Fréttablaðið - 14.11.2006, Side 13

Fréttablaðið - 14.11.2006, Side 13
Miðstjórn Frjálslynda flokksins hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem því er fagnað að umræða um málefni innflytj- enda sé hafin í samfélaginu. Miðstjórnin harmar einnig „að verið sé að ala á fordómum gagnvart flokknum fyrir að vekja athygli á og hefja umræðu um þessi mál“. Í yfirlýsingunni er tekið fram að „öll mismunun í garð trúarhópa eða ólíkra menningarheima er ekki í anda Frjálslynda flokksins“. Miðstjórnin fagnar því að fresta eigi frjálsu flæði frá Rúmeníu og Búlgaríu, sem og átaki í íslensku- kennslu fyrir útlendinga. Harma fordóma í garð flokksins Erlend alþjóðafyrirtæki vilja ekkert frekar en að geta borgað á einum stað í lífeyrissjóða- kerfi sem hentar öllum starfsmönn- um sínum. Þarna er tækifæri fyrir íslenska sjóði, sem eru með þróað kerfi sem hentar vel breyttum aðstæðum á alþjóðlegum lífeyris- markaði, en þær stafa af því að fólk lifir lengur og fer fyrr á eftirlaun. Þetta sagði Tryggvi Þór Herberts- son, prófessor við Háskóla Íslands. Til þessa, segir Tryggvi, þarf m.a. að laga íslensk lög um lífeyrissjóði að erlendum lögum, skilgreina nánar stoðir lífeyrisins og markaðssetja Ísland sem miðstöð lífeyrisrekstrar. Markaðssettir erlendis Haldið var upp á sextíu ára afmæli Vestmannaeyjaflugvallar með pomp og prakt á laugardag- inn. Afmælið var haldið á vellinum sjálfum að viðstöddu nokkru fjölmenni, þrátt fyrir að mörg fyrirmenni úr flugheiminum á Íslandi gætu ekki mætt vegna þess að ekki var byrjað að fljúga milli lands og eyja þegar athöfnin hófst. Bragi Í. Ólafsson, umdæmis- stjóri Flugfélags Íslands, tók við fyrstu kökusneiðinni frá starfs- mönnum Flugmálastjórnar. Í flugstöðinni var hægt að berja augum myndir og skjöl úr safni vallarins. Vestmannaeyja- völlur 60 ára Fiskafli í október var 87.230 tonn sem er svipað og á sama tíma í fyrra. Botnfiskaflinn í október var 40.943 tonn sem er 838 tonnum minna en í október í fyrra. Þorsk- og ýsuafli var rúmlega þrjú þúsund tonnum minni í ár. Á móti samdrætti í botnfiskafla vó meiri afli í ufsa og karfa í ár. Þar sem þorskur og ýsa er talsvert verðmætari afli en ufsi og karfi má reikna með að verðmæti októberaflans sé minna en í fyrra. Síldaraflinn í október var rúmlega 43 þúsund tonn eins og í fyrra. Heildaraflinn í ár var í lok október orðinn 1.142.451 tonn sem er 355 þúsund tonnum minni afli en á sama tíma í fyrra sem stafar af minni loðnuafla í ár. Minna verð- mæti en í fyrra 70 prósent þeirra sem heyra raddir hafa lent í áföllum segir Ron Coleman, fyrirles- ari á ráðstefnu Rauða krossins um geðklofa. Guðbjörg Sveinsdóttir geðhjúkrunarfræðingur var ein þeirra sjötíu sem sóttu ráðstefnuna og var hún mjög hrifin af nálgun Rons Coleman á heimi þeirra sem heyra raddir. „Coleman á sér merkilega sögu en hann var inni og úti af geðdeildum í tíu ár vegna radda sem hann heyrði og heyrir enn. Það var ekki fyrr en hann komst í kynni við samtök fólks sem heyra raddir að hann fór að ná bata,“ segir Guðbjörg. „Í samtökunum er það viðhorf ríkjandi að raddirnar séu raunverulegar en ekki líffræði- legt fyrirbæri sem hægt sé að lækna með lyfj- um. Coleman hefur einnig lesið sér til um rann- sóknir sem sýna að aðeins 33 prósentum þeirra sem heyri raddir gagnist lyf en í 67 prósentum tilfella þurfi annað og meira til. Coleman komst að því að meirihluti þeirra sem heyra raddir hefur lent í áföllum en hann var misnotaður af kaþólskum presti aðeins tíu ára gamall.“ Guðbjörg nálgun Colemans mjög merkilega. „Einkennin þykja yfirleitt benda til geðklofa, sem hægt er að halda niðri með lyfjum. Cole- man er hins vegar mikill efasemdamaður sjúk- dómsgreininga en leggur þess í stað áherslu á að fólk taki ábyrgð á eigin lífi og flýti þannig batanum. Vill að fólk taki ábyrgð á eigin lífi Engar hömlur á verslun í Flugstöð Leifs Eiríkssonar Að gefnu tilefni skal það tekið fram og ítrekað að þrátt fyrir nýjar öryggisreglur geta farþegar eftir sem áður keypt allan vökva, krem og aðrar snyrtivörur á frísvæði Flugstöðvarinnar hvort heldur sem þeir eru að fara af landi brott eða koma til Íslands. Allar upplýsingar um verslun í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og nýjar öryggisreglur er að finna á heimasíðu Flugstöðvarinnar www.airport.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.