heldur meira forréttur. En
það er hægt að gera góða matar-
mikla súpu sem virkar vel sem aðal-
réttur. Fréttablaðið hafði samband
við Örlyg Ólafsson, eiganda Súpu-
barsins, til að gefa lesendum nokkur
góð ráð varðandi súpugerð.
„Það þarf alls ekki að taka langan
tíma að gera súpu. Það sem mestu
máli skiptir er að hafa gott hráefni
og reyna að vinna allt saman upp frá
grunni,“ segir Örlygur en honum
finnst best að nota lífræn efni í
súpurnar enda hollustan í fyrirrúmi
á Súpubarnum. Örlygur notar til
dæmis grænmeti í stað hveitis til að
þykkja súpuna en einnig er gott að
nota kartöflur, sætar eða venjuleg-
ar, til að gera súpuna matarmeiri.
„Það eru til ótal grunnar að
súpum í matreiðslubókum sem
maður getur fylgt og svo er um að
gera að leyfa hugmyndafluginu að
stjórna ferðinni. Til dæmis er mjög
skemmtilegt að gera súpuna girni-
legri með því að gera hana litríka og
skreyta hana með hráefninu. Setja
til dæmis kryddaðan og steiktan
svepp ofan á rjómalagaða sveppa-
súpu. Það gerir súpu að meiri mat.“
Örlygur segir það algjöran
óþarfa að hafa brauð með súpu en mörgum finnist það vera ómissandi
fylgihlutur súpuáts. „Súpan sjálf á
alveg að standa fyrir sínu en ef fólk
vill hafa brauð með er mjög gott að
hafa litlar snittur með áleggi í stað
þess að hafa bara venjulegt hvítt
fransbrauð.“
Uppáhaldssúpa Örlygs er Tex
Mex súpa sem hann ber fram ásamt
lífrænt ræktuðum nachos flögum
„Þessi súpa hefur allt; hún er krydd-
mikil, þykk og alveg svakalega
góð.“
Þessi góðu súpuráð ættu að vera
fólki hvatning til að fara að leika sér
í eldhúsinu og töfra fram indælis
súpumáltíðir. - áp
Heit súpa á köldum dögum
ÖRLYGUR ÓLAFSSON Eigandi Súpubars-
ins er fullur af visku um góða súpugerð
sem hann deilir með lesendum.
SÚPUR Hvað er betra á köldum vetrardegi en heit súpa?
KJÚKLINGASALAT
A´ LA KOLBRÚN
Passar fyrir tvo í aðalrétt
Klettasalat
Spínat (til dæmis lollo rosso salat)
Hálf gúrka
Kirsuberjatómatar
Rauð paprika
Kjúklingur
Ristaðar furuhnetur
Fetaostur í kryddolíu
Aðferð: Salatið sett í skál og gúrka
og tómatar skorið niður. Paprikan
skorin niður og sett í eldfast mót,
krydduð með svörtum pipar, salti og
ólífuolíu skvett yfir. Paprikan sett í
ofn þar til bitarnir fara að dökkna á
börmunum. Kjúklingur rifinn niður,
furuhnetur ristaðar á þurri pönnu þar
til þær verða gylltar á lit.
Þessi eru síðan öllu skellt saman í
skál og olíunni af fetaostinum dreift
yfir salatið. Gott er að bera fram með
grófu brauði eða bara eitt og sér.