Fréttablaðið - 24.09.2006, Page 71
SUNNUDAGUR 24. september 2006 31
Laugardalsvöllur, áhorf.: 1523
Valur KR
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 20–10 (13–3)
Varin skot Kjartan 0 – Kristján 9
Horn 5–6
Aukaspyrnur fengnar 16–18
Rangstöður 2–2
KR 4–5–1
*Kristján 8
Sigþór Júlíusson 6
(78. Guðmundur P. -)
Gunnlaugur Jóns. 7
Tryggvi Bjarnason 6
Vigfús Arnar 5
Skúli Jón 6
(55. Ágúst Gylfas. 6)
Bjarnólfur Láruss. 6
Kristinn Magnúss. 7
Mario Cismek 6
Sölvi Davíðsson 4
(64. Gunnar K. 6)
Grétar ÓIafur 6
*Maður leiksins
VALUR 4–4–2
Kjartan Sturluson 5
Birkir Már 6
Atli Sveinn 5
Valur Fannar 5
Kristinn Hafliðas. 5
Sigurbjörn 6
(86. Þorvaldur M. -)
Pálmi Rafn 7
Baldur Ingimar 7
Matthías Guðm. 6
Guðmundur Ben. 7
(90. Hálfdán Gíslas. -)
Garðar Jóhannss. 7
(88. Örn Kató -)
1-0 Pálmi Rafn Pálmason (18.)
1-1 Grétar Ólafur Hjartarson (38.)
2-1 Garðar Jóhannsson (61.)
2-2 Guðmundur Pétursson (94.)
2-2
Egill Már Markússon (7)
FÓTBOLTI „Mér fannst við spila
gríðarlega vel lengst af í þessum
leik og þess vegna eru þessi úrslit
mjög særandi,“ sagði Willum Þór
Þórsson, þjálfari Vals, í samtali
við Fréttablaðið eftir leik. „Ég
finn til með leikmönnum mínum
fyrir að hafa lagt sig alla fram en
fengið ekkert fyrir sinn snúð. Það
er rétt að við föllum aftar á
völlinn undir það síðasta en við
eigum líka að gera betur í
skyndisóknunum þegar KR-
ingarnir voru komnir svona
framarlega. Við nýttum ekki
okkar möguleika og er refsað.“
Willum sagði árangur Vals í
sumar, 3. sætið í deildinni og
átta liða úrslit í bikar, ekki ná
þeim markmiðum sem lagt hafi
verið upp með í upphafi sumars.
„Við erum ekki sáttir við okkar
árangur. Valur er félag sem gerir
tilkall til bikars á hverju ári. Það
gengur ekki eftir og því eru þetta
vonbrigði. Við sættum okkur hins
vegar við orðinn hlut og komum
sterkari til leiks á næsta ári,“
sagði þjálfarinn að lokum. - vig
Willum Þór Þórsson:
Ætluðum okkur
meira í sumar
FÓTBOLTI Teitur Þórðarson,
þjálfari KR, var að vonum
ánægður með að hafa náð 2. sæti
Landsbankadeildarinnar með
jafnteflinu í gær. „Við vissum það
að jafntefli nægði okkur og við
gerðum það sem þurfti. Það stóð
vissulega tæpt en ég hafði alltaf
trú á mínum mönnum. Nú förum
við í bikarúrslitin vitandi það að
við erum öruggir í Evrópukeppn-
ina og það léttir mikilli pressu af
okkur,“ sagði Teitur eftir leikinn.
Þjálfarinn gerði breytingar á liði
sínu um miðjan síðari hálfleik
sem gerðu sannarlega sitt gagn
en fram að þeim hafði KR-liðið
verið fjarri sínu besta.
„Ég tel það hafa verið eðlilegt.
