Fréttablaðið - 24.09.2006, Side 17

Fréttablaðið - 24.09.2006, Side 17
Sem leiddi til þess að hann samdi sérstakt verk fyrir Kammerkór Suðurlands. „Það verk er merkilegt fyrir margra hluta sakir. Til dæmis býr múslimi til textann sem er allur um Maríu mey. Mjög magnað.“ Stoltastur er Hilmar þó af barnakórastarfi sínu og segir af merkri för Kammerkór Biskups- tungna til Japan en kórinn var full- trúi Íslands á heimssýningunni á síðasta ári. Óvænt uppsagnarbréf Þó að Hilmar Örn hafi aldrei órað fyrir því að uppsagnarbréf væri á leiðinni sagði hann að eitt og annað hefði verið skrýtið eftir á að hyggja. Hann hafi verið skipaður í nefnd ásamt Herði Áskels- syni og Kristjáni Val Ing- ólfssyni um nýjar tillögur í skipurit fyrir tónlistarsvið- ið. En aldrei var fundur haldinn í þeirri nefnd. „Svo fæ ég óljósar fregnir á miðju sumri um að til standi að leggja stöðu organistans niður eða breyta henni. Á sama tíma var verið að bjóða mér að sækja um ýmsar stöður, svo sem organistans á Selfossi. Ég var aldrei uggandi enda hafði ég verið fullvissaður um að engu væri að kvíða.“ Svo í september er kominn annar tónn í umræðuna. Hilmar var boðaður á fund sem hann segir hafa verið tilgerðarlegan. Þar var honum boðið að setja fram sín sjónarmið en ekki var mikið hlust- að á það. „Ég fann að málið var komið í eitthvert ferli en datt ekki í hug að það ætti að segja mér upp. Viku síðar, 14. september, fékk ég afhent uppsagnarbréf.“ Ætlaði alltaf að verða organisti Uppsagnarbréfið er frá stjórn Skálholts en í henni sitja þeir Sig- urður vígslubiskup Sigurðsson formaður, Halldór Gunnarsson í Holti og þriðji er Jóhann Björns- son. Hilmar Örn segir ekkert óeðli- legt við að fólki sé sagt upp störf- um standi þannig á. En segir það býsna harkalegt af kirkjunnar mönnum að eftir fimmtán ára starf bjóðist aðeins þriggja mánaða upp- sagnarfrestur fyrir organista. Og ofan í kaupið er ætlast til þess að hann spili eftir sem áður við kirkjulegar athafnir eins og ekk- ert hafi í skorist. Allt þar til upp- sögnin taki gildi. „Hér hefur orðið trúnaðarbrestur en samt er ætlast til þess að ég spili eins og ekkert sé.“ Líklega er einfeldningslegt að spyrja organistann hvort hann sé trúaður. Enda stendur ekki á svör- um. „Já, við erum mjög trúuð. Þess vegna valdi ég kirkjuna. Ég hef alla tíð verið mjög trúaður. Ég vissi alltaf hvað ég ætlaði að gera. Að vinna í Guðs ríkinu og með fólki. Ég ætlaði mér alla tíð að verða organisti.“ Heimsfrægð eða kirkjan Ekki verður hjá því komist að spyrja Hilmar Örn nánar út Þeys- arana sem voru ekki beinlínis eins og kórdrengir þar sem þeir frömdu sína myrku tónlistargjörninga – sannast sagna fremur demónískir. „Við notuðum þessa demónísku krafta. Fórum í andstæðan búning. Það hefði verið frekar hlægilegt ef Þeysararnir hefðu verið í hvítum kyrtlum. Þetta gerðum við kannski til að fela og ná fram sterkari áhrifum.“ Þeysararnir nutu mikillar virð- ingar. Og voru komnir með annan fótinn til útlanda þar sem þeir voru komnir á mála hjá enska útgáfufyrirtækinu Shout. Höfðu farið í tónleikaferðalag um Skand- inavíu og áttu í samstarfi við Kill- ing Joke og til stóð tónleikaferða- lag með hljómsveitinni Cure. Þá verður ákveðinn vendipunktur hjá Hilmari um miðjan níunda áratug síðustu aldar. „Annað hvort færum við á þetta flakk, að túra um heiminn eða ég færi að vinna með fólki í sveitum Íslands. Og spila Bach. Ég valdi þann pólinn. Þótti það meira aðkall- andi en hendast í rútum milli staða. Kuklið tók við kyndlinum, hélt áfram þar sem Þey sleppti, svo Sykurmolar og Björk. Þau gengu að einhverju leyti inn í gamla samninga okkar.