Fréttablaðið - 14.11.2006, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 14.11.2006, Blaðsíða 24
Eyjólfur Þorkelsson og Stefán Ágúst Hafsteinsson, lækna- nemar við Háskóla Íslands, eru í forsvari fyrir nýstofnað Lýðheilsufélag læknanema. Fyrirmyndin er fengin frá alþjóðasamtökum lækna- nema, IFMSA, en starfsemin er þróuð í samvinnu við Skrifstofu kennslu, vísinda og þróunar (SKVÞ) á Landspítala - háskólasjúkrahúsi og aðra sérfræðinga þar. Lýðheilsustarf er að verða enn sýnilegra en fyrr. En ekki allir vita um hvað það snýst í raun og veru. „Lýðheilsa snýst um sameigin- lega vinnu samfélagsins sem heildar til að fyrirbyggja sjúk- dóma, efla heilsu og lengja líf almennings,“ segir Eyjólfur Þor- kelsson. Upplýsingar frá Alþjóða- heilbrigðisstofnunni, WHO, benda til að heilbrigðiskerfið eitt og sér ráði einungis 10 til 20 prósentum af raunheilbrigði þjóða. „Það eru fjölmargar og samsettar ástæður fyrir langflestum sjúkdómum og skýrustu dæmin eru ef til vill reykingar og fátækt sem eru ekki afmörkuð heilbrigðisvandamál, heldur snerta fleiri hliðar samfé- lagsins,“ segir Eyjólfur og heldur áfram. „Heilbrigði byggist á lík- amlegri, félagslegri og andlegri vellíðan og með þverfaglegu sam- starfi má vinna að heilsueflingu og almenningsfræðslu á breiðum grunni. Við viljum einfaldlega leggja okkar af mörkum,“ segir Eyjólfur. Samnemi Eyjólfs, Stefán Ágúst Hafsteinsson, tekur í sama streng. „Markmiðið er að virkja einstakl- inginn til að vinna að eigin heil- brigði á sínum forsendum.“ Stofnfundur félagsins er fram- undan og nú eru virkir félagar um fimmtán talsins sem allir vinna sjálfboðavinnu. „Það er nauðsynlegt að hafa eitthvað upp- byggilegt fyrir stafni utan náms- bókanna á sama tíma sem starfið tengist náminu beint,“ segir Eyj- ólfur. Læknanemarnir fá leiðsögn og góðan stuðning frá sérfræðingum á Landspítalanum. „Öll verkefni og skrif sem við sendum frá okkur fer í gegnum okkar leiðbeinendur sem eru sérfræðingar á ýmsum sviðum læknavísindanna, svo við eigum mjög góða að í þessu starfi,“ segir Stefán Ágúst. Einnig er félagið í sambandi við Lýðheilsu- félag Íslands og Geir Gunnlaugs- son lækni sem er í forsvari þar. Eitt af verkefnunum er bangsa- spítali sem hefst vonandi í vor. „Börnin koma með bangsana sína í skoðun til okkar og eru þá í hlut- verki foreldranna,“ segir Stefán Ágúst. „Erlendar rannsóknir sýna að þau börn sem hafa komið á bangsaspítala eru minna hrædd við lækna, bæði sem börn og eins þegar þau verða fullorðin.“ Bangsaspítalinn er því forvarna- starf og markmiðið að fræða börn- in með leik. Önnur mál sem brenna á Lýð- heilsufélaginu er að leiðrétta mis- skilning varðandi heilbrigði og líkamann og nefnir Eyjólfur þar umræðuna um geðsjúkdóma sem dæmi. Einnig er á döfinni að efla umræðuna um líffæra-, blóð- og stofnfrumugjafir og jafnvel vinna markvisst að því að fjölgja gjöf- um. Stefán Ágúst segir félaga vera ólgandi af hugmyndum og hlakka til að taka á móti fleiri verkefnum og hefjast handa. „Aðalmarkmiðið er að fræða almenning og virkja sem flesta til að taka þátt,“ segir Eyjólfur. Lýðheilsufélag læknanema verður með vikulega pistla í Fréttablaðinu sem hefjast um miðjan nóvember. Læknanemar fræða lýðinn Vonir eru bundnar við nýtt lyfjapróf sem hefur verið sett á markaðinn til að klekkja á óprúttnum íþróttamönnum. Prófið er fyrsta sinnar tegundir en það gerir lyfjaeftirlitum kleift að greina minnstu agnir af prótíni, svokölluðu synacthen, í blóðinu. Prótín þetta örvar hormóna- framleiðsu líkamans og eykur afkastagetu þeirra sem neyta þess. Er það því ólöglegt þar sem það veitir íþróttamönnum ósanngjarnt forskot á andstæðinga sína. Hingað til hefur ekki verið hægt að greina téð prótín með lyfjaprófum, sem duga yfirleitt til að finna út hvort viðkomandi hefur sprautað sig með hormónum. Nýja lyfjaprófið markar því tímamót í baráttunni gegn neyslu íþróttamanna á ólöglegum efnum. Eru vonir bundnar við að það verði til þess að íþróttamenn hugsi sig tvisvar um áður en þeir nota slík efni sjálfum sér til framdráttar. Ýmsir óttast þó að lyfjaprófið dugi skammt þar sem ósvífnir aðil- ar leita sífellt nýrra leiða við að þróa og framleiða ólögleg efni sem smjúga fram hjá lyfjaeftirlitum. Frá þessu er greint á fréttavef BBC, www.bbc.co.uk. Hert lyfjaeftirlit líffæri } www.svefn.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.