Fréttablaðið - 24.09.2006, Side 28
ATVINNA
24. september 2006 SUNNUDAGUR8
Rafhönnun hf. verkfræðistofa á rafmagnssviði
hefur áhuga á að bæta við sig fólki.
Leitað er eftir fólki sem sýnir frumkvæði í starfi og lipurð í samskiptum
ásamt því að hafa skipulagshæfileika og jákvætt hugarfar.
Starfssvið A
Ráðgjöf, hönnun og eftirlit með uppsetningu á raf- og
stjórnbúnaði, einkum fyrir orkufyrirtæki. Kerfishönnun
stjórnbúnaðar og deilihönnun rafbúnaðar og iðnstýringa.
Einnig kemur til greina þátttaka í gerð hermilíkana á orku-
sviði.
Hæfniskröfur:
• Rafmagnsverkfræðingur með framhaldsmenntun,
M.Sc.
• Góð þekking á stjórnbúnaði orkufyrirtækja æskileg
• Þekking á notkun verkfræðilegra líkana við hönnunar-
störf er æskileg
• Reynsla af forritun æskileg
Starfssvið B
Ráðgjöf, hönnun og eftirlit með uppsetningu háspennu-
kerfa.
Hæfniskröfur:
• Rafmagnstæknifræðingur eða –verkfræðingur af sterk-
straumssviði
• Reynsla æskileg
Starfssvið C
Ráðgjöf, hönnun, forritun, gangsetning og eftirlit með upp-
setningu raf- og stjórnbúnaðar.
Hæfniskröfur:
• Rafmagnsiðnfræðingur, tæknifræðingur eða verk-
fræðingur
• Reynsla æskileg
Starfssvið D
Ráðgjöf, hönnun, og eftirlit með uppsetningu raflagna-
kerfa fyrir byggingar.
Hæfniskröfur:
• Reynsla æskileg
Nánari upplýsingar veitir Skapti Valsson
(skapti@rafhonnun.is) hjá Rafhönnun í síma 530 8000.
Vinsamlegast sendið umsóknir til Rafhönnunar fyrir 12
október n.k. Umsóknir þurfa að innihalda nákvæma lýsingu
á menntun umsækjanda og fyrri störfum og aðrar upp-
lýsingar sem umsækjandi telur að komi að gagni við val
umsækjanda. Farið verður með umsóknir og fyrirspurnir
sem trúnaðarmál.
Verkfræðistofan Rafhönnun
Starfsmenn Rafhönnunar eru um 55. Fyrirtækið er
með vottað gæðastjórnunarkerfi samkvæmt krö-
fum ISO 9001:2000. Stærstu verkefni Rafhönnun-
ar um þessar mundir eru m.a. stækkun Norðuráls
á Grundartanga og nýtt álver Alcoa á Reyðarfirði
einnig útboð og hönnun á rafbúnaði virkjana og
orkuveitna. Rafhönnun hefur um árabil unnið að
ráðgjöf og hönnun vegna uppsetningar stjórn-
kerfa fyrir orkuveitur. Hjá Rafhönnun hefur á und-
anförnum árum verið unnið að þróun herma,
einkum af jarðvarmaorkuverum. Hönnun á raf-
lögnum og sérkerfum fyrir byggingar er verulegur
hluti starfseminnar. Á fjarskiptasviði er m.a. unnið
við ráðgjöf fyrir stærri notendur og jafnframt
hönnun fjarskiptakerfa fyrir fjarskiptafyrirtæki.
Einnig er unnið að ýmsum iðnaðarverkefnum sem
fela m.a. í sér hönnun raflagna og forritun iðn-
tölva og skjákerfa. Starfsmenn Rafhönnunar ann-
ast margvísleg verkefni, jafnt áætlanagerð, út-
boðsgögn, raflagnahönnun, eftirlitsstörf, verkefna-
stjórnun og forritun allt eftir því sem við á.
KÓPAVOGSBÆR
Þjónustudeild aldraðra
Ert þú á besta aldri og í leit að fjölbreyttu
starfi.
• Við hjá heimaþjónustu Kópavogs getum
bætt við okkur starfsfólki. Starfið felur í
sér félagslegan stuðning og aðstoð við
heimilisþrif. Um er að ræða gefandi og
skemmtilegt starf fyrir jákvætt og áreið-
anlegt fólk. Vinnutími og starfshlutfall er
samkomulag.
Umsækjendur verða að vera 18 ára eða eldri
og hafa áhuga á mannlegum samskiptum.
Allar nánari upplýsingar veitir
þjónustustjóri í þjónustudeild
aldraðra
í síma 570-1400.
Félagsþjónusta
Kópavogs