“ Úr hörðu rokki í barnastarf og Bach Þeysararnir gerðu sjö plötur, heil- ög tala segir Hilmar. Og bendir á að táknrænt hafi verið að í síðasta myndbandinu, „The Blood“, hafi páfinn verið notaður. „Ég var búinn að spila gat á allar þessar bassalínur. Ég samdi mikið af þessu Þeysaraefni. Næsta hljóðfærið var kirkjuorgel. Og það að spila Jóhann Sebastían. 300 árum eldri tónlist. Eðlilegt fram- hald.“ Þeysarar komu saman á þessu ári og spiluðu með Megasi Passíu- sálma í Skálholtskirkju. Á 25 ára afmæli sínu. Þetta fór ekki hátt en þannig er það oft með bestu hlut- ina. Þessi uppákoma var hljóðrituð en Þeysararnir spiluðu allir í 50. sálmi Hallgríms Péturssonar. „Mjög stór stund með Megasi,“ segir Hilmar. Hann segir standa til að endurútgefa eldra efni með Þey og svo sé draum- ur atvinnulausa organist- ans að spila Passíusálm- ana inn á plötu með Megasi. Allir Þeysararnir. „Það er hallærislegt að elta 25 ára gamalt efni. Ef við komum saman aftur þyrfti það að vera nýtt efni,“ segir Hilmar Örn, sem hefur átt í margvíslegu samstarfi með sínum gömlu félög- um. Frá Þýskalandi beint í Skálholtið Leið Hilmars Arnar eftir Þey lá þá til Þorlákshafnar þar sem hann starfaði sem organisti. Þar var hann í tvö ár við Þorlákskirkju. Göfugt og mikil viðbrigði eftir þeysireið með Þeysurum. „Stórkostleg viðbrigði en mér fannst það í réttu samhengi. Fór að vinna með börnum í Þorlákshöfn og við settum upp söngleik.“ Og leiðin var ljós. Hilmar fór til Þýskalands þar sem hann var í sjö ár. Nam tónfræði, orgelleik og kór- stjórn. „Ég lauk kantorsprófi frá tón- listarháskólanum í Hamborg. Þar var ég hjá miklum snillingi, Ger- hard Dickel, sem er aðalorganist- inn í stærstu kirkjunni í Ham- borg. Þetta var mikill lærdómur og námið fór fram fyrir fullri kirkju túrista. Þarna lærði ég líka barrokktúlkun, sem þá var mjög í tísku, hjá konu sem heitir Rose Kirn.“ Að loknu námi var Hilmari Erni boðin staða í Skálholti. Og ekki er ofsagt að segja hann hafa auðgað tónlistarlíf þar verulega. Allt frá fyrstu tíð hefur hann staðið að jólatónleikum þar sem skapað hafa sér fastan sess hjá mörgum Sunn- lendingum. „Þeir verða í ár hvort sem það verður organisti eða ekki. Glæsi- legir að venju. Þar verður Gunnar Þórðarson í stóru hlutverki en hann er ótrúlegur snillingur. Óskar Pétursson og Diddú munu syngja. Með okkur leikur strengjasveit undir stjórn Hjörleifs Valssonar. Þar frumflytjum við nýtt jólalag að venju sem Elín Gunnlaugsdótt- ir á að þessu sinni.“ SKÁLHOLTSKÓRINN Tónlistarstarf Hilmars Arnar í tengslum við organistastöðu hans hefur verið víðfeðmt og víst er að uppsögnin kemur við margan. SKÁLHOLT Hilmar Örn segir að líkt sé og staðurinn sé undir álögum. „Ég hef alla tíð verið mjög trúaður. Ég vissi alltaf hvað ég ætlaði að gera. Að vinna í Guðs ríkinu og með fólki. Ég ætlaði mér alla tíð að verða organisti.“ SUNNUDAGUR 24. september 2006 17

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.