Fréttablaðið - 14.11.2006, Page 1
Snær Seljan Thordoddsen lærði glímu af föður sínum
og hefur nú náð langt á sínu sviði.„Ég hef æft glímu frá 10 eða 11 ára aldri,“ segir Snær sem
er nú 23 ára gamall. „Faðir minn Þórólfur Helgason vakti
upphaflega áhuga minn, en hann keppti á árum áður í glímu
og kenndi hana síðan í heimabæ mínum Reyðarfirði, þang-
að sem glíman á rætur að rekja.Snær fór ungur að aldri með föður sínum suður til að
fylgjast með glímumótum og fannst spennandi að sjá hversu
miklir afreksmenn tókust þar á. „Íþróttin höfðaði til mín sem
lítils gutta vegna þess hversu hörð og karlmannleg hún leit
út fyrir að vera,“ útskýrir hann og hlær við tilhugsunina.
Faðir Snæs kenndi honum öll grunnatriðin í glímu og
segir hann samstarf þeirra feðga hafa gengið vonum framar.
„Þegar við fluttum suður hafði hann kennt mér allt sem hann
kunni þannig að ég fékk frekari tilsögn hjá KR og hef eftir
það æft mig mestmegnis sjálfur,“ segir Snær ennfremur.
Snær æfir nú sex sinnum í viku, þar af einu sinni hlaup,
tvisvar sinnum glímu og þrisvar sinnum kraftlyftingar. Að
hans sögn byggja kraftlyftingarnar og hlaupið á æfingará-
ætlun svipaðri þeirri og Ólympíufararnir í frjálsum íþrótt-
um árið 2008 fara eftir.Snær segist jafnframt leggja áherslu á hollt mataræði til
að halda sér í góðu formi. Hann neytir að meðaltali sex mál-
tíða á dag, borðar mikið af skyri og drekkur töluvert af vatni.
„Holl fæða er ekki síður nauðsynleg og góð hreyfing ætli
maður sér að ná langt í glímunni,“ segir hann og bætir við að
það eigi við um alla sem vilji skapa sér nafn í íþróttum.
Krullan nýtur
vaxandi vinsælda
Lærði glímu af
föður sínum
Vetrarlíf
[ SÉRBLAÐ UM ÚTIVIST OG HREYFINGU – ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2006 ]
VAXANDI VINSÆLDIRKRULLU
Ný vetraríþrótt fyrir allaBLS. 2
NÓG AF SNJÓSkíðaferðir erlendis BLS. 4
VAL Á SKÍÐAÚTBÚNAÐIRéttur búnaður
mikilvægur
BLS. 6
SVALT Á SVÖLUM VETRITöff vetrarjakkar BLS. 8
GÓÐUR FÉ
EFNISYFIRLIT
BRETTASTELPAHrönn Kristjánsdóttir gefurstrákunum ekkert eftir. SJÁ BLS. 2
PURE VISIONAugnlinsur fyrir skíðamennSJÁ BLS. 11
Vekur hörð
viðbrögð á Írlandi
Maður á þrítugsaldri hefur kært
líkamsárás til lögreglunnar í Kópavogi, þar sem
fimm piltar koma við sögu. Nokkrir þeirra, eða
allir, réðust að honum við verslun í Kópavogi og
gengu í skrokk á honum. Maðurinn, sem er frá
Portúgal en hefur verið búsettur hér um
nokkurt skeið, kærði líkamsárásina sem slíka
en jafnframt að hún hefði verið gerð á forsend-
um kynþáttafordóma.
Maðurinn fór í verslunina 10-11 við Engi-
hjalla á á laugardagskvöldið fyrir rúmri viku til
að kaupa hluti sem hann vanhagaði um. Þegar
hann kom inn í verslunina voru piltarnir þar
fyrir. Þeir gerðu hróp að honum og hreyttu í
hann ónotum og svívirðingum sem meðal
annars vörðuðu útlendingslegt útlit hans. Eftir
því sem næst verður komist skipuðu þeir
honum að snauta heim og viðhöfðu fleiri
ummæli sem beindust að því að hann væri
útlendingur og ætti að hafa sig á burt.
