Fréttablaðið - 24.09.2006, Blaðsíða 68
Söngkonan Anastacia er búin að
trúlofast kærasta sínum og lífverði
Wayne Newton. Parið byrjaði
saman í mars á þessu ári og er yfir
sig ástfangið að sögn breska blaðs-
ins The Sun. Anastacia mun hafa
fallið fyrir bónorði Newtons, sem
var eitthvað á þessa leið: „Ég get
ekki hugsað mér tilveruna án þín
og vil ég gæta þín alla mína ævi.“
Þykja þetta vel valin orð hjá New-
ton vegna lífvarðarstarfs hans.
Anastacia hefur barist við
brjóstakrabbamein og tók sér frí
frá tónlistinni í nokkurn tíma vegna
þessa en er nú komin aftur á upp á
sjónarsviðið.
Hún er sérlegur talsmaður
baráttunnar gegn sjúkdóminum og
hefur komið fram opinberlega til
að tala um veikindin til að hjálpa
öðrum konum.
Brúðkaup í vændum
ANASTACIA Svífur um á bleiku skýi
þessa dagana þar sem hún er nýbúin
að trúlofast kærasta sínum og lífverði,
Wayne Newton. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
Leikarinn Rupert Everett
er orðinn leiður á hræsn-
inni í Hollywood og þeim
fordómum sem eru í garð
samkynhneigðra í kvik-
myndaiðnaðinum.
Þetta kemur fram í nýrri sjálfs-
ævisögu hans, Red Carpets and
Other Banana Skins, þar sem hann
lætur allt flakka. „Hollywood er
tálsýn,“ segir Everett og bætir því
við að kvikmyndastjörnur séu
loftbólur sem vilji ekkert segja og
megi heldur ekki segja neitt. Þeim
sé borgað fyrir að halda kjafti.
„Svo virðist sem allt sé að verða
hraðara, grimmarara og ógnvæn-
legra, sérstaklega í skemmtana-
bransanum. Það er verið að
skemmta okkur svo mikið að það
er eiginlega ómögulegt fyrir okkur
að hugsa um nokkuð annað. Það
eina sem heldur dampi í fréttun-
um dag frá degi er rassinn á Jenni-
fer Lopez,“ segir hann.
Everett, sem er 47 ára, segist
jafnframt vera orðinn of gamall
til að vera á markaðnum sem sam-
kynhneigður maður. „Enginn vill
mig. Hommar og konur eiga eitt
sameiginlegt, bæði verða ósýnileg
við 42 ára aldurinn. Hver vill ástar-
samband með fimmtugum
homma? Enginn, það get ég sagt
þér,“ segir hann. „Ég gæti kveikt í
mér á hommabar og fólk myndi
bara kveikja í sígarettunum sínum
á mér.“
Ritstjóri sjálfsævisögunnar,
Antonia Hodgson, segir að bókin
eigi eftir að koma fólki í opna
skjöldu. „Þetta er ekki bara enn
ein bókin frá þekktri persónu,“
segir hún. „Hann lætur ekki allt
flakka um einhverja eina mann-
eskju heldur vill hann frekar sýna
hvernig frægðin getur farið með
fólk.“
Í bókinni segir Everett meðal
annars frá gagnkynhneigðum
ástarsamböndum sínum með
Paulu Yates, eiginkonu Bob Geld-
of, frönsku leikkonunni Beatrice
Dalle og leikkonunni Susan Sar-
andon. Skrifar hann líka m.a. um
kynni sín af Andy Warhol, Orson
Welles, Bob Dylan og Donatella
Versace.
Everett er vafalítið þekktastur
fyrir hlutverk sitt í My Best
Friend´s Wedding. Einnig hefur
hann m.a. leikið í Another Country
og ljáð prinsinum fagra rödd sína
í Shrek 2.
Hollywood ekki
fyrir homma
MEÐ MADONNU Rupert Everett leiðir
góðvinkonu sína Madonnu. Everett hefur
gefið út sjálfsævisögu þar sem hann lætur
allt flakka. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Leikarinn Lou Diamond Phillips
hefur verið ákærður fyrir líkams-
árás. Er hann sakaður um að hafa
ráðist á kærustu sína í síðasta
mánuði.
Phillips er
sagður hafa lent
í rifrildi við
kærustuna og
endaði það með
barsmíðum. Á
hann yfir höfði
sér allt að eins
árs fangelsis-
vist og um 140
þúsund króna
sekt verði hann
fundinn sekur.
Phillips, sem
er 44 ára, er þekktastur fyrir hlut-
verk sín í kvikmyndunum La
Bamba og Stand and Deliver. Fer-
ill hans hefur legið niður á við
undanfarin ár. Hefur hann mest-
megnis komið fram í gestahlut-
verkum í sjónvarpsþáttum á borð
við Law & Order og 24.
Phillips ákærður
LOU DIAMOND
PHILLIPS Leikarinn-
ar sem sló í gegn
í La Bamba er í
slæmum málum.
!óíbí.rk004
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
JOHN TUCKER MUST DIE kl. 3, 6, 8 og 10
CRANK kl. 6, 8 og 10 B.I. 16 ÁRA
ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 10.15
TAKK FYRIR AÐ REYKJA kl. 8 og 10.10 B.I. 7 ÁRA
VOLVER kl. 3, 5.50 og 8 B.I. 12 ÁRA
FACTOTUM kl. 3
LEONARD C: Í M YOUR MAN kl. 6
GRETTIR 2 ÍSL. TAL kl. 3
JOHN TUCKER MUST DIE kl. 8 og 10
CLERKS 2 kl. 8 og 10
ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 6
MY SUPER EX-GIRLFRIEND kl. 6
GRETTIR 2 ÍSL. TAL kl. 4
ÁSTRÍKUR & VÍKINGARNIR kl. 4 !óíbí.rk004
Gildir á allar sýningar í
Borgarbíó merktar með rauðu
Heiðarleg, fróðleg
og bráðskemmtileg mynd
"BIÐIN VAR VEL ÞESS VIRÐI, OG SMITH KLIKKAR
EKKI Í EINA MÍNÚTU. FYNDNASTA
GAMANMYNDIN SEM ÉG HEF SÉÐ Á ÁRINU!"
KVIKMYNDIR.IS
EMPIRE V.J.V. Topp5.is
DV
L.I.B. Topp5.is
MEÐ HINNI SJÓÐHEITU SOPHIA BUSH
ÚR ONE TREE HILL.
EKKI HATA LEIKMANNINN,
TAKTU HELDUR Á HONUM!
FRÁBÆR GAMANMYND UM ÞRJÁR VINKONUR
SEM STANDA SAMAN OG HEFNA SÍN Á
FYRRVERANDI KÆRASTA SEM DÖMPAÐI ÞEIM!
TAKK FYRIR
AÐ REYKJA
THANK YOU
FOR SMOKING
JOHN TUCKER MUST DIE kl. 2, 4, 6, 8 og 10
CLERKS 2 kl. 5.45, 8 og 10.15 B.I. 12 ÁRA
ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 5.45, 8 og 10.15
SÝND Í LÚXUS kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15
MY SUPER-EX GIRLFRIEND kl. 5.50, 8 og 10.10
LITTLE MAN kl. 1.50 og 3.50
GRETTIR 2 ÍSL. TAL kl. 2 og 3.50
GRETTIR 2 ENSKT TAL kl. 1.50 og 3.50