Fréttablaðið - 24.09.2006, Qupperneq 16
24. september 2006 SUNNUDAGUR16
Mér finnst Skálholt vera eins og í álögum. Ég fann þetta
strax frá fyrstu tíð. Hér hafa orðið
miklir viðburðir. Aumingja Ragn-
heiður biskupsdóttir þurfti að
sverja eitthvað á sig henni til niður-
lægingar frammi fyrir fullri
kirkju. Hér fór prestur í poka og
hausar fuku. Þetta er mikill sögu-
staður, mikil saga, og mér finnst
sem Skálholt sé í álögum. Við verð-
um að finna lausnina. Álagablett-
inn. Í Grímsævintýrum var gull-
eplið undir rótum stóru eikarinnar.
Þegar það fannst féll allt í ljúfa
löð. Við verðum að finna þetta eitt-
hvað. Kannski er hausinn á Jóni
Arasyni hér einhvers staðar í
óvígðri jörð. Kannski er þetta eitt-
hvert orð sem vantar. Kærleikur?
Kannski að það sé lausnarorðið?
Ef við opnum fyrir kærleikann þá
kannski hrindum við álögunum?“
segir Hilmar Örn Agnarsson,
organisti í Skálholti.
Fólkið er kirkjan
Hilmar Örn var í fréttum í vik-
unni. Honum var sagt upp störfum
fyrirvaralaust og kom það flatt
upp á margan manninn því
tónlistarlíf í Skálholti hefur staðið
með miklum blóma undanfarin ár.
Fjöldi þekktra tónlistarmanna á
borð við Megas og Diddú hefur
lýst yfir furðu sinni vegna upp-
sagnarinnar en Hilmar hefur
auðgað tónlistarlífið, ekki einung-
is í kirkjunni, heldur í sókninni
allri, með því að stofna til ýmissa
kóra og standa fyrir tónlistar-
uppákomum sem hafa komið Skál-
holti á kortið sem einu helsta vígi
tónlistar á Íslandi. Þar sem brotin
eru mörk milli þess sem telst til
klassíkur og svo alþýðutónlistar.
Hilmar Örn sjálfur er hógvær
þegar afrek hans ber á góma.
Hann sér þetta í víðara samhengi.
„Uppeldis- og skólamál eru ekki
bara reikningur og lestur heldur
hreyfing, tónlist, dans og leiklist.
Sama er með kirkjuna. Við verðum
að sjá kristindóminn í víðara sam-
hengi. Kristur gekk meðal allra. Á
akrinum. Meðal þeirra óhreinustu.
Fólkið er kirkjan. Að vinna með
fólkinu er kristindómurinn. Á
öllum tímum alla daga. Þetta verða
kirkjunnar menn að heyra,“ segir
Hilmar Örn.
Mikið áfall og víðtæk áhrif
Hilmar Örn segir uppsögnina áfall
fyrir sig og fjölskylduna alla.
Kona hans er Hólmfríður Bjarna-
dóttir og saman eiga þau þrjá syni:
Georg Kára, Andra Frey og
Gabríel Daða sem er tíu ára. „Það
verður slæmt fyrir hann að hætta
í Reykholtsskóla nú á miðju skóla-
ári.“
Og áfallið er ekki bundið við
Hilmar Örn einn heldur kemur
það við fjölda manns sem Hilmar
Örn hefur starfað með en hann
hefur á sinni hendi kirkjukór, þrjá
barnakóra, Kammerkór Suður-
lands og ýmsa tónlistarhópa auk
þess sem hann hefur gengist fyrir
ýmsum tónlistarviðburðum í sókn-
inni sem skipað hafa sér sess.
„Jájá, hlutverk mitt í sveitinni
er stórt varðandi allt tónlistar-
hald, allar athafnir og ýmsa
atburði. Þetta tengist víða.“
Ekkert hefur vantað upp á að
Hilmar Örn hafi fundið fyrir
stuðningi og hefur verið látlaust
verið hringt í hann undanfarna
daga. Og honum borist skeyti.
„Við finnum fyrir stuðningi úr
öllum áttum. Meira að segja frá
prestum sem skilja þetta ekki.
Organistafélagið hefur staðið sig
vel og verið í stöðugu sambandi.
Þar spyrja menn: Er þetta eitthvað
sem organistar geta átt yfir höfði
sér?“
Spurður hvort verið geti að
klerkar beri takmarkaða virðingu
fyrir starfi organistans segist
Hilmar Örn hafa talið að það
heyrði til fortíðinni.
„Það er annað landslag í þeim
efnum en áður var. Nú ríkir meiri
skilningur. Eða ætti að gera það.“
Nýtt skipurit
Sjálfur á organistinn erfitt með að
átta sig á því hvað leiddi til upp-
sagnar hans.