Maðurinn fór við svo búið út úr versluninni.
Ekki er með öllu ljóst hvað gerðist á planinu
fyrir framan verslunarmiðstöðina, en maðurinn
segir að piltarnir hafi ráðist að sér þar og
gengið í skrokk á sér. Hann flúði aftur inn í
verslunina, en þá hafði afgreiðslumaðurinn
áttað sig á því að ekki væri allt með felldu og
ýtt á öryggishnapp við kassann. Hnappurinn er
beintengdur við lögregluna sem kom skömmu
síðar á vettvang.
Rannsókn lögreglunnar er vel á veg komin,
en samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins
neita piltarnir að hafa haft uppi kynþáttafor-
dóma og ráðist á manninn af þeim sökum. Á
myndum úr öryggismyndavél í versluninni
mátti sjá að maðurinn og piltarnir höfðu verið
inni í versluninni en engin átök voru sjáanleg
þar.
Maðurinn sem kærði árásina á íslenska
eiginkonu og barn hér á landi. Hann var marinn
og lerkaður eftir árásina.
Kærir kynþáttafordóma
Maður á þrítugsaldri hefur kært líkamsárás og kynþáttafordóma. Hann er ættaður frá Portúgal en hefur
búið hér um skeið ásamt eiginkonu sinni og barni. Hann segir piltana hafa gengið í skrokk á sér.
FORSALAN Á NÝJU
JAMES BOND MYNDINA
ER HAFIN Á MIDI.IS/BIO
HEIMSFRUMSÝND
17.11.2006
midi.is/bio
FYRSTUR
MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is
Brottkast þorsks,
ýsu, ufsa og gullkarfa tvöfald-
aðist á milli áranna 2004 og
2005, samkvæmt nýrri skýrslu,
sem birt er á vefsíðu Hafrann-
sóknastofnunar.
Brottkast þorsks var 2.594
tonn í fyrra eða 1,27 prósent af
lönduðum afla. Meiri athygli
vekur að brottkast ýsu var
4.871 tonn árið 2005, eða 5,24
prósent af heildarafla. Þetta er
talsvert hærra hlutfall en var
árið 2004, þegar það mældist
3,1 prósent. Í tonnum talið er
þetta mesta brottkast ýsu síðan
árið 2001.
Ólafur K. Pálsson, fiskifræð-
ingur hjá Hafrannsóknastofn-
un, kom að gerð skýrslunnar.
Hann segir að skýringu á auknu
brottkasti ýsu megi finna í því
að árið 2005 hafi ýsukvóti verið
um það bil tvöfalt meiri en
tveimur árum áður, einnig að nú
veiðist meira af smáfiski. Því
megi segja að þróunin síðustu
tvö ár hafi verið óhagstæð.
Hins vegar hafi umgengni
manna við auðlindina breyst
heilmikið til hins betra til lengri
tíma séð. „Þetta er auðvitað
ekki sú þróun sem við viljum
sjá, að brottkast aukist. Við
teljum þó að þetta sé ekki eins
slæmt og var hér á árum áður,
til dæmis á síðasta áratug, eða
fyrir tuttugu árum síðan. Þá var
mun meira um brottkast, enda
var það ekki ólöglegt þá.“
Allt tiltækt slökkvilið
var kallað að Laugavegi 84 um
kvöldmatarleytið í gærkvöld.
Þar var laus eldur í risinu.
Fólk sem var á neðri hæðum
hússins var látið yfirgefa
bygginguna en enginn reyndist
vera á rishæðinni. Þar var
eldur laus í geymslu. Greiðlega
gekk að slökkva og barst eldur
ekki út frá rishæðinni í aðrar
íbúðir hússins.
Eftir að slökkviliðið hafði
ráðið niðurlögum eldsins var
unnið að reykræstingu rishæð-
arinnar.
Eldsupptök eru ekki ljós og
vinnur lögreglan nú að rann-
sókn á upptökum eldsins.
Eldur í mann-
lausu risi