Fréttablaðið - 24.09.2006, Síða 63
SUNNUDAGUR 24. september 2006
þjónustan og þorpin græða á
þessu enda eru veiðimennirnir
neytendur því þeir kaupa mat og
gjafir og hleypa miklu lífi í þessa
litlu staði.“
Island Pro Travel flytur inn um
fimmtíu manns á viku í veiði-
ferðirnar frá apríl fram í septem-
ber, sem er mun lengri tími en
ferðamannatímabilið spannar
almennt. „Fyrstu farþegarnir
koma í apríl og þeir síðustu í sept-
ember þannig að á þessu fyrsta ári
koma um 900 manns til landsins
bara í sjóstangveiðina. Á næsta ári
ætlum við að tvöfalda fjöldann af
því að eftirspurnin er svo mikil.“
Þurfa á ferðamönnum að halda
„Við erum að ljúka við að ganga
frá sams konar verkefni fyrir
breska og hollenska markaðinn
fyrir næsta sumar en við ætlum
að fara með þá ferðamenn á
Austurlandið. Þar munum við
fara á Borgarfjörð eystri, Vopna-
fjörð og Djúpavog en við einbeit-
um okkur að því að fara á litlu
staðina þar sem er rólegt,“ segir
Guðmundur og bætir því við að
fyrstu drög séu komin að því að
ganga frá samningum um að
virkja Norðurlandið fyrir Norður-
landamarkaðinn eftir tvö ár. „Það
skiptir miklu máli að hafa djúpa
firði, skjólgóð svæði og mikið af
fiski og þess vegna eru Vestfirðir,
Austfirðir og Norðurland kjörin
fyrir veiðimennina, auk þess sem
þessi svæði þurfa mest á ferða-
mönnum að halda.“
Guðmundur segir mikla upp-
byggingu í ferðaþjónustu víðs
vegar hér á landi og margir að
gera fína hluti. „Það sem truflar
mest er verðlagningin á gistingu,
mat og drykk. Þess vegna er það
ekkert fyrir venjulegt fólk að
koma hingað. Fólk þarf að greiða
30-40% hærra verð fyrir mat hér
en í heimalandi sínu og það kemur
oft aftan að fólki. Þess vegna er
markhópurinn okkar með hærri
tekjur en gengur og gerist. Meðal-
aldurinn er í kringum 50-55 ára
og almennt er þetta vel menntað
fólk og náttúruunnendur,“ segir
ferðaþjónustufrumkvöðullinn
Guðmundur Kjartansson.
sigridurh@frettabladid.is
RISAÞORSKUR Hamingjusamur þýskur stangveiðimaður um borð í bát á Vestfjörðum
með risastóran og nýveiddan þorsk.
kynnir næstu námskeið:
w w w . i s o f t . i s • i s o f t @ i s o f t . i s • S í m i : 5 1 1 3 0 8 0
MCSA • MCSE • MCDST • CCNA • CISCO
Eini skólinn með viðurkennt Microsoft nám
ITIL Foundation Course
17. – 19. 10. 2006
Einstakt og metnaðarfullt námskeið í bestu aðferðum
í IT þjónustustjórnun. Kennari er hinn kunni ITIL
kennari Dr. Geoff Harmer. Námskeiðið er fyrir fyrirtæki
sem vilja veita bestu IT þjónustuna og einnig
undirbúningur fyrir gæðavottun. Námskeiðinu lýkur
með ISEB prófi, sem er innifalið í verði.
VMware infrastructure 3:
Install and Configure
2. -5. 10. 2006
Fyrir þá sem vilja auka þekkingu sína á VMware og
verða VMware Certified Professional. Frá höfuðstöðvum
VMware kemur David Day sem er einn fremsti VMware
sérfræðingurinn í heiminum í dag.
Önnur sérfræðinámskeið:
2. – 14. 10. 2006
MCDST - Microsoft Certified Desktop Support Technician
9. – 23. 10. 2006
Implementing and Administering Security in a Microsoft Windows Server 2003
Network (2823)
9. – 11. 10. 2006
Designing, Deploying, and Managing a Network Solution for the Small- and Medium-
sized Business (2395).
16. – 19.10. 2006
Administering, Automating andMaintaining a Microsoft SQL Server 2005 Database and
Servers (2789 og 2780).
30.10. – 3.11. 2006
(ISA) Implementing Microsoft Internet Security and Acceleration Server 2004 (2824).
Birt með fyrirvara um breytingar
Fleiri sérfræðinámskeið er að finna á www.isoft.is <http://www.isoft.is>
Hjarta dagurinn
24. september 2006
Hve ungt er þitt hjarta?
Heilbrigt hjarta er forsenda þess að við getum notið lífsins til fulls. Við getum dregið úr
áhættuþáttum og komið þannig í veg fyrir hjartaáfall og hjartaslag með því að borða hollan mat,
hreyfa okkur meira og reykja ekki. Um leið stuðlum við að því að hjartað eldist hægar.
Af þessum ástæðum er Alþjóðlegi hjartadagurinn í ár helgaður þemanu „Hve ungt er þitt hjarta?“
Það minnir okkur einfaldlega á að fólk hvarvetna í heiminum getur notið þess að eiga heilbrigt
hjarta að lífsförunaut.
Með stuðningi frá:
Stuðningsaðilar á alþjóðavísu:
nordic walking
WORLD HEART
FEDERATION ®
A H E A R T F O R L I F E