Fréttablaðið - 21.09.2006, Side 90
21. september 2006 FIMMTUDAGUR
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
. Þ
ú
fæ
rð
5
m
ín
ti
l a
ð
sv
ar
a
sp
ur
ni
ng
u.
SENDU SMS SKEYTIÐ JA LSV
Á NÚMERIÐ 1900 OG SVARAÐU SPURNINGU.
ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
AÐALVINNINGUR ER
PS2 TÖLVA OG JUST CAUSE LEIKUR
AUKA VINNINGAR ERU:
LEGO STARWARS LEIKIR • PS2 TÖLVUR
DVD MYNDIR • FULLT AF ÖÐRUM TÖLVULEIKJUM
OG MARGT FLEIRA!
LENDIR Í BT 21. SEPT
EMPER TENNIS Arnar Sigurðsson, fremsti
tennisspilari okkar íslendinga,
hefur í miklu að snúast og tók á
dögunum þátt í atvinnumanna-
móti í Los Angeles þar sem hann
komst í 8 manna úrslit.
Arnar hóf keppni í 32 manna
úrslitum og bar þar sigurorð af
Patrick John Tierro frá Filipp-
seyjum í þremur settum. Í 16
manna úrslitum vann Arnar
Michael McClune frá Bandaríkj-
unum í tveimur settum en í 8
manna úrslitum tapaði Arnar í
tveimur settum fyrir Eric Taino
frá Filippseyjum. Sigurvegari
mótsins var Dudi Sela frá Ísrael.
Það er nóg að gera hjá Arnari
þessa dagana því í byrjun
þessarar viku hóf hann keppni á
öðru móti í Los Angeles en þar
datt út í 32 manna úrslitum fyrir
Bandaríkjamanninum Tim
Smyczek. Smyczek þessi var
talinn vera sjöundi besti
keppandi þess móts og því ljóst
að Arnar datt út fyrir sterkum
spilara. Í næstu viku mun Arnar
svo fara til Mexíkó og taka þátt í
öðru móti þar.
Arnar hefur verið að færa sig
ofar á styrkleikalistanum og
fyrir vikið þarf hann ekki að
taka þátt í undankeppnum á
þessum mótum og hefur leik í 32
manna úrslitum.
- dsd
Það er nóg að gera hjá fremsta tennisspilara Íslands þessa dagana:
Arnar komst í 8 manna úrslit
ARNAR SIGURÐSSON Hefur í miklu að
snúast þessa dagana og keppir grimmt.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FÓTBOLTI Garðar Gunnlaugsson
gekk fyrr í sumar til liðs við
sænska 1. deildarliðið Norrköping
frá Val. Hann hefur gert það gott í
Svíþjóð, byrjað inn á í öllum leikj-
um liðsins síðan hann kom og skor-
að í þeim fjögur mörk. Fyrir hjá
liðinu var annar Skagamaður, Stef-
án Þórðarson, og leika þeir félagar
saman í sókn liðsins.
„Ég er reyndar í nýju hlutverki
inni á vellinum,“ sagði Garðar.
„Ég leik hægra megin í þriggja
manna sóknarlínu og Stefán er
uppi á toppi. Þetta er öðruvísi, það
er til að mynda meiri varnarvinna
sem fylgir þessu hlutverki en ég
er að komast inn í þetta.“
Norrköping er eins og stendur í
fjórða sæti deildarinnar en þriðja
sætið veitir umspilsrétt við liðið
sem lendir í þriðja neðsta sæti
úrvalsdeildarinnar um laust sæti í
síðarnefndu deildinni. Norrköping
stefnir á að ná þangað en stutt er
eftir af tímabilinu.
„Við virðumst klúðra öllum
tækifærum sem við fáum til að
komast í þriðja sætið. Vonandi
vinnum við næsta leik og náum að
saxa eitthvað á forskotið.“
Garðar segir að honum líði vel
hjá liðinu, honum hafi verið vel
tekið og hann nái vel saman við
aðra leikmenn inni á vellinum, sér
í lagi Stefán. „Hann hefur lagt upp
mark fyrir mig og ég hef átt þátt í
mörkum sem hann hefur skorað.
