Fréttablaðið - 14.11.2006, Síða 41
11
Bagalegt getur verið fyrir fólk
sem þarf að nota gleraugu að
fara í skíðaferðir, enda er oftast
ekki heiglum hent að koma skíða-
gleraugununum fyrir yfir hinum
hefðbundnu gleraugum. Þá eru
skíðagleraugu með sjóngleri oftast
sérsmíðuð og rándýr eftir því.
PureVision-linsurnar, sem fást í
flestum gleraugnabúðum landsins,
eru tilvalin lausn á þessu vanda-
máli. Þær eru gerðar úr sílíkoni og
hleypa mun meira súrefni í gegn-
um sig en aðrar linsur. Súrefnið
gerir að verkum að óhætt er að
sofa með linsurnar og fólk getur
notað þær í allt að mánuð án þess
að taka þær úr.
„Linsurnar eru mjög hentugar
fyrir fólk sem stundar íþróttir og
ekki síst fyrir fólk sem er á leið
í skíða-, golf- og alls kyns aðrar
íþróttaferðir. Þá ertu einfaldlega
með linsurnar allan tímann og það
er ekkert vandamál,“ segir Gunnar
Gunnarsson, sjóntækjafræðingur
hjá Auganu, og bætir því við að
auk þess fari PureVision -insurnar
betur með augun heldur en venju-
legar linsur.
„Við lendum oft í því að hjálpa
fólki sem á erfitt með að setja í sig
linsur en er á leið í svona ferðir.
Þá komum við linsunum fyrir rétt
áður en lagt er af stað og síðan
þegar heim er komið eru linsurnar
teknar úr og gleraugun sett aftur
upp. Þetta er mjög hentugt,“ segir
Gunnar.
Linsur fyrir skíðaferðina
PureVision-linsurnar eru tilvalin lausn fyrir gleraugnafólk á leið í skíðaferð.
Fáar íþróttir bjóða upp á eins góða
alhliðahreyfingu og gönguskíða-
mennska. Enda eru skíðagöngu-
menn iðulega þeir sem mælast með
mesta þolið. Ísland ætti að vera eitt
af bestum löndum heims til þess
að stunda gönguskíði en sökum
snjóleysis er raunin önnur og þá
sérstaklega hjá íbúum höfuðborg-
arsvæðisins. Hafa ber þó í huga að
oft getur verið snjór rétt fyrir utan
bæjarmörkin þó að snjólaust sé í
miðbænum.
Þekktar gönguleiðir má finna
víða um land en hægt er að kynna
sér þær á heimasíðunni www.ski-
dasvaedi.is. Þar má einnig finna
afar aðgengilegt og flott kort af
gönguleiðum í Bláfjöllum en til-
valin bílastæði fyrir gönguskíðafólk
eru vestur af skíðaskála Ármanns. Á
þessari heimasíðu má einnig nálgast
bækling sem nefnist Búnaður, áburð-
ur, göngutækni og staðsetningar þar
sem lesa má nánar um undirstöðuat-
riði gönguskíðaiðkunar.
Að lokum má einnig benda á
bækling sem finna má á heimasíðu
Útivistar sem nefnist Gönguskíði -
búnaður og fleira eftir Jósef Hólm-
járn.
Skíðaganga
SKÍÐAGANGA ER EINHVER AL-
BESTA ÍRÞÓTT SEM HÆGT ER
AÐ STUNDA EF NJÓTA Á ÞESS
SEM VETURINN HEFUR UPP Á
AÐ BJÓÐA.
{ vetrarlíf }
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IS
P
31
01
7
0
1/
20
06
www.postur.is
Fljúgandi hálka?
Á veturna er allra veðra von. Við hjá Póstinum beinum þeim
vinsamlegu tilmælum til þín að halda aðgangi greiðum að húsinu
þegar snjóar og strá salti eða sandi á hálkubletti. Aðstoð þín og
tillitssemi auðvelda okkur að koma póstinum til þín hratt og
örugglega hvernig sem viðrar.
Með fyrirfram þökk.