Fréttablaðið - 24.09.2006, Page 14
Andri Þór Guðmundsson,
forstjóri Ölgerðarinnar, er
fertugur í dag. Hann segir
aldurinn leggjast vel í sig
og ætlar sér að sanna það
svo eftir verði tekið að fer-
tugum sé allt fært.
„Mér hefur aldrei liðið
betur og mér finnst ég vera
á besta aldri og til þess að
innsigla það hef ég sett mér
það krefjandi markmið að
klífa á tind Kilimanjaro á
næsta ári og sanna það um
leið að allt sé fertugum
fært.“
Andri segist síður en svo
vera mikill fjallgöngugarp-
ur en það geri viðfangsefnið
enn skemmtilegra. „Ég er
ekki í neitt sérstakri þjálfun
og er enginn sérstakur úti-
vistarkarl fyrir utan golfið
og skíðin en ég ætla að skora
á vini og samstarfsfélaga að
koma með mér í þennan
leiðangur og fer í markvissa
þjálfun áður en ég legg af
stað á næsta ári.“
Andri segist vera annál-
aður gleðimaður og hann
hafi því óhjákvæmilega
þurft að slá upp stórveislu
og vinir, ættingjar og kunn-
ingjar hans gátu sótt gull í
greipar afmælisbarnsins í
gær þegar Andri bauð upp á
afurðir Ölgerðarinnar í
heilmiklu teiti á Domo,
óopnuðum veitingastað Kor-
máks og Skjaldar. „Egils
gull var að sjálfsögðu í önd-
vegi en það má segja að
þetta hafi verið prufu-
keyrsla á staðnum,“ segir
Andri, sem fékk Bogomil
Font til þess að syngja fyrir
veislugesti.
Afmælisdagurinn hefur
frá því í bernsku verið
Andra hugleikinn. „Mér
þykir alltaf voðalega vænt
um þennan dag og þykir
gott að gera mér dagamun,“
segir Andri sem hefur
breyst mikið eftir að hann
fékk fertugsafmælisgjöfina
frá eiginkonu sinni.
„Konan mín gaf mér
augnaðgerð í afmælisgjöf
þannig að ég hef fengið fulla
sjón. Ég fékk gleraugu
þegar ég var sex ára og hef
ekki gengið um gleraugna-
laus síðan,“ segir Andri Þór
sem ætlar að klífa Kiliman-
jaro á næsta ári, fertugur
og gleraugnalaus.
thorarinn@frettabladid.is
24. september 2006 SUNNUDAGUR14
Á þessum degi árið 622
kom Múhameð spámaður
til borgarinnar Medína,
en fyrr um sumarið hafði
hann flúið frá Mekka.
Hegira, eins og flóttinn
er nefndur upp á latínu,
var síðar látinn marka
upphafsár íslamska daga-
talsins.
Múhameð spámaður
fæddist um árið 570.
Hálfþrítugur kvæntist hann
auðugri ekkju og gerðist kaupmaður. Árið 610 er
Gabríel erkiengill sagður hafa birst honum og tjáð
honum að hann væri sendiboði guðs. Eftir það
einkenndist ævi hans af opinberunum sem síðar
var safnað í Kóraninn, trúarrit múslima. Múhameð
boðaði eingyðistrú sem kölluð var íslam og merkir
að gefa sig Guði á vald. Múslimi er sá sem það
hefur gert. Hann predikaði
gegn ríkum kaupmönnum,
sem hann taldi siðlausa
og gráðuga og fordæmdi
fjölgyðistrú og skurðgoða-
dýrkun.
Frændi hans var höfðingi
ættbálksins sem Múhameð
tilheyrði og hélt vernd-
arhendi yfir honum, en
þegar hann féll frá hófust
ofsóknir gegn honum og
fylgismönnum hans, sem
fór fjölgandi. Sumarið 622 stóð til að ráða Múham-
eð af dögum og flúði hann þá til Mekka og kom
þangað á þessum degi sama ár. Þar byggði hann
upp veldi sitt og átta árum síðar var hann orðinn
öflugasti höfðingi Arabíu og lagði Mekka undir sig.
Hann lést árið 632 er veldi hans var rétt að byrja að
breiða úr sér.
ÞETTA GERÐIST: 24. SEPTEMBER 622
Spámaðurinn kemur til Medína
KRISTÍN ÓMARSDÓTTIR RITHÖF-
UNDUR ER 44 ÁRA Í DAG.
„Það er í verkahring
söngvara og skálda að orða
hinar mállausu óskir fólks.“
Kristín leggur Abraham í Eilífðardal
þessi orð í munn í bók sinni Hér.
MERKISATBURÐIR
1621 Fyrsta dagblað Englands
er prentað.
1963 Mjólkurvörur hækka í
verði um fjórðung og
daginn eftir hækkar kjöt
um þriðjung.
1966 Menntaskólinn við
Hamrahlíð er settur í
fyrsta sinn. Fastráðnir
kennarar voru sex.
1968 Fyrsta skurðaðgerðin er
gerð á Borgarspítala í
Fossvogi.
1975 Fyrstu Bretarnir komast á
topp Everest.
1988 Ben Johnson sigrar í
hundrað metra hlaupi á
Ólympíuleikunum í Seoul.
1993 Samtök iðnaðarins eru
stofnuð í Reykjavík.
Fjármögnunarfyrirtækið
Lýsing hélt veglega upp á
tuttugu ára afmæli sitt á
dögunum og bauð starfs-
mönnum og viðskiptavinum
til afmælisfagnaðar í nýju
Laugardalshöllinni. Í gegn-
um árin hefur Lýsing styrkt
ýms hjálparsamtök, þar á
meðal Landssamtökin
Þroskahjálp. Í tilefni þess-
ara tímamóta ákvað Lýsing
að styrkja Þroskahjálp enn
meira með tveggja milljóna
króna framlagi.
Leiðir Lýsingar og
Þroskahjálpar lágu fyrst
saman árið 1987 þegar félög-
in deildu húsnæði saman við
Suðurlandsbraut. Þroska-
hjálp flutti starfsemi sína
árið 2004 og seldi Lýsingu
húsnæðið. Þá gerði Lýsing
styrktarsamning við félagið
til fjögurra ára um 500 þús-
und króna styrk ár hvert.
Ólafur Helgi Ólafsson,
framkvæmdastjóri Lýsing-
ar, afhenti Gerði A. Árna-
dóttur og Friðrik Sigurðs-
syni hjá Þroskahjálp
styrkinn og sagði við það
tækifæri að málefni fatlaðra
væru málefni samfélagsins
alls og að nauðsynlegt væri
að fatlaðir nytu í hvívetna
sömu réttinda og aðstöðu og
ófatlaðir.
Vegleg afmælisgjöf
STYRKURINN AFHENTUR Ólafur Helgi afhendir Gerði og Friðrik styrk-
inn.
AFMÆLI
Garðar Cortes
óperusöngvari er
66 ára.
Inga Jóna Þórðar-
dóttir, formaður
Leikfélags Reykja-
víkur, er 55 ára.
Björg Thorarensen
lagaprófessor er
40 ára.
Ólafur Kjartan Sig-
urðarson söngvari
er 38 ára.
Guðrún Arnardóttir frjálsí-
þróttakona er 35 ára.
ANDRI ÞÓR GUÐMUNDSSON: FERTUGSAFMÆLI MEÐ STÆL
Fer gleraugnalaus
á Kilimanjaro
FÆDDUST ÞENNAN DAG
1821 Cyprian K.
Norwid listmálari
og skáld.
1859 Julius
Klengel tónskáld.
1896 F. Scott Fitzgerald rithöf-
undur.
1911 Konstantín Tsérnenkó,
leiðtogi Sovétríkjanna.
ANDRI ÞÓR GUÐMUNDSSON Fékk fulla sjón í afmælsigjöf frá eiginkonunni
og mun því klífa fjallið Kilimanjaro án gleraugna.
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á
netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5000.
Systir mín,
Kristín Eggertsdóttir
frá Haukagili í Vatnsdal,
lést 11. september sl. Útför hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Svava Eggertsdóttir.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur hlýju og vottuðu virðingu við fráfall
Árna Stefáns Árnasonar
Kristín Þóra Kristjánsdóttir, börn og aðrir aðstandendur.
Kæru ættingjar, vinir og samstarfsfólk.
Samúð ykkar, bænir og þátttaka í sorg
okkar vegna fráfalls elskaðs sonar okkar,
bróður, frænda og barnabarns,
Sigurðar Rúnars Þórissonar
hefur verið ómetanleg.
Við fáum aldrei fullþakkað en biðjum Guð að blessa
ykkur og launa. Sérstakar þakkir til vinahópsins fyrir
ómetanlegan stuðning.
Þórir Rúnar Jónsson Kristín Sæunn Pjetursdóttir
Guðmunda S. Þórisdóttir Sigvaldi E. Eggertsson
Þóra G. Þórisdóttir Sævar Þ. Guðmundsson
Valgerður G. Þórisdóttir Gisler Alex Gisler
Þórir Kr. Þórisson Karen Martensdóttir
Signý Magnúsdóttir
Rakel E. Sævarsdóttir
Þórir H. Sigvaldason
Marten B. Þórisson
Róbert Th. Gisler
Þóra Gunnarsdóttir
LEGSTEINAR
OG FYLGIHLUTIR
Í MIKLU ÚRVALI
Hjartans þakkir til ykkar allra sem studdu
okkur í veikindum og sýndu okkur samúð
og virðingu vegna andláts og útfarar okkar
elskaða
Inga Rúnars Ellertssonar
Skipstjóra frá Eystri-Reyni, Innri-
Akraneshreppi.
Sérstakar þakkir viljum við færa Magnúsi Hafsteinssyni
og Hrafnhildi Sverrisdóttur, starfsfólki Líknardeildar LHS
Kópavogi og starfsfólki 11E LHS, starfsfólki
neyðarþjónustu Mastercard, Gloria Casa á Spáni og Birki
Kristnissyni. Guð blessi ykkur öll. Fyrir hönd aðstandenda
Fjóla Sigurðardóttir
Marteinn Jón Ingason
Kristín, Aðalsteinn, Guðjón, Angela og Agnes.
70 ára afmæli
sunnudaginn 24. sept. ‘06
Pétur Þ. Sveinsson
Furugrund 56, Kópavogi
Í tilefni dagsins munu hann og
eiginkona hans, Dolly Nielsen,
dvelja á Hótel Golden Tulip
Nieuwezijds Kolk 19
Amsterdam 1012 PV
Hollandi