Fréttablaðið - 24.09.2006, Síða 20
24. september 2006 SUNNUDAGUR20
Ég held að ég hafi heillast af stærðinni, í New York er allt stórt,“ segir Hjalti Karlsson
glaður í bragði en hann hélt utan á
vit ævintýranna aðeins tvítugur að
aldri. Þar komst hann inn í hinn
virta listaháskóla Parsons og lærði
grafíska hönnun í þrjú ár. „Ég held
að það sé erfiðara að komast inn í
Listaháskóla Íslands en Parsons,
það er bara dýrara,“ segir Hjalti
spurður hvort ekki hafi verið erf-
itt fyrir tvítugan polla frá Íslandi
að komast inn í þennan virta skóla.
Eftir að náminu var lokið ætlaði
Hjalti að koma aftur til Íslands en
áttaði sig svo á því að það er miklu
meira að gera í Bandaríkjunum
fyrir þessa faggrein. „New York
er full af listamönnum sem eru að
gera það gott en mundu örugglega
ekki lifa af listinni einni á Íslandi.
Hér eru tækifærin og sem betur
fer áttaði ég mig fljótt á því,“ segir
Hjalti en eftir að hann kláraði skól-
ann var hann í lausamennsku hjá
fyrirtækjum í New York til að
byggja upp ferilskrá.
Gerði plötuumslög fyrir Lou Reed
Árið 1996 datt Hjalti í lukkupott-
inn þegar hann byrjaði að vinna
fyrir grafíska hönnuðinn Stefan
Sagmeister, sem er eins konar
lærifaðir grafískra hönnuða í dag.
„Það má eiginlega segja að ég
hafi fengið draumastarfið mitt. Ég
var eini starfsmaður hans og fékk
því að vinna náið með meistaran-
um, sem var mjög góð reynsla.“
Hjalti var mest í því að hanna
plötuumslög fyrir þekktar stjörn-
ur á borð við Lou Reed, Rolling
Stones og Aerosmith.“ Ég elskaði
að vera þarna og hefði aldrei farið
frá Sagmeister ef hann hefði ekki
tekið sér pásu í ár.“
Aldrei löngun í að stofna eigið
Á meðan Hjalti var við nám í
Parsons deildi hann ekki áhuga
samnemenda sinna á að stofna
eigið fyrirtæki. „Það voru allir í
skólanum á leiðinni að stofna hönn-
unarfyrirtæki og „meikaða“. En
einhvern veginn heillaði það mig
ekki og svo kynntist ég Jan,“ segir
Hjalti. Jan Wilker er þýskur graf-
ískur hönnuður sem hafði gert
verkefni með Hjalta og Stefan.
Hjalta og Jan leist það vel á hvorn
annan að þeir ákváðu að kýla á að
stofna fyrirtæki. „Það versta sem
gat gerst var að við myndum fara
að hata hvorn annan og loka stof-
unni eftir ár. Það væri þá bara í
lagi og við hefðum þá að minnsta
kosti prófað að leggjast í svona
verkefni.“ En vinsældir hönnunar-
stofunnar KarlssonWilker hafa
vaxið svo um munar síðan þeir
opnuðu árið 2000 og eru nú við-
skiptavinir stofunnar fjölmargir.
Risarnir kölluðu
Fræg fyrirtæki á borð við MTV og
Puma eru á viðskiptavinalista
KarlsonWilker, sem er ekki slæmt
af ungri stofu í New York. Hjalti
og Jan gerðu auglýsingar fyrir
MTV í einskonar hreyfigrafíkur-
formi sem nú er í spilun á MTV,
vefsíðu þeirra og MTV 2. „Fólkið á
bak við MTV hafði samband við
okkur og vildi nota okkar krafta í
þessa auglýsingu sem átti að leið-
beina fólki inn á ólík svið innan
MTV. Það er frábært að vinna fyrir
MTV því þar er allt leyfilegt.
Maður fær alveg að njóta listræns
frelsis enda menn þar ekki hrædd-
ir við að prófa nýjungar og taka
stór skref.“
Eflaust hafa margir rekist á
nýju skólínuna frá Puma sem er
fáanleg í búðum núna. Hjalti og
Jan hönnuðu þrjár tegundir af
þessari nýju línu, öll munstrin á
þessari nýju skólínu frá Puma.
„Þetta voru bæði mjög skemmti-
leg ævintýri og gaman að vinna
fyrir svona stór fyrirtæki. Vissu-
lega komu þau okkur á kortið að
einhverju leyti, en öll verkefni
okkar eru ólík og skemmtileg á
sinn hátt,“ segir Hjalt, spurður að
því hvort þetta sé hápunktur fer-
ilsins.