„Það eina sem má segja með
vissu er að í janúar kemur nýtt
skipurit fyrir Skálholt. Sem þess
vegna er gamall draumur minn.
Allt frá því við komum hingað árið
1991 hef ég sagt að staðurinn og
starfsemin hér séu of skipt. Skól-
inn, kirkjan og staðurinn. Það
getur ekki verið farsælt að þetta
séu þrjár einingar og ég hef til
dæmis aldrei verið starfsmaður
skólans og þar hefur verið ákveðið
sambandsleysi. Þó hefur það farið
eftir einstaklingum hverju sinni.
Þegar dr. Pétur Pétursson var hér
tvö ár rektor unnum við náið
saman og gerðum frábæra hluti
saman. Settum til dæmis upp „Víst
mun vorið koma“ þar sem Páll
Rósinkrans og Maríanna Más-
dóttir komu og sungu með. Kirkju-
kantata sem byggir á Opinberunar-
bók Jóhannesar.“
Djassað í kirkjunni
Með Hilmari Erni kom nýr tónn.
Allt í einu var til dæmis djasstón-
list komin í kirkjuna með tónlistar-
mönnum eins og Karli Möller,
Guðmundi Steingrímssyni og
hinum biskupsættaða Sigurgeiri
Sigmundssyni svo dæmi séu
nefnd. Popp- og rokktónlistar-
menn hafa komið við sögu við tón-
listarhald í Skálholti eins og Gunn-
ar Þórðarson, Páll Óskar, Egill
Ólafsson og lengi má áfram telja.
Þeirri kenningu hefur verið
haldið fram að Hilmar Örn hafi
farið full glannalega í nýjungar
hvað kirkjutónlistina varðar og
það hafi farið fyrir brjóstið á þeim
hinum íhaldssamari innan kirkj-
unnar.
„Þetta hneykslaði og kom við
einhverja,“ segir Hilmar Örn
aðspurður. Að hefðbundin hljóð-
færi hafi ekki verið notuð. En
bendir á á móti að hann hafi staðið
fyrir mörgu því sem göfugast
hefur talist í kirkjutónlist. Eins og
til dæmis samstarfið við hið virta
breska tónskáld John Tavener.
MEGAS Í SKÁLHOLTI Meðal fjölmargra listamanna sem hafa komið fram í Skálholti er
Megas, sem söng þar Passíusálma Hallgríms.
„Þetta verður ekki súrara. En við erum sem betur fer í tónlist og það bjargar
okkur,“ segir Hilmar Örn Agnarsson, organisti í Skálholti. Hann fékk ný-
verið uppsagnarbréf frá Sigurði Sigurðssyni, vígslubiskupi Skálholtsstiftis, og
stjórn Skálholts eftir fimmtán ára gifturíkt starf í sókninni. Algert áfall fyrir
Hilmar og fjölskyldu hans eins og Jakob Bjarnar Grétarsson komst að í viðtali
við organistann og Þeysarann sem á sér býsna forvitnilega sögu.
Organisti og rokkari
Guði til dýrðar
Á pönktímabilinu var Hilmar
Örn bassaleikari í einhverri allra
flottustu og framsæknustu
hljómsveit sem komið hefur
fram á sjónarsviðið. Þeysurun-
um. Frægt og umdeilt er einmitt
myndband þeirra við lagið Rúd-
olf sem var í kvikmynd Friðriks
Þórs, Rokk í Reykjavík. Þar voru
þeir í nasistabúningum og hinir
djöfullegustu að sjá.
„Já, það hafa kannski ekki
margir áttað sig á því en við
Þeysararnir vorum í grunninn
trúarleg hljómsveit. Guðlaugur,
stærðfræðisénið, hefur alltaf
verið í beinu sambandi við guð-
dóminn í gegnum tölur svo dæmi
sé nefnt. Við vorum að vinna með
element og tónbil sem bönnuð
voru í miðaldakirkjunni. Við vild-
um opna fyrir leiðina upp. Þetta
voru kraftar sem menn voru
hræddir við. En kraftar sem búa
í jörðinni. Díabólus in músíka.
Við notuðum þetta af mikilli fag-
þekkingu. En þetta er allt meira
og minna um guð. Og almættið.“
Hilmar Örn segir örlög nán-
ustu samstarfsmanna Þeysar-
anna enga tilviljun; Guðni Rúnar
Agnarsson sé nú prestur í Sví-
þjóð og Hilmar Örn Hilmarsson
allsherjargoði.
„Þetta er algerlega í eðlilegu
framhaldi af því sem við vorum
að gera í Þeysurunum. Öll sönn
músík felur í sér boðskap.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
Ö
R
Ð
U
R
Þeysararnir trúarleg hljómsveit