Fréttablaðið - 21.09.2006, Page 85
[TÓNLIST]
UMFJÖLLUN
Áður en þessi piltur hóf sólóferil
sinn var ég sannfærður um að
hann væri í liði með djöflinum.
En svo, eftir að hann afmeyjaði
frægustu hreinu mey síðan Maríu,
var eins og hann hefði verið snert-
ur af hönd Guðs. Kannski voru
sambandsslit hans og Britney leið
hans inn í ljósið? Þau færðu okkur
a.m.k. hið frábæra lag Cry Me a
River. Frumraun hans var án efa
óvæntasta ánægja popptónlistar
það sem af er þessum áratug.
Hún sýndi og sannaði að Timber-
lake er mjög metnaðarfullur tón-
listarmaður og (dirfist mér að
viðurkenna það...?) afbragðs
söngvari. Eftir vinsældir Justifi-
ed hefði hann getað gefið hvaða
prump sem er út á plasti og selt
milljónir. Hann fær því strax prik
í kladdann hjá mér fyrir að hafa
staðist þá freistingu og ákveðið
frekar að taka sér fjögur ár í að
skapa plötu sem hann sjálfur
hefur trú á.
Það sem er fyrst sláandi við
FutureSex er hversu vel hún
fangar augnablikið. Það er nánast
eins og að allt sem er spennandi
við popptónlist í dag kristallist á
þessari plötu. Það næsta sem
grípur mann eru lögin. Þau byggja
flest á einfaldri hrynjandi og eru
greinilega unnin með dansgólfið í
huga, sem mér fannst alltaf mátt
vera meira af á síðustu plötu. Það
sem stendur þó upp úr er hversu
gott nef Timberlake hefur fyrir
söngmelódíum. Margar þeirra
eru þess eðlis að þær festast í
heilahvelinu strax við fyrstu
hlustun, sem er gjöf sem fáum
lagahöfundum er gefin.
Hér er lítið rúm fyrir barna-
legar og klisjulegar ballöður. Það
eru tvær þannig, báðar mjög
aftarlega á plötunni. Restin af
lögunum fær mann nær öll til
þess að slá fæti með. Ef hægt er
að nefna einhverja áhrifavalda
væri svo sem hægt að benda á
augljós George Michael Jackson
áhrif hér og þar, en mest sláandi
fannst mér hversu mikið undir-
staðan í laginu frábæra My Love
minnti mig á Blinded by the
Lights eftir The Streets. Annars
er þessi plata svo stútfull af slög-
urum að ég ætla ekkert að vera að
eyða plássi í telja þá upp.
Með því að gefa sér tíma hefur
Timberlake náð að gera hið
ómögulega. Sem heild er þetta án
efa betri plata en Justified. Hvort
hér sé þó að finna jafn tímalausa
slagara og hann er frægastur
fyrir er erfitt að segja, tíminn
einn verður að leiða það í ljós ...
en það kæmi mér ekkert á óvart.
Birgir Örn Steinarsson
Úps... honum tókst
það aftur!
JUSTIN TIMBERLAKE:
FUTURSEX/LOVESOUNDS
Niðurstaða: Justin Timberlake festir sig hér
í sessi sem helsti popptónlistarmaður fyrsta
áratugarins. Skilar af sér betri plötu en síðast
og mun bráðum taka yfir heiminn.
Það styttist í sögulega endurkomu
Yusuf Islam, betur þekkts sem Cat
Stevens, en lagahöfundurinn held-
ur sína fyrstu tónleika í Fortune
Forum Club í London. Samkvæmt
fréttavefnum contactmusic.com
ætla fjölmargar stjörnur að heiðra
Islam með nærveru sinni og
nægir þar að nefna fyrrver-
andi forseta Bandaríkjanna,
Bill Clinton, og leikarahjónin
Michael Douglas og Catherine Zeta
Jones auk milljarðamæringsins
Richards Branson. Staðurinn er
þekktur fyrir að safna fé sem notað
er í baráttunni gegn fátækt og
hefur fræga fólkið lagt sitt á vog-
arskálarnar í því brýna verkefni.