Forsetamóttökur í Belgrad
Árið 2003 gáfu Jan og Hjalti út bók
sem ber nafnið „Tell My Why?“ og
er eins konar kennslubók fyrir
unga grafíska hönnuði. „Ég og Jan
vorum sammála um að allar
kennslubækur sem við höfðum séð
voru ljúfar sögur þar sem lífinu
eftir útskrift og stofnun fyrirtækis
var lýst eins og dansi á rósum,
þannig að við ákváðum að gefa út
svona reynslusögu okkar af hinum
harða heimi fyrstu tvö árin eftir að
við stofnuðum fyrirtækið,“ segir
Hjalti en bókin hefur selst í um
8.000 eintökum um allan heim og
hafa þeir fengið fjöldann allan af
þakkarpóstum frá ánægðum les-
endum. „Þetta er í fyrsta og eina
sinn sem við fengum svona mikil
viðbrögð fyrir vinnuna okkar því
venjulega vinna grafískir hönnuðir
bak við tjöldin og fá ekki mikil við-
brögð frá fólki.“
En það er eitt verkefni sem
stendur upp úr hjá Hjalta og það
er dagatal sem hann og Jan tóku
að sér að hanna fyrir serbneskan
markað. Ekki voru þeir neitt ýkja
spenntir fyrir dagatalsgerð en
ákváðu að slá til og héldu til Bel-
grad í tólf daga til að fá innblástur.
„Þegar við lentum grútskítug-
ir og dauðþreytttir eftir
tuttugu tíma flug brá okkur
heldur að sjá fimmtíu mann
móttökunefnd taka á móti okkur,
börn með fána öskrandi „welcome
KarlssonWilker“, alveg fáránleg
lífsreynsla. Þetta var bara eins og
forsetamóttökur. Svo þegar við
vorum að keyra frá flugvellinum
keyrðum við framhjá risastórum
auglýsingaskiltum með mynd af
okkur. Við vorum allt í einu heims-
frægir í Serbíu, algjörlega absúrd
og síðan þá hefur allt farið niður á
við,“ segir Hjalti og skellir upp
úr.
Engin löngun heim
Hjalti er giftur maður og eiga hann
og eiginkona hans von á sínu fyrsta
barni eftir nokkra mánuði. „Ég
svíf um á rauðu skýi þessa dagana.
Löngunin til Íslands kemur stund-
um upp en við erum dugleg að
koma í heimsóknir,“ segir Hjalti
og bætir því við að ástæðulaust sé
að koma heim þegar vel gangi úti.
Ekki eru margir Íslendingar við-
skiptavinir Hjalta en þessa dagana
er hann þó að útbúa ljósmyndabók
fyrir Spessa ljósmyndara sem
kemur út innan skamms.
„Ég elska fjölbreytileikan við
þessa vinnu. Fólk leitar til okkar
með hluti sem við höfum kannski
aldrei gert áður en það treystir
okkur. Það er frábært þegar fólk
er farið að treysta manni og kann
vel við okkar stíl og handbragð,“
segir Hjalti en KarlssonWilker-
hönnunarstofan hefur aldrei aug-
lýst og byggist upp á orðspori einu
saman. „Orðið á götunni er mikil-
vægasti boðberinn og auglýsing-
in,“ segir Hjalti að lokum og held-
ur áfram ævintýrum sínum í New
York, mekka hönnunar og lista.
Ævintýri í New York
MTV Þessi auglýsing er úr smiðju KarlssonWilker og í mikilli spilun um þessar
mundir á tónlistarstöðinni frægu MTV.
FORSÍÐA Hönnunarblað frá New York
gerði stór viðtal við þá félaga Jan og
Hjalta og prýddu þeir forsíðu blaðsins á
skemmtilegri mynd.
PUMA Hjalti og Jan hönnuðu
þrjár gerðir af skóm fyrir Puma
sem eru komnir í búðir núna og
hér er ein tegundin.
PLÖTUHULSTUR Hjalti vann með
einum af frægustu grafísku hönn-
uðum í heimi, Stefan Sagmeister,
og þar voru þeir mikið í því að
hanna plötuumslög fyrir fræga
menn á borð við Lou Reed og
Rolling Stones. Þetta er umslag eftir
KarlssonWilker fyrir hljómsveitina
The Vines.
Hjalti Karlsson lifir íslenska drauminum. Hann á sitt eigið fyrirtæki í New York sem nýtur vaxandi velgengi og á lista yfir við-
skiptavini hans eru meðal annars stórfyrirtæki á borð við MTV og Puma. Hjalti er búinn að búa úti í sextán ár og er ekkert á
leiðinni heim. Álfrún Pálsdóttir sló á þráðinn til Hjalta þar sem hann sat í hringiðu menningarinnar í stóra eplinu.
MIKIÐ AÐ GERA Í BANDARÍKJUNUM „Hér eru tækifærin og sem betur fer áttaði ég mig fljótt á því.“