Fréttablaðið - 24.09.2006, Síða 10

Fréttablaðið - 24.09.2006, Síða 10
10 24. september 2006 SUNNUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 RITSTJÓRAR: Kári Jónasson og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Sigríður Björg Tómasdóttir og Trausti Hafliðason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Björgvin Guðmundsson Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og þéttbýlissvæðum á suðvesturhorninu. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 Góður liðsauki „Nauðsynlegt er að taka upp umræðu um dreifistýringu heilbrigðiskerfis- ins, heilsugæslunnar og sjúkrahúsa, samkeppni og einkarekstur heil- brigðisstofnana, sjúkrahúsa og hjúkr- unarheimila og heilsugæslustöðva, einkarekstur þar sem sjúklingar njóti sjúkratrygginga,“ sagði í Morgunblaðs- grein í gær. Nei, það var ekki verið að vitna í Össur Skarphéðinsson á landsfundi Samfylkingar 2003 né var greinin eftir Ágúst Ólaf Ágústsson varaformann sama flokks. Tómas Helgason, prófess- or í geðlækningum, virðist hafa gengið til liðs við þá félaga í baráttunni fyrir meira frjálsræði í heil- brigðisrekstri. Einn, tveir og Geir Baráttujöxlunum Birni Bjarnasyni og Guðlaugi Þór Þórðarsyni finnst ekk- ert tiltökumál að leggjast í prófkjörs- slag. Margir sjálfstæðismenn hefðu samt kosið að Björn fengi annað sæti baráttulaust fyrir sitt síðasta kjörtímabil. Á Geir H. Haarde meðal annars að hafa mælst til þess við Guðlaug Þór að hann léti a f baráttu um það sæti og færi í annað öruggt sæti. Fór Guð- laugur Þór yfir stöðuna um síðustu helgi og ákvað síðan að taka slag- inn, enda búinn að tilkynna það stuðningsmönnum sínum. Öflugur stjórnarformaður Sú var tíðin að Halldór H. Jónsson, þá stjórnarformaður Eimskips, var kallað- ur stjórnarformaður Íslands. Í vikunni var sá titill hins vegar hengdur á Gunn- laug Sævar Gunnlaugsson, sem er ekki í stjórn Eimskips heldur Tryggingamið- stöðvarinnar. Sævar er reyndar líka stjórnarformaður Icelandic Group og hefur náð góðum árangri með félagið. Til þess þurfti hann reyndar að láta tvo forstjóra fjúka á síðasta ári; Gunnar Svavarsson og Þórólf Árnason. Fyrr og síðar hefur nefnilega þurft sterk bein til að standa undir nafnbótinni stjórnarformaður Íslands. bjorgvin@frettabladid.is Umræðan | Peningamálastefnan Margt bendir til að samfelldri hrinu stýrivaxtahækkana frá 10. maí 2004 sé lokið. Á þeim tíma hefur Seðlabankinn hækkað vexti 16 sinnum úr 5,3% í 14% í baráttu við að ná verðbólgumarkmiði sínu. Þrátt fyrir harkalegar aðgerðir í peninga- málum erum við víðsfjarri markmiði um 2,5% verðbólgu sem flestir telja að sé ein af forsendum hagsældar. Í þessu ljósi er eðlilegt að spyrja hvort framkvæmd pen- ingastefnunnar síðustu ár hafi skilað til- ætluðum árangri? Enginn vafi er á því að peningastefnan virkar og hefur áhrif á efnahagslífið en það er hins vegar álitamál hvort hún gerir gagn í ljósi hárrar verð- bólgu. Fyrr en síðar munu ofurvextir á Íslandi knýja niður verðbólgu. Ólíklegt er að það gerist áfalla- laust. Erlendir fjármagnseigendur hafa, ólíkt mörg- um öðrum, haft mikið gagn af íslensku peninga- stefnunni. Þeir hafa fært mikið fé inn í hagkerfið, ekki til að fjárfesta í íslensku atvinnulífi heldur til að hirða vaxtamuninn. Og hvað gerist þegar Seðla- bankinn slakar á peningastefnunni og byrjar að lækka vexti? Fyrstir til að flýja land verða hinir erlendu fjármagnseigendur. Gengislækkun krónunnar er þá óhjá- kvæmileg og verðbólguskot fylgir yfir- leitt í kjölfarið. Þannig getur harkaleg peningastefna, sem þrýstir m.a. upp gengi krónunnar, leitt til verðbólgukúfs þegar gengið fellur aftur andstætt mark- miðum Seðlabankans. Einn stærsti gallinn við núverandi framkvæmd peningastefnunnar er tíma- setning vaxtabreytinga. Yfirleitt er talið þær taki 12-18 mánuði að ná fram fullum áhrifum. Flest bendir til að verulega verði tekið að hægja á efnahagslífinu eftir 1 ár. Þá er óheppilegt að fá fram full stýrivaxtaáhrif. Fullur þungi í pen- ingastefnunni er einfaldlega of seint á ferðinni. Seðlabankanum er vandi á höndum. Engin aug- ljós lausn er á vandanum þó svo að vaxtalækkun sé líklega skásti kosturinn við núverandi aðstæður. Til framtíðar er heppilegast væri að leggja sjálfstæða peningastefnu til hliðar. Reynslan sýnir að hún skil- ar ekki árangri. Höfundur er hagfræðingur Samtaka iðnaðarins. Árangurslaus peningastefna Það er mjög sérstakt að vera kominn í prófkjör. Allur sólarhringurinn lagður undir ásamt heimilinu, vinunum, fjölskyldunni og vesalings nágrönnunum sem þurfa að lána eldhús- og stofustóla á hverju kvöldi vegna fundahalda. En það er gaman að þessu, mikið líf og fjör. Einn góður vinur minn spurði hvort ég myndi ekki fá mörg atkvæði úr sjávarútveginum, ég hefði jú unnið öll menntaskóla- og háskólasumrin í frystihúsi vestur á fjörðum; hvað með sjómenn, spurði hann vongóður og neri saman höndunum. Það er nú það, sagði ég við vin minn, ég er ekki viss um hvort þeir hafi mikið álit á sjómennsk uferli mínum. Ég fór einn túr á togara. Grétar skipstjóri á Gylli frá Flateyri stakk hausnum niður um lestarlúguna þar sem við vorum nokkrir að klára að landa karfa og spurði hvort ég vildi ekki koma með í næsta túr. Það var áliðið kvölds og þetta hafði verið löng og erfið löndun. Þreytan hvarf samt alveg við þessa spurningu skipstjórans og ég hrópaði já af lestargólfinu. Það átti að fara út á miðnætti og á leiðinni heim af bryggjunni til að sækja dótið mitt byrjaði ég að reikna í huganum hvað ég myndi nú græða mikið á þessum túr. Ef ég stæði mig vel þá fengi ég kannski fleiri túra og hver vissi nema ég yrði fastur sumarafleys- ingamaður, kæmist í fast pláss. Gott ef ég fór ekki að hugsa um að fjárfesta í lítilli íbúð fyrir alla peningana. Út var haldið á miðnætti og stefnt í áttina til Grænlands, á grálúðu- miðin. Þegar á miðin var komið var ég mættur á fyrstu alvöru vaktina tilbúinn í slaginn. Og það gekk allt ágætlega, mér fannst mér takast vel upp í þeim verkum sem mér var úthlutað og ég var ekkert minna sjóaralegur en hinir. Þangað til einn þeirra sjóvönu sagði, „eigum við ekki að fá okkur að borða“. Þá helltist yfir mig sjóveiki, alveg hræðileg sjóveiki. Og þá gerði ég mistök. Í stað þess að fara og borða, sem hefði kannski bjargað mér, þá ákvað ég að fara niður í káetu og sjá hvort þetta rjátlaðist ekki af mér. Við tóku tveir ömurlegustu sólar- hringar sem ég hafði lifað. Ég man þetta meira og minna í móðu. Ég reyndi að koma mér í vinnu því ég skammaðist mín fyrir vesaldómin. Minnist þess að hafa legið flatur á gólfinu í stakka- geymslunni þar sem mér hafði tekist að klæða mig í sjóbuxurnar og var að brasa liggjandi við að koma mér í stakkinn. Stýrimaður- inn stóð og horfði forviða á aðfarirnar. Spurði síðan þegar hlé varð á, hvað ég hefði hugsað mér að gera næst eftir að ég væri búinn að koma mér í stakkinn, hvort ég héldi í alvörunni að ég gæti unnið svona á mig kominn. Ég held ég hefði stokkið útbyrðis ef ég hefði haft til þess kraft á þeirri stundu. En svo fór þetta að skána, reyndar mjög hægt. Ég gat komið mér niður í lest og byrjað að moka ís í kassana, flaug hundrað sinnum á hausinn og naut mín satt best að segja engan veginn. En ég var þó byrjaður að vinna. Á næstu frívakt notaði ég tækifærið og lagðist í trolldræsu sem lá á hvalbaknum. Þar lá ég og naut þess að finna líf færast í mig. Allt um kring á slóðinni voru aðrir togarar á grálúðuveiðum. Sjómenn þar um borð veittu því athygli að það lá þarna maður sem dauður væri. Skipstjórarnir byrjuðu að kalla í skipstjórann okkar og hann spurður hvað þessi maður ætti að fyrirstilla þarna á hvalbaknum. Grétar skipstjóri var ekki þeirrar gerðar að hann sætti sig við háðsglósur vegna þess að hann væri með sjóveikan skólastrák um borð. Hann sneri því vörn í sókn og sagði kollegun- um að maðurinn á hvalbaknum væri landsþekktur fuglafræðing- ur frá Reykjavík sem væri við rannsóknir. Gyllir hafði verið sérstaklega valinn til að taka þennan merka fræðimann með í þessar mikilvægu rannsóknir sem myndi nýtast öllum togaraflotan- um við grálúðuveiðar í framtíð- inni. Enn einu sinni bar Grétar skipstjóri af öðrum skipstjórum á svæðinu. Ég rölti mér upp í brú þegar ég hafði legið nægju mína. Grétar skipstjóri tók á móti mér og spurði mig hvort ég hefði eitthvað vit á fuglum. Mér fannst þetta skrítin spurning en svaraði því til að ég þekkti hrafna frá öðrum fuglum, lengra næði það nú ekki. Það var síðan fullur skilningur á því milli mín og skipstjórans að kraftar mínir nýttust betur í frystihúsinu en á togaranum. Ég er þó þeirri reynslu ríkari að sjómenn, þrátt fyrir hrjúft yfirborð, eru góðir vinir í raun og ég vona að ég njóti stuðnings sjómanna hér í Reykja- vík, þrátt fyrir fremur stuttan sjómennskuferill. Sjómennskan er ekkert grín BJARNI MÁR GYLFASON������������������������������������������������� ���������������������������������������������� ������������������������������������� ����������������� ���������������������������������������� �������������������������������������� ������������� ��������������������������������������������������������� ������������������ Þá helltist yfir mig sjóveiki, alveg hræðileg sjóveiki. Og þá gerði ég mistök. Í stað þess að fara og borða, sem hefði kannski bjargað mér, þá ákvað ég að fara niður í káetu og sjá hvort þetta rjátlaðist ekki af mér. ILLUGI GUNNARSSON Í DAG | Sjómennska M argt horfir til bóta í frumvarpi Björns Bjarnason- ar dómsmálaráðherra um kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga. Miklu munar um það ákvæði að fyrningarfrestur kynferðisbrota miðist við átján ára aldur brotaþola í stað fjórtán ára áður. Hækkun refsihámarks fyrir kynferðislega áreitni gegn börnum gerir einnig að verkum að fyrningartími þessara brota verður lengri en áður. Ýmsir hafa þó bent á að rétt hefði verið að ganga enn lengra og jafnvel afnema fyrningarfrest í brotum sem þessum. Flestir eru sammála um að kynferðislegt ofbeldi gegn börn- um sé meðal allra alvarlegustu glæpa sem framdir eru. Þynging refsinga í kynferðisbrotamálum gegn börnum, eins og gert er ráð fyrir í frumvarpinu, er því löngu tímabær. Einnig er til bóta rýmkun á nauðgunarhugtakinu á þann veg að ef frumvarpið nær fram að ganga telst það vera nauðgun ef gerandi færir sér bágt andlegt ástand eða skilningsleysi þol- anda í nyt. Þetta þýðir að misneyting, til dæmis á þeim sem eru þroskaheftir, telst vera nauðgun. Í frumvarpi dómsmálaráðherra er felld niður refsing fyrir að stunda vændi sér til framfærslu. Þess í stað verður refsivert að bjóða fram eða miðla kynmökum í opinberum auglýsingum. Þetta er vissulega mikil breyting miðað við gildandi lög þar sem refsivert er að stunda vændi. Allt bendir til að til undantekninga heyri að nokkur mann- eskja kjósi að hafa tekjur af því að selja líkama sinn. Hér hefðu margir viljað ganga enn lengra og fara „sænsku leiðina“ sem svo er kölluð en samkvæmt henni er refsivert að kaupa vændi. Þessi leið hefur verið farin í löggjöf í Svíþjóð en aðrar norrænar þjóðir hafa ekki kosið að fara hana. Talsmenn frelsis til að kaupa og selja kynlífsþjónustu minna iðulega á að vændi sé elst atvinnugreina. Á móti má benda á að fjölmargar atvinnugreinar sem stundaðar hafa verið í gegnum aldir og árþúsund hafa úrelst vegna samfélagsbreytinga. Svo ætti einnig að vera um vændi í samfélagi þar sem jöfnuður og reisn teljast til mannréttinda. Sömuleiðis er bent á að þær konur, og karlar, sem stundi vændi hafi valið sér þessa leið til að afla sér lífsviðurværis. Rétt eins og aðrir velji að vera læknar, leikskólakennarar eða að standa bak við búðarborð í verslun. Þetta er mikil einföldun. Allt bendir til að til undantekninga heyri að nokkur manneskja kjósi að hafa tekjur af því að selja líkama sinn. Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem stunda vændi er konur sem eru afar illa staddar félagslega og oft iðka þær þessa atvinnu til að standa straum af kostnaði vegna fíkniefnaneyslu. Það telst í það minnsta áfangasigur að afnema refsingu fyrir þá neyð sem það er að selja líkama sinn. Tíminn leiðir í ljós hver áhrif þessarar lagabreytingar verða og hvort ástæða er til að ganga lengra bæði varðandi fyrirngar- frest í kynferðisbrotum gegn börnum og í þá átt að refsivert verði að kaupa vændi. Framfarir í frumvarpi um kynferðisbrotakafla hegningarlaga: Vændi er neyð STEINUNN STEFÁNSDÓTTIR SKRIFAR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.