Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.09.2006, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 24.09.2006, Qupperneq 2
2 24. september 2006 SUNNUDAGUR SPURNING DAGSINS SLÖKKVILIÐ Mörg útköll voru hjá lögreglu og slökkviliði í Smá- íbúðahverfinu í Reykjavík í fyrrinótt þar sem skrúfað var frá brunahönum í hverfinu frá klukkan þrjú um nóttina og til klukkan átta fram undir morgun. Alls var vatni hleypt af níu brunahönum. Varðstjóri slökkvi- liðsins segir bagalegt að slökkvi- liðsmenn þurfi að eyða tíma sínum í svona nokkuð. Hann bendir á að uppátæki af þessu tagi geti skemmt brunahanana ef frost er úti. Það geti svo valdið hættu ef þörf er á að nota þá. Ekki sást til sökudólganna. - kdk Fjöldi útkalla hjá slökkviliði: Skrúfað frá níu brunahönum SKRÚFAÐ FRÁ BRUNAHÖNUM Varðstjóri slökkviliðsins segir uppátæki sem þessi afar bagaleg. KÁRAHNJÚKAR Brúnni yfir Jökulsá á Dal var lokað í gær. Handrið og brúardekk voru fjarlægð en burðarverkið var látið standa. Það mun fara í kaf er byrjað verður að safna vatni í uppistöðulón Kára- hnjúkavirkjunar síðar í vikunni. Brúin, sem er skammt fyrir ofan Kárahnjúkastíflu, var byggð við upphaf framkvæmda við Kárahnjúkavirkjun. Hún hefur verið opin almennri umferð en nú þurfa ferðamenn að bíða þess að vegurinn yfir stífluna sjálfa verði opnaður til að komast yfir ána, en það verður ekki fyrr en næsta sumar. - tg Brú yfir Jökulsá á Dal lokað: Fer undir vatn síðar í vikunni BRÚIN YFIR JÖKULSÁ Á DAL Einungis burðarverkið stendur nú eftir. SKEMMDARVERK Dagforeldrar í Síðuhverfi á Akureyri þurfa daglega að yfirfara leikvöll í hverfinu til að ganga úr skugga um að glerbrot og tæki til fíkniefnaneyslu stofni börnum ekki í hættu. Svo langt gangi skemmdar- verkin að glerbrotum sé stundum dreift á markviss- an hátt um sandkassa á leikvellinum. Veggjakrot sé algengt og rúður í skúr brotnar að minnsta kosti mánaðarlega. Flöskur til hassneyslu og önnur fíkniefnatól finnist reglulega inni á leikvellinum. Dröfn Árnadóttir, ritari Dagvistunar, félags dagforeldra á Akureyri og nágrenni, segir þetta alvarlega vandamál hafa viðgengist allt of lengi. „Við höfum beðið lögreglu um aðstoð en hún hefur lítið getað hjálpað. Svæðið er illa upplýst og erfitt að vakta það á kvöldin og næturnar. Við erum í rauninni bara að bíða eftir slysi.“ Hún segir félagið hafa verið í viðræðum við skólastjóra Síðuskóla um að kennarar ræði við börn í skólanum og fræði þau um mögulegar hættur á leikvöllum. „Við viljum skapa umræðu um málið og vekja alla til umhugsunar því þetta er grafalvarlegt vandamál.“ - sþs Dagforeldrar á Akureyri vekja athygli á skemmdarverkum á leikvelli í Síðuhverfi: Óþokkar dreifa glerbrotum í sandkassa DRÖFN ÁRNADÓTTIR BROTIN RÚÐA Dröfn segir litla hjálp hafa verið í lögreglunni, leikvöllurinn sé illa upplýstur og erfitt að vakta hann á kvöldin og næturnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ÖRLYGUR HNEFILL SLYS Átta voru fluttir á sjúkrahús eftir árekstur á Höfðabakkabrú í Reykjavík um tvöleytið í dag. Samkvæmt upplýsingum frá slysadeild slasaðist enginn alvarlega. Tildrög slyssins voru þau að lögreglubíll með blikkandi forgangsljós og hljóðmerki ók á móti rauðu ljósi