Fréttablaðið - 24.09.2006, Page 64
24. september 2006 SUNNUDAGUR24
■ pondus Eftir Frode Överli
■ gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
Veðurfar verður sjald-
an tæmandi umræðu-
efni og hafa allir
Íslendingar gaman af
að skrafa um veðrið,
hvort sem verið er að
gagnrýna það eða dás-
ama. Hið fyrra er þó
algengara enda veður-
guðirnir búnir að vera með allt á
hornum sér gagnvart Íslandi þetta
árið.
Nú er haustið komið og grámygl-
an sem einkennir þennan árstíma
lætur ekki bíða eftir sér. Nú eru
rúmar þrjár vikur síðan haustið
gekk formlega í garð með mígandi
rigningu í bland við skínandi sól inni
á milli. Algjörlega stjórnlaust og
maður er í hálfgerðum vandræðum
þegar maður fer út á morgnana,
hvort það verði regnkápan eða létti
sumarjakkinn sem verður fyrir val-
inu. Oftast verður að hafa aukaföt
með í töskunni því veðurfar á klak-
anum er með eindæmum ótraust.
Vettlingar, húfa og trefill eru alltaf
með til öryggis. Þó að sólin skíni og
veðrið sé stillt klukkan níu á morgn-
ana getur komið stormur einni
mínutu síðar.
Þetta gerir það að verkum að
heima hjá mér geri ég varla annað
en að hendast á milli glugga að opna
og loka til skiptis. Ofnar heimilisins
eru undir miklu álagi þessa daga
þar sem ég skipti ört um hitastill-
ingu. Hlýrabolurinn og lopapeysan
eru bæði til taks heima fyrir enda
notuð til skiptis oft á dag.
Þegar þetta er skrifað er veðrið
í höfuðborginni fallegt og stillt og
skiptist fólk á að lofsama veðrið í
kaffipásunum. Sólin er samt sem
áður svo lágt á lofti að mér skildist
á fréttunum í morgun að ekki hafi
verið fleiri umferðarslys á einum
degi og einn sólardaginn. Svona
getur hið góða snúist upp í and-
hverfu sína.
Ég vil samt sem áður enda þenn-
an pistil á að lýsa ánægju minni
yfir að haustið sé gengið í garð.
Þetta er notalegur árstími þar sem
lífið virðist róast og allt fellur í
ljúfa löð eftir átök sumarsins. Á
sumrin eru allir að reyna að keppast
um að nýta tímann sem best. Núna
er hverdagsleikinn tekinn við og
hann er bara alveg hreint ágætur.
STUÐ MILLI STRÍÐA Fljótt skipast veður í lofti
ÁLFRÚN PÁLSDÓTTIR VEIT ALDREI VIÐ HVERJU Á AÐ BÚAST.
Geturðu keypt
djúpsteikinga-
feiti?
Og brúnost!
Jájá, ég þarf
að drífa mig!
Og eitthvað
gotterí!
Jájá!
Uhh ... er
þetta Beta
Og það voru næst-
um allar flöskurnar
utan af áfengi!
Og er það mér
að kenna!
Mundirðu
eftir steik-
ingafeitinni?
Ég krýp fyrir yður,
yðar tign
Má ég færa yður kvöld-
matinn?
Jafnvel
froðubað
með slakandi
ilmolium?
Kannski
flysja utan af
vínberjum fyrir
yður?
Á ég að opna glugga ... eða jafnvel
loka glugga?
Jafnvel loka
glugga?
Brjóta gat í vegg-
inn og setja nýjan
glugga kanski?
Lofaður sé
Allah
Ég lagaði
tölvuna hans
pabba
Ég var búin
að átta mig
á því