Óhjákvæmilega fórum við
varlega í þennan leik því við
eigum bikarúrslitaleikinn eftir og
menn vildu alls ekki eiga á hættu
að lenda í meiðslum eða leikbanni
fyrir þann leik. Við gáfumst hins
vegar aldrei upp og á endanum
færði baráttan okkur annað stigið
og þar með 2. sætið.“ - vig
Teitur Þórðarson:
Við gefumst
aldrei upp
FÓTBOLTI Það kom mörgum á óvart
að Teitur Þórðarson, þjálfari KR,
skyldi hafa fengið ungan og lítt
þekktan sóknarmann, Guðmund
Pétursson að nafni, að láni frá ÍR
rétt áður en lokað var fyrir leik-
mannaskipti í Landsbankadeild-
inni í lok júlí sl. Teitur hafði séð
einhverja hæfileika í Guðmundi
og vildi sjá hvort hann höndlaði
gæðin í efstu deild. Hann hefur þó
sennilega ekki órað fyrir því að
hinn nítján ára gamli Breiðhylt-
ingur ætti eftir að tryggja liði sínu
2. sæti Landsbankadeildarinnar
og þar með réttinn til að leika í
Evrópukeppni félagsliða á næsta
ári. Sú varð hins vegar raunin
þegar Guðmundur tryggði KR-
ingum 2-2 jafntefli gegn Val í
Laugardalnum í gær.
„Það gerist ekki mikið betra en
þetta,“ sagði hetjan Guðmundur
við Fréttablaðið eftir leikinn en
hann hafði varla undan að taka á
móti faðmlögum félaga sinna í
KR-liðinu. Guðmundur hafði
komið inn á sem varamaður á 78.
mínútu og þakkaði fyrir sig með
því að skora sitt fyrsta mark í
efstu deild. „Ég held að ég geti
fullyrt að þetta hafi verið eftir-
minnilegasta mark sem ég hef
skorað á ferlinum. Það er bara
vonandi að ég nái einhvern tíma
að toppa þetta,“ bætti Guðmundur
við.
Valsmenn voru eðlilega niður-
lútir í leikslok eftir að hafa látið 2.
sætið ganga sér úr greipum en
þeir geta hins vegar engum nema
sjálfum sér um kennt. Þeir voru
miklu betri aðilinn í leiknum allt
þar til Garðar Jóhannsson hafði
komið þeim í 2-1 á 61. mínútu
leiksins. Þá féll liðið í þá gryfju að
detta aftar á völlinn, KR-ingar
komust inn í leikinn og refsuðu
heimamönnum grimmilega, eins
og áður hefur komið fram.
Leikurinn í gær var annars hin
fínasta skemmtun enda tvö heit-
ustu lið deildarinnar að mætast og
sjálfstraustið eftir því. Valsmenn
blésu í stórsókn frá fyrstu mínútu
og komust verðskuldað yfir með
marki Pálma Rafns Pálmasonar á
18. mínútu. Grétar Ólafur Hjarta-
son jafnaði metin á 38. mínútu, úr
fyrsta markskoti KR í leiknum, en
á þeim tíma hafði Valur hins vegar
átt 11 skot að marki. Yfirburðir
Vals héldu áfram og skiluðu marki
frá Garðari, eins og áður segir, en
eftir það gaf liðið eftir. Teitur tók
áhættu á lokakaflanum með því að
setja aukinn kraft í sókn KR og
átti hún eftir að borga sig og vel
það.
Taplaus hrina Valsmanna í
deildinni frá því 5. júní hélt þó
áfram en á endanum en segja má
að það hafi verið jafnteflin sem
reyndust þeim dýrkeypt á endan-
um. Lokasprettur KR var ekki
mikið verri, 17 stig af 21 mögu-
legu í síðustu sjö leikjunum skil-
uðu liðinu 2. sætinu, árangri sem
Teitur Þórðarson hefur líklega
ekki leyft sér að dreyma um þegar
mótið var hálfnað.
vignir@frettabladid.is
Ótrúleg dramatík þegar
KR tryggði annað sætið
Guðmundur Pétursson, nítján ára Breiðhyltingur, reyndist hetja KR gegn Val
í gær þegar hann tryggði liði sínu 2-2 jafntefli með því að skora á lokamínút-
unni. Markið tryggði KR 2. sæti deildarinnar og sæti í Evrópukeppni félagsliða.
FYRRUM FÉLAGAR BERJAST Garðar Jóhannsson hjá Val fann sig ágætlega gegn sínum
gömlu samherjum í KR í gær og skoraði meðal annars gott mark. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Fyrir lokaumferðina í
Landsbankadeildinni í gær var
ljóst að Breiðablik væri öruggt
með sæti sitt ef liðinu tækist að
sigra Keflavík á heimavelli sínum.
Sú varð raunin og Blikar unnu
góðan og mjög svo verðskuldaðan
2-1 sigur. Gestirnir höfðu ekki að
neinu að keppa í leiknum því ljóst
var að liðið myndi enda í fjórða
sætinu, sama hvernig færi á Kópa-
vogsvelli. Þeir leika bikarúrslita-
leik um næstu helgi og hvíldu þeir
fyrirliða sinn, Guðmund Steinars-
son, í þessum leik en hann er einu
spjaldi frá því að fara í leikbann.
Fyrsta marktilraunin kom á ell-
eftu mínútu þegar Arnar Grétars-
son átti skot úr aukaspyrnu sem
fór naumlega framhjá. Stuttu
seinna fékk Hallgrímur Jónasson
ágætis færi á hinum enda vallar-
ins en skalli hans fór yfir. Það var
svo Magnús Páll Gunnarsson sem
kom Blikum yfir eftir sautján mín-
útna leik þegar hann skoraði eftir
sendingu bakvarðarins Árna
Kristins Gunnarssonar. Örfáum
mínútum síðar var hann svo
nálægt því að skora aftur en þá
skallaði hann framhjá eftir fyrir-
gjöf frá Steinþóri Þorsteinssyni
sem átti mjög góðan leik, sérstak-
lega í fyrri hálfleik.
Eftir tæpan hálftíma var Bran-
islav Milicevic dæmdur brotlegur
innan teigs og Arnar Grétarsson
skoraði af öryggi úr vítaspyrn-
unni, hans fyrsta og eina mark á
tímabilinu. Seinni hálfleikurinn
var ótrúlega bragðdaufur, Kefl-
víkingar voru meira með boltann
en náðu ekkert að skapa sér. Ellert
Hreinsson fékk besta færi heima-
manna þegar hann var nánast
sloppinn í gegn en Kenneth
Gustafsson sýndi fína vörn og
bjargaði.
Pedr Podzemsky lék í hjarta
varnarinnar hjá Blikum í þessum
leik og varð hann fyrir því óláni að
skora sjálfsmark seint í leiknum.
Það breytti þó ekki því að Breiða-
blik vann leikinn enda mun betra
liðið í leiknum í gær. Blikar end-
uðu í fimmta sæti deildarinnar
þrátt fyrir að hafa verið í fall-
hættu fyrir leikinn og endurspegl-
ar það kannski hvernig deildin
hefur verið í sumar. Það er því
ljóst að við fáum Kópavogsslag á
næsta tímabili í Landsbankadeild-
inni en HK er komið upp í úrvals-
deildina í fyrsta sinn í sögu félags-
ins. - egm
Leikmenn Breiðabliks ætluðu greinilega að halda sæti sínu í Landsbankadeildinni:
Blikar skutust upp í fimmta sætið
VONBRIGÐI Þjálfari Vals segir að liðið
hafi ætlað sér stærri hluti á tímabilinu.
FÓTBOLTI Ólafur Kristjánsson,
þjálfari Breiðabliks, tók við liðinu
í fallsæti en náði því markmiði að
halda liðinu uppi. Hann segir það
óráðið hvort hann verði áfram.
„Miðað við þessa niðurstöðu hef
ég vissulega áhuga á því. Ég sest
niður með stjórninni eftir helgi
og þá kemur þetta í ljós,“ sagði
Ólafur, sem var ánægður með leik
sinna manna.