Cat Stevens var ein af stór-
stjörnum hippatímabilsins og
samdi lög á borð við Morning Has
Broken, Father and Son og
Wild World. Hann sagði skilið
við tónlistarbransann tveim-
ur árum eftir að hafa snúist
til íslamstrúar í lok áttunda
áratugarins en fyrsta poppplata
hans í 28 ár verður gefin út í nóv-
ember.
Islam spilar fyrir stjörnurnar
YUSUF ISLAM Snýr aftur til poppheims-
ins í næstu viku þegar hann spilar á
Fortune Forum Club.
BILL CLINTON Hvort hann og Hill-
ary Clinton hafi hlustað á Cat
Stevens á sínum yngri árum
skal ósagt látið en forsetinn
fyrrverandi ætlar að mæta á
tónleikana.
Þær eru margar aðferðirnar sem
finna má til að líta betur út en það
sem hefur vakið mesta athygli og er
mest notað af konum nú til dags er
hrukkubaninn botox. Nú telja vís-
indamenn að efnið sé ávanabind-
andi. Botox virkar aðeins í ákveðinn
tíma, eða fjóra til sex mánuði, og því
nauðsynlegt fyrir konur sem vilja
halda andliti sínu lausu við hrukkur
að endurtaka botox-meðferðina.
Læknar hafa nú sýnt fram á það
að fjörutíu prósent kvenna sem
fara í slíka meðferð hneigjast til að
fara í aðrar lýtaaðgerðir. Botox-
aðgerðunum hefur fjölgað um
fimmtíu prósent í Bretlandi frá
árinu 2005.
Læknarnir báru saman botox-
notendur og þá sem fara aðrar leiðir
í fegrunaraðgerðum og komust að
því að þeir sem notuðu botox væru
mun uppteknari af öldrun en hinir.
Læknar telja botox vera skyndi-
lausn sem lætur fólk líða betur að
utan sem innan og því fá menn þörf
fyrir að gera alltaf meira og betur í
þessum efnum.
Margar stjörnur velja botoxið
til að halda andliti sínu sléttu og
unglegu enda er mikil pressa á leik-
konum og söngkonum í Hollywood
um að líta sem best út. Meðal þeirra
kvenna sem viðurkennt hafa að
nota botox eru fyrirsæturnar Linda
Evangelista og Cindy Crawford.
Einnig hafa leikkonurnar í sjón-
varpsþáttunum Aðþrengdar eigin-
konur eða Desparate Housewives
verið orðaðar við notkun á hrukku-
bananum. - áp
Ávanabindandi hrukkubani
BOTOX Vísindamenn og læknar í Bret-
landi telja botox, hrukkubanann, vera
ávanabindandi efni.
LINDA EVANGELSTA Hefur lýst því yfir
opinberlega að hún notist við botox og
segir hún efnið vera það besta á mark-
aðnum í dag.
Jennifer Lopez hefur ákveðið að
fara í tæknifrjóvgun til að draum-
ur hennar um að eignast börn geti
ræst. Söng- og leikkonan kunna
er gift söngvaranum Marc
Anthony og hafa þau sett stefn-
una á að eignast tvö börn saman.
J-Lo hefur heimsótt heilsugæslu-
stöð í Los Angeles sem sérhæfir
sig í tæknifrjóvgunum og rætt
við starfsfólk og sjúklinga þar.
„Jennifer segir að hún sé þegar
farin að undirbúa sig fyrir tækni-
frjóvgunina og að hún geti ekki
beðið eftir því að stofna fjöl-
skyldu,“ sagði heimildarmaður á
heilsugæslustöðinni við breska
blaðið The Sun.
J-Lo er orðin 37 ára gömul og
lýsti því yfir fyrir skemmstu að
hún væri tilbúin að gera hvað sem
er til að verða ólétt. Hún er nú
farin að borða spínat til að verða
frjósamari. Að ráði læknis síns
borðar hún spínat þrisvar á dag.
„Ef spínatið hjálpar mér ekki við
að eignast börn ætti ég þó að fá
vöðva eins og Stjáni blái í stað-
inn,“ sagði J-Lo létt á því.
J-Lo í tæknifrjóvgun
JENNIFER LOPEZ Er tilbúin að gera hvað sem er til að verða móðir. Hún hefur nú sett
stefnuna á að fara í tæknifrjóvgun. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
Á morgun föstudaginn 22. september á sjúkranuddstofan mín
5 ára afmæli. Um leið og ég þakka viðskiptavinum mínum fyrir
viðskiptin býð ég bæði þá og nýja viðskiptavini velkomna.
Frí meðferð fyrir alla sem eiga afmæli þennan dag.
Sjúkranuddstofan
Síðumúli 15,
108 Reykjavík
Sími/fax
588-1404
Gsm: 895 9404
BÖRN
KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON
HAGATORGI • S. 530 1919
/ AKUYREYRI
BÖRN kl. 5:45 - 8 - 10.15 B.i.12.ára.
AN INCONVENIENT TRUTH kl. 8 Leyfð
BJÓLFSKVIÐA kl. 8 - 10:15 B.i.16 .ára.
PIRATES OF CARIBBEAN 2 kl. 10:15 B.i. 12.ára.
THE ANT BULLY M/- Ísl tal. kl. 6 Leyfð
UNITED 93 kl. 10:10 B.i. 12
LADY IN THE WATER kl. 10:10 B.i. 12
ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 8
YOU, ME AND DUPREE kl. 8 B.i. 12
Renaissance kl. 8 B.i.12
Where the Truth Lies kl. 5:45 B.i. 16
Down in the Valley kl. 10:15 B.i. 16
A cock and bull story kl. 5:45 B.i. 16
Þann 11.september 2001 var fjórum flugvélum rænt.
Þrjár þeirra flugu á skotmörk sín. Þetta er saga fjórðu vélarinnar.
V.J.V. TOPP5.IS
����
����
S.U.S. XFM 91,9.
����
TOMMI KVIKMYNDIR.IS
FRÁBÆR OG FJÖRUG STAFRÆN TEIKNIMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA.
„the ant bully“
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI.
Með hinum eina sanna Jack Black og frá leikstjóra
„Napoleon Dynamite“ kemur frumlegasti grínsmellurinn í ár.
BÖRN
KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON
ICELAND FILM FESTIVAL 2006
Í HÁSKÓLABÍÓI OG REGNBOGA 30. ÁGÚST - 21. SEPTEMBER
BJÓLFS
KVIÐA
����
V.J.V. TOPP5.IS
�����
H.J. / MBL
The Libertine
Down the valleyA cock and bull ..
Kvikmyndahátíð
Deitmynd ársins.
Með kyntröllinu
Channing Tatum
(“She’s the Man”)
Jack Black
er
NACHO LIBRE kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 7.ára.
STEP UP kl. 8 - 10:15 B.i. 7.ára.
UNITED 93 kl. 8 - 10:20 B.i.14.ára.
MAURAHRELLIRINN M/- Ísl tal. kl. 6 Leyfð
V.J.V. TOPP5.IS
����
V.J.V. TOPP5.IS
����
V.J.V. TOPP5.IS
���
NACHO LIBRE kl. 4 - 6:10 - 8 - 10:20 B.i. 7.ára.
NACHO LIBRE VIP kl. 5:10 - 8 - 10:20
BÖRN kl. 6 - 8 - 10:10 B.i.12.ára.
STEP UP kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7.ára.
MAURAHRELLIRINN M/- Ísl tal. kl. 4 - 6 Leyfð
ANT BULLY M/-ensku tali kl. 6:20 Leyfð
LADY IN THE WATER kl. 8:10 - 10:20 B.i. 12.ára.
PIRATES OF CARIBBEAN 2 kl. 8:20 B.i. 12.ára.
OVER THE HEDGE M/- Ísl tal. kl. 4 Leyfð
BÍLAR M/- Ísl tal. kl. 4 Leyfð
/ KRINGLUNNI / KEFLAVÍK/ ÁLFABAKKA
NACHO LIBRE kl. 6 - 8 - 10
ANT BULLY m/ísl. tali kl. 6 Leyfð
STEP UP kl. 8 -10 Leyfð
Þegar þú færð annað tækifæri
þarftu að taka fyrsta sporið.
Frábær dansmynd hlaðin geggjaðri tónlist en
myndin kom heldur betur á óvart í USA fyrir nokkru.
4 vikur
á toppnum á Íslandi !