með þeim afleiðingum að hann lenti í árekstri við lítinn fólksbíl sem ekið var yfir á grænu. Fimm börn voru í fólksbílnum, auk öku- manns, og tveir lögreglumenn í lögreglubílnum og voru allir fluttir á slysadeild. Lögreglan var á leið í Grafarvog til að sinna ökumanni sem hafði dottið af vélhjóli, en meiðsl hans voru ekki alvarleg. Málið er nú í rannsókn en að sögn lögreglunnar er útsýni á brúnni fremur takmarkað. - kdk Lögreglubíll í árekstri: Átta fluttir á slysadeild MATVÖRUVERÐ Þingmenn Samfylk- ingarinnar ætla að leggja fram til- lögur á Alþingi sem þeir telja að geti lækkað matarreikning heimil- anna um tvö hundruð þúsund krón- ur á ári. Til að ná því fram vill flokkurinn meðal annars fella niður vörugjald af matvælum og lækka virðisaukaskatt af matvæl- um um helming. Einnig er lagt til að innflutn- ingstollar af matvælum verði lagð- ir niður í áföngum. 1. júlí næst- komandi verði helmingur þeirra afnuminn og ári síðar verði allir tollar endanlega fallnir niður. Í tilkynningu frá flokknum segir að Samfylkingin hafi ein flokka barist fyrir lækkun mat- vælaverðs á undanförnum árum, ríkisstjórnarflokkarnir hafi staðið gegn slíkum tillögum á Alþingi. Matvælakostnaður heimilanna nemi að meðaltali um 750 þúsund krónum á ári og því myndu tillög- urnar lækka matarreikninginn um rúman fjórðung. Þá segir að matarverð á Íslandi sé með því hæsta í heim- inum og um fimmtíu pró- sentum hærra en hjá nágranna- þjóðunum. Hátt verð á matvælum á Íslandi sé hins vegar heimatil- búinn vandi sem vel sé hægt að bregðast við. Lagt er til að fyrirkomulagi á stuðningi við bændur verði breytt; teknar verði upp tímabundnar beinar greiðslur og umhverfis- styrkir. Þetta fyrirkomulag verði útfært í samvinnu við bændur. Jafnframt muni Samfylkingin leggja fram frumvarp þar sem afnuminn sé réttur landbúnaðar- ráðuneytis til að hafna breytingum á tollskrám sem varða breytingar á innflutningsvernd búvara. „Við leggjum til að létta bænd- um aðlögunina og þá verði tekinn upp tímabundinn stuðningur við bændur sem verði mótaður í sam- ráði við samtök þeirra. Þar eru ýmsar leiðir sem koma til greina,“ segir Össur Skarphéðinsson, þing- flokksformaður Samfylkingar. „Til dæmis er orðið löngu tíma- bært að taka upp svokallaða græna styrki og einnig er hægt að styðja við atvinnuuppbyggingu í sveitum þar sem kynnu að skapast ein- hverjir tímabundnir erfiðleikar.“ salvar@frettabladid.is Samfylking ætlar að lækka matvöruverð Samfylkingin ætlar að lækka matarreikning heimilanna um 200.000 krónur á ári. Meðal breytinga sem lagðar eru til eru niðurfelling vörugjalda og lækkun virðis- aukaskatts á matvæli. Einnig skuli fella niður alla innflutningstolla á matvælum. KJÖTBORÐ Í tilkynningu frá Samfylkingunni segir að matarverð á Íslandi sé með því hæsta í heiminum og um helmingi hærra en hjá nágrannaþjóðum. Hátt verð á matvælum á Íslandi sé hins vegar heimatilbúinn vandi sem vel sé hægt að bregðast við. „Svona aðgerðir á svona stuttum tíma munu leggja stóran hluta landbúnaðarins, og úrvinnslugreina hans, í rúst,“ segir Sigurgeir Þorgeirsson, framkvæmdastjóri Bændasam- takanna, um tillögur Samfylkingar til lækkunar á matvæla- verði. Meðal helstu breytinga í tillögunum eru niðurfelling innflutningstolla á matvælum í áföngum. 1. júlí verði tollar lækkaðir um helming og ári síðar verði þeir afnumdir með öllu. Fyrirkomulagi á stuðningi við bændur verði einnig breytt þannig að teknar verði upp tímabundnar beinar greiðslur og umhverfisstyrkir. Slíkt fyrirkomulag verði útfært í samvinnu við bændur. „Það er ekkert nema blekk- ing og hræsni að halda að það sé hægt að bæta þetta upp með einhverjum mótaðgerðum. Ef þetta gerist á þessum hraða mun það höggva afskaplega stór skörð í landbúnað- inn og alla úrvinnslu búvara hér á landi,“ segir Sigurgeir. Össur Skarphéðinsson, þingflokksformaður Samfylking- arinnar, segir hag landbúnaðarins hafa vænkast verulega á undanförnum árum, „eins og landbúnaðarráðherra gumar jafnan af. Við teljum að neytendur þurfi að fá eitthvað af þeim hagræðingarmöguleikum sem bændur hafa fengið undanfarin ár,“ segir Össur. - sþs Framkvæmdastjóri Bændasamtakanna mótmælir tillögum um lækkun matarverðs: Mun leggja landbúnað í rúst ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON SLÖKKVILIÐ Eldur kviknaði í farþegaskipinu Lagarfljótsormin- um snemma í gærmorgun. Vakthafandi lögreglumaður sagði eldinn hafa kviknað út frá raf- magnsofni en greiðlega hefði gengið að slökkva hann. Skemmdir væru þó talsverðar, þá aðallega af sóti og reyk. Alfreð Steinar Rafnsson, skipstjóri Lagarfljóts- ormsins, sagði að nær samstundis og eldurinn var slökktur hefðu viðgerðir verið hafnar og útlit væri fyrir að ormurinn yrði kominn á fullt skrið næsta föstudag. - kdk Lagarfljótsormurinn: Eldur um borð FLUGSAMGÖNGUR Samgönguráðu- neytið mun bjóða út flug til Vestmannaeyja, finnist ekki aðrir sem eru tilbúnir til að fljúga þangað án opinberra styrkja. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær ætlar Landsflug að hætta öllu áætlunarflugi milli Vest- mannaeyja og Reykjavíkur. Ekkert annað flugfélag flýgur sömu leið. „Ef það kemur í ljós að það sé enginn tilbúinn að fljúga þetta flug á markaðsforsendum munum við fara í að undirbúa útboð á þessari leið,“ segir Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri í samgönguráðuneytinu. - sþs Flugsamgöngur í Eyjum: Útboð undirbúið Ívar, væri laxerolía ekki áhrifa- ríkari? „Laxinn virkar að minnsta kosti, hitt höfum við ekki prófað.“ Ívar Guðmundsson, einkaþjálfari og útvarpsmaður, er einn þeirra sem stunda laxaát til að halda sér í formi. Í laxakúrn- um er lax í matinn fimm sinnum á dag í sex daga. FLUGSLYS Flugvél hvolfdi í lendingu á sandbreiðu við Gæsavötn um hádegi í gær. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Húsavík var flugmaðurinn einn í vélinni, sem er eins hreyfils, þegar henni hlekktist á í lendingu og endaði á hvolfi um tvö hundruð metrum frá þeim stað þar sem hún lenti fyrst. Flugmaðurinn slapp lítið slasaður. Rannsóknarnefnd flugslysa fór á vettvang og rannsakar nú slysið. - sþs Flugvél hvolfdi við Gæsavötn: Engan sakaði í flugóhappi Bifhjólamaður var stöðvaður af lögreglunni á Hvolsvelli í gærmorgun eftir að hafa mælst á ofsahraða. Hann mældist á 170 km hraða og var svipt- ur ökuréttindum á staðnum. LÖGREGLUFRÉTT Ofsaakstur á mótorhjóli
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.