„Við spiluðum leikinn af krafti
í fyrri hálfleik og áttum mögu-
leika á því að bæta við mörkum.
Við höfðum leikinn í okkar
höndum, ef Keflvíkingar höfðu
ekki áhuga á þessum leik er það
algjörlega þeirra vandamál,“
sagði Ólafur. „Markmiðið að halda
okkur í deildinni náðist og gott
betur en það. Fimmta sætið er
betra en öll fimm sætin sem eru
fyrir neðan það. Við hefðum verið
með 22 stig fyrir lokaumferðina
ef við hefðum unnið Fylki. Það
hefði þýtt að við hefðum endað í
fjórða sætinu, sem gefur mögu-
lega Evrópusæti,“ - egm
Ólafur Kristjánsson:
Markmiðinu náð
FÓTBOLTI „Við höfum alltaf haldið í
þá trú að við séum með lið sem
eigi heima í úrvalsdeildinni,“
sagði miðjumaðurinn Arnar
Grétarsson eftir sigur Breiða-
bliks í gær. „Við höfum verið að
spila vel í undanförnum leikjum
og fyrir hönd félagsins er ég
mjög ánægður. Við erum með
marga unga og efnilega leikmenn
og framtíðin er björt.“
Arnar skoraði annað mark
Blika í gær úr vítaspyrnu. „Mér
fannst við fá hættulegri færi í
seinni hálfleiknum en fáum síðan
þetta klaufalega mark á okkur
undir lokin.“
Jónas Guðni Sævarsson var
fyrirliði Keflavíkur í gær. „Við
vorum með hugann við bikar-
úrslitaleikinn um næstu helgi og
því fór þetta svona. Þetta er
klárlega ekki leikurinn sem við
ætluðum að taka með okkur í þá
baráttu. Það var ekkert að ganga
hjá okkur og við þurfum að skoða
hvað við ætlum að gera fyrir
leikinn gegn KR,“ sagði Jónas
Guðni. - egm
Arnar Grétarsson, Breiðabliki:
Eigum heima í
þessari deild
Kópavogsvöllur, áhorf.: 1013
Breiðablik Keflavík
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 8–4 (5–1)
Varin skot Hjörvar 0 – Ómar 3
Horn 4–4
Aukaspyrnur fengnar 10–13
Rangstöður 5–0
KEFLAV. 4–3–3
Ómar Jóh. 5
Guðjón Árni 6
Guðm. Mete 4
(57. Ragnar 6)
Gustafsson 6
Milicevic 2
Hallgrímur Jónas. 4
(33. Einar Orri 6)
Jónas Guðni 6
Baldur Sig. 6
Samuelsen 5
Magnús Sverrir 5
(68. Ólafur Jón 5)
Stefán Örn 4
BREIÐ. 4–5–1
Hjörvar Hafliða. 6
Árni Kristinn 7
Gasic 7
Podzemsky 6
Haaland 6
*Steinþór Freyr 8
Arnór Sveinn 6
Magnús Páll 6
Arnar Grétarsson 7
Kristján Óli 8
Ellert Hreinsson 6
(85. Ragnar -)
*Maður leiksins
1-0 Magnús Páll Gunnarsson (17.)
2-0 Arnar Grétarsson, víti (30.)
2-1 Petr Podzemsky, sjálfsmark (86.)
2-1
Kristinn Jakobsson (7)
ÁFRAM Í EFSTU DEILD Leikmenn
Breiðabliks stigu stríðsdans eftir
sigurinn á Keflavík í gær, sem stjórn-
að var af Kristjáni Óla Sigurðssyni.
Blikar gátu leyft sér að fagna vel og
innilega því með sigrinum stukku
þeir alla leið upp í 5. sæti deildar-
innar, sem hlýtur að teljast mjög
viðunandi árangur hjá nýliðum.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FLUGFERÐ Ólafur Kristjánsson, þjálfari
Blika, var að sjálfsögðu „tolleraður“ eftir
sigurinn í gær.