Leikstíll þessa liðs hentar mér
mjög vel og þá er knattspyrnan í
þessari deild hraðari en heima og
dómarinn leyfir meira. Það hentar
mér vel því ég er hrifinn af því að
nota skrokkinn og fá aðeins að ýta
við varnarmönnunum. Þeir fá líka
að ýta á móti og getur oft komið
mikill hiti í leikinn. Hann verður
skemmtilegri fyrir vikið.“
Um síðustu áramót gekk Garð-
ar til liðs við Dunfermline í Skot-
landi þar sem hann fékk fá tæki-
færi og kom inn á sem varamaður
í einum leik. Hann segist þó ekki
sjá eftir neinu. „Ég bætti mig
heilmikið í Skotlandi, bæði and-
legu hliðina og sem knattspyrnu-
maður. Þar kynntist ég meiri hraða
því jafnvel á æfingum mátti
maður varla koma við boltann
oftar en 2-3 sinnum áður en maður
sendi hann.“
Garðar er 23 ára gamall og
hefur eins og svo marga aðra
knattspyrnumenn dreymt um að
gerast atvinnumaður í knatt-
spyrnu frá blautu barnsbeini. „Nú
er maður að upplifa drauminn og
nú þarf maður að dreyma enn
stærra,“ sagði Garðar. Hann hefur
sjálfur kynnst miklu mótlæti í
gegnum tíðina. „Ég hef barist við
mótlæti allan minn meistara-
flokksferil. Það hefur bara styrkt
mig andlega. Það eru margir sem
brotna en það þýðir ekkert, maður
verður bara að leggja harðar að
sér.“
Hann segir að reynslan sem
hann hafi öðlast á Íslandi sé dýr-
mæt. „Íslenska deildin er mjög
góður skóli. Það eru margir ungl-
ingar sem fá tilboð um að leika
með erlendum liðum en þar eiga
þeir það á hættu að týnast.
Dunfermline var ekki stórt félag
en þar voru engu að síður margir
ungir leikmenn. Ég gat haldið
áfram í Skotlandi en ákvað frekar
að koma heim og spila. Og það er
betra að kynnast meistaraflokkn-
um á Íslandi áður en farið er út
enda hafa margir þurft að koma
heim um tvítugt eftir að hafa verið
2-3 ár erlendis.“
Hann segir að þolinmæði sé
lykilorðið. „Þetta hefur mig
dreymt um síðan maður var fimm
ára gamall. Menn verða því oft
fljótir á sér þegar þeir sjá tæki-
færið. En maður verður að vera
raunsær og þótt maður sé orðinn
23 ára gamall er draumurinn ekki
úti.“
Norrköping er vissulega ekki
stórt félag á alþjóðavísu en Garð-
ar vonast til að það verði góður
stökkpallur fyrir hann. „Hér fæ
ég að spila reglulega og sjálfs-
traustið hefur aukist mikið. Vera
mín hér hefur hjálpað mér mikið á
alla mögulega vegu.“
eirikur.asgeirsson@frettabladid.is
Reynslan úr íslenska
boltanum er afar dýrmæt
Garðar Gunnlaugsson segist vera að upplifa drauminn í Svíþjóð þar sem hann
leikur með 1. deildarliðinu Norrköping. Hann stefnir hærra og segir að ekki
megi vanmeta þá reynslu sem ungir íslenskir knattspyrnumenn fá á Íslandi.
GARÐAR GUNNLAUGSSON Hér í leik með Val fyrr í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Glenn Roeder, fram-
kvæmdastjóri Newcastle, var
áður stjóri West Ham og var við
stjórnvölinn þegar liðið féll úr
úrvalsdeildinni árið 2003. Hann
fékk að heyra það frá nokkrum
stuðningsmönnum West Ham
þegar liðin mættust á Upton Park
á sunnudaginn. Roeder greindist
með heilaæxli sama vetur og West
Ham féll og gekkst undir alvar-
lega skurðaðgerð vegna þess.
Sumir stuðningsmanna West
Ham gengu svo langt að kalla hann
„krabbameinsstrák“ úr áhorf-
endapöllunum. „Það sorglegasta
við þessi hróp og köll á sunnudag-
inn er það að þegar ég horfði í and-
lit þeirra sem voru að hrópa þá sá
ég að sumir hverjir voru menn á
mínum aldri. Menn á fertugs- og
fimmtugsaldir hrópandi um
krabbamein og dauða. Þessir
menn gætu sjálfir lent í sömu
aðstöðu og ég einn daginn en að
sjálfsögðu vona ég það ekki. En
sem betur fer var ég vitni að
þessu. Ég er mun ánægðari að
vera lifandi til að sjá og heyra
þetta en að liggja dauður undir
grænni torfu einhvers staðar. Ég
veit að það var bara minnihluti
aðdáenda West Ham sem átti sök á
þessu,“ sagði Glenn Roeder um
þetta ömurlega atvik.
„Ég gerði allt sem ég gat fyrir
West Ham þegar ég var þar stjóri
og vann hörðum höndum fyrir
félagið. Ég gagnrýndi aldrei félag-
ið þegar ég yfirgaf það og ég var
mjög ánægður þegar West Ham
komst upp í úrvalsdeildina. Ég ber
engan kala til félagsins, lífið er of
stutt fyrir svoleiðis lagað,“ sagði
Roeder. - dsd
Glenn Roeder fékk heldur óblíðar móttökur frá stuðningsmönnum West Ham:
Var kallaður krabbameinsstrákur
GLENN ROEDER Var stjóri West Ham fyrir
þremur árum. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES