Fréttablaðið - 24.09.2006, Síða 72
32 24. september 2006 SUNNUDAGUR
Víkin, áhorfendur: 1782
Víkingur ÍA
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 8–7 (4–3)
Varin skot Ingvar 2 – Páll Gísli 2
Horn 2–2
Aukaspyrnur fengnar 18–17
Rangstöður 3–4
ÍA 4–5–1
Páll Gísli 7
Kári Steinn 6
Árni Thor 7
Heimir Ein. 7
Guðjón Heiðar 7
Þórður Guð. 7
(83. Guðm. Böðv -)
Jón Vilhelm 6
Bjarni Guðjónsson 7
Hafþór Ægir 6
(80. Arnar Már -)
Arnar Gunn. 6
Bjarki Gunn. 7
(74. Pálmi Har. -)
*Maður leiksins
VÍKING. 4–4–2
Ingvar Kale 7
*Höskuldur Eir. 8
(84. Andri Tómas -)
Valur Adolf 6
Glogovac 7
Hörður Bjarna. 6
Arnar Jón 6
Jón Guðbrands. 4
Grétar Sigfinnur 7
Daníel Hjalta. 6
Viktor Bjarki 7
Davíð Þór 6
(38. Perry 7)
0-1 Bjarki Gunnlaugsson (23.)
1-1 Rodney Perry (67.)
1-1
Garðar Ö. Hinriksson (8)
Hásteinsvöllur, áhorf.: 155
ÍBV Fylkir
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 13–7 (5–3)
Varin skot Elías 3 – Fjalar 3
Horn 5–6
Aukaspyrnur fengnar 12–9
Rangstöður 2–2
FYLKIR 4–4–2
Fjalar Þorg. 6
Arnar Þór 5
Ragnar Sig. 6
Guðni Rúnar 6
Þórir Hannes. 5
(82. Hermann -)
Gravesen 5
Ólafur Stígs. 6
Páll Einarsson 5
Eyjólfur Héðins. 5
Christiansen 4
(55. Albert Brynjar 4)
Sævar Þór 5
(69. Haukur Ingi 5)
*Maður leiksins
ÍBV 4–4–2
*Elías Fannar 7
Mwesigwa 6
(80. Kristinn Bald. -)
Matt Garner 6
Páll Hjarðar 7
Mark Schulte 6
Ingi Rafn 6
(76. Pétur Run. -)
Atli Jóh. 7
Bjarni Geir 6
Bjarni Rúnar 6
(45. Egill Jóh. 6)
Anton Bjarna. 6
Bjarni Hólm 7
1-0 Bjarni Rúnar Einarsson (13.)
2-0 Ingi Rafn Ingibergsson (34.)
2-0
Erlendur Eiríksson (7)
FÓTBOLTI Víkingur og ÍA skildu
jöfn í Víkinni í gær og komu úrslit-
in fáum á óvart. Jafntefli kom
báðum vel og jafnvel þótt Grinda-
vík hefði unnið sinn leik hefðu
bæði Víkingur og ÍA haldið sætum
sínum í deildinni. Bjarki Gunn-
laugsson kom ÍA yfir í fyrri hálf-
leik en varamaðurinn Rodney
Perry jafnaði metin í þeim síðari.
Leikurinn var ekki flókinn.
Skagamenn voru mun betri í fyrri
hálfleik og heimamenn voru með
talsverða yfirburði í þeim síðari.
Bæði liðin uppskáru eitt mark og
síðasta stundarfjórðunginn virt-
ust leikmenn ánægðir með stöðu
mála og sóttu hreint ekkert að
marki andstæðingsins. Það var í
raun fremur kómísk sjón.
„Það var rosaleg spenna í okkar
mönnum fyrir leik og í hálfleik,“
sagði Magnús Gylfason, þjálfari
Víkings. „Ég skrifa frammistöð-
una í fyrri hálfleik á það. Það sást
að reynslan var öll hinum megin á
vellinum en sem betur fer komum
við mun grimmari til leiks í síðari
hálfleik og skoruðum mark. Við
hefðum átt að skora fleiri,“ sagði
Magnús en Arnar Jón Sigurgeirs-
son skoraði reyndar mark snemma
í síðari háfleik sem var dæmt af
vegna rangstöðu.
„Ég er mjög stoltur af mínu liði
í dag og er ánægður með sumarið.
Við áttum hræðilegan leik í
Hafnarfirði um síðustu helgi en ef
maður lítur á hina sextán leikina
erum við bara óheppnir að vera
ekki komnir ofar,“ bætti Magnús
við.
Arnar Gunnlaugsson og bróðir
hans Bjarki fengu um mitt sumar
það hlutverk að bjarga liðinu frá
falli eftir skelfilega byrjun á mót-
inu undir stjórn Ólafs Þórðarson-
ar. „Þetta var mjög spennandi,“
sagði Arnar. „Þetta hefur reynt
mikið á taugarnar síðustu mánuði
en við sýndum mikinn karakter
og ég held að strákarnir hafi orðið
sterkari fyrir vikið. En við höfum
verið klaufar í allt sumar og kast-
að frá okkur mörgum leikjum. Við
erum með sterkt lið en það vinnur
ekkert lið á pappírnum og slæm
byrjun í vor fór alveg með
okkur.“
Fyrirliði Víkinga, Höskuldur
Eiríksson, var vitanlega hæst-
ánægður með árangurinn. „Ég
held að þetta sé í fyrsta sinn síðan
1991 sem Víkingur nær að halda
sæti sínu í efstu deild. Þessi úrslit
í dag og staðan í deildinni gerir
það að verkum að tímabilið var
frábært hjá okkur því við kom-
umst einnig í undanúrslit í bikarn-
um. Þó að þetta hafi endað í smá
stressi hjá okkur vorum við lengi
vel í sumar í baráttunni um 2.
sæti. Tímabilið hefur verið fyrst
og fremst skemmtilegt og erum
við allir í skýjunum í dag.“
Höskuldur segist sérstaklega
ánægður með árangurinn í ljósi
þess hversu ungt Víkingsliðið er.
„Enginn leikmaður er eldri en 28
ára og vonandi náum við nú að
festa okkur í sessi sem úrvals-
deildarlið. Það getur verið erfitt
að ná í leikmenn og með því að
halda sæti okkar gerum við liðið
okkar að mun fýsilegri kosti.“
- esá
Jafntefli hjá Víkingi og
ÍA og allir skildu sáttir
Víkingur og ÍA gerðu 1-1 jafntefli í Víkinni í gær og tryggðu þannig sæti sín í
Landsbankadeildinni. ÍA hafnaði í sjötta sæti deildarinnar og Víkingur í því
sjöunda og geta bæði lið verið sátt með þá niðurstöðu.
FÓTBOLTI Þjálfarar ÍA, Arnar og
Bjarki Gunnlaugssynir, neita því
ekki að þeir vilji halda áfram að
þjálfa Skagamenn. Þeir tóku við
af Ólafi Þórðarsyni um mitt
sumar þegar staða liðsins var ekki
góð en undir stjórn tvíburanna
hefur leikur ÍA batnað til muna.
„Við höfum haft rosalega gaman
af þessu og maður vill halda
áfram þegar vel gengur,“ sagði
Arnar í samtali við Fréttablaðið í
gær en Guðjón Þórðarson hefur
verið sterklega orðaður við
þjálfarastöðuna á Akranesi á
næstu leiktíð. - esá
Arnar og Bjarki:
Vilja halda
áfram með ÍA
TVÍBURARNIR Hafa gaman af því að
þjálfa og vilja halda því áfram.
FÓTBOLTI Þrátt fyrir að vera í
fimmta sæti fyrir 18. umferð
Landsbankadeildarinnar gátu
Fylkismenn mögulega fallið ef
úrslitin spiluðust þannig í lokaum-
ferðinni. Árbæjarliðið þurfti því
að mæta ákveðið til leiks gegn
ÍBV, sem hafði að engu að keppa
enda fallið í 1. deild. Það voru
samt leikmenn ÍBV sem voru
sprækari allt frá fyrstu mínútu
leiksins og gáfu Fylkismönnum
aldrei möguleika á að komast inn í
leikinn. Lokatölur urðu 2-0, heima-
mönnum í vil, og að lokum gátu
Fylkismenn þakkað FH-ingum
fyrir að hafa náð í stig í Grinda-
vík
Heimir Hallgrímsson, þjálfari
ÍBV, hélt sig við þá taktík að hafa
stóran mann í fremstu víglínu
þrátt fyrir að Andri Ólafsson væri
í banni en hann færði Bjarna Hólm
Aðalsteinsson í stöðu framherja
og hann átti fyrsta hættulega
færið í leiknum en skot hans hafn-
aði í stönginni. Eyjamenn héldu
áfram að pressa og eftir þunga
sókn á 13. mínútu endaði boltinn í
netinu hjá Fjalari markverði Fylk-
is og var það Bjarni Rúnar Einars-
son sem skilaði honum þangað.
Eftir markið komust Fylkismenn
aðeins inn í leikinn án þess þó að
ógna hinum 15 ára markverði ÍBV,
Elíasi Fannari Stefnissyni, veru-
lega. Á 35. mínútu má svo segja að
Ingi Rafn Ingibergsson hafi gert
út um leikinn þegar hann bætti við
öðru marki ÍBV og virtist með því
slökkva endanlega í vonum Fylkis-
manna um að sækja stig á
Hásteinsvöll.
Í seinni hálfleik héldu leikmenn
ÍBV uppteknum hætti og sóttu af
krafti en Fylkismenn virtust frek-
ar treysta á að úrslit úr öðrum
leikjum héldu þeim í efstu deild.
Það mátti samt litlu muna því
hefði Grindavík tekist að skora á
lokamínútunum á heimavelli
sínum gegn FH hefði Árbæjarliðið
fallið með ÍBV. Bjarni Hólm Aðal-
steinsson átti hættulegasta færi
Eyjamanna í seinni hálfleik þegar
hann slapp einn inn fyrir vörn
Fylkis en Fjalar sá við honum.
Elías Fannar þurfti einu sinni að
taka á honum stóra sínum í marki
ÍBV þegar Páll Einarsson átti
góðan skalla að marki sem mark-
vörðurinn sló í slánna. Lokatölur á
Hásteinsvelli 2-0 í síðasta leik ÍBV
í efstu deild að sinni.
„Ef ég á að segja alveg eins og
er þá er ég með óbragð í munnin-
um eftir þennan leik. Við mættum
aldrei til leiks í dag og það að
treysta á einhverja aðra til að
halda okkur uppi er mjög dapurt,“
sagði Leifur Garðarsson, þjálfari
Fylkis, daufir í bragði eftir slakan
leik sinna manna í Eyjum. Honum
var samt létt þegar hann heyrði
lokatölurnar í Grindavík. „Auðvit-
að var gott að heyra lokatölurnar
og ég þakka FH-ingum kærlega
fyrir þau, það er þó hægt að brosa
út í annað á leiðinni heim. Hins
vegar er alveg ljóst að við þurfum
að vinna í okkar málum á næst-
unni, þetta var mjög, mjög lélegt í
dag.“ - jia
Leifur Garðarsson, þjálfari Fylkis, var með óbragð í munninum eftir tap í Eyjum:
Þakka FH-ingum kærlega fyrir
LEIFUR GARÐARSSON Var allt annað en
sáttur með spilamennsku Fylkis í Eyjum
í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
STUÐ Í BÚNINGSKLEFANUM
Víkingar réðu sért vart af kæti eftir að
hafa tryggt sér áframhaldandi veru í
Landsbankadeild að ári. Kampavínið
flæddi í búningsklefanum eftir leikinn
og leikmenn dönsuðu og hoppuðu. Á
litlu myndinni sést Viktor Bjarki Arnars-
son þakka áhorfendum fyrir stuðninginn
í sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
FÓTBOLTI Úkraínski sóknarmaður-
inn Andriy Shevchenko hefur lofað
stuðningsmönnum Chelsea því að
hann fari að raða inn mörkum.
Þessi 29 ára leikmaður var keyptur
til félagsins fyrir metfé í maí en
hann er enn ekki byrjaður að sýna
markaskorunarhæfileika sína á
Englandi og hefur aðeins skorað
eitt mark í fimm leikjum.
„Það tekur sinn tíma að aðlagast
en mér finnst það gerast hratt hjá
mér. Ég mun bráðlega láta að mér
kveða af alvöru. Mér hefur liðið vel
hjá félaginu og bráðum fá stuðn-
ingsmenn sýningu,“ sagði Shev-
chenko, sem skoraði meira en 150
mörk á sjö ára tímabili sínu hjá AC
Milan á Ítalíu.
Andriy Shevchenko:
Ætlar að raða
inn mörkum
SHEVCHENKO Hefur skorað eitt mark
fyrir Chelsea í deildinni.
FÓTBOLTI Bayern München komst
á topp þýsku úrvalsdeildarinnar í
gær með því að leggja i Alemann-
ia Aachen 2-1. Gestirnir komust
yfir í leiknum en svo skoruðu
Claudio Pizarro og Mark van
Bommel og tryggðu Bayern stigin
þrjú. Bayern er með tíu stig eftir
fimm leiki eins og Schalke sem
vann Wolfsburg 2-0. Hertha
Berlín er með níu stig en liðið
gerði 1-1 jafntefli gegn Mainz í
gær. Gunnar Heiðar Þorvaldsson
kom ekkert við sögu þegar
Hannover gerði 1-1 jafntefli við
Bayer Leverkusen. - egm
Þýska úrvalsdeildin:
Bayern komst í
efsta sætið
FAGNAÐ Markinu frá Mark van Bommel
var vel fagnað. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES